Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1988, Page 48
64
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1988.
Afmæli
Rögnvaldur Kristján Sigurjóns-
son píanóleikari, Þórsgötu 21a,
Reykjavík, er sjötugur í dag. Rögn-
valdur Kristján er fæddur á Eski-
firði og ólst upp í Rvík. Hann braut-
skráðist úr Tónlistarskólanum í
Rvík 1937. Aöalkennari hans var
Árni Kristjánsson. Hann fór sama
haust til Parísar og var í píanónámi
hjá Marcel Ciampi og kontrapunkti
í Schola Cantorum. Rögnvaldur var
aðstoðarkennari í Tónlistarskólan-
um í Rvík 1939-1942 og var í fram-
haldsnámi í New York 1942-1945,
kennari hans í píanóleik var Sascha
Gorodnirski, og orkestration í Juill-
ard skólanum, kennari hans Vitt-
orio Giannini. Hann lauk próíi í
þeirri grein 1944, var kennari í Tón-
listarskólanum í Rvík frá 1945 og
síðar yflrkennari framhaldsdeildar
í píanóleik. Rögnvaldur hefur leikið
í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum
og mörgum öðrum ríkjum Evrópu.
Hann var formaður Félags íslenskra
tónlistarmanna um árabil, forseti
Einleikarasambands Norðurlanda
1979-1981 ogheiðursborgari
Winnipegborgar. Rit: Endurminn-
ingabækur skráðar af Guðrúnu Eg-
ilson, Spilað og spaugað, 1978, og
Með lífið í lúkunum, 1979. Rögn-
valdur kvæntist 20. janúar 1940
Helgu Egiison, f. 13. nóvember 1918.
Foreldrar hennar voru Gunnar Eg-
ilson erindreki og kona hans, Guð-
rún Thorsteinsson. Synir Rögnvalds
og Helgu eru Þór, f. 12. desember
1944, heimspekingur, kvæntur Að-
albjörgu Traustadóttur, og Geir, f.
22. mars 1949, sölumaður hjá Sölu-
stofnun lagmetisins, kvæntur Guö-
laugu Ólafsdóttur.
Systkini Rögnvalds eru Markús
Finnbogi, f. 11. júlí 1910, d. 7. janúar
1968, sjómaður í Bandaríkjunum;
Björg, f. 17. júní 1912; Jóhanna, f. 9.
ágúst 1914, gift Theodor Sigurðs-
syni, presti frá Kanada; Kristján
Páll, f. 27. september 1916, d. í maí
1917; Hlíf, f. 16. ágúst 1920, gift Haf-
steini Ólafssyni; Bjöm, f. 25. febrúar
1920, d. 4. mars 1920; og Hörður, f.
27. júlí 1921, flugmaöur, kvæntur
Ólöfu Magnúsdóttur.
Foreldrar Rögnvalds voru Sigur-
jón Markússon, sýslumaður á Eski-
firði, og kona hans, Sigríður Þor-
björg Björnsdóttir. Sigurjón var
sonur Markúsar, skólastjóra Stýri-
mannaskólans, Bjarnasonar, skip-
stjóra í Bauluhúsum í Arnarfirði,
Símonarsonar, bróður Kristjáns,
afa Símonar, afa Friðriks Ólafsson-
ar stórmeistara og Halls Hallssonar
fréttamanns. Móðir Markúsar var
Sigríður, systir Matthíasar, afa Ás-
geirs Ásgeirssonar forseta. Sigríður
var dóttir Markúsar, prests á Álfta-
mýri, Þórðarsonar, stúdents í Vigur,
Ólafssonar, lögsagnara á Eyri, Jóns-
sonar, ættföður Eyrarættarinnar,
langafa Jóns forseta. Móðir Sigur-
jóns var Björg Jónsdóttir, timbur-
manns á Tjörn á Skagaströnd, Jóns-
sonar.
Móðurbróðir Rögnvalds var
Bjami, eftirhermuleikari oggaman-
vísnasögvari. Sigríðurvardóttir
Bjöms, b. í Álftártungu á Mýrum,
Björnssonar. Móðir Bjöms var Guð-
rún Ólafsdóttir, b. í Álftártungu,
Brandssonar, bróður Helga, afa
Bjarna Þorsteinssonar, prests og
tónskálds á Siglufirði. Annar bróðir
Ólafs var Helgi yngri, langafi Hauks
Helgasonar, aöstoðarritstjóra DV,
og Steinars B. Jakobssonar, for-
Rögnvaldur Kristján Sigurjónsson
stjóra Vestumorræna fjárfesting-
arlánasjóðsins. Móðir Sigríðar var
Jensína Bjarnadóttir, systir Mark-
úsar skólastjóra.
