Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 2
2
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
Fréttir
Borgardómur dæmir StuHu Kristjánssyni 900 þúsund í bætur:
Uppsögnin ólögmæt
en Sturla braut trúnað
í Borgardómi var í gær kveðinn
upp dómur í máli Sturlu Kristjáns-
sonar, fyrrverandi fræðslustjóra,
gegn menntamálaráðherra. Borgar-
dómur telur brottvikninguna ólög-
mæta. Einnig er mat dómsins að
Sturla hafi brotið trúnað og að fjár-
málastjórn hans hafi veriö ámælis-
verð.
í dómi Borgardóms segir á þá leið
aö vegna þess að sakir þær sem á
Sturlu voru bornar væru ekki nýtil-
komar og hann ekki sakaöur um
refsivert atferli, þyki aðferð Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi
menntamálaráðherra, við frávikn-
ingu Sturlu úr starfi hafa verið of
harkaleg og fyrirvaralaus og verður
ekki talin lögmæt í skilningi laga nr.
38/1954.
í dómi Borgardóms segir aö við
ákvörðun bóta til Sturlu þyki rétt að
líta til þess að verulegir samskipta-
örðugleikar hafi verið á milli Sturlu
og menntamálaráðuneytisins og að
Sturla hafi gefiö tilefni til þess að
gripið yrði til brottvikningar um
stundarsakir. Sturlu voru dæmdar
900 þúsund krónur í bætur. Hann
hafði krafist sex milljóna króna í
bætur. Þá er ríkissjóði gert að greiða
málskostnað Sturlu 180 þúsund
krónur.
í dómnum er fallist á að fjárstjórn
Sturlu hafi verið ámælisverð á árun-
um 1985 og 1986 og því eðlilegt að
ráðuneytið gerði ráðstafanir til bóta.
Samkvæmt stöðu sinni sem fræðslu-
stjóri laut Sturla skipunar- og
boðvaldi ráðuneytisins í fjármálaefn-
um og bar að fylgja þeim fyrirmæl-
um, sem fyrir hann voru lögð.
Dóminn kvað upp Hjördís Hákon-
ardóttir borgardómari. Meðdómend-
ur voru Jón L. Arnalds borgardóm-
ari og Guðmundur Arnlaugsson
fyrrverandi rektor.
-sme
Sverrir Hermannsson:
Get vel unnt piltinum
að fá einhverjar bætur
„Ég get vel unnt piltinum að fá
einhverjar bætur. Mér sýnist þetta
vera nærri níu mánaða launum. Við
höfum í öðrum tilfellum fallist á að
greiða 12 eöa 13 mánaða laun. Hitt
er aftur annað mál að hann braut
trúnað viö yfirboðara sina og stóð
ekki við starfsskyldur sínar,“ sagði
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
mehntamálaráðherra.
Sverrir taldi að dómur Borgardóms
í Sturlumálinu sýndi að hann hefði
gert rétt þegar hann ákvað að reka
Sturlu Kristjánsson frá störfum.
Sverrir vildi ekki tjá sig frekar um
dóminn en sagðist bíöa afgreiðslu
æösta dómstigs landsins. Hann sagði
að þaö væri í höndum fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs að ákveða
um framhald málsins af hálfu ríkis-
ins.
-sme
Hugsanlegt að ríkið yfirtaki milljarð
- segir Friðrik Sophusson
„Akvörðun Landvirkjunar sýnir
að hún er tilbúin að breyta sveigi-
anlegri verðstefnu. Það er vel,“
sagði Friðrik Sophusson iönaðar-
ráðherra.
„Akvörðun ríkisstjórnarinnar
um að fella niöur fyrir fullt og fast
96 milljóna króna afborganir af
skuldum Orkubús Vestfjarða og
Rafmagnsveitna ríkisins er til þess
að hindra allt að 10 prósent hækk-
un sem hefði orðið á gjaldskrá
þessara fyrirtækja ef þau hefðu
þurft að greiða þessar afborganir.
Þessi fyrirtæki skulduðu um ára-
mót um 1,5 milijarða króna. Það
er nú í skoðun hjá okkur hvemig
staðið verði að því að létta skulda-
byrði þessara fyrirtækja. Þegar
jöfnunargjaldið var afnumið á sín-
um tíma var gengið út frá því að
þessi fyrirtæki væru jafnsett á eft-
ir. Því fer fjarri að svo sé nú.
