Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
5
Fréttir
Ólafsvík:
Vinnsla í hraðfiystihúsinu
byrjuð á ný eftir brunann
Ami E. Albertsson, DV, Ólafevík;
Þaö var miðvikudaginn 1. júní sem
miklar skemmdir urðu á húsnæði
Hraðfrystihúss, Ólafsvíkur vegna
bruna. Engum sem kom þar inn fyr-
ir dyr þann dag gat látið sér detta í
hug aö aðeins viku síðar yrði húsið
tilbúiö í rekstur á ný, svo mikil var
eyðileggingin.
Daginn eftir brunann var strax
hafist handa við að hreinsa út.
Starfsfólk frystihússins var fengið til
þess og að sögn Ólafs Kristjánssonar,
verkstjóra, sóttist verkiö vel þó svp
fæstir væru vanir slíkri vinnu. Á
stundum mátti verkstjórinn passa
sig að vera ekki fyrir, svo mikill var
ákafi fólksins að koma öllu í lag.
Rafvirkjar frá Jóni og Trausta sf.
lögðu nótt við nýtan dag við að end-
urnýja raflagnir og ljós og Sævar
Þóijónsson, málarameistari, var á
staðnum og leiðbeindi starfsfólki
hraðfrystihússins við málunarstörf
en sumir höfðu lítið sem ekkert kom-
iö nálægt slíku áður. Vildi Ólafur
koma á framfæri sérstöku þakklæti
til þessara aðila sem og til starfsfólks
hússins því án samhents átaks allra
hefði aldrei verið hægt að ljúka á
einni viku starfi, sem eðlilegt var að
áætla að tæki þrjár vikur.
Allur þorskur, sem borist hefur hér
á land frá því í síðustu viku, hefur
verið unninn í salt. Frysting hófst á
ný í gær, fóstudag. Fyrst í stað munu
afurðir verða geymdar í frystigám-
um og eins mun Hraðfrystihús Hell-
issands á Rifi hlaupa undir bagga
með geymslupláss. Víst er aö nokkr-
ar vikur munu líða áður en frysti-
geymslur hússins verða tilbúnar en
þar urðu skemmdir hvað mestar í
brunanum. Búið er að losa allan fisk
úr geymslunum og er nú verið aö
leita tilboða í endurbyggingu þeirra.
Ók á tvo kyrr-
stæða bíla
Rétt fyrir fimm í fyrrinótt var ekið
á tvo kyrrstæða bíla og þeir skemmd-
ir mikið. Atburðurinn varð við
Kvisthaga í Reykjavík og reyndist
tjónvaldurinn hafa veriö í allmiklu
samneyti við Bakkus fyrr um nótt-
ina. JFJ
Merkingar
á glös og postulín
Borðbúnaður
fyrir veitingahús.
Allt á einum stað.
Glös eða postulín.
Merkt eða ómerkt.
—^ÍtÍfsf—
Bíldshöfða 18-sími 688838
Unnið að hreinsun i hraðfrystihúsinu. Sótið leynir sér ekki. Ólafur Kristjánsson verkstjóri
DV-myndir ÁEA fremstur á myndinni.
... ^essir
bl‘ar eru enn tii
i. a ^am/a V*J
/ Nis*an Sim V6r°,nU:
Nissan Sunnv wdan 4x4
/Prairienav°n 4x4
/ %san patb>f 4x4
lN^np íhínd*2400CC I
TakT L P 2300 cC dí
Fimmtiu pró-
sent verðbólga
- miðað við einn mánuð
Vísitala framfærslukostnaðar
hækkaði um 3,4% á tímabilinu
maí til júní og svarar sú mánað-
arhækkun til 50,1% verðbólgu á
einu ári. Ef litið er til hækkunar
framfærslukostnaöar síðustu tólf
mánuði er verðbólagan á þeim
tíma 27,1%, samkvæmt upplýs-
ingum Hagstofu íslands.
Að þessu sinni var vísitalan
reiknuð eftir nýjum grunni sem
miðaður er við 100 stig í maí 1988.
Helstu áhrifaþættir til hækkunar
framfærsluvístölunnar eru
hækkanir á landbúnaöarvörum,
öðrum mat- og drykkjarvörum, á
áfengi og tóbaki, á bensíni og að
auki hækkun á innfluttum vör-
um og ýmsum þjónustuliöum.
Hækkunin á innflutningnum og
þjónustuliöunum vegur mest eöa
tæplega2/3 af þessari 3,4% hækk-
un. Má skýra þetta að hluta sem
afleiðingu gengislækkunarinnar
í maí en þó eru þau áhrif ekki að
fullu komin fram í vísitölunni í
júníbyijun. Á þjónustuliðina
hafa mest áhrif kjarasamningar
að undanfómu.
-JFJ
Fullursaluraf fallegum bílum.
- Veriö velkomin í sýningarsal okkar
að Rauöagerði. Alltaf heitt á könnunni.
Einnig sýnum við, um helgar á sama
tíma, í nýja sýningarsalnum hjá BSV.
að Óseyri 5, Akureyri.
—~^Jíi4-nnnu<bai
■ngvar
=Helgason hf.
Sýningarsalurinn,
Rauöagerði
Sími: 91 -3 35 60