Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1988, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988. 17 DV Lesendur Ætti að vera hægt að greiða í stöðumæla samkvæmt tímalengd, að mati bréfritara. Hvergi dýrara í stöðumæla: AIKaf 50 krónur Borgarbúi skrifar: Þurfi maður að skreppa niður í mið- bæ á bílnum sínum og sé svo „hepp- inn“ að finna bílastæði kostar þaö 50 krónur að staldra við, þótt bíllinn standi aðeins í 10 mínútur eða skem- ur. - Ætli þetta sé ekki það dýrasta sem gerist í þessum efnum hvar sem leitað væri? Ég var staddur í Hamborg fyrir nokkrum dögum. Ég man ekki ná- kvæmlega hve há stöðumælagjöldin voru þar fyrir mismunandi langan tíma en fyrir tíu mínútur greiddi maður 20 pfenninga eða rúmar fimm krónur. - Og það sem meira var, það Leiðrétting frá Eurocard: Ekki Rafmagns- veitur ríkisins Grétar Haraldsson hringdi: í svari frá Eurocard í lesenda- bréfi, sem birtist í DV sl, þriðju- dag var minnst á Rafmagnsveitur ríkisins sem byöu viðskiptavin- um að greiða með korti okkar. Þar átti að standa Rafmagnsveita Reykjavíkur. Þetta leiðréttist hér með. var hægt að greiða fyrir 10 mínútur nákvæmlega! Hér verður þú aö greiða þinn fimm- tíukall og færð fyrir hann hálftíma eða klukkutíma (man ekki hvort er eftir síðustu breytingu). Það sem samt skiptir máh er aö þú þarft oft ekki nema aðeins að skreppa í hús, stundum nokkrar mínútur, og samt kostar það 50 krónur. Þetta er út- gjaldafrekt ef þú þarft að fara á nokkra staði með of löngu millibili til þess að geta, svo vel sé, notað sama stöðumælinn. Það er bót í máh að viö eigum yfir- leitt ekki mikið erindi niður í miðbæ. Ásdís hringdi: Ég ætlaði að kaupa matvörur á sunnudegi fyrir nokkru í Litlabæ í verslanasamsteypunni á Eiðistorgi, eins og maöur þarf svo oft að gera um helgar. En þá hafði þessari versl- un verið lokað. Þetta er mikið óhag- ræöi, því eins og ahir vita er hvergi opin matvöruverslun hér í Reykja- vík. Við höfuðborgarbúar þurfum alltaf að fara ýmist út á Seltjarnarnes eða í Garðabæ til að geta náð í matvörur á sunnudegi. Og hvers vegna eiga allir að þurfa að sæta því að geta ekki keypt mat á sunnudögum? - Að vísu bjargar verslunin Vegamót mjög miklu fyrir fólk víðs vegar að, en þar er alltaf fuht út úr dyrum Við höfum t.d. nóg af jafngóðum og jafnvel betri verslunum annars stað- ar þar sem ekki er okrað á bhastæö- um. Það er aðeins ef við þurfum nauðsynlega að sækja heim stofnanir á þessu dýra bílastöðusvæði sem viö verðum aö sætta okkur við shkt pen- ingaplokk. Ég hélt annars að það væri hægt að ganga þannig frá sjálfsölum að þeir tækju ýmsa mynt þannig að maöur ætti að geta notaö jafnvel krónupeninga og þá fengið aðeins þann tíma sem maður greiðir fyrir, hvorki lengri né skemmri. þegar líður aö hádegi á sunnudögum og svo aftur að kvöldinu og þá var gott að geta einnig notiö verslunar- innar í Litlabæ. - Skyldi þessi versl- un vera hætt að fullu og hvers vegna er hún hætt? Lesendasíða DV hafði samband við verslunarstjóra hjá Hagkaupum á Eiðistorgi. Hann upplýsti að þessari verslun hefði verið lokað á sínum tíma vegna manneklu. Síðan hefðu mál þróast þannig að ekki þætti ráð að opna hana aftur, jafnvel þótt starfsfólk lægi á lausu. - Bæöi mætti segja ástæðuna vera dýran rekstur þarna og ónóga aðsókn eftir að opnað var á laugardögum á ný yfir vetur- inn. Búið að loka Litlabæ BÓKHALD Getum bætt viö okkur verkefnum í bókhaldi, launum o.fl. Tökum einnig að okkur skammtímaverkefni í bókhaldi, t.d. fyrirtæki, sem eru eftir á með bók- haldið, og færum það til dagsins í dag. Hafið samband í síma 672450 milli kl. 14.00 og 17.00. RAÐGJAFASTOFAN REKSTRAR- OG TÖLVURÁÐGJÖF íi BLAÐ '|f BURDARFOLK á öfátvrw adcbtA ÓA/iaótr f f f1 t í 11 t i 1.1 t i ~r' Gnoðarvog “V *jjTf i1) f\ Ljósheima f\ 1\ i f i i i i ^rríMi m f f Reykjavik Karlagötu Skarphéðinsgötu Flókagötu Skeggjagötu Fellsmúla 7 - út Skeifuna Grensásveg 1-18 Gnoðarvog Ljósheima ÞVERHOLTI 11 SÍMI 27022 Það er mikið um að vera á menn- ingarsviðinu um þessa helgi. Má þar fyrst nefna frumsýningu á kvikmynd Hrafns Gunnlaugs- sonar í skugga hrafnsins sem al- menningur bíður spenntur eftir. Þá er frumsýning á óperunni Ævintýri Hoffmanns í Þjóðleik- húsinu. Er það ein viðamesta sýning sem verður sett á svið á þessu ári. Opnun Listasafns Sig- urjóns Ólafssonar er einnig merkilegur atburður í menningar- lífi höfuðborgarinnar en það verður vígt nú um helgina. Þá má geta þess að Alþýðuleikhúsið frumsýnir á sunnudagskvöld Koss kóngulóarkonunnar og kvennakabarett verður á Hótel íslandi. Frá þessum viðburðum og mörgum öðrum verður greint í helgarkálfi DV á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.