Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Síða 3
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
3
Fréttir
Gengi skráð of hátt
um 18% í árslok
segir Vilhjálmur Egilsson
út úr Seölabankanum og tll viö-
Vilhjámur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs, sagöi á
ráðstefnu Sambands fiskvinnslu-
stöðva í gær að allt stefndi í að gengið
yrði 18 prósentum of hátt í árslok.
Ástæðan væri sá munur sem væri á
verðbólgu>hér og erlendis. Vilhjálm-
ur sagðist vilja fá gengisskráninguna
skiptabankanna og annarra sem
versla rneð gjaldeyri. í stað fastgeng-
isstefnunnar yrði markaðurinn
látinn ráða verði á gjaldeyri og þar
með gengi krónunnar.
í erindi sínu benti Vilhjálmur einn-
ig á að til þess að eiga fyrir öllum
innilutningnum, þyrftum við að
flytja út sem jafngilti öllum Banda-
ríkjamarkaði. Til þess að þess að ná
endum saman þyrfti sem samsvarar
Spánarmarkaði til viðbótar. Svo
hrikalegur væri viðskiptahallinn
orðinn.
-gse
Sérstæðar
messur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Allsérstcéðar messur verða á
sunnudag í Glerárkirkju á Akureyri
og í Dalvíkurkirkju.
í messunum verður íluttur helgi-
leikur sem byggður er á sögunni um
Jónas í hvalnum. Flytjendur veröa
25 manna kór og 7 manna hljómsveit
úr Hafralækjarskóla í Aðaldal. Tón-
hstin er eftir Michael Hurd og text-
inn þýddur og staðfærður af sr.
Kristjáni Val Ingólfssyni og byggður
á texta Gamla testamentisins. Róbert
Faulkner tónlistarkennari og Sigmar
Ólafsson skólastjóri hafa unnið að
þessari uppfærslu með nemendum
sem flestir eru úr kirkjuskólum
Grenjaðarstaðar- og Nessókna.
Messan í Glerárkirkju verður kl.
11 og á Dalvík veröur messan klukk-
an 14.
Eitt af fyrstu verkunum sem framkvæmd verða á byggingarsvæði ráð-
hússins næstu daga verður gerð fyllingar úr möl út í Tjörnina umhverfis
grunn ráðhússins. Fyllingin, sem sést á þessu korti frá Reykjavíkurborg,
skagar mun meira út í Tjörnina en ráðhúsið mun gera og verður hún fjar-
lægð að byggingu lokinni árið 1990. Samkvæmt upplýsingum frá borgaryfir-
völdum er fyllingin nauðsynleg vegna athafnasvæðis verktakans, svo og
til að stifa af stálþil sem rekið verður niður umhverfis grunninn. -JBj
Meirihlutamyndun stúdentaráðs:
Málin að fara í strand
- segir Runólfur Ágústsson í Röskvu
„Mér virðast allar samningavið-
ræður um meirihlutamyndun vera
aö fara í strand. Röskva leggur
megináherslu á samstjórn beggja
fylkinga en Vaka hefur hafnað öll-
um tilboöum okkar,“ sagði Runólf-
ur Ágústsson, einn fulltrúa Röskvu
í samninganefndinni, í samtali við
DV.
Runólfur sagði Röskvu hafa boð-
ið Vöku aö hvor fylking heföi þrjá
af sex 1 stjórn stúdentaráðs og
formaðurinn væri þá úr flokki
Vöku. Því var hafnaö og bauð
Röskva þá að Vaka fengi alla
stjómina gegn því að Röskva fengi
fulltrúa stúdenta í stjóm LÍN og
þann fulltrúa stúdenta sem losnar
í sfjórn Félagsstofnunar stúdenta í
vor. Því hafnaöi Vaka einnig.
