Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Qupperneq 38
50
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
Kvikmyndir
Nýjar kvikmpdir vestanhafs í sumarbyqun:
Krokódíla Dundee og
Rambo í nýjum ævintýrum
Bob Hoskins og Stubby Kaye ásamt teiknimyndafígúru í Who Framed Ro-
ger Rabbit?
Óvenju mikið hefur komið og er væntanlegt af nýjum kvikmyndum
vestanhafs, þegar haft er í huga að sumarið er gengið í garð. Sjálfsagt
stafar þetta af því mikla góðæri sem einkennt hefur kvikmyndafram-
leiðsluna í Hollywood að undanfömu. Að sjálfsögðu em gæðin æði
misjöfn og megnið er hin dæmigerða Hollywoodafþreying, með mynd-
um á borð við Rambo III og Krókódíla-Dundee II fremstar í flokki, en
þær vom frumsýndar sama dag og er greinilegt að hress Dundee hefur
vinninginn á þreyttan Rambo í baráttu um vinsælustu kvikmynd sumars-
ins. Hér verður siklað í stuttu máli um forvitnilegustu kvikmyndirnar.
Susan Sarandon og Kevin Costner
i Bull Durham.
Jeff Bridges leikur bjartsýnismanninn Tucker í nýjustu kvikmynd Francis Richard Dreyfuss, Sonia Braga og Raul Julia leika aðalhlutverkin í Moon
Ford Coppola, Tucker: The man And His Dream. Over Parador.
Tucker:
The Man And His Dream
Francis Ford Coppola lætur ekki
deigan síga þrátt fyrir misjafnt gengi.
Hann er enn á ný mættur með nýja
kvikmynd. Að þessu sinni fjallar
mynd hans, Tucker: A Man And his
Dream, um Preston Tucker, banda-
rískan bjartsýnismann og bílafram-
leiðanda. Tucker var mikiU uppfinn-
ingamaður sem fyrstur manna kom
á framfæri bílbeltum, beinni inn-
spýtingu og fleiri hugmyndum í bíla-
iðnaðinum sem þykja sjálfsagðar í
bílum í dag. Stóru fyrirtækin í Detro-
it voru samt ekki hrifin af honum
og reyndu hvað eftir annað að gera
hann gjaldþrota. Það er hinn geð-
þekki Jeff Bridges sem leikur bjart-
sýnismanninnTucker. Sumirhafa
séð Coppola sjálfan í lýsingu á Tuck-
er, en eins og menn rekur í minni
stofnaði hann Zoetrope fyrirtækið
sem átti aö hjálpa ungum og efnileg-
um kvikmyndagerðarmönnum á átt-
unda áratugnum en fór næstum með
allt á hausinn vegna bjartsýni og trú-
aiánáungann.
Moon Over Parador
Moon Over Parador er gaman-
mynd með póhtískum undirtóni. Ric-
hard Dreyfuss leikur leikara sem er
að leika í kvikmynd í ónefndu landi
suður af Bandaríkjunum. Þegar ein-
ræðisherra landsins deyr er leikar-
inn hnepptur í varðhald og neyddur
til að fara í gervi hins nýlátna ein-
ræðisherra. Eins og góðum leikara
sæmir leggur hann alúð í hlutverk
sitt og er þar meðtalin hjákona ein-
ræðisherrans. „ Þetta er kvikmynd
um leikara," segir leikstjórinn Paul
Mazurski, „um það hve taugaveikl-
aðir þeir verða þegar þeir þurfa að
glíma við raunveruieg vandamál. Á
hinn bóginn er myndin póhtísk, við
erum með okkar hugmyndir um ein-
ræði.“
RedHeat
Hér er ein fyrir spennumynda-
aðdáendur. Vöðvatrölhð Arnold
Schwarzenegger leikur sovéskan
lögreglumann sem kemur tU Banda-
ríkjanna í leit að fyrrverandi sam-
starfsmanni sem grunaður er um eit-
urlyfjasölu. Jim Belushi leikur
kænílausan Chicago lögreglumann
sem fenginn er til að aðstoða rúss-
ann. Leikstjóri er Walter HUl og þyk-
ir Red Heat minna óþægUega á aðra
mynd er hann leikstýrði, 48 hrs., sem
fjallaði einnig um tvær ólíkar löggur
að vísu báðar bandarískar.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Who Framed
Roger Rabbit?
