Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 20. OKT0BER 1988.
Fréttir
Jón Baldvin um viðræöumar við Shultz:
Hugmyndinni um fnversl-
unarsamning vel tekið
Steinunn Böðvaisdóttir, DV, Washington;
„Hugmyndinni um fríverslunar-
samning milli Bandaríkjanna og ís-
lands var engan veginn hafnað.
Henni var þvert á móti vel tekið,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra í samtali við DV í
gær, í kjölfar fundar hans og banda-
ríska utanríkisráðherrans, Georges
Shultz.
Utanríkisráðherramir funduðu í
klukkustund í bandaríska utanríkis-
ráðuneytinu í Washington í gær-
morgun. Að sögn Jóns Baldvins var
fundurinn mjög gagnlegur og voru
umræðurnar um möguleika á frí-
verslunarsamningi ríkjanna, líkum
þeim sem Bandaríkin og Kanada
hafa gert, mjög fróðlegur þáttur við-
ræðnanna. '
„Ég gerði grein fyrir sérstöðu ís-
lendinga gagnvart þróun mála og
samningaumleitunum við Efnahags-
bandalag Evrópu,“ sagði Jón Bald-
vin. Utanríkisráðherrann sagði að
íslendingar gætu ekki fallist á kröfu
EB um fiskveiðiréttindi fyrir hönd
- engin breyting á afstöðu til hvalveiða
bandalagsþjóðanna innan íslenskrar
efnahagslögsögu, þar sem þjóðin
byggði tilveru sína á yfirráðaréttin-
um yfir þessum auölindum. „í ljósi
þessa höfum við-mikinn áhuga á frí-
verslunarsamningi Bandaríkjanna
og Kanada," sagði utanríkisráð-
herra.
Að sögn Jóns Baldvins kvað Shultz
Bandaríkjastjórn reiðubúna til að
láta íslendingum í té allar þær upp-
lýsingar um samning Kanada og
Bandaríkjanna sem þeir kynnu að
óska eftir. Að auki sagði Shultz
Bandaríkin reiðubúin til viðræðna
við íslendinga um þesi mál. Shultz
vakti hins vegar athygli á því aö
Bandaríkin hefðu þá meginreglu að
leita eftir samkomulagi um afnám
tollfríðinda og verndarstefnu á
grundvelli GATT-samkomulagsins.
Frekari • viðræðurr voru ekki
ákveðnar.
Á fundinum vakti Jón Baldvin
einnig máls á hvalveiðum íslendinga
í vísindaskyni og samkomulagi þjóð-
anna um þau mál. í Bandaríkjunum
hafa fjölmiðlar fjallað um hugsan-
George Shultz, utanríkisráðherra Bandarikjanna, tekur á móti Jóni Baldvin
Hannibaissyní utanríkisráðherra við upphaf viðræðna í gær.
DV-mynd Reuter
lega stefnubreytingu íslenskra
stjómvalda hvað varðar visindaveið-
ar. í samtalinu við DV kvaðst Jón
Baldvin hafa fullvissað Shultz um að
engin slík breyting hefði átt sér staö.
„Við gerðum grein fyrir því að við
værum undir verulegri pressu frá
fyrirferðarmiklum áróðursaðilum og
sdmannasamtökum sem byggðu mál-
flutning sinn á verulegum skiln-
ingsskorti á sérstöðu okkar. Við
áskiljum okkur að sjálfsögðu allan
rétt til aö meta það í ljósi breyttra
aðstæðna hvemig við höldum á okk-
ar vísindarannsóknum, ‘ ‘ sagði utan-
ríkisráðherra. Hann tjáði Shultz að
íslenska ríkisstjórnin myndi fjalla
um þessi mál á fundi sínum í dag en
að engrar niöurstööu væri að vænta.
Auk ofangreindra atriða ræddu
ráðherramir um flutninga vamar-
liösins og endumýjanir vatnsbóla og
vatnslagna á Suðurnesjum vegna
mengunar sem rekja má til dvalar
vamarliðsins á stríðsámnum. Að
sögn Jóns Baldvins er svars um það
að vænta innan tíðar.
