Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988.
9
Utlönd
Handtökuskipun á Marcos
Imelda og Ferdinand Marcos syngja hér fyrir áhangendur sina i kosn-
ingabaráttunni í desember árið 198S. Bandarískur áfrýjunardómstóll
hefur nú staðfest handtökuskipun á hendur þeim fyrir lítilsvirðingu við
réttinn og fjársvik. Sitnamynd Reuler
Áfrýjunardómstóll í New York staöfesti í gær handtökuskipun sem
gefin var út á hendur Ferdinand og Imeldu Marcos í ágúst. Ástæða hand-
tökuskipunarinnar er lítilsvirðing við réttinn og einnig fiársvik.
Dómararnir þrír komust aö þeirri niðurstöðu að Marcoshjónin hefðu
ásamt öðrum á sviksamlegan hátt, aö mati bandarisku ríkisstjórnarinn-
ar, flutt inn á eigin reikninga geysilegar íjárupphæðir sem voru í eigu
ríkisstjórna Filippseyja og Bandaríkjanna, ætlaöar til notkunar fyrir
filippseysku þjóöina.
Peningamir hafi síöan verið notaöir til að kaupa fasteignir og annaö í
eigin þágu í Bandaríkjunum.
Þeim er einnig gefið aö sök að hafa ekki sinnt stefnum sem þeim hafi
verið afhentar. Hjónin bera þvi við að þeim sé ekki skylt að sinna slíkum
stefiium vegna þess aðþau njóti allra fríðinda sem þjóðhöfðingjar njóti.
Nóbelsverðlaun auka sólu
Mikil söluaukning hefur orðiö á verkum eftir bókmenntaverðlaunahafa
Nóbels í ár, Naguib Mahfouz, bæöi á arabísku og einnig þýddum á erlend
tungumál
Bandariski háskólinn í Kairo, sem hefur útgáfurétt erlendis á öllum
verkum Mahfouz, hefur heldur betur dottið í lukkupottinn því háskólinn
annar hvergi nærri eftirspum og um allan heim virðist nærri allt sem
hann hefur skrifaö vera uppselt.
ísraelsmenn
hóta hefndum
Við sprengjutilræði í suðurhluta Líbanons í gær biðu sjö ísraelskir her-
menn bana.
Simamynd Reuter
Leiðtogar stjómarinnar í ísrael,
sem nú heyja harða kosningabaráttu
sín á milli, hafa heitið hefndum gegn
þeim sem stóðu fyrir sprengjutilræði
nálægt landamæmm Israels og Líb-
anons í gær. Sjö ísraelskir hermenn
létu lífið í sprengjutilræðinu og átta
særðust. Auk þess særðust tvær lib-
anskar konur við sprenginguna.
Talsmaður ísraelska hersins sagði
að atburðurinn hefði átt sér stað í
suðurhluta Líbanon um þijú hundr-
uð metra frá landamærunum þar
sem ísraelskir herflutningabílar
vom á ferð. Hvítum fólksbíl með um
hundrað og fimmtíu kíló af sprengi-
efnum var ekið inn í ísraelsku bíla-
lestina. Ökumaður bifreiðarinnar
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra
ísraels, á tali við arabískan embætt-
ismann. Shamir er nú á kosninga-
ferðalagi í arabískum borgum í
norðurhluta ísraels.
beið bana við sprenginguna sem
eyðilagði fjóra jeppa.
ísraelskir hermenn og líbanskir
þjóðvarðliðar hafa eftirlit með hinu
svokallaða öryggissvæði Líbanon-
megin við landamærin. ísraelsmenn
hafa verið þar frá því að þeir drógu
til baka herlið sitt frá Líbanon árið
1985 eftir innrásina þremur árum
áður. Sagt er að hermönnunum hafi
verið tjáð að þeir mættu búast við
sprengjutilræði. Hizbollah samtökin
í Líbanon, sem hhðholl eru írönum,
tóku á sig ábyrgö á tilræðinu og
kváðu það vera gjöf til Palestínu-
manna.
ísraelskir hermenn myrtu 40 með-
hmi samtakanna í maí í árás á þorp-
ið Maidoun.
Japanskeisari tekinn að lýjast
Hirohito Japanskeisari virtist í morgim sýna merki þess að hann væri
tekinn að lýjast í baráttu sinni við dauðann, en sú barátta hefur nú staðið
í heilan mánuð.