Kjartan Jóhannsson þingmaður
geröi á þessu úttekt fyrir okkur og
komst að þeirri niðurstööu að rík-
inu bæri að taka yfir vel -rúman
milijarð króna af þessum fyrir-
tækjum. Gjalddagar á næstu
afborgunum eru ekki fyrr en í des-
ember á þessu ári. Ég á von á því
að niðurstaða um hvort og hversu
mikið ríkið tekur yfir af þessum
lánum verði komin þá,“ sagði Frið-
rik. -gse
Olafur Þ. Þórðarson:
Stærri húsin skilin eftir
„Það er að sjálfsögöu skref í átt-
ina að Landsvirkjun skuli lækka
raforkuverðið undir verð á olíu.
Hins vegar vantar enn stefnumörk-
un fyrir framtíðina. Þýðir þetta aö
Landsvirkjun ætli í framtíðinni að
halda raforkuveröi undir erlend-
um orkugjöfum sem eru í sam-
keppni við raforkuna til húshitun-
ar?“ sagði Ólafur Þ.. Þóröarson
þingmaður. Ólafur hótaði stjórnar-
slitum á þingi ef ríkisstjómin gripi
ekki til aðgerða til að lækka ra-
forkuverðið.
„Það er hins vegar einkennilegt
aö þessi lækkun skuli einungis ná
til húsa þar sem fólk býr. Skólar,
atvinnufyrirtæki og önnu þau hús
þar sem enginn býr em utan viö
þessa lækkun. Þetta em einmitt
stór hús þar sem frekar borgar sig
aö leggja út í einhvem kostnað til
að skipta yfir í erlenda og ódýrari
orkugjafa." -gse
Raforka hækkar:
Húshitun greidd niður
Stjóm Landsvirkjunar hefur urskoða þessa ákvörðun með
samþykkt tilfærslur á raforku- hliðsjón af þróim olíverðs um
veröi. Raforkuverð hækkar al- næstu áramót.
mennt um 3,7 prósent. Þá hækkun Samhliða þessari ákvörðun hefur
rekur stjómin til gengisfellingar í ríkisstjómin ákveöiö aö fresta inn-
síðasta mánuði, sem hækkaði er- heimtu á 96 milljónum króna hjá
lend lán stofnunarinnar og afborg- Orkubúi Vestfiarða og Rafmagns-
anirafþeim.Þásamþykktistjórnin veitum ríkisins. Þaö kemur því
að lækka raforku tú húshitunar ekki til hækkunar hjá þessum aðil-
íbúðarhúsa um 14 prósent. Með um sem þeir töldu nauðsynlega til
þessu er raforkuverðið oröiö lægra þess að geta staöiö í skilum.
en verö á olíu. Stjómin hyggst end- - -gse
Sendinefndin fyrir utan Landakotskirkju ásamt kaþólska biskupnum hér á
landi, Alfred Jolson. í nefndinni eru m.a. Lemaitre, sendimaður páfa á
Norðurlöndum, John Gran, biskup í Osló, Roberto Tucci, sem hefur yfirum-
sjón með heimsóknum páfa og fjórir embaettismenn frá Vatikaninu.
DV-mynd GVA
Sendinefndfrá páfanum undirbýr heimsókn hans:
Amarhóll hugsan-
legur messustaður
Hér á landi er nú sendinefnd frá
páfastófi til að undirbúa heimsókn
hans sem verður fyrripartinn í júní
á næsta ári en hugsanlegt er talið að
páfi komi fyrst til Islands í heimsókn
sinni til Norðurlanda.
Sendinefndin, sem er skipuð sjö
mönnum, er hingað komin til að
kynna sér allar aðstæður og'átti hún
fund með fulltrúum utanríkisráðu-
neytisins í gær. Farið er yfir hvaða
leið verður keyrð, tímaáætlun og síð-
ast en ekki síst fundinn mögulegur
messustaður. Nokkrir staðir hafa
verið nefndir sem mögulegir messu-
staðir, m.a. túnið við Landakot,
Laugardalsvöllur og einnig Arnar-
hvoll. Ekki hefur þó verið tekin nein
ákvörðun um staðinn ennþá.
