Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.1988, Page 60
F.RÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið ( hverri viku greiðast 5.000 krón-
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
LAUGARDAGUR 11. JÚNÍ 1988.
Helgarpósturinn:
Goðgá iíklega
lýst gjaldþrota
___- skuldimar 15 milljónir
„Það bendir flest til þess að óskað
verði eftir því að Goðgá verði tekin
til gjaldþrotaskipta á þriðjudaginn.
Það verður stjómarfundur á mánu-
daginn þar sem endanleg ákvörðun
um málið verður tekin,“ sagöi Valdi-
mar Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri Helgarpóstsins.
Við endurskoðun á fjármálum
Goðgár hefur komið í ljós að skuldir
umfram eignir em allavega 15 millj-
ónir og er talið ólíklegt að hluthafar
vilji auka hlutafé sitt í fyrirtækinu
til aö bjarga því. Hugsanlegt er þó
að minnihluti hluthafa kaupi fyrir-
tækið en það er ólíklegt. Þá hefur
heyrst að minnihlutinn vilji leigja
.„gtarfsmönnum fyrirtækið en starfs-
mönnum mun ekki lítast vel á þá
fyrirætlan enda eiga þeir laun inni
hjá fyrirtækinu. Valdimar leist held-
ur ekki á þá fyrirætlan.
„Ég verð að segja að það er furðu-
legt aö starfsmenn skuli ganga út af
vinnustað aðeins 14 tímum eftir að
átti að greiða út laun. Það er liklega
einsdæmi á íslandi. Starfsmenn HP
eiga því ef til vill stærsta sök á því
hvernig komið er,“ sagði Valdimar .
Hann sagði að vissulega væri leiðin-
legt að skulda laun en starfsmönnum
"•fiefði verið boðin full greiðsla í vik-
unni en þeir hins vegar ákveðið að
sitja af sér tilboðið og því gætu þeir
sjálfum sér um kennt hvemig komið
væri.
Þá sagöi Valdimar að menn þyrftu
varla að velkjast í vafa um aö Goðgá
hf. ætti nafn Helgarpóstsins. Nafnið
væri bundið fyrirtækinu í firmaskrá
og þá væri hefð fyrir eign Goðgár á
nafninu. Sagði Valdimar að mönnum
væri ekki sæmandi að reyna að stela
nafninu. -SMJ
Góð færð víðast hvar
Samkvæmt upplýsingum Vegaeft-
■yýlits ríkisins er færð góð víðast hvar
a landinu. Ekki hafa allir Qallvegir
verið ruddir og eru vegir á hálendinu
lokaðir.
í Eyjafirði hafa verið nokkrir
vatnavextir og er vegurinn fyrir Ól-
afsfjarðarmúla varhugaverður á
köflum. -StB
LOKI
Það er jafngott að menn séu-
ekki mjög tapsárir hjá SiS.
Taprekstur Sambandsins heldur áfram á þessu ári:
Hátt í 200 milljóna tap
á fjórum mánuðum
A fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs tapaði Sambandið hátt í tvö
hundruð milijónum á rekstri sín-
um. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri
Sambandsins, staðfesti þetta 1 sam-
tali við DV. Þetta tap bætist við 220
milljóna króna tap síðasta árs.
Guðjón vildi ekki tilgreina
ákveðnar tölur um taprekstur ein-
stakra deilda en samkvæmt heim-
ildum DVnemur tapið áfyrstu fjór-
um mánuðum ársins um 120 millj-
ónum á verslunardeildinni einni.
„Það eru ekki sjáanleg nein bata-
merki á afkomu deildanna. Það er
því full ástæða til þess að hafa
þungar áhyggjur af þeim erfiðleik-
um sem eru fram undan í rekstri
Sambandsins,“ sagði Geir Geirs-
son, endurskoðandi Sambandsins,
á aðalfundi fyrirtækisins aö Bif-
röst.
Á fyrstu mánuðum ársins var
einnig gríðarlegt tap á rekstri
kaupfélaganna en samanlagöur
rekstrarreikningur þeirra kom í
fyrra út með tæplega 360 milljóna
króna tapi.
Á aðalfundinum var lítið fjallað
um til hvaða aðgerða ætti að grípa
til að rétta við rekstur Sambands-
ins. Stofnun Sambands sambands-
verslana var kynnt en margir fund-
armenn lýstu yfir vantrú sinni á
að sú aögerð myndi duga til að
bjarga verslunardeildinni og versl-
unarrekstri kaupfélaganna, þar á
meöal sjálfur stjómarformaður-
inn, Valur Arnþórsson.
