Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988. Fréttir Miss World keppnin með öðru sniði en áður: Áhorfendur tóku þátt í atkvæðagreiðslunni Valgeröur A. Jóharmsdóttir, DV, London: Keppnin ungfrú heimur var meö öðru sniöi nú en venjulega. Nú gafst áhorfendum kostur á aö taka þátt í aö velja sigurvegara. Samtals giltu atkvæöi þeirra sama og atkvæöi eins dómara. Eins og við var aö búast fékk ungfrú Bretland flest atkvæöi áhorf- enda en þau dugöu henni ekki til sig- urs. Hún fékk samt 2 atkvæði í 1. sætiö. atkvæði áhorfenda og eins úr dómnefndinni. Hins vegar settu 5 dómarar Lindu í 1. sætiö og vann hún því örugglega. Keppnin vakti sennilega meiri at- hygli og umtal nú en oft áður vegna ákvörðunar ITV-sjónvarpsstöövar- innar um að sjónvarpa ekki frá henni framar. Þvi fer fjarri aö litið sé á úrslitin sem einhveija stórfrétt í Bretlandi. Stóru landsmálablöðin sáu fæst ástæöu til að fjalla um keppnina. The Sun, Daily Mirror og fleiri blöð, sem hafa lagt meira upp úr myndum af sætum stelpum en Ungfiní heimur: ITV-sjonvarpsstoð in hættir bein- um útsendingum Valgerður A. Jóhannsdóttir, DV, London: ITV-sjónvarpsstööin, sem hefur haft sýningarréttinn á keppninni ungfrú heiraur síðan 1980, hefur ákveðið að sýna ekki framar frá keppninni. „Okkur fmnst þessi keppni gam- aldags og þeim fer sífellt fækkandi sem hafa áhuga á að fylgjast með henni. Hvers vegna er erfitt fyrir okkur að segja' en svo virðist sem sífellt fleiri telji samkeppni af þessu tagi niðurlægjandi fyrir konur," sagöiKeith Nurse, blaðafulltrúi viö ITV. Blaðafulltrúinn sagði að 18 millj- ónir Breta hefðu fylgst með keppn- inni þegar ITV hóf að senda hana út fyrir 9 árum en áhorfendum hetöi fáekkaö niður í 12 milljónir í fyrra. ITV fyndist einfaldlega ekki fýrirhafnarinnar virði lengur aö sýna frá keppninni og hetöi því ákveðiö að endumýja ekki samn- inginn sem rennur út í lok þessa árs. Ákvörðun ITV þýðir þó ekki endilega að ekki verði sent út frá keppnini framar. Eric og Julie Morley, sem skipuleggja keppnina, sögðu í sjónvarpsviötali í gær að þeim heföi borist tilboð frá bresku gervihnattasjónvarpi sem fer í loft- ið á næstunni og margar erlendar sjónvarpsstöðvar hefðu einnig sýnt áhuga á að fá sýningarrétt á keppn- inni. Julie sagði aö því færi tjarri að áhuginn á keppninni færi minnkandi. Þótt áhorfendum í Bretlandi heíði fækkað eitthvað færi þeim Qölgandi annars staðar. Sífelit fleiri lönd sýndu frá keppn- inni og i ár hefðu sennilega yfir 700 milljónir manna víös vegar um heiminn fylgst með henni í sjón- varpi. alvarlegri fréttamennsku, birtu frétt- ir um úrshtin á innsíðu, ásamt myndum af ísdrottningunni, eins og þau kölluðu Lindu. Miss World veiga- mesta keppnin „Miss World er tvímælalaust stærsta og veigamesta fegurðarsam- keppnin sem fram fer erlendis," sagði Heiðar Jónsson snyrtir þegar DV ræddi við hann. Heiöar sagði að Miss Universe væri íjölmiðlakeppni sem mikil skraut- sýning væri í kringum. Hún væri glæsilegri ef eitthvað væri en samt væri ekki eins mikið afrek að vinna hana eins og Miss World nú. Miss Young Intemational væri annars eðhs þar sem keppendur væru yngri. -JSS íslenskar stúlkur í keppni erlendis: Þær hafa hreppt 1. sætið Linda Pétursdóttir. Sex íslenskar stúlkur, sem tekið hafa þátt í fegurðarsamkeppni er- lendis, hafa hreppt fyrsta sætið í viðkomandi keppni. Það var Guð- rún Bjarnadóttir sem reið á vaðið áriö 1963 og sigraði í Miss Inter- national. Thelma Ingvarsdóttir varð ungfrú Skandinavía árið 1964, Henný Hermannsdóttir vann titil- inn Miss Young International árið 1970, Hólmfríður Karlsdóttir varð ungfrú heimur árið 1985 og sama ár varð Sif Sigfúsdóttir ungfrú Skandinavía. í fyrrakvöld vann ís- lensk stúlka svo titilinn ungfrú heimur í annað sinn á skömmum tíma þegar Linda Pétursdóttir hreppti 1. sætið. Byrjunin á þessum ágæta árangri íslenskra stúlkna á erlendri grund var þegar Sigríður Þorvaldsdóttir komst í úrslit í Miss Universe árið 1959. Árið 1960 varð Sirrý Geirs í 3. sæti í Miss International. Árið eftir varð Sigrún Ragnars nr. 5 í sömu keppni og 1962 varð María Guðmundsdóttir ein af flmmtán í úrslitum. Árið 1963 varö Anna Geirsdóttir í 2. sæti í Miss Universe og árið 1965 varð Elísabet Ottós- dóttir ein af fimmtán í úrslitum í Miss Universe. Árið 1970 varð Mar- ía Baldursdóttir nr. 3 í Miss Skand- inavía, Helga Eldon varð nr. 3 í Miss Young International 1975 og Þuríður Steinþórsdóttir einnig í 3. sæti í sömu keppni árið 1977. 1983 varð Unnur Steinsson nr. 4 í keppn- inni Miss World og Berghnd Jo- hansen komst í úrslit í sömu keppni áriö eftir. Anna Margrét Jónsdóttir varð nr. 3 í fyrra og Linda vann svo núna eins og allir vita. Þetta er engan veginn tæm- andi listi yfir aUar þær íslensku stúlkur sem komist hafa í úrslit erlendis heldur stiklað á stóru yfir stærstu viðburðina. -JSS Guðrún Bjarnadóttir, Thelma Ingvarsdóttir. Henný Hermannsdóttir. Hólmfríður Karlsdóttir. Sif Sigfúsdóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.