Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Síða 27
LAÚGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
27
r»v Popp
Nýjarplötur
sem eru starfandi í Reykjavík í
dag, skortir sárlega, frumleika. Ef
maður ætti að staösetja þessa
hljómsveit í einhverju samhengi
viö annaö í rokkinu (sem er frekar
gagnslaust) er Ham aö spila tónlist
sem er á svípaðri línu og New York
hljómsveítímar Sonic Youth og
Swans leika. Su tilvísun nægir
samt ekki því að hún fellur ekki i
þá gryfju að taka sjálfa sig of alvar-
lega, er með lævisan „svartan"
húmor í anda gamallrar b-hryll-
ingsmyndar frá sjötta áratugnum
með Vincent Price í aðalhlutverki.
Má segja að það eina sem er neðan-
jarðai' við Ham sé uppruni þessar-
ar kímni: beint úr gröfmni. Þetta
kom glögglega frara í laginu Tran-
sylvanía seth er við texta sem er
eitthvað á þessa leið:
Við viljum meiða hana saman
Við viijum drekka hennar blóð
Hún kem urí heimsókn í hvíta kast-
alann til okkar
Við berjum hana með svipum og
kyssum blíðlega á vangann
Hún fyllir lífokkar ijósi, við emm
hamingjusamir
Viö elskum hana svo heitt að við
gefum hemú Fresca...
Þessi absúrdkímni ásamt sérvitr-
um söng Sigurjóns og Óttars er með
því fyndnasta sem ég hef heyrt hjá
íslenskri hljómsveit og alveg
ómissandi sem mótvægi viö hávært
og óvægið rokk hljómsveitarinnar.
Ef fnnm laga platan Hold, sem
Smekkleysa s/m gefur út eftir
nokkra daga, er í einhverju sam-
ræmi viö frammistöðu Hams á tón-
leikunum í Duus-húsi er komin
kærkomin sprauta ferskleika í held-
ur staðnaö tónlistarlif landsins. í
viðtali um daginn sögðust þeir fé-
lagamir í Ham vera „dætur djöfuls-
ins“. Hvernig var það aftur með
þann heiðursmann, er það ekki ein-
mitt hann sem á öíl bestu lögin?
Helgarpopp
Þorsteinn Högni
Gunnarsson
Bandaríski tónlistarmaðurinn
Prince er einn umdeildasti poppari
heimsins. Sérstaklega fer hann fyrir
brjóstið á skinheilögum siðferðis-
prédikurum í heimalandi sínu en það
fólk má vart sjá bert hold án þess að
fá útbrot og skjálfta. Blautlegur
kveðskapur Prince og skírskotun
hans til kynlífs í orði og æöi hefur
meðal annars gert það að verkum $ð
þessi nýja plata hans er á bannhsta
fjölda verslana í Bandaríkjunum
enda er prinsinn berstrípaður á
mynd sem prýðir umslag plötunnar.
Allt er þó innan þeirra velsæmis-
marka sem við íslendingar setjum
okkur.
Nafn þessarar nýju plötu Prince
sýnir svo ekki veröur um villst að
enn ér hann viö sama heygarðs-
hornið í kveðskapnum. Lovesexy er
nafnið og gefur ótvírætt til kynna um
hvað listamaöurinn er að Kugsa.
En það var ekki meiningin að ein-
beita sér að textagerð Prince hér
heldur tónlistinni því að hún skiptir
okkur vísast meira máli. Og það er
Prince - Lovesexy
Gæðin koma í ljós
skemmst frá því að segja að ekki
hefur tónlist Prince tekið miklum
stakkaskiptum frá síðustu plötu;
hann heldur sig við þessa fónkblön-
duðu soultónlist sem einkennist af
þéttum, fóstum takti sem núorðið er
sleginn af trommuheilum mestan-
part.
Fyrir vikið er þetta tónhst sem
nýtur sín betur á stöðum þar sem
fótmennt er í hávegum höfð en það
á þó ekki við öh lög plötunnar; hér
eru melódíur sem láta vel í eyrum
innanum og kæmi mér ekki á óvart
þó einhverjar þeirra ættu eftir að
gista vinsældalista heimsins. Reynd-
ar má finna melódíur í öllum lögum
plötunnar; það er bara mismunandi
djúpt á þeim.
Eins og fyrri plötur Prince þarf
þessi töluvert mikla hlustun áöur en
hlustandinn fær „rétta“ mynd af
innihaldinu en þegar því stigi er náð
er ljóst að Lovesexy er með bestu
plötum Prince og það eru ekki svo
htil meðmæli.
