Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1988, Page 23
LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1988.
23
hafa örlögin hagað því að ég fer til
Hollywood í næsta mánuði."
Ertu trúaður?
„Ég hef algjörlega mín eigin trúar-
brögð sem tilheyra engu öðru.“ „En
þú trúir á guö“ skýtur konan hans
inn í. „ Já, ég trúi á allt gott og guð
en mér finnst lífið allt m)ög dular-
fullt og undursamlega frábært. Ég
trúi á endurholdgun. Og örlögin og
tilviljanirnar fléttast yndislega sam-
an. En það er mögulegt að hinir
framliðnu stjórni svolítið örlögum
okkar, ég trúi einnig á slíkt. Að þeir
haldi verndarhendi yfir okkur. Það
er sagt að maður hafi verndarengil,
það gæti veriö einhver framliðinn,
foreldri, bróðir eða aðrir ættingjar
eða vinir. Á það trúi ég einnig. En
slíka trú er ekki hægt að skrifa niður
eða höndla. Þetta er tilfinning eða
innsæi. Ég trúi meira á innsæi og
tilfinningar en það lærða, meira á
innsæi en skynsemi og gáfur, það er
þess vegna sem konur fara oft styttri
leiðina, þær hafa miklu næmara inn-
sæi, heldur en karlmenn. En innsæi
er hluti af gáfum, það er ef til vill
gáfa í sinni skörpustu mynd en hún
er ekki sprottin af skynsemi heldur
tilfinningu. Og tilfinning getur einnig
verið snilligáfa. Tilfinningar eru
sjötta skilningarvitið sem allir hafa,
börn, fullorðnir og gamalmenni en
flestir halda því niðri og bæla það.
Ég held að menn ættu aö hlusta bet-
ur á sjötta skilningarvitið. Og svo
þurfa menn að læra aö sundurgreina
það sem kemur frá innsæinu og hvaö
kemur frá óskum og draumum.
Skilja á milli draums og veruleika.
En stundum gerist það að tilfinning-
arnar og innsæiö brjótast út og
framkvæma hugsanir þínar. Það hef-
ur oft hjálpað mér, einnig við tökurn-
ar á „Babette". Stephane Audran
sagði einnig „Karen Blixen er hjá
okkur.“ Það eru fjöldamörg dæmi
um það við tökurnar. Til dæmis það
síðasta; við fengum mjög slæmar
filmur úr framköllun í Ameríku og
við þurftum að láta framkalla þær
allar aftur. Og vegna vinnslugalla hjá
verksmiðjunni í Ameríku tókum við
allt upp aftur.með miklu betri ár-
angri. Ef þetta hefði ekki gerst hefðu
mörg atriði verið sæmileg en ekki
nálægt því eins góð og þau urðu að
lokum. Það gæti verið að Karen Blix-
en hafi ekki verið nógu ánægð og
viljað að við ynnum þetta allt upp
aftur. Við fengum málverk af Karen
Bhxen sem einkaritari herinar hafði
komið með frá Afríku. Málverkið
hékk uppi á meðan á tökum stóð og
er í myndinni og viö heilsuðum Kar-
en Blixen daglega. Við Stephane
Audran hneigðum okkur og beygð-
um fyrir framan hana á hverjum
degi.“
Gæðakreppa í
franskri kvikmyndagerð
Hvert er álit þitt á franskri kvik-
myndagerð í dag?
„Það eru gerðar margar góðar
franskar kvikmyndir en maður hef-
ur það á tilfinningunni að framleiö-
endurnir séu að reyna að þefa uppi
hvað áhorfendur vilji helst sjá, svo
að myndirnar gangi. Mér finnst ekki
rétt að gera slíkt. Það er til mikið af
frábærum frönskum leikstjórum og
yndislegum frönskum leikurum og
margrómuðum frönskum tækni-
mönnum. En ég held að það séu
framleiðendurnir sem ekki standa
sig nógu vel. Ég held að það sé svolít-
il gæðakreppa í Frakklandi í dag. Það
seldust 38 milljón færri bíómiöar í
Frakklandi árið 1987 en 1986. Þar
hefur sjónvarp og video nokkuð að
segja en einnig gæði kvikmyndanna
sem sýndar eru í kvikmyndahúsun-
um, því að ef kvikmynd er góð þá
myndast strax biðröð á hana. Truff-
aut og Kurosawa eru mínir uppá-
haldsleikstjórar. Þeir kunna að segja
sögu og koma sér beint að efninu.
