Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
Viðtal DV við
Geir Hallgrímsson
seðlabankastjóra
Aðgerðir
ríkisstjómarmnar
erueldd
nógu
markvissar
- andvígur gengis-
lækkun nú
Spuming: Er gengið ekki of hátt?
Geir: Ég tel, að gengið sé ekki of
hátt.
Eins og kunnugt er gerði Seðla-
bankinn fyrir síðustu gengisfell-
ingu tiliögu um 10 prósent gengis-
breytingu. Það var samþykkt.
Seðlabankanum er heimilt að víkja
3 prósent frá þessu. Ég hef talið,
að slíkt sé ekki á dagskrá.
Sp.: En staða útflutningsatvinnu-
veganna er slæm.
Geir: Nú hafa ýmsir forystumenn
atvinnuveganna sagt, að bæri að
hafa gengið frjálst og láta framboð
og eftirspum ráða gengisskrán-
ingu. Markaðshyggjan hefur vissu-
lega gefið bestu raun. En þjóðir
hafa engu síður lagt áherslu á að
halda genginu fóstu til þess að ráða
við verðbólgu, einkum í opnu kerfi
eins og við búum við. Eg tel, að
með stöðugu gengi fáist eðlilegur
mælikvarði á getu þjóðarbúsins í
heild. Það er í raun og vem það
mat, sem aðrar þjóðir leggja á verð-
mæti framleiðslu okkar. Auðvitað
eiga sér stað verðsveiflur í útflutn-
ingsatvinnuvegunum, alveg eins til
hækkunar og til lækkunar. Þá
mætti koma við sveiflujöfnun, sem
hefur skort hér. í góöum árum hef-
ur ekki verið safnað í sjóði. Verð-
jöfnunarsjóður sjávarútvegsins
hefur ekki náð tilgangi sínum. En
best væri, aö eðlileg sjóðsmyndun
yrði í fyrirtækj unum sjálfum á góð-
um árum, sem er í sjálfu sér for-
senda þess, aö ábyrgðin sé á herð-
um fyrirtækjanna sjálfra.
Ég býst við því, að útflutningsat-
vinnuvegirnir geti lent í einhveij-
um vanda. En útflutningsatvinnu-
vegimir sem aðrar atvinnugreinar
verða að hafa aðhald, sem leiði til
hagkvæmni og endurskipulagning-
ar í fyrirtækjunum.
Á höfuðið?
Sp.: En á að láta atvinnuvegi fara
á höfuðið?
Geir: Nýlega hefur verið birt
skýrsla um vinnuaflsþörf.
Þar segir, aö skorti 3000 manns í
störf. Meðan svo er, er ekki hætta
á atvinnuleysi og að um stöðvun
atvinnuveganna verði að ræða.
Útflutningsgreinamar verða að
haga rekstri sínum svo, að þær séu
reknar með hagnaði. Ekki má alltaf
vera hægt að leita til ríkisins.
Gengislækkun hefur verið líkt
við, að móðir setji vatn 1 mjólkina,
sem hún gefur bömum sínum. Eða
jafnvel við sprautu af eiturlyfi fyrir
eiturlyfjasjúkling. Gengisbreyting
getur auðvitað verið eðlileg við
ákveðnar kringumstæður, en ég er
í grundvallaratriðum fylgjandi
fasts gengis.
Sagt er, að hér sé frjálst verð-
myndunarkerfi og þess vegna eigi
verð á erlendum gjaldeyri að vera
frjálst. Einhvers staðar verðum við
að hafa viðmiðun, sem segir, hvert
er mat viðskiptavina okkar erlend-
is á því, hver framleiðsla okkar
þjóðarbús sé. Innan þeirra marka
verðum við að skipta þjóðarkö-
kunni.
Sp.: En þegar verðbólga hér er
margfalt meiri en í viðskiptalönd-
unum?