Hótel Ork seld Framkvæmdasjóði:
Tilboð Helga Þórs
ekki nógu traust
- eftir standa um 200 miUjónir króna
Uppboðshaldarinn í Ámessýslu myndi leita sölu á hótclinu. Hann skyldu sinni, Hótel Örk h/f. Það
hefurákveöiðaðhafiiatilboðiHót- sagðist ekki vita á þessari stundu félag á alla innanstokksmuni á
el Arkar h/f í Hótel Örk. Gengið hvað gert yrði varðandi þá leigu- Hótel Örk. Þaö munu vera verð-
hefur verið að tUboði Fram- samninga sera Helgi Þór Jónssón mæti upp á tugi milljóna. Þær tvö
kvæmdasjóðs en það var 200 millj- hefur gert. Hróbjartur sagði að hundraö milljónir, sem Fram-
ónir króna eða 30 milljónum lægra meta yrði hvort þeir væri hagstæð- kvæmdasjóður greiðir iyrir Hótel
en tUboð Hótels Arkar h/f. Þorgeir ir sjóðnum eða ekki. Þeir trj’ggja Örk, koma á móti um helmingi
Imp Njálsson, fuUtrúi sýslumanns eigendahótelsinsákveðnartekjur. þeirra skulda sem til hefur veriö
í Árnessýslu, komst að þessari niö- Ef Framkvæmdasjóöur selur hót- stofhað vegna hótelsins. Það er þvi
urstööu í gær. elið þá sagði Hróbjartur söluveröiö sýnt að Helgi Þór Jónsson skuldar
Hróbjartur Jónatansson, lögmaö- verða hærra en uppboðsverð þess enn um 200 miUjónir króna. ítrekað
ur Framkvæmdasjóðs, sagði að var. var reynt að ná tali af Helga Þór
hann teldi líklegast að sjóðurinn Helgi Þór Jónsson á, ásamt fiöl- Jónssynienánárangurs. -sme
Utandagskrárumræða á Alþlngi um Marokkótogarana:
14 togarar fyrir Irani
fylgdu í kaupbæti
Ef ekki verður stutt við íslenskan
iðnað þá stefnir fljótlega í þaö að ís-
lenska þjóðin búi á Mallorca og fái
atvinnuleysisbætumar sendar þang-
að. Þannig komst Júlíus Sólnes, þing-
maður Borgaraflokksins, að orði
þegar hann var að ræða um synjun
ríkisstjómarinnar á ríkisábyrgð fyr-
ir Stálvík til smíði 10 skuttogara en
hann krafðist utandagskrárumræðu
í sameinuðu þingi í gær vegna þess
máls.
í ræðu sinni rakti Júlíus tilurö
málsins og hvemig hefði verið staðið
að allri ákvarðanatöku hér innan-
lands. Sagði Júlíus að það væri mjög
forvitnilegt í alla staði.
Sagði Júlíus að skipasmíðaiðnaður
okkar væri illa samkeppnisfær og
sama mætti segja um allan okkar
iðnaö enda væri svo komið aö menn
mættu ekki framleiða hér neitt leng-
ur. Hvemig komið væri í skipa-
smíðaiðnaði væri meðal annars
stefnu stjómarinnar varðandi rað-
smíðaverkefnin að kenna.
Júlíus sagði að enginn vafi væri á
því að íslendingar gætu verið vel
samkeppnishæfir þegar komið væri
að því að smíða þróðuð fiskiskip.
Hann hefði víða fengiö staðfestingu
á því. Sagði hann t.d. að Marokkó-
menn treystu aðeins tveim þjóðum
til þessa verkefnis, íslendingum og
Norðmönnum. Teldu þeir þó að ís-
lendingar væra betur til þess fallnir
meðal annars vegna þess hve vel
smíðað skip Ottó N. Þorláksson væri
en orðspor þess skips hefði farið víða.