-SMJ
Securitas þrífiir
herbergi á Esju
Öllum ræstingarstúlkum hefur
verið sagt upp á Hótel Esju.
Að sögn Einars Olgeirssonar hótel-
stjóra hefur hótehð gert samning við
Securitas um ræstingu á herbergjum
og öðrum vistarverum. Slíkir samn-
ingar við verktaka væru nú orðnir
algengir á Norðurlöndum.
Einar sagði að allir þeir starfsmenn
sem misstu störf sín fengju nýja
vinnu hjá Flugleiöum, bæði á Loft-
leiðahótelinu og eins í öðrum deild-
um fyrirtækisins.
-gse
Hnífstungumar:
Játningar og
gæsluvarðhald
Maðurinn sem særði félaga
sinn á hálsi með hníf i heimahúsi
í Keflavík hefur nú játað. Hann
hefur verið úrskurðaður í 60 daga
gæsluvarðhald. Honum er og gert
að sæta geðrannsókn. Eftir aö
maðurinn hafði lagt til félaga síns
með hníf hugðist hann svipta sig
lífi. Skar hann sig á púls en sner-
ist hugur og leitaði hjálpar á
Sjúkrahúsinu í Keflavík.
Báðir voru mennirnir undir
áhrifum fíkniefna þegar atburð-
urinn varð. Sá sem beitti hníf á
skemmtistað við Laugaveg í
fyrrakvöld hefur játað aö hafa
veitt maimi áverka. Annar mað-
ur telur sig hafa oröiö fyrir
áverkmn af vöidum hnífamanns-
ins. Ekki hggur játning fyrir um
það atvik.
-sme
Steingrímur
til Washington
Utanríkisráðherra, Steingrím-
ur Hermannsson, mun eiga
viðræður við embættismenn í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu í Washington næsta þriöju-
dag. Þar veröa rædd almenn
samskipti þjóðanna og sérstak-
lega þó hvalveiðar, siglingar fyrir
varnarliðið og viðskipti land-
anna.
Steingrímur fór síðasta
fimmtudagsmorgun til Zurich í
Sviss þar sem hann sat þing Al-
þjóðasamtaka frjálslyndra flokka
en Steingrímur er þar í fram-
kvæmdastjórn. Þaðan fór hann
úl Los Angeles í einkaerindum.
Hann kemur aftur til landsins á
fimmtudag.
-SMJ
Opnað fyrir
erientfé
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra hefur lagt fyrir ríkisstjórn-
ina írumvarp um fjárfestingar
erlendra aðila hérlendis.
Samkvæmt frumvarpinu verð-
ur erlendum aðiliun frjálst að
eiga hér og reka iyrirtæki, með
nokiírum ■ undantekningum þó.
Sjávarútvegurinn veröur þeim
lokaður og þeir mega ekki eiga
nema 25 prósent í bönkum. Flest-
ar aðrar atvinnugreinar, svo sem
iðnaður, landbúnaður, fiskeldi,
verslun og þjónusta, verða lúns
vegar án undantekninga.
-gse
Hið ísienska kennarafélag:
Urskurður Félags-
dóms um veik-
fallsboðun í dag
í dag mun félagsdómur koma
saman og taka fyrir verkfalls-
boðun Hins íslenska kennarafé-
lags sem boðað hefur verkfall 13
apríl næstkomandi hafi samning-
ár ekki tekist fyrir þann tíma. í
Hinu íslenska kennarafélagi eru
kennarar í framhaldsskólum
landsins.
Það sem um er deilt varöandi
verkfallsboðunina er hvort
meirihluti félagsmanna hafi sam-
þykkt hana í atkvæðagreiðslu.
Atkvæöi féllu þannig að 464 voru
samþykkir verkfallsboöun en 462
á móti en 60 skiluðu auöu. Og það
eru einmitt þessi 60 auðu atkvæði
sem deilt er um.
Samningamenn fjármálaráðu-
neytisins halda því fram að
meirihluti þeirra sem taka þátt í
atkvæðagreiðslunni verði að vera
samþykkur verkfailsboðun til
jess aö hún sé gild.
-S.dór