Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Side 17
FIMMTUDAGUR 19. MAl 1988.
17
Lesendur
„Siglingar eru jafnnauðsynlegar fyrir íslendinga og að hafa her sem hlekk i öryggiskerfi landsins."
maí næstkomandi í hesthúsum félagsins við Bú-
staðaveg.
Fákur útvegar hesta.
Skráning í síma 30178 í dag og á morgun, 20. maí,
miili kl. 10.00 og 12.00.
Hestamannafélagið Fákur
HVÍTLAUKUR
Lifskraftur sjálfrar náttúrunnar. Alvag lyktar- og
bragðlaus. Mikilvægasta efnið I góðum hvítlauk
heitir Allicln og llja Rogoff
laukurinn inniheldur meira af þessu mikilvæga
efni en nokkur annar hvltlaukur á markaðnum.
Það er tryggt aö í hverjum 100 gr séu 440 mcg
af Allicini.
Hinn þekkti vísindamaður á sviði hvítlauksrann-
sókna, dr. Jerzy Lutomsky, álitur þennan hvitlauk
bestan þvi hann er ekki unninn við upphitun eða
gerjun sem hann álitur að eyði mikllvægustu efn-
unum úr hvitiauknum.
Fæst i apótekum, heilsubúðum, mörkuðum.
Verð á mánaðarskammti aðeins kr. 360,-
DREIFING: BIO SELEN
UMB. SÍMI 76610
'Jlja .
ROgOFF
HviHok jú
tabletter^r
Örfáar ábendingar til samgöngu-
ráðherra, MatthíasarÁ. Mathiesen
Nýkomnar
frábærar og fisléttar
Jóhann Páll Símonarson skrifar:
í grein i Morgunblaðinu hinn 29.
apríl sl. eftir samgönguráðherra er
gert lítið úr atvinnumissi 300 far-
manna. Á sama tíma heyrast fréttir
um að líkur séu á að reist verði álver
í Straumsvík sem ca 250 manns hafa
atvinnu af.
Mér fmnst ekkert athugavert við
að reist verði álver. En að ráðherra
núverandi ríkisstjórnar skuli ekki
hafa meiri áhuga á siglingum sem
atvinnugrein en fram kemur hjá
samgönguráðherra, herra Matthíasi
Á. Mathiesen, er engan veginn verj-
andi. Siglingar eru jafnnauðsynlegar
fyrir íslendinga og að hafa her sem
hlekk í öryggiskerfi landsins. Það er
mín skoðun að það sé jafnvel mikil-
vægara að hafa siglingar í okkar
höndum en að byggja ratsjárstöðvar.
Að lokum vil ég benda á að u.þ.b.
130 farmenn af þeim 300, sem misst
hafa vinnu, eru í kjördæmi sam-
gönguráðherra. Er allt eins víst að
það gleymist ekki í næstu kosning-
um.
Ennfremur flnnst mér það skrýt-
inn talnaleikur að láta sig engu
skipta að 300 farmenn missi atvinnu
sína en vinna aö 250 stöðugildum í
áliðnaði sem þýðir í reynd að töpuð
störf eru 50, u.þ.b.
Margrét Ólafsdóttir skrifar:
Ég er ein af þeim 10.000 sem skrif-
uðu undir mótmælin á vegum
„Tjörnin liflr“ vegna fyrirhugaörar
ráöhúsbyggingar við Tjörnina. Mig
hefur oft langað til að stinga niöur
penna vegna þessa máls en ekki lagt
í það vegna þess að ég hef ekki haft
neina góða lausn á því, þar til nú.
Ég var að lesa kjallaragrein i DV
þann 11. þ.m. eftir Baldur Andrésson
arkitekt og hvet ég alla sem ekki lásu
hana til að kynna sér þessa frábæru
lausn. Hún er sú að Seðlabankabygg-
ingin verði nýtt undir ráðhús. Bestu
rökin að mínu mati eru eftirfarandi:
1. Húsiö er í miðborginni. 2. Það
er pláss fyrir „ráðhústorg". 3. Öll
aðkoma er betri en við Tjörnina. 4.
Stærðin er sú sama. 5. Útsýni er með
því besta sem gerist. 6. Umhverfis-
röskun er engin. 7. Fjárhagsáætlun
yrði 100% örugg, engir óvæntir
kostnaðarliðir (sbr. flugstöðvarbygg-
ingu) eða endalaus vandamál sem
allir sjá að eru óhjákvæmileg á þeim
stað þar sem Tjörnin er.
Síðan hefur Baldur lausn á byrjuð-
um framkvæmdum við Tjarnar-
hornið. - Grunnurinn yrði nýttur
undir bílageymsluhús, sem mikil
þörf er á, og þar mætti t.d. hafa úti-
garð á þakinu.
Ég veit að ég skrifa fyrir hönd
meirihluta fólks því langflestir ef
ekki allir sem ég hef talað við um
þetta eru á móti ráðhúsinu við Tjöm-
ina en nýttu ekki tækifærið til að
skrifa undir mótmælin. Flestir hafa
nóg á sinni könnu og meira en það
og hafa ekki tíma eða kraft til að
skipta sér af málum sem kosnir ráða-
menn eiga að geta ráðið fram úr á
skynsamlegan hátt.
En þegar svo greinileg misnotkun
á valdi á sér stað sem framkvæmdin
á þessu máli er þá verðum við að
grípa inn í af samstöðu og krafti því
nóg er komið af óþarfa bmðh í opin-
berum rekstri.
Lausn á ráðhúsvanda
„Seðlabankabyggingin verði nýtt sem ráðhús,
helstu röksemdir sem mæla með því.
segir bréfritari og telur upp
utiuf?
--Glæsibæ - sími 82922
ff
T01VUB0RÐ
ODYRAR!■ STCRKA0■ BETR!
margar geröir • litaval •
og framúrskarandi þjónusta.j
Skrifstof uvörur
Ármúla 30 • 108 Reykjavík • Sími 82420