Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Side 18
18
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Persónuleikapróf
Hefur þú áhyggjur af
áliti annarra á þéi?
Líður þér vel við aðstæður sem þessar?
Þetta próf er um kvíðann sem allir
fmna fyrir þegar þeir standa and-
spænis nýjum aðstæðum. Við slík-
ar aðstæður ímyndum við okkur
öll að neyðarleg staða geti komið
upp og fyllumst ótta við að verða
metin ranglega. Þetta þekkja allir
sem mætt hafa til viötals vegna
nýrrar vinnu eða þurfa oft að fara
á mikilvæga fundi. Oftast reynist
þetta ástæðulaust og allt fer vel.
Stundum þróast málin þó á verri
veg.
Með þessu prófi getur þú komist
aö því hve miklar áhyggjur þú hef-
ur af áliti annarra á þér. Prófið á
einkum við ef þú óttast að áhtið sé
ekki þér í hag. Lestu nákvæmlega
fullyrðingarnar þrjátíu sem birtast
hér á eftir. Svaraðu síðan sjálfum
þér hvort þú ert sammála eða ósam-
mála. Ef þú ert sammála setur þú S
í reitinn aftan við spuminguna. Ef
þú ert ósammála setur þú Ó.
Best er að svara spurningunum
viðstöðulaust og velta þeim ekki
of mikið fyrir sér.
1. Þaö veldur mér sjaldan áhyggj-
um þótt aðrir telji mig bjána. ()
2. Ég hef áhyggjur af þvi hvað fólk
heldur um mig, jafnvel þótt það
skipti engu máh. ()
3. Það veldur mér hugarangri ef ég
veit að verið er að tala um mig. ()
4. Mér er alveg sama þótt einhver
hafi ekki mikið áht á mér. ()
5. Mér verður órótt ef ég kem
klaufalega fram. ()
6. Áht þeirra sem ég á eitthvað
undir að sækja skiptir mig htlu
máh. ()
7. Ég hræðist oft að verða sjálfum
mér til skammar. ()
8. Ég læt mér í léttu rúmi hggja
þótt aðrir sé óánægðir með mig. ()
9. Ég óttast oft að aðrir uppgötvi
takmarkanir mínar. ()
10. Óánægja annarra með mig
skiptir mig htlu máli. ( )
11. Ef ég er metin(n) af öðrum ótt-
ast ég að áhtið sé á verri veg. ()
12. Ég hef sjaldan áhyggjur af því
hvaða áhrif framkoma mín hefur á
aðra. ()
13. Ég óttast oft að faha ekki öðrum
í geð. ()
14. Ég óttast oft að aðrir setji út á
framkomu mína. ()
15. Skoðanir annarra hafa ekki
áhrif á mig. ()
16. Það veldur mér ekki áhyggjum
þótt framkoma mín falli ekki öðr-
um í geö. ()
17. Þegar ég tala við fólk hugsa ég
oft um hvað það heldur um mig. ()
18. Ég hugsa stundum sem svo að
ég ráði ekkert við klaufaskap minn
og ætti þess vegna ekki að hafa
áhyggjur af honum. ()
19. Ég hugsa mikiö um hvernig ég
kem öðrum fyrir sjónir. ()
20. Það veldur mér áhyggjum hvað
yfirmenn mínir halda um mig. ()
21. Það veldur mér litlum áhyggj- ■
um þótt ég viti að aörir eru að
dæma mig. ()
22. Það veldur mér oft áhyggjum
aö aðrir telja mig ef til vih einskis
nýta(n). ()
23. Mér er sama hvað aðrir haldá
um mig. ()
24. Stundum fmnst mér að ég hafi
of miklar áhyggjur af hvað aðrir
halda um mig. ()
25. Ég óttast oft að segja eitthvað
heimskulegt. ()
26. Ég læt mér álit annarra á mér
í léttu rúmi liggja. ()
27. Ég er oft viss um aö aðrir hafa
mikið álit á mér. ()
28. Ég óttast oft að áhrifamikið fólk
hafi ekkert álit á mér. ()
29. Ég geri mér oft rellu út af áliti
vina minna á mér. ()
30. Ég verð óörugg(ur) ef ég veit að
yfirmenn mínir eru að meta verk
mín. ()
Niðurstaða
Berðu niðurstöðu þína saman við
svörin í töflunni hér fyrir neðan.
Gefðu þér eitt sig ef svar þitt er það
sama og gefið er upp í töflunni.
Greining
21 til 30 stig
Ef stig þín eru á þessu bili bendir
það til að þú hafir miklar áhyggjur
af áliti annarra á þér. Það bendir
líka til að þú forðist mjög að lenda
í vandræðalegum aðstæðum þar
sem þú gætir fallið í álitj. Þú óttast
að lenda í slíku.
