Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Síða 5
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
5
Stjómmál
Framsókn úr stjórninni?
Framsóknarflokkurinn kann að
fara úr ríkisstjórninni. Margir
telja það nú líklegt. Framsókn
boðar aukafund í miðstjórn sinni,
til að fjalla um stjórnarsamstarfið
og aðallega efnahagsmálin. Búist
er við, að á þessum miðstjórnar-
fundi muni Framsókn setja fram
harðar krþfur í efnahagsmálum,
kröfur sem aðrir stjórnarliðar
geta ekki sætt sig við. Þá gæti svo
farið, að stjómarsamstarflð
splundraðist. Þeir stjórnarliðar,
sem DV ræddi við í gær og fyrra-
dag, telja, að þá
Páll Pétursson formaður þing-
flokks Framsóknar og foringi
stjórnarandstæðinga innan flokks-
ins.
gætu nýjar kosningar orðið næsta
haust.
Framsókn hefur frá byrjun verið
óánægð í stjóminni. Framsóknar-
menn saka krata fyrst og, fremst,
finnst þeir leika einleik og fara
villur vegar. Gagnrýnin beinist
einkum að Jóni Baldvin og Jó-
hönnu. En gagnrýnin ristir miklu
dýpra. Framsóknarmenn segja að
ekki gangi að ríkisstjórnin haldi
að sér höndum, eins og horfurnar
em óglæsilegar í efnahagsmálum.
Þar saka þeir sjálfstæðismenn
einnig. Ekki dugi, að ríkisstjórnin
sitji með hendur í skauti, eins og
horfur eru um viðskiptahalla viö
útlönd, gengi og verðbólgu. Fram-
sókn krefst aðgerða. Hún horfir
mest á frekari gengislækkun, enda
séu útflutningsatvinnuvegir á
kúpunni. Framsókn vill höft til að
minnka viðskiptahallann, tak-
markanir á innflutningi. Þessu
mótmæla aðrir stjórnarliðar, sem
vilja reyna að halda fóstu gengi
eftir sex prósent gengisfellingu
fyrir skömmu.
Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknar, er foringi
þeirra í þeim flokki, sem beita sér
gegn stjórninni. Ólafur Þórðarson
stendur einnig gegn stjórninni.
Guðmundur Bjarnason ráðherra
er talinn hiynntur Páh. Framsókn
hefur oft staðið vel í skoðanakönn-
unum að undanfórnu. En Stein-
grímur Hernjannsson og Halldór
Ásgrímsson ottast, að sundrungin
í Sambandinu kunni að spilla fylgi
Framsóknar um þessar mundir.
Páll Pétursson og hans menn láta
það sem vind um eyru þjóta. Þeir
menn óttast ekki kosningar. Þeir
horfa til vinstri og segja, að fylgis-
aukning Kvennalistans muni
duga þeim, ásamt Alþýðubanda-
laginu, til stjórnarmyndunar eftir
kosningar.
Hroðaleg staða
efnahagsmála
Framsókn hefur vissulega rétt
fyrir sér, aö hörmulega stefnir í
efnahagSmálum.
Góðærið er liðið. Hófsamleg spá
*egir, að kauphækkun síðustu
samninga þýði 16-18 prósent
launahækkun. Verði unnt að
halda gengi fóstu, stefnir samt í
17-18 verðbólgu á árinu. Það er
verst, hvernig horfir um útflutn-
ingsatvinnuvegina. Tap frysting-
arinnar er að verða 7-9 prósent,
og það eftir sex prósent gengis-
fellingu. Tap sjávarútvegs í heild
- gerir harðar kröfur í efnahagsmálum
er að verða 5-9 prósent, eftir því
hvernig dæmið er reiknaö. Erfitt
verður að ganga frá fiskverði, sem
nú er komið á dagskrá. Saltfiskur-
inn fellur. Horfurnar eru, að hallinn
á viðskiptum við útlönd verði yfir
12 milljárða'r króna í ár. Það þýðir
auðyitað sjálfkrafa sláttur á lánum
erlendis. Þetta hefur að sjálfsögðu í
fór með sér, að varla verður unnt
Fréttaljós
Haukur Helgason
að komast hjá gengislækkun. Hún
mundi þýða stóraukin verðbólga
umfram það sem hér var nefnt. Hún
mundi einnig þýöa, að samningar
yrðu lausir aftur, enda bundnir við
rauð strik og græn um verðbólgu.
