Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Side 25
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
25
Breiðsíðan
Ljósmyndari DV brá sér á fót-
boltaleik á dögunum. Og þessi
mynd varð afraksturinn. í
Kópavoginum háðu harða
keppni lið Breiðabliks og Sel-
foss. Sagt er að leikurinn hafi
bara verið þó nokkuð spenn-
andi....en skyndilega birtist
þessi listfluga yfir leikvangin-
um og vildi sko að eftir sér
væri tekið. Þegar nokkrar mín-
útur voru eftir af fyrri hálfleik
leystist knattleikurinn upp í list-
flugsýningu, við góðar undir-
tektir áhorfenda sem og fót-
boltakappa. í leikhléi voru svo
sýndir enn frekari tilburðir.
Óvenjulegt innlegg í fótbolta-
leik, enda gleymdist að spyrja
hvernig leikarfóru.
RóG/DV-mynd EJ
Hljómsveitin Búningamir sem Bjarni stofnaði fyrir skömmu og ætlar að þeysast um landið í
sumar. Tónleikar verða með strákunum i Laugardalshöll þegar Blow Monkeys kemur fram.
Bjami Arason kominn á fullt:
Fordstúlkan 1988:
„Hlakka til keppninnar
- segir Ágústa Ema sem fer til Kalifomíu
„Spenningurinn er að koma yfir mig. Eg
vonast eftir að mér bjóðist vinna erlendis út á
þátttöku mína,“ sagði Ágústa Erna Hilmars-
dóttir, Fordstúlkan 1988, er Breiðsíðan sló á
þráðinn til hennar en nú er einn og hálfur
mánuður þar til Ágústa fer til Kaliforníu til
að taka þátt í Face of the 80’s.
Þar munu minnst 25 stúlkur keppa til úrslita
og sigurvegarinn fær um tíu milljónir króna í
verðlaun auk annarra veraldlegra hluta.
Ágústa lauk grunnskólaprófi í vor úr Breiða-
gerðisskóla og sagðist hafa náð ágætis ein-
kunnum. Hún hefur nú sótt um í Menntaskó-
lanum við Hamrahlíð. „Ég sótti um í tveimur
skólum ef svo færi að ég yröi heima næsta
vetur.“
í sumar starfar Ágústa í eldhúsinu á Borgar-
spítalanum þar sem hún býr til sérfæði. „Þetta
er alveg ágætt starf. Ég læri ýmislegt í mat-
reiðslu en mér hefur alltaf þótt gaman að elda
mat. Oft elda ég mat þegar foreldrar mínir eru
að heiman."
Agústa sagðist hafa fengið senda heim ýmsa
samninga og skjöl varöandi keppnina sem
verður 3. ágúst. Móðir hennar ætlar með henni
í ferðina. Face of the 80’s er ein glæsilegasta
keppni sinnar tegundar í heiminum og er sjón-
varpað um öll Bandaríkin. Ágústa sagði að ef
hún fengi starfssamning eftir keppnina kæmi
til greina að fara til New York um tíma. „Mig
langar til þess en allt veltur á að foreldrar
mínir leyfi mér að fara,“ sagði Ágústa sem er
ekki nema sextán ára gömul.
Eileen Ford er ströng „móðir” og tekur allar
stúlkur undir tvítugu í sína umsjá ef þær starfa
hjá henni. Þær stúlkur búa á heimili hennar
og verða að fylgja húsreglum sem stundum
þykja strangar. Eileen Ford er til dæmis hörð
á kílóunum og skammtar stúlkunum mat ef
henni finnst þær þurfa að léttast. í staðinn fá
þær mjög gott heimili og góð laun. Eileen Ford
býr á Manhattan í afar glæsilegu húsi.
ELA
„Er að skapa mér eigin stíl"
Bjarni Arason er kominn á fullt skrið aftur
eftir nokkurt hlé. Drengurinn hefur sett á stofn
hljómsveit sem hann nefnir Búningana og þar
eru fimm röskir strákar á aldrinum 15-22 ára.
Búningarnir hafa farið í nokkrar ferðir út á
land og skemmt á sveitaböllum. Ætlunin er
að þeir spili fyrir gesti á tónleikum The Blow
Monkeys næstkomandi fóstudagskvöld. „Við
spilum bæði fyrir og eftir tónleikana en ball
verður fram eftir nóttu,“ sagði Bjarni í sam-
tali við DV.
Bjarni er að gefa út sína fyrstu hljómplötu
um næstu mánaðamót en hann hefur unnið
hana frá áramótum. „Ég er mjög ánægður með
plötuna. Á henni eru fjörug lög í meirihluta,
dálítið í anda gömlu rokklaganna. Inn á milli
skýt ég rólegri lögum,“ sagði Bjarni sem er að
veröa sautján ára. Á meðal laga á hljómplöt-
unni er lagið sem hann söng í Söngvakeppni
sjónvarpsins. Reyndar náði það ekki mörgum
stigum, enda kannski fullrólegt í slíka keppni.
Bjarni lætur slíkt ekki á sig fá og segir að vel
geti farið að hann sendi inn lag í næstu keppni.
Bjarni Arason hefur gert samning við Skíf-
una um útgáfu á þremur plötum og er þessi
sú fyrsta þeirra. Væntanlega á því drengurinn
eftir að láta að sér kveða, enda segir hann að
hljómsveitin hafi verið stofnuð til að starfa
áfram. „Þetta eru dugmiklir strákar, ungir og
flinkir,” sagði Bjarni og bætti við að nú væru
þeir að skipuleggja sumarið. „Stærsti bitinn
er verslunarmannahelgin en það er ekki kom-
ið endanlega á hreint hvar við munum spila
þá.“
Hann sagði jafnframt að hann gæti lifað á
tónlistinni og hyggst gera það áfram. „Maður
er að skapa sinn eigin stfl,“ sagði Bjarni og
bætti við að Búningarnir ætluðu ekki að vera
með Presley lög í svo ríkum mæh sem Vax-
andi, sem hann starfaði með áður. Með honum
í hljómsveitinni eru Arnar Freyr Gunnarsson,
Einar Bergur, Þórir Úlfarsson, Rúnar Guð-
jónsson og Pétur Jónsson.
ELA
Agústa Erna við störf í eldhúsi Borgarspitalans þar sem hún starfar i sumar.
DV-mynd Kristján Ari