Kjaitan Ó. Þorsteinsson
Kjartan Ó. Þorsteinsson vélstjóri,
Ólafsbraut 42 í Ólafsvík, er 75 ára á
morgun, sunnudag.
Kjartan er fæddur í Hlíðarkoti í
Fróðárhreppi en níu ára flutti hann
til Ólafsvíkur og hefur verið þar síð-
an. 15 ára gamall byrjaði Kjartan
sjómennsku á árabátum. Upp úr
1943 fóru vélar að koma í bátana og
fljótlega byrjaði hann að eiga við
þær. Arið 1945 réðst Kjartan sem
vélgæslumaður til Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur og hefur verið þar síöan.
Kjartan er með vélstjórapróf og hef-
ur endurmenntað sig í stjórnun og
viðgerð véla.
Árið 1932 kynntist Kjartan Ingi-
björgu Ólafsdóttur sem þá var ekkja
og átti þijú börn. Tvö þeirra, Ás-
björn Pétursson og Guörúnu Pét-
ursdóttir, ólu þau upp. Börn Kjart-
ans og Ingibjargar eru Haraldur
Sævar, f. 8.11.1933, framkvæmda-
stjóri; Theódóra Sigrún, 13.8.1935,
d. 10.1.1960; Gunnleif, f. 29.1.1941,
rannsóknarlögreglumaður; Pétur, f.
27.11.1946, verkstjóri.
Kjartan og Ingibjörg slitu sam-
vistumárið 1955.
Árið 1957 giftist Kjartan Ólafíu
Huldu Siguröardóttur, dóttir Sig-
urðar Eyjólfssonar og Kristjönu
Þórðardóttur. Fósturdóttir þeirra er
Ástrós Gunnarsdóttir, f. 4.12.1959,
fædd og búsett i Ólafsvík.
Systkini Kjartans voru átta en
fimm eru látin.
Foreldrar Kjartans voru Kristjana
Jónatansdóttir og Þorsteinn Þórðar-
son, skipasmiður í Ólafsvík.
Kjartan Ó. Þorsteinsson
Kjartan tekur á móti gestum í sal
lögreglumanna, Brautarholti 30, kl.
17-19 í dag, laugardag.
Salvör Guðmundsdóttir
Salvör
Guðmundsdóttir
Salvör Guömundsdóttir, Hraun-
bæ 36, Reykjavík, er sjötug á morg-
un, sunnudag.
Salvör tekur á móti gestum milli
kl. 15 og 19 í Félagsheimili múrara,
Síðumúla 25, Reykjavík.
Jóhann E.
Sigurðsson
Jóhann E. Sigurðsson rafvéla-
virkjameistari, Sólheimum 56 í
Reykjavik, er sextugur í dag, laugar-
dag.
Jóhann hóf störf hjá Flugfélagi
íslands, síðar Flugleiðum, 4.4.1961
og hefur unnið þar síðan.
Jóhann og fiölskylda hans taka á
móti gestum í dag milli kl. 16 og 19
á heimili sínu að Sólheimum 56.
Jóhann E. Sigurósson
Tilmæli til afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð og starfssögu
þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast
í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir
Bergþóra Guðmundsdóttir
Bergþóra Guðmundsdóttir, Sléttu-
vegi 7, Selfossi, verður sjötug mánu-
daginn7.október.
Bergþóra er fædd og uppalin á
Sæbóli í Aðalvík, dóttir hjónanna
Margrétar Þorbergsdóttur frá Efri-
Miðvík og Guðmundar L. Her-
mannssonar, útvegsbónda á Sæbóli.
Bergþóra giftist 24.6.1944 Páli M.
JÓnssyni byggingameistara og
eignuðust þau fiögur börn. Barna-
börnin eru sjö og barnabarnabörnin
eru núna tvö.
Bergþóra og Páll taka á móti vin-
um og vandamönnum á heimili sínu
á morgun, sunnudag, kl. 16 til 19.
Bergþóra Guðmundsdóttir
Asdís Þórkatla Magnúsdóttir
Ásdís Þórkatla Magnúsdóttir
Ásdís Þórkatla Magnúsdóttir hús-
móðir, Hörgatúni 7 í Garðabæ, er
75 ára á morgun, sunnudag.