En ég kann vel við ró og einfaldleika
í kvikmyndum, þaö má ekki ofgera
þeim með spennu og flækjum sem
gera það að verkum að maður veit
ekki hvernig manni á að líða þegar
horft er á myndirnar eða sagan tap-
ast í tæknibrellum. Ég horfi annars
ekki mikið á kvikmyndir sjálfur. Ég
er vandlátur á kvikmyndir og horfi
ekki á hvað sem er. Ég er uppalinn
í leikhúsi og hef einnig verið leik-
stjóri í leikhúsi og þess vegna reyni
ég alltaf að komast að kjarna verks-
ins innan frá, reyni að finna tóninn
í verkinu og lausnir út frá honum.
Gabríel Axel leikstýrði Rauðu skikkj-
unni á íslandi fyrir 22 árum.
Ég hef t.d. gert heimildarmynd um
klámmyndir þar sem ég lít á þær sem
list en ekki klám. Öll verk hafa
ákveðinn tón sem er kjarninn og
mergurinn málsins. Ég hef ekki verið
í kvikmyndaskóla þar sem maður
verður fyrir áhrifum frá öðrum kvik-
myndagerðarmönnum, greinir þá.
Leikhúsið og hið „dramatíska", í
kvikmyndunum hefur haft mest
áhrif á mig. Karen Blixen, Balzac og
Dostojevskí eru mínir uppáhalds-
höfundar. Ég hef gert margar ólíkar
kvikmyndir, raunsæismyndir, gam-
anmyndir, táknrænar myndir. Þær
eru allar mjög ólíkar. Ég vil helst
gera eitthvað alveg nýtt í hvert sinn
sem ég geri kvikmynd. Það er ekki
hægt að flokka mínar myndir undir
neitt eitt stílbragð, einkennandi fyrir
mig.
Þaðer mínheppni í lífinu að konan
min er einkaritari minn. Hún hefur
alltaf verið heimavinnandi húsmóð-
ir. Ég hefði aldrei getað gert allt sem
ég hef gert ef konan mín hefði ekki
staðið við hlið mér með allt klappað
og klárt. Skrifað fyrir mig bréf, svar-
að í símann, vélritað handrit, haft -
tilbúinn mat á borðinu og lifandi
kertalj ós, sky rturnar hreinar í
klæðaskápnum og allt í röð og reglu.
Og síðast en ekki síst séö um börnin
okkar sem eru fjögur. Ég hefði aldrei
gert neinar kvikmyndir án hennar
aðstoðar." •
Já, ég er uppalin á franska vísu,“
skýtur konan hans inn í, og Gabriel
heldur áfram: Á brúðkaupsdaginn
sagði tengdafaðir minn við mig:
„Láttu það eiga sig að eyðileggja allt
sem ég hef byggt og alið upp í dóttur
minni.“ Drengir áttu að verða verk-
fræðingar eða arkitektar og stúlk-
urnar áttu að kunna að sauma ög
elda mat og tala tungumál og vélrit-
un, allt það hagnýta, svo þær gætu
oröið mönnum sínum stoð og stytta.
En það er rétt að ég gæti ekki verið
í þessu starfi ef ég hefði ekki traustan
bakhjarl. Annars yrði ég brjálaður,
drykkfelldur eða eiturlyfjasjúkling-
ur.“
Erasvogott semgott
kveðaölalda sonum
Svo þú drekkur ekki?