„Við bjóðum Vöku heldur betri
stöðu og flnnst það ekki óeðlilegt
þar sem hún hafði nauman meiri-
hluta í kosningunum. Til að
undirstrika sanngirni okkar í þess-
um tilboðum höfum við boðist til
að víxla tilboðunum en Vökumenn
vilja ekki ræða þetta. Það þarf því
róttæka hugarfarsbreytingu hjá
Vökumönum til að frekari viöræð-
ur komi að gagni,“ sagði Runólfur.
Hann sagði jafnvel hugsanlegt að
grípa þyrfti til þess örþrifaráðs að
velja menn í stjórn stúdentaráös
með hlutkesti. „Það væri hörmu-
legt afspurnar fyrir stúdentaráð,
sérstaklega efdr máhð i tann-
læknadeildinni í vetur.“ -JBj
Bjartsýnn á samninga
- segir Amar Jónsson í Vöku
„Staðan í meirihlutamyndun
stúdentaráðs er mjög óljós vegna
þess að samninganefnd Vöku á eft-
ir að leggja tilboð Röskvu fyrir
félagsmenn sína. Ég er þó bjart-
sýnn á að eitthvað gerist á sunnu-
dag þegar samninganefndimar
hittast,“ sagði Arnar Jónsson, full-
trúi í samninganefnd Vöku, í
samtali við DV.
Vaka hafnar alfarið samstjórn
þar sera hún telur að stjómin þurfi
að koma öll úr sömu hreyfmgunni
en um leið sé ljóst að andstæð fylk-
ing geti haft áhrif með sín fimmtíu
prósent í stúdentaráöi. Amar sagði
viðræðugrundvöll hafa myndast
fyrir páska en baknefndarfundur
Röskvu hafi dregið tillögu félagsins
til baka og er staöan því nú á núll-
punkti. Meginágreiningurinn
stendur um hvorum megin fulltrúi
stúdenta í LÍN verður.
Aöspurður sagði Arnar hugsan-
legan möguleika að til teningakasts
komi eða að viöræðum veröi fre-
stað fram í júní. „Ég er bjartsýnn
á aö samkomulag náist fijótlega og
við munum auðvitaö reyna til
þrautar að ná samkomulagi. Ten-
ingakast finnst mér vera kostur
sem fólk talar um en vill ekki nota
nema að allt þrjóti,“ sagði Arnar.
-JBj
Ég gæti nefnt margar ástæður
fyrir því að ég ferðast með
Saga Qass og Euro Qass.
Ein þeirra er sex ára gömul.
Fyrst verð ég að nefna einn jákvæðasta
punkt SAGA CLASS/EURO CLASS sem er
sveigjanleikinn. Ég get lagað ferðalagið að
mínum erindum, þ.e. breytt miðanum á síðustu
stundu ef eitthvað kemur upp á. Það er sem
sagt sjálfsagt mál að skipta um „ferðaskoöun"
fyrirhafnarlaust!
Ferðin þarf heldur ekki að taka meira en
3 daga og þá slepp ég við mikinn
uppihaldskostnað, verulegt vinnutap, þreytu og...
... og þá er það sú sex ára gamla sem ég
nefndi. Það er hún dóttir mín sem varð 6 ára á
dögunum. En ég missti ekki af afmælinu
hennar, þökk sé Saga Class. Erindinu lauk ég
á stuttum tíma og gat flogið heim strax að því
loknu. Allir voru ánægðir, sérstaklega ég.
Augnablik!
Ég nefndi SAGA CLASS/EURO CLASS
saman; þetta er nefnilega samvinna Flugleiða
og SAS. Héðan fer ég á Saga Class og svo
tekur Euro Class við þegar ég ferðast með
SAS. Annars er alla nánari útlistun að finna í
bæklingunum um SAGA CLASS og EURO
CLASS. Þú færð þá á öllum ferðaskrifstofunum,
söluskrifstofum Flugleiða og SAS.
fff/SAS
Laugavegi 3
Sími21199, 22299
FLUGLEIDIR
-fyiir þíg-
Kringlunni
Lækjargötu
Hótel Esju
Sími 690‘100