Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
9
Ferill Boy George:
Fjórðaverst klædda konan
Einu sinni var hann frægasta popp-
stjarna veraldar. Hann sagðist taka bolla
af tei fram yfir kynlíf og hæddist að öllu
og öllum. Svo hrundi spilaborgin og Boy
George varð alræmdasta poppstjarnan og
fékk uppnefnið Dóp George.
Boy George eða George Alan O’Dowd eins
og hann heitir réttu nafni, hefur alltaf ver-
ið til hálfgerðra vandræða. Þegar hann var
15 ára fekk skólastjórinn í Eltham Green
gagnfræðaskólanum í London nóg af hon-
um. Það var ekki bara vegna þess að hann
var vandræðagemlingur og algerlega
áhugalaus úm námið. Hann mætti í skól-
ann með appelsínugult hár og gekk undir
viðurnefninu Öfugugginn.
Hann var aftur og aftur varaður við en
það kom fyrir ekki og sálfræðingur skólans
úrskurðaði hann „óviðráðanlegan". „Ég
sagði sálfræðingnum bara að hann væri
ljótur,“ viðurkenndi George síðar. Þar kom
að foreldrar hans fengu bréf frá skólastjór-
anum þar sem sagöi að „ekki væri lengur
hægt að ábyrgjast hvað drengurinn gæti
gert sjálfum sér og öðrum hér innan
veggja.“ Með þeim orðum var George rek-
inn.
Sagt er að foreldar hans hafi tekið tíðind-
unum með ró. Faöir hans, Jeremiah,
fyrrum hermaöur og síöar byggingaverka-
maður, á að hafa sagt. „Þetta er bara fyrsta
skrefið. Hann á eftir að verða frægur.“
Móðir George heitir Dianah og vann í
mötuneyti skólans sem George var rekinn
úr.
írskuruppruni
George Alan'er fæddur 14. júní árið
1961 í London þótt hann hafi sjálfur haldið
því fram að hann væri fæddur á írlandi.
Hann er þó af írskum uppruna eins og
ættarnafnið O’Dowd bendir til. Foreldrar
hans fluttu til London skömmu áður en
hann fæddist. George hefur alltaf verið
hreykinn af írskum uppruna sínum og
sagði einu sinni í blaðaviðtah að hann
„vildi frekar vera írskur en enskur. írar
eru uppreisnargjarnari en Englendingar".
George er þriðji í röðinni af sex systkin-
um. Tveir bræður hans, Kevin og David,
vinna við poppiönaðinn. Sá eldri er um-
boðsmaður söngvara en hinn hefur gert
ljósmyndun poppstjarna að sérgrein sinni.
George segist muna fátt úr æsku sinni ann-
að en að hann hafi alltaf verið að bíða eftir
frægðinni. Hann var skáti og þótti standa
sig vel. Einu sinni fékk hann meira aö segja
heiðursmerki fyrir góða frammistöðu við
að heimsækja gamalt fólk á sjúkrahús.
Þægtbam
Hann þótti líka fremur þægt barn. Ge-
orge hefur sagt að foreldrar sínir hafi ekki
sýnt sér mikla ástúð. „Það var þó-þaö sem
ég vildi. Mig langaði að kyssa föður minn.
Ég þráði að hann veitti mér athygli."
Það var á unglingsárunum sem strákur-
inn fór að gerast erfiður. Þegar hann var
14 ára rifust þeir feðgar einu sinni heiftar-
lega. Rifrildiö endaöi á því að George lokaði
sig inni á kósetti en faðir hans braut upp
hurðina og George flúði til nágrannanna.
Þar bjó hann næstu tvær vikurriar. „Þegar
ég kom aftur var allt í stakasta lagi og við
feðgar rifumst aldrei aftur," er haft eftir
George.
Á unglingsárunum kom einnig fram sú
árátta hjá George að klæða sig í kvenleg
fót. í fyrstu valdi hann sér þó einkum und-
arleg fót en með tímanum fór hann líka
að sjást í kvennmannsfótum og einu sinni
kom hann í skólann þannig klæddur. Á
sama tíma fór hann einnig aö lita á sér
hárið. í fyrstu notaði hann fyllingar úr
tússpennum til aö lita hárið. Hann prófaði
ýmsa liti og á endanum varð hann hrifnast-
ur af appelsínugulu og tók þann smekk
eftir David Bowie.