Geir: Þá er Ijóst, að ekki er alltaf
unnt að halda fóstu gengi til lengd-
ar. En það sýnir líka að höfuðatriði
er að ráða niðurlögum verðbólgu
og til þess er stöðugt gengi og að-
hald í ríkisfjármálum og peninga-
málum vænlegast.
Sök ríkisbankanna
Sp.: Felldu ríkisbankarnir gengið i
raun og veru með þvi að taka út
svo mikinn gjaldeyri með spákaup-
mennsku í byrjun maí?
Geir: Útstreymi gjaldeyris var
vegna almennrar eftirspurnar eftir
gjaldeyri, sem meðal annars stafaði
af ummælum ábyrgra stjómmála-
manna um, aö fella ætti gengið, og
kröfum forystumanna atvinnuveg-
anna.
Mat okkar er, aö viðbrögð bank-
anna hafi verið eðlileg þessa dag-
ana. Þegar rætt er um gróða ban-
kanna í þessu sambandi, verður að
hafa í huga, að gjaldeyrisjöfnuður
þeirra var nær 100 milljón krónum
slakari 17. maí en 1 lok apríl.
Sp.: En eiga bankarnir ekki að
afhenda ríkinu til baka sinn gróða?
Geir: Það er erfitt að draga álykt-
anir um gróða og tap viðskipta-
banka með því að taka þrjá daga
út úr. Viðskiptin eiga sér lengri
aðdraganda og slóða. Gjaldeyris-
deild Seðlabankans áskilur sér
tveggja daga frest til að afgreiða
beiðnir um gjaldeyri. Fijáls gjald-
eyrisverslun gerir kröfu til, að
bankarnir eigi til nægan gjaldeyri.
Sp.: Á að setja löggjöf til að hindra
slíka spákaupmennsku?
Geir: Við teljum ekki, að um spá-
kaupmennsku hafi verið að ræða,
en Seðlabankinn hefur til athugun-
ar, hvort ástæða sé til að breyta
reglum um kaup og sölu gjaldeyris
í samráði við viðskiptaráðuneytið.
Seðlabankinn hefur fylgt þeirri
venju, sem ríkir almennt í gjaldeyr-
isverslun meðal vestrænna ríkja.
Verðtryggingin
Sp.: Nú hafa sumir háttsettir
stjórnmálamenn beitt sér fyrir af-
námi lánskjaravísitölu. Væri það til
einhvers?
Geir: Lánskjaravísitalan er byggð
að tveimur þriðju á framfærslu-
vísitölu og einum þriðja á bygging-
arvísitölu. Hún er bara mælikvarði
á verðmætabreytingar í krónum
talið.
Aðalatriðið er, að menn geri sér
23
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
ljóst, að til þess að unnt sé að fá
lánaða peninga, verða þeir, sem
spara, að fá að minnsta kosti sömu
verðmæti til baka.
Við íslendingar höfum dýrkeypta
reynslu af því, að menn viður-
kenndu ekki þessa staðreynd í
fjölda ára og vextir voru miklu
lægri en verðbólgan. Auðvitað
væri æskilegast, að verðbólgan
væri innan viö 4 prósent eins og í
viöskiptalöndum okkar og þá væru
menn ekki að tala um nauðsyn
verðtryggingar. Vextir eru nú
frjálsir og framboð og eftirspurn
eftir lánsfé ræður vaxtastiginu.
Mestu skiptir, að tryggður sé auk-
inn sparnaður og framboð á lánsfé
til arðbærra framkvæmda. Nei-
kvæðir raunvextir hafa á liðnum
árum valdið offjárfestingu og fjár-
festingu í óarðbærum atvinnu-
rekstri, sem við súpum seyðið af í
dag.
Menn verða líka að skilja, að nið-
urgreiddir vextir til dæmis til hús-
bygginga og íbúðarkaupa, þýða, að
vextir verða hærri að öðru leyti.
Mér er til efs, að það sé húsbyggj-
endum til gagns að njóta lágra
Viðtal: Haukur Helgason
vaxta frá Byggingarsjóði ríkisins,
því þá þurfa þeir að greiða hærri
vexti af öðru lánsfé.