-SþS-
10.000 Maniacs -
In My Tribe
í gamla andanum
Einhvern veginn passar það ekki
þegar dökkhærðri stúlku er gefið
nafnið Mjallhvít eöa er sú ljóshærða
er látin heita Kolbrún. Svo ekki sé
minnst á rauðhærðar Tinnur. Sömu-
leiðis hljómar þaö hálf-ankannalega
að gefa „softrokk“hljómsveit nafnið
10.000 Maniacs eða tíuþúsund brjál-
æðingar. Maöur býst vitaskuld viö
því að slík sveit flytji tryllta ný-
bylgju.
Sú er aldeihs ekki raunin meö
10.000 Maniacs. Hljómsveitin sú er
alfarið á mjúku nótunum. Ekki kann
ég aö segja sögii brjálæöinganna.
Veit þó aö þeir eru fimm talsins og
að söngkona hópsins heitir Natalie
Merchant. Hún hefur þægilega rödd
en fuhblæbrigðálausa fyrir minn
smekk. Að minnsta kosti fyrir tólf lög
í einni bunu.
Mín reynsla er því sú að best sé að
innbyrða 10.000 Maniacs í smá-
skömmtum. Sem slíkir eru þeir vel
áheyrilegir. Engin lög standa þó
áberandi upp úr en What’s the Matt-
er Here, Like the Weather og gamla
Cat Stevens-lagið, Peace Train, eru
vel bærileg.
Þess má geta að 10.000 Maniacs
hafa með sér fornfrægan upptöku-
stjóra, Peter Asher. Sá söng True
Love Ways og fieiri grátklökka slag-
ara í gamla daga í dúettinum Peter
and Gordort. Þá vann Asher með
Lindu Ronstadt og James Taylor í
gamla daga, svo að fáir einir séu
nefndir. Þaö hlýtur því að teljast
10.000 Maniacs til hróss að slíkur
karl fáist til að vinna með þeim. Enda
eru lög hljómsveitarinnar og útsetn-
ingar þeirra síður en svo framúr-
stefnulegar. Hljómboröin hljóma
meira að segja eins og í gamla daga
þegar Farflsur og Vox-orgvélar voru
notaðar af hljómborðsleikurum
bítlasveitanna.
Áhugamenn um góðan hljóm á
geisladiskum verða ekki sviknir af
In My Tribe með 10.000 Maniacs.
Stafræn tækni er notuð við vinnslu
plötunnar frá upphafi til enda. Hún
er með öðrum orðum DDD plata.
- ÁT -
FERÐAKYNNING
RUTUDAGUR
í UMFERgARMIÐSlÖÐINNI
I DAG
Rútusýning, ferðakynning og margvísleg skemmtiatriði í Umferðarmiðstöðinni frá kl. 10.00—18.00.
Stærsta rútusýning á íslandi með um 40 rútur af öllum stærðum og gerðum. Nýjar rútur,
gamlar rútur, fjallabílar, eldhúsbílar, boddýbílar, snjóbílar og fornbílar.
Yfirgripsmesta ferðakynning sem haldin hefur verið á íslandi, þar sem yfir 30 aðilar kynna
starfsemi sína.
Ferðamálaráð íslands
Upplýsingamiðstöð ferðamála
Ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar
Ferðamálasamtök Vesturlands
Ferðamálasamtök Vestfjarða
Ferðamálasamtök Suðurlands
Ferðamálasamtök Norðurlands
Ferðamálasamtök Austurlands
Ferðamálasamtök Suðurnesja
Ferðaþjónustuaðilar í
Vestmannaeyjum
Félag íslenskra ferðaskrifstofa
Ferðaskrifstofa ríkisins —
Hótel Edda
Ferðafélag íslands
Útivist
Bandalag íslenskra farfugla
Ferðaþjónusta bænda
Fólag eigenda sumardvalarsvæða
Náttúruverndarráð
Samband veitinga- og
gistihúsaeigenda
Útgefendur blaða og bóka um
ferðamál:
— örn og Örlygur, Ferða-
handbókin Land
Tjaldaleigan við Umferðar-
miðstöðina
Landmælingar íslands
Slysavarnarfólag íslands
Framleiðendur ferðafatnaðar:
— Álafoss, Fínull. Henson, Max
Fornbílaklúbbur Islands
BSÍ hópferðabílar
Ferðaskrifstofa BSÍ
Fólag sérleyfishafa
Skemmtiatriði:
Lúðrasveitin Svanur leikur.
Sterkasti maður heims, Jón Páll,
dregur rútu. Félagar úr Flugbjörg-
unarsveitinni sýna fallhlífastökk.
Fornbilasýning. Hljómsveitin
Tríó '87 leikur. Ökeypis
skoðunarferðir um Reykjavík.
Ferðagetraun í gangi allan
daginn. Hinir einu sönnu
Sykurmolar leika.
Vörukynning á vegum Nóa,
Mjólkursamsölunnar og
AÐGANGUR ÓKEYPIS