Þessi árin gengu einnig sögur um að sitt-
hvað væri bogið við kynferði hans. Hann
segir að fyrsta ástin hafi verið stúlka að
nafni Brenda og síðan hafa ýmsar stúlkur
verið nefndar til sögunnar og raunar karl-
menn einnig. George segist hafa verið 15
ára þegar hann svaf hjá strák í fyrsta sinn.
„Það var hræðilegt," sagði hann í viðtali
þegar hann var spurður út í þetta atriði.
Misheppnaðar tilraunir
Áður en George varð frægur sem popp-
stjaman Boy George reyndi hann fyrir sér
við ýmsa vinnu og var oft rekinn. Hann
vann um tíma í fatabúð og í framhaldi af
því fór hann að reyna fyrir sér sem tísku-
módel. Hann var myndaður í nokkrum
auglýsingum. Hann kom einnig fyrir í
nokkrum tónlistarmyndböndum en missti
þó þar af stærstu bitunum. Hann reyndi
að fá hlutverk í myndbandi með David
Bowie en var hafnað.
Fljótlega eftir það fór þó að rofa til. Hann
söng eitt lag inn á plötu fyrir fyrrum fram-
kvæmdastjóra Sex Pistols. Þá var honum
gefið nafnið Lieutenant Lush en frægðin
lét enn bíöa eftir sér. George hélt þó áfram
að reyna fyrir sér og næst stofnaði hann
hljómsveit sem hét Praise Of Lemmings.
Meðan hann var enn í þeirri sveit hitti
hann trommuleikarann Jon Moss. Saman
stofnuðu þeir ásamt bassaleikaranum
Mickey Craig og gitarleikaranum Roy Hay
hljómsveitina Culture Club.
Loks frægur
í fyrstu virtist sem hljómsveitin ætlaði
ekki að ná vinsældum. Árið 1981 sendu
þeir þó frá sér lagið Do You Really Want
To Hurt Me og það sló í gegn. Lagið fór í
efsta sæti vinsældalistans í Bretlandi og
allt í einu var Boy George orðinn umtalað-
asti maðurinn þar í landi.
Eitt af því fyrsta sem menn vildu vita um
hina nýju stjörnu var hvort hún væri karl
eða kona. Flestar poppstjörnur á þessum
árum litu ósköp venjulega út en hér var
ein komin sem stakk í stúf. Nokkurs konar
Boy, George æði hófst og fáir voru ánægð-
ari með það en kappinn sjálfur.
Næstu fjögur árin voru Boy George og
Culture Club í röð vinsælustu poppara í
heiminum. Fyrsta stóra platan seldist í 14
milljónum eintaka. Bandarísk kona á fer-
tugsaldri seldi húsið sitt til að komast til
Englands og hitta Boy George. Önnur kona
sagði aö hjónaband hennar væri í rúst
vegna þess að maðurinn hennar segði að
hún líktist Boy George. Hann neitaði að
sofa hjá henni. Og þannig sögur eru til í
ótal útgáfum.
Boy George klæddi sig alltaf eins og kona
og var einu sinni ílokkaður sem íjórða
verst klædda konan í heiminum. Boy Ge-
orge varð frægur fyrir ýmsar athugasemd-
ir um fræga menn. Hann líkti páfanum við
Gary Glitter og annað eftir því. Frægðin
reyndist þó ekki áreynslulaus og árið 1984
fór að haúa undan fæti. Ný lög náðu ekki
sömu vinsældum og þau eldri og það virt-
ist fara í taugarnar á Boy George.
Hann lagðist í eiturlyf og hljómsveitin
flosnaði upp. Auk eiturlytjanna snerist Boy
George til búddatrúar í von um að losna
undan raunveruleikanum. Síðustu mánuð-
ina hefur hann reynt að vinna sér nafn á
ný með nokkrum árangri en þó ekki þeim
samaogáður.
Þetta er eitt frægasta gervi Boy George.
Glæsikvendið. Furðufuglinn.
Háskakvendið.