Skyssur ríkisstjórnar
Sp.: Svo við víkjum að ríkisstjórn-
inni. Hefur hún ekki gert skyssur?
Geir: Ég hef álitið, að síðustu ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar séu því
miður ekki nægilega markvissar,
aö því leyti að gengislækkun og
ráðgeröar lántökur erlendis valda
aukinni þenslu og um leið vaxandi
verðbólgu þegar skortur er á
vinnuafli.
Því er brýn nauðsyn, að aöhaldi
sé beitt og ríkissjóður sé rekinn
með greiðsluafgangi.
í peningamálum verður einnig
aö vera strangt aöhald og draga
verður úr fjármagni í umferð og
eftirspurn eftir vöru og þjónustu
og bæta þar með viðskiptajöfnuð
við útlönd. í því skyni lagði Seðla-
bankinn til hækkun bindiskyldu,
en ríkisstjórnin féllst ekki á það.
Klandur bankanna
Sp.: Er staða Landsbankans ekki
hættulega slæm?
Geir: Ég tel, að staða Lands-
bankans fari batnandi.
Ég hef enga ástæðu til aö halda
annað en aö Landsbankinn standi
traustum fótum og geti sjálfur jafn-
að út þær sveiflur, sem eru í eftir-
spurn eftir lánum og innlánaaukn-
ingu á hverjum tíma.
Sp.: En dómar í Hafskipsmálinu,
sem skerða stöðu Útvegsbankans?
Geir: Það breytir auðvitað ekki
stöðu Útvegsbankans hf., en hins
vegar eykst tap ríkissjóðs.
Ljúka ætti þeim skiptum næsta
ár.
Sp.: Eru bankarnir of margir?
Geir: Engum blöðum er um það
að fletta, að bankarnir eru of marg-
ir. Stefna ætti að samruna Útvegs-
bankans, Iðnaðarbankans og
Verslunarbankans og raunar
samruna fleiri banka. En til að fá
hagkvæmara skipulag bankakerf-
isins má ekki beita neinu valdboði.
Ég tel, að aukin samkeppni banka
og sparisjóða og annarra fjármögn-
unarfyrirtækja leiði til skilvirk-
ustu og ódýrustu þjónustu á þessu
sviði.
Þá yrði sjálfsagt að gera bæði
Landsbankann og Búnaðarban-
kann að hlutafélagsbönkum, þótt
einhver bið yrði á sölu hlutabréfa
í þeim. Æskilegast væri að flýta
sölu hlutabréfa í Útvegsbankanum
eins og markaðurinn þolir.
-HH
theraiomur
STEYPUMÓTAEININGAR
THERMOHÚS-BYGGINGARKERFIÐ
SPARAR TfMA OG PENINGA
Thermomur er án efa einfald-
asta steypumótakerfi sem nú
fyrirfinnst. Þetta eru steypumót
sem hægt er að raða upp og
steypa í samdægurs. Fyrir utan
að spara bæði fé, fyrirhöfn og
stytta byggingartíma er þó einn
mikilvægur þáttur ónefndur
sem ere.t.v. sá mikilvægasti
fyrir íslenskar aðstæður, en það
er í sambandi við steypu-
skemmdir.
Thermomurveggur er byggður upp þannig: 5 cm einangrun að utan, 15 cm
steyptur veggur með járnabindingu, síðan er 5 cm einangrun að innan.
K-gildi veggjarer
K = 0,24
Tæknilegar upplýsingar veitir
IÐNVERK hf. byggingarþjónusta
Hátúni 6A - 105 Reykjavík - PO.Box 5266
© 91-25945 og 91-25930
10.0GII. |UN11988
FYRIR ENDURHÆFINGARSTÖÐ
H|ARTAS|UKLINGA
LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKUNGA
HAFNARHÚSINU v/TRYGGVAGÖTU - PÓSTHÓLF 830 - 121 REYKJAVÍK - SÍMI 25744
IHILDUfVSlA