Þá sagði Júlíus að öll arabaríkin
hyggðu á útgerð skipa af þessu tagi
og hefðu þeir fengið fyrirspum frá
íran um að smíða 14 skuttogara fyrir
þá. Einnig ræddi Júlíus um hlut
bankakerfisins og það ábyrgðakerfi
sem hér ríkti. Gagnrýndi hann harð-
lega hlut Landsbankans í þessu máli
og sagði að bankinn hefði ætlað að
kreíjast 50 milljóna kr. í þóknun og
þar að auki hefði fjármagnskostnað-
ur orðið 110 milljónir.
Iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson,
sagði að ekki hefði komiö til greina
að keppa við iðnað sem væri niöur-
gréiddur í nágrannalöndunum.
-SMJ
Þing BSRB:
Landsbyggðarfulttrúar standa saman
Talið er víst að sú lagabreyting
verði samþykkt á þingi Bandalags
starfsmanna ríkis og báeja að íjölgað
verði í aöalstjórn bandalagsins úr 11
í 19 eða, 21 stjórnarmann, en á móti
komi að engin varastjórn verði. Þetta
hefur leitt til þess aö þingfulltrúar
utan af landi hafa ákveðið að standa
saman við stjómarkjör fil aö tryggja
hlut landsbyggðarinnar. Þær við-
ræður, sem átt hafa sér stað til að
mynda þessa blokk, leiddu af sér aö
landsbyggðarfulltrúarnir ætla einn-
ig að standa saman við formannskjör
og styðja Ögmund Jónasson.
í gærkvöldi stóð til að landsbyggð-
arfulltrúamir héldu með sér sér-
stakan fund um þessi mál en af hon-
um varð ekki, meðal annars vegna
þess að það var talið óþarfi, samstað-
an væri alger hvort eð væri. Lands-
byggðarfulltrúar á þinginu era 60
talsins.
Þessi samstaða þeirra breytir mjög
miklu varðandi spár manna um úr-
sht formannskjörsins. Sumir heim-
ildarmenn DV segja að þetta geti orð-
ið til þess að Ögmundur nái kjöri
strax í fyrstu umferð, aðrir telja að
svo verði ekki en að hann veröi mjög
nálægt því. Nái Ögmundur ekki kjöri
í fyrstu umferð er óvissan jafnmdkil
og fyrr um úrsht í annarri umferð,
þegar kosið er á milli tveggja efstu.
Þingfuhtrúar era 209 og því þarf í
þaö minnsta 105 atkvæði til að ná
kjöri í fyrstu umferðinni.
í dag er síðasti eiginlegi starfsdagur
þingsins og verða þá allar mikilvæg-
ustu thlögumar um lagabreytingar
og fleira afgreiddar. Á morgun verð-
ur eingöngu um að ræða kosningar
til stjómar og trúnaðarstarfa fyrir
bandalagið. -S.dór
litur hun ut, Boeing 757 þotan. Það er Borge Boeskov, sölustjóri
Boeing i Evrópu, sem tekur hér í hönd Sigurðar Helgasonar, forstjóra Flug-
leiða, og sýnlr honum risastórt líkan af þotunni. DV-mynd Brynjar Gauti
Flugleiðir:
Skrífað undir
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, og Borge Boeskov, sölustjóri
Boeing-verksmiðjanna í Evrópu,
imdirrituðu í gær samning um kaup
Flugleiða á tveimur Boeing 757-200
þotum og kauprétt á þeirri þriðju.
Þotumar verða notaðar í Atlants-
hafsflugi félagsins. Þær verða af-
hentar í febrúar og mars árið 1990.
Hvor Boeing 757 þota kostar um 45
mihjónir dohara. Kaupverð beggja
þotnanna er því á fimmta milljarð
íslenskra króna.
Boeing-kaupin
Boeing 757 þotmmar eyða aUt aö
43 prósent minna eldsneyti á hvert
sæti en DC 8 þotumar sem Flugleiöir
hafa veriö með í notkun á Atlants-
hafsleiðinni.
í fyrravor skrifuöu þeir Siguröur
Helgason og Borge Boeskove undir
samning um kaup Flugleiða á tveim-
ur Boeing 737400 þotum og kauprétt
á tveimur til viðbótar. Sú undirritun
fór fram á Akureyri í tilefni af 50 ára
afmæh atvinnuflugs á íslandi.
-JGH