Ásdís er dóttir Magnúsar Hjalta-
sonar Magnússonar skálds, en hann
var fyrirmyndin að Ólafi Kárasyni
Ljósvíkingi í skáldsögunni Heims-
ljós eftir Halldór Laxness, og Guð-
rúnar Önnu Magnúsdóttur.
Ásdís giftist Guðmundi Alberts-
syni, f. 7.10.1907, fórst með línuveið-
aranum Erninum tæplega þrítugur.
Barn Ásdísar og Guðmundar er
Helga María, f. 24.3.1935, var gift
Hafsteini Sigurðssyni og átti með
honum sex börn. Þau skildu.
Ásdíseraðheiman.
Jóhann Sæmundsson
Jóhann Sæmundsson, starfsmað-
ur Búnaðarbankans í Búðardal, er
sextugur á morgun, sunnudag.
Hann er sonur Margrétar Jóhanns-
dóttur ljósmóöur og Sæmundar
Guðmundssonar, bónda á Neðri-
Brunná.
Kona Jóhanns er Jarþrúður Ingi-
björg Kristjánsdóttir frá Efri-Múla í
Saurbæjarhreppi. Þau eignuöust sjö
börn og eru sex á lífi.
Jóhann tekur á móti gestum á
morgun, sunnudag, eftir kl. 14 í
veiðihúsi Laxdæla (Þrándarkoti).
Albert Hólmsteinn Norðdal Valdimarsson
Albert H.N. Valdimarsson fram-
haldsskólakennari, Öldugötu 13 í
Hafnarfirði, veröur fimmtugur í
dag, laugardag.
Albert er fæddur aö Hreiðri í
Holtahreppi, Rangárvallasýslu.
Hann varð stúdent frá MR1961,
cand.mag. í jarðeðlisfræði og stærö-
fræði frá Oslóarháskóla 1967, lauk
prófum í uppeldis- og kennslufræð-
um frá Háskóla íslands, varð kenn-
ari við Héraðsskólann að Laugar-
vatni, starfaði á Veöurstofu íslands
1968-1969, kenndi viö Iðnskólann í
Rvík 1969-71, við MH1971-78 og við
Fjölbrautaskólann í Flensborg í
Hafnarfirði frá 1978.
Albert hefur frá 1970 veriö mjög
virkur í blakíþróttinni og félags-
starfi blakmanna. Hann er formað-
ur blakdeildar íþróttafélags stúd-
enta, fyrsti formaður Blaksambands
íslands, sat lengi í stjórn Blaksam-
bandsins, formaður blakdeildar HK
frá stofnun 1974 og þjálfari sama
félags frá stofnun. Hann hefur bæði
frumsamið og þýtt rit um blak. Al-
bert hlaut gullmerki Blaksam-
bandsins 1974.
Albert er kvæntur Ingibjörgu Sig-
mundsdóttur, f. 23.3.1942, læknarit-
ara, dóttur Sigmundar Ámundason-
ar, bónda í Hraungerði í Hraungerð-
ishreppi, látinn, og konu hans, Guð-
rúnar Guðmundsdóttur frá Túni í
sömu sveit, nú búsett í Rvík.
Fósturbarn Alberts er Óskar
BergmannTraustason,f. 14.10.1974.
Systkini Alberts eru Siguijón M.,
f. 22.7.1937, bóndi og hreppstjóri á
Ghtstöðum í Norðurárdal, kvæntur
Auöi Eiríksdóttur og eiga þáu þrjú
börn; Laufey S„ f. 26.1.1940, gift
Hafsteini Kristinssyni, þau búa í
Hveragerði og eiga fiögur börn;
Jóna H„ f. 11.10.1943, Raftholti
Holtahreppi, gift Hjalta Sigurjóns-
syni og eiga þau fiögur börn, og
Valgerður, f. 24.31946, Egilsstöðum,
gift Einari Orra Hrafnkelssyni og
eigaþaufimm börn.
Faðir Alberts var Valdimar Sigur-
jónsson, f. 9.8.1900, d. 31.7.1986,
bóndi að Hreiöri. Móðir Alberts var
Guðrún Margrét Albertsdóttir hús-
móðir, f. 4.2.1902, d. 29.4.1970.
Albert tekur á móti gestum í Fé-
lagsheimili Kópavogs, Fannborg 2
(2. hæð), í dag, laugardag, frá kl. 15.
Albert Hólmsteinn Norðdal
Valdimarsson