„Mér finnst gott aö dreypa á víni
en ekki til þess að verða fullur. Ég
hef aðeins einu sinni á ævinni orðið
verulega drukkinn og það var á ís-
landi. Þá drakk ég svartadauða, það
var þegar kvikmyndun á Rauðu
skikkjunni lauk.“ „Og einu sinni í
Noregi,“ skýtur konan hans inn í.
„Já, uppi í fjöllum," samþykkir
hann. „Miglangaði tilþessaðsjá
hann verulega drukkinn,“ segir kon-
an hans. „Ég hata að vera fullur,"
heldur Gabriel áfram, „maður missir
ráð og rænu, þaö er yndislegt áð
bragða vín en að verða drukkinn er
hættulegt. Maður getur ekki hugsað,
maður nýtur ekki samverunnar með
öðru fólki, ímyndaðu þér hvað það
væri heimskulegt ef ég væri drukk-
inn núna. Annaðhvort er maður með
fólkinu eða ekki.
Uppáhaldsmaturinn þinn. Gabriel?
„Það veit ég ekki," segir hann og lít-
ur á konuna sína sem svarar. „Það
sem mamma þín eldaði á afmælis-
daginn þinn í gamla daga.“ „Já, já,
það var hakkað buff með kartöflu-
mús! Besti maturinn, sem ég borða,
er sjálfsagt fiskur, beint upp úr sjón-
um, góð dönsk rauðspretta, soðin,
með nýju smjöri og ferskri steinselju
og nýjar danskar kartöflur! Það er
yndislegurmatur. En konan mín
getur svo sannarlega búið til „Ba-
bettes gæstebud“.
Hvaða verkefni ætlarðu að taka fyrir
næst?
„Hamlet. Saxo Grammaticus, munk-
ur sem var uppi á 11. öld skrifaði
sögnina um Hamlet. Shakespeare
varð fyrir áhrifum af þessari sögu
Saxos. Ég vona að mér takist aö gera
þessa kvikmynd, mig hefur dreymt
um það í 20 ár! Og svo er sá eini sanni
Dostojevskí ofarlega í huga rninum."
Viðtal: Guðbjörg Guðmundsdóttir
KOREAN GINSENG
Útsölustaðir: Heilsubúðir, apótek, líkamsræktar-
stöðvar, sólbaðsstofur o.fl.
Líflínan,
Skemmuvegi 6, Kópavogi, sími 641490
TIL SÖLU
á Dalvík
Glæsilegt einbýlishús, samtals 313 m2 á tveimur
hæðum. Á efri hæð er stór stofa, 4 svefnherbergi,
bað, eldhús, þvottahús og búr.
Á neðri hæð er bílskúr, 2 herbergi, stór geymsla og
snyrtiaðstaða ásamt stóru anddyri.
Húsið er laust í april.
Upplýsingar i símum 96-61344 og 91-40005.
ÖRYGGI - GÆOI - ÞJÓNÚSTA
NORSKIR FISKIBÁTAR
H-4-4
m
2
Viksund fiskibátar
- 5 tonna, Þessir bátar eru afgreiddir allt
frá því að vera plastklárir til þess að vera fullbún-
ir, innréttaðir og með vél.
- 9 tonna, dekkaðir. Þessir bátar njóta sívaxandi
vinsælda meðal sjómanna sakir óvenju mikil§
stöðugleika og vandaðrar smíði.
-15 tonna, upplagður snurvoðarbátur - sannkall-
að flaggskip. Þessi bátur er í nýrri, endurbættri
gerð og kemur á markaðinn eftir breytingar á
síðasta ári. Þessi bátur er tilvalinn fyrir þá sem
þurfa að endurnýja úr t.d. gömlum 11-13 tonna
trébátum.
Við aðstoðum við allan pappírsfrágang varðandi
fjármögnun og innflutning, svo og öflun tilboða
í búnað og tæki.
WiKSWW
UMBOÐIÐ
INGIMUNDUR MAGNÚSSON
NÝBÝLAVEGI 22
SÍMI43021 og 641275 EFTIR KL. 17.00