Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Qupperneq 5
vuui 71 Hfi IVi V l J/1 r,l \ Tr iJ Ji
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
5
r>v Fréttir
Keflavíkurílugvönur:
Harkaleg
handtaka
Ægir Már Kárason, DV, Keflavflc
Tveir íslenskir starfsmenn í versl-
un varnarliösins voru stöðvaöir
harkalega á Keflavíkurvelli þeg-
ar þeir fóru yfir svokallaða rauðu
línu. Þeir voru þar á ferð ásamt
bandarískum samstarfsmanni og
ætluðu að gera við sjálfsala þegar
skyndilega þustu að þeim herlög-
reglumenn með brugönar byssur.
Var þeim stUlt upp við vegg á meðan
spumingum rjngdi yfir þá.
Var mikiU viðbúnaður hjá herlög-
reglunni yfir þessu og öU vaktin köll-
uð út. Voru mennimir sakaðir um
að hafa farið yfir rauðu línuna án
leyfis og komið of nálægt F-15 her-
Uugvélum sem þar voru. Mennirnir
hafa hingað til fengið að ferðast yfir
þessa línu óáreittir. Lyktir málsins
urðu þær að íslenska lögreglan sótti
mennina og var þeim sleppt síðan.
Félag feröaskrifstofa:
Stofnar félag um
greiðslukortin
Félag feröaskrifstofa vinnur ötul-
lega að stofnun sérstaks kortafyrir-
tækis, sem verður í eigu ferðaskrif-
stofa, eins og DV hefur greint frá.
Er stefnt að því að stofna félag um
fyrirtækið í desember.
í frétt frá Félagi ferðaskrifstofa seg-
ir að það hafi skipað nefnd síðastliðið
sumar tU að kanna hagkvæmni þess
að stofna sérstakt kortafyrirtæki í
eigu ferðaskrifstofa.
Nefndin hafi nú skUað sem trúnað-
armáli áhti sínu til stjórnar félags-
ins. Hefur hún fjallað um málið og
skýrslan verið kynnt félagsmönnum.
Er verulegur áhugi innan félagsins á
máli þessu og mun á almennum fé-
lagsfundi nk. mánudag, 21. nóvemb-
er, verða stofnað undirbúningsfélag
með sjálfstæðri stjórn til að vinna
frekar að framgangi málsins. Er síð-
an stefnt að endanlegri félagsstofnun
í byrjun desember. -JSS
Jón Baldvin og
Shultz hittast
Ákveðið hefur verið að þeir Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herra og George P. Shultz, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, eigi sér-
stakar viðræður á meðan á utanrík-
isráðherrafundi Atlantshafsríkjanna
stendur í Brussel dagana 8. og 9. des-
ember.
Utanríkisráðuneytinu hefur borist
svarbréf frá Shultz varðandi hvala-
máhð þar sem harmaður er sá mis-
skilningur sem orðið hefur í þessu
máh og lýst er þeirri von að hægt sé
að komast að samkomulagi um fram-
tíðarlausn hvalamálsins.
Þá hefur verið ákveðið að fulltrúar
bandaríska utanríkisráðuneytisins
og íslenska sendiráðsins í Washing-
ton eigi með sér fund í þessum mán-
uði þar sem frekar verður gerð grein
fyrir afstöðu Bandaríkjamanna.
-SMJ
Ríki Palestínumanna:
Ekki viðurkennt
í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu kemur fram að ekki er ætl-
unin að viðurkenna hið nýstofnaða
ríki Palestínumanna. Palestínska
þjóðarráðið liefur sem kunnugt er
lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis Pa-
lestínumanna.
í yfirlýsinguni kemur fram að það
er ótímabært og í andstöðu við viður-
kenndar reglur og venjur í þjóðar-
rétti að viðurkenna það ríki sem
Palestínska þjóðarráðið hefur lýst
yfir að hafi verið stofnað.
Segir í tilkynninguni að til að unnt
sé að viðurkenna ríkið þurfi að liggja
fyrir skilyrðislaus trygging á tilveru-
rétti ísraelsmanna og einnig þurfi að
vera óumdeilanlegt hver sé í forsvari
fyrir Palestínumenn. -SMJ
Opmmí dag
FIILLT HÚS
AFJÓLAVÖRUM
aö Draghálsi 14-16 -sími 67-42-90
Yfir 20 fyrirtæki sameinast undir einn hatt
með glæsilegan jólavarning
Herra- og dömufatnaöur
Sportfatnaóur
Skór
Radíóvörur
Sængur - koddar
Sængurfatnaöur
Snyrtivörur
Hrekkjavörur
Opið virka daga kl. 13-19
laugardaga kl. 10-18.
Jólaskraut
Blóm og jólaskreytingar
Hljómplötur
Bækur
Leikföng
Gjafavara
og margt fleira.
immuRJOiA
Draghálsi 14—16
Sími 67-42-90
m
>
ö
w
z
C/5
Lf\
<
e
5ö
H
N-í
H
c-
O’
H
>