í lok aðalfundarins benti Þröstur
Ólafsson, sfjómarformaöur Kaup-
félags Reykjavíkur og nágrennis, á
að í samþykktum Sambandsins er
gert ráð fyrir þeim möguleika að
kalla saman aðalfundarfulltrúa á
milli aöalfunda. Þessi ábending
sýnir þann ugg sem var í fundar-
mönnum bæöi vegna lélegrar af-
komu fyrirtækja samvinnuhreyf-
ingarinnar og einnig gagnvart
þeim aðgerðum sem forsvarsmenn
þeirra kunna að grípa til í tilraun-
um sínum til að snúa rekstrinum
við. -gse
sjá bls. 4
I gær hófst laxveiði í þremur af þekktustu laxveiðiám landsins, Laxá í Kjós,
Laxá i Aðaldal óg Eiliðaánum. Á hádegi i gær voru komnir 10 laxar upp
úr Laxá í Kjós og voru þeir á bilinu 10-12 pund og allir veiddir á maðk.
Davíð Oddsson fékk þá fjóra laxa sem veiddust í Elliðaánum fyrir hádegi
í gær. Fimm laxar komu á land í Laxá í Aðaldal og var sá stærsti hvorki
meira né minna en 26 pund. Á myndinni sjást þeir Þórarinn Sigþórsson
og Bolli Kristinsson með fjóra laxa sem þeir fengu í Laxá í Kjós í gærmorg-
un. Þórarinn fékk þrjá þeirra. -SK/DV-mynd S
Jökulfell í Bandaríkjunum:
Grænfriðungar hlekkj-
uðu sigfasta um borð
„Þetta leystist allt með góðu á rétt
rúmlega klukkutíma og þeir tóku
niður hlekkina og hurfu á braut eftir
að hafa spjallað lítillega við lögregl-
una sem var kvödd þarna að,“ sagði
Stefán Eiríksson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Skipadeildar Sam-
bandsins.
Rétt fyrir hálffimm í gærmorgun,
þegar Jökulfell, skip Sambandsins,
átti um hálftíma siglingu eftir að
höfninni í Gloucester í Massachuss-
etts, renndi bátur með 8-9 Grænfrið-
ungum að skipshlið. Þeir fóru um
borð og hlekkjuðu sig við kranann
og einhverja aðra hluta skipsins.
„Það kom nú aldrei skýrt fram
hverju þau voru að mótmæla en
skipverjar létu þau ekkert trufla sig
heldur héldu áfram vinnu sinni,
sigldu inn í höfnina og byrjuðu að
losa skipið,“ sagði Stefán Eiríksson.
JFJ
Ölduselsskóli:
Kennarar íhuga
uppsagnir
Að sögn eins kennara við Öldusels-
skóla er fjarri því að öll kurl séu
komin til grafar vegna setningar
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur í stöðu
skólastjóra þar. Munu margir kenn-
arar alvarlega hafa íhugað aö segja
störfum sínum lausum enda ráðning
Sjafnar fullkomlega í andstöðu við
vilja þeirra. Þá er hugsanlegt að
Reynir Daníel Gunnarsson yfirkenn-
ari, sem sótti um starfiö gegn Sjöfn,
segi stöðu sinni lausri, enda segist
hann ekki njóta trausts Fræðsluráðs
og að erfitt sé að starfa við þau skil-
yrði.
Það er hins vegar meðal foreldra
sem hugurinn er þyngstur út af af-
greiðslu málsins.- Þeir verða með
mikinn fund á mánudaginn þar sem
reynt verður aö meta hvaö sé til ráða.
Það eru reyndar flestir á því að
ákvörðun ráðherra verði ekki hnik-
að og því óttast foreldrar að vekja
upp mikinn styr áður en nýr skóla-
stjóri tekur til starfa. Miðað er við
að Sjöfn hefji störf 1. ágúst. -SMJ
Veðrið á sunnudag
o| mánudag:
Afram
suðvest-
læg átt
Á sunnudag og mánudag verð-
ur áfram suðvestlæg átt á
landinu, skýjað og súld eða rign-
ing öðru hverju vestanlands en
þurrt og sums staðar bjart veður
austan til. Hiti verður 7-17 stig.
Seinkanir hjá
Flugleiðum
Seinkun varð á flestum ferðum
Flugleiða innanlands í gær en þó
minni en undanfarna daga. Seinkan-
irnar virðast vera af svipuðum toga
og verið hefur, það er þær eiga sér
enga augljósa skýringu en menn geta
sér þess til að orsakir þeirra séu að
flugmenn flýti sér ekki við störf sín.
Vilji ílugmenn þannig minna á að
kjarasamningar þeirra hafa verið
lausir frá áramótum.
í millilandaflugi var eitthvað um
seinkanir en þær áttu sér eðlilegar
skýringar og orsökuðust af veðri eða
mikilli umferð í lofti.
-JFJ