Talsmenn keisarahahariimar sögðu að keisarinn, sem er áttatíu og sjö
ára gamall, sýndi nú greinileg þreytumerki og aht benti til þess að skammt
væri til endalokanna.
Keisarinn hefur lést mikið en talsmenn hallarinnar vildu ektó staðfesta
fregnir um aö hann væri nú aðeins þrjátíu tóló. í lok ágúst var hann um
fimmtíu tóló.
Útvarpsbann á írska ófjgamenn
Keflaðir mótmælendur mótmæla hér vlð Downingstræti banni við Ijós-
vakasendingum um Sinn Fein. Simamynd Rauier
Breskir fjölmiðlar sögðu í morgun aö bann við þvf að senda út viðtöl
við meðlimi Sinn Fein, sljórnmálaanns írska lýðveldishersins, væri skerð-
ing á frelsi fjölmiðla en rétt væri að bíða og sjá hvern árangur þetta bann
bæri áður en það yrði dæmt.
Douglas Hurd innanríkisráðherra tilkynnti um bannið í gær og sagði
að það væri th að koma i veg fyrir að þeir sem styðja hryðjuverk geti
látið ljós sitt stóna.
Bannið keraur í veg fyrir að útvarpað eða sjónvarpað sé viðtölura við
öfgamenn á írlandi eöa að þeir fái að flytja bein ávörp. Blöð verða ektó
fyrir þessu banni.
Þeir hópar, sem helst verða fyrir þessu banni, eru írski lýðveldisher-
inn, Sinn Fein, sfjóramálaarmur hans, og Vamarsamtök Ulster, UDA,
sem eru samtök öfgasinnaðra mótmælenda.
Spánverjum settur stóHinn fyrir dymar
Ráðherrar Evrópubandalagsins samþykktu i morgun reglur sem
þrengja mjög möguleika Spánveija á að nýta sér fiskveiðikvóta annarra
ríkja bandalagsins.
Það hefur verið stundað að skrá spönsk skip undir fána aimarra ríkja,
aðallega Bretlands, og fá þannig úthlutaö kvóta af heildarkvóta þeirrar
þjóðar. Síðan hafa skipin siglt til Spánar og landað afla sínum þar.
Nýju reglurnar eiga að mestu leyti að koraa í veg fyrir þetta.
Reuter
Miðstjómarmenn reknir
Flokkur Najibuhahs, forseta Afg-
anistans, rak í gær tvo meðlimi mið-
stjómarinnar. Tilkynningin um
brottvikninguna á fundi miðstjórnar
flokksins, sem greinilega hafði verið
frestað vegna innbyrðis dehna í
flokknum, kom rétt eftir að sovéska
fréttastofan Tass greindi frá því að
skæruliðar hefðu skotið sextíu flug-
skeytum að höfuðborginni Kabúl í
gær. Fundurinn íjallaði einmitt um
öryggi höfuðborgarinnar.
Árásin í gær var sú mesta frá því
í júlí þegar hundrað og sjötíu flug-
skeytum var skotið á borgina á
nokkrum dögum.
í gær féllu þrjátíu og átta eldflaugar
á þrjú íbúðarhverfi í Kabúl. Ein lenti
á húsi nálægt flugvellinum með þeim
afleiðingum að níu manns biðu bana
og átján særðust. Tveir létust við
verslun í miðborginni.
Skæruhðar hafa undanfama daga
gert eldflaugaárásir á borgir úti á
landsbyggðinni sem stjómin hefur
umráð yfir.
Skæruliðar hafa hafnað öllum
friðarumleitunum stjórnarinnar, þar
á meðal þátttöku í samsteypustjóm
eftir að Sovétmenn hafa flutt heim
alla hermenn sína frá Afganistan um
miðjan febrúar á næsta ári.
Þeir sem réknir vom tilheyrðu sitt
hvomm vængnum innan flokksins,
annars vegar liðsmönnum forsetans,
sem vilja sættir, og hins vegar þeim
sem vfija berjast.
Reuter
Teiknarinn Lurie sér Najibullah, for-
seta Afganistans, sem leikbrúðu
Sovétmanna.
^brosum/
Í/L r\ alltgengurbetur *
HEMLAHUJTIR í VÖRUBÍLA
®] Stilling
Skeifunni 11,108 Reykjavík
Simar 31340 & 689340
Hemlaborðar í alla
vörubíla.
Hagstætt verð.
Betri ending.