Hér er á ferðinni allsérkennileg
kvikmynd sem er eins gott fyrir
framleiðendur hennar að fólk flyk-
kist tU að sjá, því sagt er að kostnað-
ur við hana hafi verið 40 milljónir
dollara. Bob Hoskins leikur vafa-
sama löggu sem á við áfengisvanda-
mál aö stríða. Hann er í leit að morð-
.... . .. ......
Bardaginn um dollarana
Miövikudagínn 25. mai voru frumsýndar vestanhafs þser myndir sem búist var við að mest
aðsókn yrði að sumarið 1988, Krókódíla Dundee li og Rambo III. Strax í fyrstu viku kom í ijós
að Krókódíla Dundee myndi hafa vinningin og þaö margfalt. Ekki góðar fréttir fyrir framleiðend-
ur Rambo, þvi sú mynd kostaði litlar sextíu og þrjár mílljónir doilara. Aftur á móti getur Paul
Hogan brosað þessa daganna, þvi miiljónirnar eru strax farnar að streyma i vasa hans.
ingja. Leitin gengur vægast sagt Ula.
Hann er handjárnaður og færöur tU
kanínu sem er saklaus sökuð um
morð. Það sem gerir þessa mynd sér-
kennUega er að teiknimyndafígúrum
er lætt inn í myndina í hin ýmsu
hlutverk. Það hefur sjálfsagt verið
erfitt fyrir Hoskins og aðra leikara
að leika í þessari kvikmynd því
teiknimyndafígúrurnar voru settar
inn eftir á. Leikstjóri Who Framed
Roger Rabbit? er Robert Zemeckis en
hans síðasta mynd var Back To The
Future. Og hver annar en Steven
Spielberg þorir að framkvæma stór-
virki sem þetta, en hann er aö sjálf-
sögðu einn framleiðenda myndar-
innar.
Married To The Mob
Jonathan Demme, er leikstýrði
hinn ágætu Something Wild í fyrra,
er komin með aðra „svarta kómed-
íu“. Nefnist hún Married To The
Mob. Fjallar myndum um ekkju at-
vinnumorðingja og samband hennar
við alríkislögreglumann sem hún
hrífst af og mafíuforingja sem eltir
hana á röndum. Aðalhlutverkin
leika Michele Pfeiffer, Matthew Mod-
ine og Dean Stockwell.
BuUDurham
Myndir um homabolta hafa verið
vinsælt viðfangsefni í Hollywood að
undanförnu og er Bull Durham ein
slík. Hefur hún fengiö ágætar við-
tökur. Aöalhlutverkin leika Kevin
Costner og Susan Sarandon. Hefur
Kevin Costner fengið hrós fyrir leik
sinn í hlutverki hornaboltaspilara á
síðasta snúningi. Leikstjóri og hand-
ritshöfundur er Ron Shelton sem
áður fyrr lék hornabolta. Hann hætti
slíku tuttugu og fimm ára gamall og
sneri sér að kvikmyndagerð.
BigBusiness
Sumarmyndin frá Touchstone fyr-
irtækinu er Big Business. Þar leika
Lily Tomlin og Bette Midler tvö sett
af eineggja tvíburum. Það slys skeð-
ur á sjúkrahúsinu eftir fæðinguna
að tvíburarnir víxlast. Eitt settið af
Tomlin-Midler elst upp í fátækt. Hitt
settið Iendir hjá ríku foreldri. Mis-
tökin koma svo í ljós þegar tvíbur-
amir eru komnir á fulloröinsár.
Leikstjóri er Jim Abrahams.
Coming To America
Gullkálfurinn Eddie Murphy birt-
ist í nýrri gamanmynd undir stjórn
John Landis. Leikur hann afrískan
prins sem kemur til New York í leit
að kvonfangi. Hefur hann mikið álit
á sjálfum sér og ætlast til aö tilvon-
andi kona hans uppfylli allar hans
kröfur. Sérstaka áherslu leggur hann
á að hún elski hann vegna greindar
hans en ekki peninga hans.
Cocktail
Cocktail er mynd barþjónanna í
sumar. Tom Cruise leikur einn slík-
an sem græðir á eigin hyggjuviti og
á auðvelt með að komast yfir hvern
þann kvenmann sem hann lystir.
Kennara hans í barþjónalistinni leik-
ur Bryan Brown. Glansinn fer þó
fljótt af starfinu og klækjunum. Leik-
stjóri er Roger Donaldson sem síðast
leikstýrði hinni vinsælu No Way
Out.