Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1988, Side 20
Lífestm
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ 1988.
og fær koss fyrir matinn,
Sigurjón fær sér brauóhleif með kindinni
DV-myndir KAE
Fjárbúskapur í þéttbýlinu
Þeir sem eru á leið suður í Kefla-
vík, annarra erinda en aö taka þot-
ur til háværra stórborga í framandi
löndum, geta beygt út af Keflavík-
urveginum fyrir neðan kirkjugarö
Hafnarfjarðar og kynnst þar sér-
stökum heimi við bæjardyrnar.
Þegar keyrt er inn Kaldárselsveg-
inn blasa við nokkur lágreist hús
á stangli í brekkunum. Þetta eru
ýmist fjárhús eða hesthús eða
hvort tveggja í senn. Þarna koma
þreyttir þéttbýlisbúar eftir vinnu
og um helgar til aö njóta náttúr-
unnar og sinna skepnum sínum.
Mest eru þetta hestamenn. Ein-
hveijir eru þó með kindur því þær
eru þarna þó nokkuð margar.
Flestar með lömb.
Fyrrverandi bændur
Maður á miðjum aldri situr á
steini niðri í brekkunni og brynnir
tvílembdri rollu í síðdegissólinni.
Tveir litlir Hafníirðingar eru komn-
ir á staöinn til að skoða nýfæddu
lömbin. Það á aö fá að halda á,
- hafnfirskur „fjárbóndi" sóttur heim
Koss fyrir matinn
Elísa Björk og Hjalti Geir, sem
eru fjögurra og sex ára, eru upp-
numin yfir lömbunum sem eru sæt
og mjúk. En þeim líst engan veginn
á kindurnar með hornin sem borða
brauö af mikilli græðgi. Þá er betra
að standa og fylgjast með úr fjar-
lægð þegar Siguijón kallar „kinda,
kinda, komdu að fá brauð.“ Síðan
borðar hann brauð með einni kind-
inni sem kyssir hann fyrir matinn.
Sigurjón segir að töluvert sé um
að barnaheimilin komi í heimsókn.
Hann segir að það sé í lagi ef ekki
sé gert of mikið af því að gefa kind-
unum brauö og auðvitað má ekki
kvekkja lömbin með ólátum og
hlaupum. „Þau eru nú yfirleitt
ósköp góð greyin og halda sig í ör-
uggri fjarlægð."
Sjálfur segist hann hafa átt kind
frá tveggja ára aldri og að honum
myndi ekki þykja gaman að vakna
að morgni ef hann hefði ekki kind-
urnar aö hugsa um.
-gh
Kiappa og geta ao ooroa. En ott er
hjartaö ekki eins stórt og hugurinn
vill vera láta. Vart má á milli sjá
hvort er hræddara, mórauða lambið
eða freknótti strákurinn af mölinni.
Sigurjón Sveinsson er einn þeirra
fjörutíu þéttbýlismanna er hafa
kindur á þessu svæði:
„í allt eru þetta um fjögurhundr-
uð og þrjátíu kindur sem eru hér.
Við erum flestir uppgjafa bændur,
sem ekki hafa getað hugsað sér að
slíta sig alveg frá fjárbúskapnum,
eftir að við fluttum í bæinn. Þetta
er hobbý hjá okkur,“ segir Sigur-
jón, sem sjálfur var bóndi í 30 ár.
Hann er nú með tuttugu kindur
ásamt syni sínum, þeir eru þegar
komnir með 28 lömb og enn eru
nokkrar óbornar. Flestar eru þær
tvílembdar.
Maður á miöjum aldri situr á steini niöri í brekkunni og brynnir tvi-
lembdri rollu.
hendur í vösum nálægt þessum í staðinn. Eöa hvað? Stóra systir getur þetta alveg.
gráðugu kindum.