Hlýlegustu bréfin komu írá íslandi
- sagði Boy George eftir að hann vann bug á heróínfíkninni
„Aðdáendurnir hafa verið alveg
stórkostlegir. Þeir hafa sent mér
þúsundir bréfa þar sem þeir segja
að þeim þyki enn vænt um mig og
muni standa með mér. Ég hef feng-
ið bréf hvaðanæva úr heiminum
og sum af þeim hlýlegustu hafa
koraið frá íslandi," voru orö stór-
popparans Boy George i einkavið-
tali við DV fyrir rúmu ári. Þá var
hann að ná sér upp úr erfiðleikum
vegna eiturlyflaneyslu sem nærri
hafði riðið honum að fullu. Haustið
1986 var hann þó á góðum batavegi
eftir að hafa farið í meðferð og síð-
an hefur frægðarsól hans verið aö
rísa á ný.
Boy George féE fyrir heróíninu
þegar hann var 24 ára gamall. Árin
á undan var hann kominn í röð
vinsælustu poppsöngvara í heim-
inum. Frægð hans hefur ekki síst
stafað af skrautlegri framkomu en
Boy kaus sér snemma gervi klæð-
skiptingsins á hljómleikum. Af
þeim sökum hefur hann oft orðið
að svara spurningura um hvort
hann sé hommi og neitar því ekki
enda eru sögur um elskhuga hans
margar.
Áfall
Gervið á þó aðeins að vera hluti
af Boy George ímyndinni sem var
mjög áberandi í popptónlistinni
fyrir fáum árum en beiö alvarlegan
hnekki þegar eiturlyfin tóku völdin
af kappanum.
Það var i mars á árinu 1985 sem
Bpy George reyndi heróín fyrst.
„Ég var þá í París og varð fárveik-
ur þegar ég var búinn að prófa
það,“ sagði Boy George í viðtalinu
við DV. „Svo liðu nokkrir mánuðir
þar til ég pófaði það aftur og þá fór
ég að nota það reglulega.
Þetta fíkniefni er svo vinsælt í
London að það er alltaf hægt að fá
nóg af því og svo leiddi eitt til ann-
ars. Ég á hins vegar sennilega
aldrei eftir aö gera mér grein fyrir
því hvers vegna ég leiddist út í
þetta. Það var vissulega ekki
ástæðan eins og margir hafa haldið
að ég hefði hætt að vera vinur Jon
Moss (sem var trommuleikari Cult-
ure Club) eða af því að lújómsveitin
hefði verið hætt aö standa sig.
Ef til vill var það bara velgengn-
in. Ég sá hve yfirborðskennt þetta
var og gerði mig ringlaðan. Svo.
vissi ég eiginlega ekki lengur hvað
ég vildi. Þaö getur líka verið að
þetta hafi veriö barnaleg tilraun til
uppreisnar því ég hef alltaf hrifist
af þvi sem er spennandi.
Taldi sig ráða
við nautnina
Mér fannst allt vera í lagi fyrst
eftir að ég byrjaði að taka heróín í
nefið en svo gerðist það einn daginn
að mér fannst ég ekki getað lifað
af daginn án þess að fá það. Ég er
vel gefmn og hafði haldið að vel
gefið fólk gæti haft stjórn á neysl-
unni en þaö er misskilningur. Þetta
er ekki hægt. Þaö er heróínið sem
stjórnar manni. Ég byijaði á því
að taka eitt gramm á dag en svo
varð þörfm meiri og meiri og ég
varð aö taka meira og meira öl
þess að mér Uði eðlilega. Ég hafði
ánetjast því og það er það skelfileg-
asta sem ég hef upplifað.“
Á endanum fór Boy George sjálf-
viljugur í meðferð. Ástand hans var
þá komö í hámæU og fljótlega eftir
að meðferðin hófst hafði hann sam-
band við lögregluna og viður-
kenndi aö hafa átt og neytt heróíns.
Hann var dæmdur í 250 punda sekt
fyrir brotið. Það jafngilti þá um 15
þúsundum ísenskra króna. Réttar-
höldin vöktu mikla athygli og
aðdáendur hans voru fjölmennir
við réttarsalinn. Mörgum þótti
dómurinn of vægur en honum var
ekki breytt.
Nú er vel liðið á annaö ár frá því
Boy George barðist við heróínið.
Við lá að feriU hans væri þá á enda
og næsta árið heyrðist Utið til hans.
Síðasta vor birtist hann þó á ný -
án hljómsveitarinnar Culture Club .
- og hefur síðan veriö aö koma fót-
um undir sig á ný.
-GK