Þetta þýðir ekki að þú hafir lítið
álit á þér en þú óttast stöðugt að
aörir vanmeti þig og það hefur
slæm áhrif á sjálfsáhtið. Þú reynir
að forðast gagnrýni og ert oft í
vöm.
13 til 20stig
Ef stig þín eru á þessu bili getur
framkoma þín oft bent til að þú
forðist gagnrýni og veigrir þér við
að lenda í vandræðaleginn aðstæð-
um. Sumum finnst þó að þú sért
mjög öruggur með sjálfa(n) þig og
látir þér á sama standa um álit
annarra.
Þetta em tvær andstæðar ímynd-
ir sem báðar eiga ítök í þér. Á sum-
um sviðum óttast þú gagnrýni en
yfirleitt ertu ömgg(ur) með sjálf-
a(n) þig. Ólíkar aðstæður hafa ólik
áhrif á þig.
Otil 12stig
Þessi niðurstaða bendir til að þú
sér mjög ömgg(ur) meö sjálfa(n)
þig. Þér stendur á sama um álit
annarra. Það er reyndar líklegast
að þú hafir vitað þetta áður en þú
tókst prófið. Það hvarflar ekki að
þér að aðrir hafi lítið álit á þér. Því
finnst mörgum að þú sért góð(ur)
með þig. Þú ættir að nota sjálfsör-
yggi þitt til að hjálpa öðrum að
auka sjálfsöryggi sitt.
1. ó 7. S 13. Ó 19. S 25. S
2. S 8. Ó 14. S 20. S 26. Ó
3. S 9. S 15. S 21. Ó 27. S
4. Ó 10. Ó 16. Ó 22. S 28. Ó
5. S 11. Ó 17. S 23. Ó 29. S
6. Ó 12. S 18. Ó 24. S 30. S
ER ÞAÐ 1 EÐA X EÐA 2 24
A Leikarar í íslenskri kvikmynd hafa verið útnefndir til
Kvikmyndaverðlauna Evrópu. Hvaða mynd er þetta?
1: Morðsaga
X: Hrafninn í skugganum
2: í skugga hrafnsins
B Rætt hefur verið um kunnan verkalýðsleiðtoga sem næsta
forseta ASÍ. Hann heitir:
1: Pétur Sigurðsson
X: SigurðurPétursson
2: Sigfinnur Karlsson
C Eftirminnilegur sigur vannst í happdrætti þar sem vinn-
ingslíkur voru 1 á móti 512. Dregið var í happdrættinu í:
1: Háskólanum
X: Alþingishúsinu
2: Hjáborgarfógeta
D Þettaermerki:
1: Loftflugs
X: Arnarferða
2: Þrastar
E Enska knattspyrnuliðið Liverpool tapaði um síðustu helgi
fyrir:
1: Norwich
X: Derby
2: Newcastle
F í sjó við Austfirði hefur fundist eiturefnið:
1: ATF
X: CTC
2: PCB
G í síðustu viku varð maður nokkur frægur fyrir sprenging-
ar. Hann heitir:
1: Andreas Baader
X: Steirigrímur J. Sigfússon
2: Stefán Valgeirsson
H Málsháttur hljóðar svo: Seint er að byrgja...
1: markiðþegarboltinnerkominninn
X: brunninn þá barnið er dottið ofan í
2: sýn þegar sólin er komin upp
Sendandi
Heimili _____________________________________________________
I Réttsvar: A □ B □ C □ D □
E □ F □ G □ H □
Hér eru átta spurningar og
hverri þeirra fylgja þrír mögu-
leikar á réttu svari. Þó er aðeins
eitt svar rétt við hverri spurn-
ingu. Skráið réttar lausnir og
sendið okkur þær á svarseðlin-
um. Skilafrestur er 10 dagar.
Að þeim tíma liðnum drögum
við úr réttum lausnum og veit-
um þrenn verðlaun, öll frá póst-
versluninni Primu í Hafnar-
firði.
Þaueru:
1. Fjölskylduteppi að verðmæti
kr. 5.430,-
2. Fjölskyldutrimmtækiað
verðmæti kr. 2.750,-
3. Skærasett að verðmæti 1.560,-
í öðru helgarblaði héðan í frá
birtast nöfn hinna heppnu en
nýjar spumingar koma í næsta
helgarblaði.
Merkið umslagið 1 eða X eða 2,
c/oDV,pósthólf 5380,125
Reykjavík.
Vinningshafar fyrir 1 eða X eða
2 í tuttugustu og annarri get-
raun reyndust vera: Sveinbjörg
Jónsdóttir, Drápuhlíð 44,105
Reykjavík (hitateppi); Brynjólf-
ur Magnússon, Vesturbergi 78,
111 Reykjavík (trimmtæki);
Oddný Steingrímsdóttir,
Njörvasundi 9,104 Reykjavík
(skærasett).
Vinningarnir verða sendir
heim.
Rétt lausn var: X-2-X-X-1-1-2-X