Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Síða 17
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988. 17 Skilaboð að handan Löngu síðar voru jaröneskar leifar þeirra grafnar upp, eftir boð með ósjálfráðri skrift frá Agnesi að hand- an, og grafnar á ný í kirkjugarðinum á Tjöm. Flutningur beinanna fór Dauðastrið mannsins, sem hér liggur grafinn, varð til þess að bikarnum var skilað í Tjarnarkirkju árið 1975. Auðbjörg Guðmundsdóttir á Syðri-Þverá i Vesturhópi skilaði bikarnum i kirkjuna á Tjörn til að kveða niður orðróm um að honum fylgdu ill örlög. og Friðrik Sigurðssyni í Vatnsdals- hólum einn kaldan janúardag árið 1830 og varð þar með síðastur íslend- inga til að höggva sakamenn. Þetta er eitt frægasta sakamál á íslandi og af því hafa spunnist enda- lausar þjóðsögur og ýmsir trúa því að ætt Guðmundar hafi alla tíö fylgt ógæfa síðan. Ættmenn hans eiga að hafa lotið í lægra haldi fyrir dómi örlaganna allt fram á þennan dag. Brot þeirra Agnesar og Friðriks var að ráða Natan Ketilsson, bróður Guðmundar, af lífi og annan mann með. Ein þjóðsagan um upphaf harmsögunnar er á þá lund að Guð- mundur hafi boðist til að höggva þau skötuhjú til að hefna fyrir bróður sinn. Onnur saga er á þá leið að Guðmundur hafi staðfastlega neitað að vinna verkið þar til honum var gert ljóst að Agnes og Friðrik yrðu að öðrum kosti flutt til Noregs og höggvin þar. Þá á Guðmundur að hafa tekið verkið að sér til að forða þeim frá hrakningum og óþörfu kvalræði. Þjóðsögumar gera Guðmundi aldrei upp illmennsku og sagt er að hann hafi aldrei verið samur maður á eftir. Handlaginn og kaldlyndur Til eru heimildir fyrir því að Guð- mundur var valinn til verksins vegna þess að enginn annar fékkst til að ganga í hlutverk böðulsins. Honum var líka lýst svo að hann væri bæði handlaginn og kaldlyndur. Sjálfur setti hann það skilyrði fyrir að höggva þau Agnesi og Friðrik að fá nothæfa öxi til verksins. Öxina fékk hann og svo sem vænta mátti reyndist hún alla tíð síðan mikill óheillagripur. Hún var síðar geymd í ýmsum húsum á Möðruvöllum í Hörgárdal en þau brunnu öll. Guðmundur á að hafa gengið þann- ig fram við að höggva Friðrik að tvo menn þurfti til að ná öxinni aftur úr höggstokknum. Eftir að búið var að lífláta þau Agnesi og Friðrik voru þau dysjuð á aftökustaðnum og látin snúa út og suður. Höfuðin voru ekki grafin með þeim heldur sett á yddað- ar stengur sem reistar voru sitt hvor- um megin við aftökupallinn. Andlit- in voru látin snúa móti alfaraleið, blóðug og gapandi. Það var ógnvekj- andi sjón sem fyllti fólk samúð með hinum höggnu. fóru að heyrast sögur um að sérstök ógæfa fylgdi ætt Guðmundar. Börn fæddust mállaus og gamlar konur misstu sjónina. Þar kom að dóttur- sonur Guðmundar veikist af krabba- meini. Meðan hann lá banaleguna tók móðir hans sig til og skilaði bik- amum aftur í kirkjuna, eins og áður var sagt, og síðan hefur allt verið með felldu. Leiöi Agnesar og Friðriks í kirkjugarðinum á Tjörn. Til voðaverka þeirra má rekja upphaf harmsögunnar. fram samkvæmt fyrirsögn sem mið- ill flutti að handan. Höfuð þeirra áttu að vera grafin í kirkjugarðinum á Þingeyrum en fundust nærri aftöku- staðnum, einnig eftir leiðsögn miðils. Þetta gerðist sumarið 1934 og varð síst til að aftaka þeirra Agnesar og Friðriks félli í gleymsku. Ein af mörgiun sögum, sem ganga um aftökuna, er á þá leið aö böðuls- laun Guðmundar hafi verið þijátíu silfurpeningar - Júdasarpeningar. Hvort sem eitthvað er til í því eða ekki þá er þvi bætt við í þjóðsögunni að Guðmundur hafi gefið þessa pen- ingar fátækum á Vatnsnesi. Sagan um bikar örlaganna í Tjarn- arkirkju er raunar með svipuðu móti og aðrar sögur, tengdar Guð- mundi Ketilssyni. Guðmundur gaf kirkjunni bikarinn skömmu eftir að hann fékk hann árið 1853. Kirkjan átti þá engan kaleik og úr því vildi Guðmundur bæta. í kirkjunni var bikarinn í ríflega sjötíu ár og varð ekki tilefni mikilla örlaga. Bikarinn tekinn úr kirkjunni Um 1930 fékk Guðmundur Arason, einn ættmenna Guðmundar Ketils- sonar, leyfi biskups tii að taka bikar- inn úr kirkjunni, enda taldi hann að bikarinn væri verðlaunagripur sem erfingjar hans ættu með réttu. Kirkj- an á Tiörn hafði líka eignast sinn kaleik og þvi óþarft að nota gamla bikarinn áfram. Þjóðsagan segir að Guðmundur Ketilsson hafi mælt svo fyrir, þegar hann gaf kirkjunni bikarinn, að eng- inn skyldi taka hann þaðan aftur, að öðrum kosti mundi ógæfa dynja yfir þann sem fyrir því stæði og hans fólk. Það er trú margra að ekki eigi að taka gjafir úr kirkjum og ekki varð það til að draga úr ótta manna við að taka þennan grip úr kirkjunni að hann var upphaflega í eigu böðulsins Guðmundar Ketilssonar. Eftir þetta Aldrei aftur úr kirkjunni Bikarinn kom aftur í kirkjuna árið 1975. Séra Róbert Jack á Tjöm á Vatnsnesi segir að bikarinn fari aldr- ei aftur úr kirkjunni enda sé því al- mennt trúað á Vatnsnesi að honum fylgi slæm örlög. „Ég treysti því að bikarinn fari ekki úr kirkjunni með- an hún stendur," sagöi séra Róbert í samtali við DV. „Ég trúi þvi að þessi sága sé rétt. Ég hef í það minnsta ekki vit til að draga hana í efa.“ Það eru þó ekki allir sem leggja trúnað á söguna. Þar á meðal er Auðbjörg Guðmundsdóttir sem þó skilaði bikamum í kirkjuna. „Það hefur hent svo fjölmarga einhver ógæfa án þess það verði rakið til ein- hverra sérstakra örlaga," sagði hún í samtali við DV. „Eg veit heldur ekki til þess að ætt mín hafi reynt meira en margar aðrar. Ég hef því enga ástæðu til að trúa þessari sögu. Það kom hins vegar illa við mig aö um þetta væri rætt og því skilaði ég bikamum. Það var eina ráðið til að stöðva orðróminn.“ -GK SMÁAUGLÝSINGAR Mánudaga - föstudaga, 9.00 - 22.00 Laugardaga, 9.00 - 14.00 Sunnudaga, 18.00 - 22.00 Þverholti 11 s: 27022

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.