Það stefnir í ár í eins prósent sam-
drátt á framleiðslu í landinu og
hálfu prósenti meiri minnkun þjóð-
artekna. Viðskiptahallinn verður að
minnsta kosti fjögur og hálft prósent
af landsframleiðslu og líklega mun
meiri. Þetta eru uggvænlegar horf-
ur. Margir framsóknarmenn vilja
setja stjórnarsamstarfinu þá kosti,
að gengi verði fellt um að minnsta
kosti sex prósent í viðbót og beitt
verði höftum.
Stjórnarsamstarfið stendur illa.
Framsóknarmenn eru á þessari
stundu ósammála um viðbrögð, en
stjórnin er í mikilli hættu, enda boð-
aðir skyndifundir meðal stjórnar-
liða. -HH
Riinini-Riccione
Róm, Feneyjar, Flórens, Verona, Gardavatnið, San Marino og sól.
Þú slærð margarflugúr í einu höggi á Rimini. Sólin, sjórinn og öll tilheyrandi
aðstaðaer í takt við aðrarglæsilegustu sólarstrendur Evrópu, en Rimini hefur
I íka afdráttarlausa sérstöðu, sem kryddar tilveruna og eykur fjölbreytnina
langt umfram það sem venjulega gerist á sólarströndum:
EINSTAKAR SKOÐUNARFERÐIR. 3ja daga Rómarferð, 2ja daga ferð til
Verona og Gardavatnsins, dagsferðir til Feneyja, Flórens og San Marino.
Hvar annars staðar bjóðast álíka ævintýri?
FRÁBÆRIR VEITINGASTAÐIR. Rimini-Riccione er eitt af höfuðvígjum
ítalskrar matargerðarlistar. Hérfinnurðu staði sem gefa bestu
veitingastöðum stórborganna ekkert eftir. Sparikvöldin slá í gegn!
Ww!$Íi0IÍi0té
HEIMSFRÆGIR TÍSKUHÖNNUÐIR. Italskirtískuhönnuðir á borð við
Georgio Armani hafaopnaðsínareigin verslanirog hafajafnvel bækistöðvar
sínar á Rimini. Tískuverslanir skipta hundruðum með fatnað eins og hann
gerist glæsilegastur um allan heim!
ÍTALSKT, ÓSVIKIÐ ANDRÚMSLOFT. Þú ert á grónum ítölskum stað með
aldagamla, ósvikna menningu, sem alls staðar finnst fyrir. Aðeins það gefur
Rimini-dvölinni ótrúlega mikla dýpt.
BARNAKLÚBBURINN OG ÍÞRÓTTAKLÚBBURINN bjóða upp á fjölbreytta
skemmtun; leiki, íþróttastarf og dansiböll fyrir alla aldurshópa!
RIMINI-RICCIONE - staður ungs fólks, fjölskyldufólks og eldra fólks.
Staðurallra þeirra sem vilja eina ferð með öllu.
■'' - • 'W!W
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Sími 91-69-10-10
Hótel Sögu við Hagatorg • 91-62-22-77. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-2 72-00
Adrialic Riviera of
Emilia - Romagna i llaly i
Rimini Gatteo a Mare Savignano a Mare
Riccione San Mauro a Mare Bellaria - Igea Manna
Catlolica Misano Adnatico Cervia - Milano Marittima
Cesenatico Lidi di Comacchio Ravenna e'le Sue Manne