Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988. Disney nær sér á strik Maðminn við stjómvölinn er JefFrey Katsenberg Hann heitir Jeffrey Katzenberg og selur drauma. Hann hefur rekið Disney-kvikmyndaverið frá árinu 1984 með undraverðum árangri. Þegar hann tók við stjórninni var Disney komið í níunda sætið meðal stóru kvikmyndafélaganna og á niðurleið. Gamla draumaverk- smiðjan var á síðasta snúningi. Það var um síðustu áramót sem öll tvímæh voru tekin af um að Disney væri að ná sér á strik á ný. Þá hófust sýningar á myndinni Þrír menn og barn, gamansamri mynd sem slegið hefur í gegn í Bandaríkjunum og sýningar hófust á hér fyrir páska. Með myndinni hefur Disney skotist á ný upp á milli kvikmyndarisanna í Holly wo- od. í öðru sæti Þessi árangur hefur gert það að verkum að augun hafa beinst að nýja stjórnandanum, Jeffrey Katzenberg. í Hollywood er haft á orði að ef hann væri ofurlítið árásargjarnari en hann er þá væri hann nú bak við lás og slá. Katzenberg er 37 ára gamall og neitar því að hann eigi sér drauma, aðeins markmið. Á söluhst- unum er Disney komið upp fyrir Warner en er enn á eftir Paramount. Þar vann Katzenberg í 10 ár og var yfirmaður allrar framleiðslu hjá fyr- irtækinu áður en hann söðlaði um og gekk til liðs við Disney. Til þessa hefur Katzenberg gert 17 myndir og af þeim hafa 15 skilað til- ætluðum hagnaði. Flestar myndanna eru gamanmyndir sem sjaldan skarta þó frægum stjörnum. Það var aðeins í The Color og Money sem stórstjömumar Paul Newman og Tom Cruise vom kallaðir th verka. Oftar gerist það þó að leikarar, sem hafa átt erfitt uppdráttar, fá hlutverk eða þá að þeir hafa öðlast frægð í sjónvarpsþáttum. Heimavanir menn í Hohywood segja að Katzenberg svipi til gömlu mógúlanna sem lifðu og hræröust í kvikmyndum og réðu og ráku að geðþótta. Hann er sagður lifa fyrir augnablikið og skorta aha tilfinningu fyrir fortíðinni. Menn efast jafnvel um að hann þekki til gömlu mann- anna sem honum er líkt við. En hann nær árangri og það er það sem eig- endur fyrirtækisins vilja. Hann þykir laginn við að fá hand- ritshöfunda og leikstjóra til að vinna fyrir sig á lægra kaupi en aðrir greiöa. Hann gerir langtímasamn- inga viö leikara á lægra kaupi en hjá öðrum framleiðendum og bendir þeim hiklaust á að það séu forrétt- indi að fá að vinna hjá Disney. Hann gefur líka sínu fólki frelsi til að vinna eins og því líkar. Það hefur aðdrátt- arafl. Ófrumlegar myndir Eitt af dótturfyrirtækjum Disney er Touchstone. Þar eru vinsælustu myndimar framleiddar. Þær hafa ekki orð á sér fyrir fmmleika því að flestar hugmyndimar hafa verið not- aðar áður. Yfirleitt eru þetta líka gamanmyndir fyrir fullorðna. „Við gerum þannig myndir af þvi að eng- inn annar gerir það,“ er haft eftir Katzenberg. Nýjasta myndin, Þrír menn og bam, er dæmi um slíka mynd og hugmyndin að henni er að sjálfsögðu fengin að láni. Áður hefur verið gerð mynd í Frakklandi um sama efni. Þá þykir það einnig nýtt einkenni á Disney undir stjórn Katzenberg að þar er ekki beðið eftir aö framleið- endur eða leikstjórar bjóði fram handrit heldur eru handritin valin hjá fyrirtækinu, oftast af Katzenberg, og síðan fólk ráðið til verksins. Ef 22 leikstjórar neita að taka verkiö að sér þá er leitað að einum enn. Þannig fóm þeir gömiu einnig að. Katzenberg gengur til verka af hörku og hann er fljótur að ákveða sig. Hann boðar fundi á sunnudags- Senn verður kvikmyndin Big Business frumsýnd. Þarna er Katzenberg með Lilly Tomlin og Betty Midler. Topp tíu listmn* 1. Hvaö heldurðu? ö 61% ’ö? 2. Á tali hjá 3. Fréttir Hemma Gunn 60% 53% 0 4. Fyrirmyndarfaðir 44% tr 5. Derrick 37% 70 6.-8. Lottó 36% - 6.-8. Matlock 36% # 6.-8. 19:19 36% 9. í skuggsjá 35% 10. Landið þitt ísland 33% * Könnun Félagsvísindastofnunar á sjónvarpshorfun dagana 3.-5. mars, gerð fyrir báðar stöðvarnar. Sjónvarpið lét kanna fyrir sig sérstaklega dagana 6.-9. mars, einnar viku horfun í allt. Könnunin náði til alls landsins, fólks á aldrinum 15 til 70 ára. Fyrirmyndarfaðirinn í 4. sæti TOPP TÍU listans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.