Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
47
Skák
Jón L. Árnason
nær Capablanca vinningsstöðu.
San Sebastian 1911
Hvítt: Capablanca
Svart: Bernstein
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. 0-0
Be7 5. Rc3 d6 6. Bxc6+ bxc6 7. d4
exd4 8. Rxd4
Skákfræðunum hefur fleygt
ósköp lítið fram á þessum árum
sem liðin eru frá því þessi skák var
tefld. Eftir 8. Dxd4 kæmi upp staða
úr tveimur skákum Portisch frá
heimsbikarmótinu, gegn Nunn og
Tal. Steinitz-afbrigði spænska
leiksins var helsta vopn þriggja
heimsmeistara: Steinitz sjálfs, La-
skers og síðan Capablanca, þótt
hann stýri reyndar hvítu mönnun-
um í þessari skák.
8. - Bd7 9. Bg5 0-0 10. Hel h6 íl.
Bh4 Rh7 12. Bxe7 Dxe7 13. Dd3
Hab8?!
Betra er 13. - Hfe8 til að þrýsta
að kóngspeðinu og treysta mið-
borðsstöðuna. Eftir næsta leik
Capablanca kemur í ljós að svarti
hrókurinn á lítið erindi eftir b-
línunni.
14. b3 Rg5 15. Hadl
Dæmigerður leikur fyrir meistar-
ann, þó að nú á tímum þyki svona
aðferðir sjálfsagðar. Hann kemur
ölium mönnum sínum í ákjósan-
lega vígstöðu - þetta hefðu margir
mátt taka til fyrirmyndar á þessum
árum.
15. - De516. De3 Re617. Rce2 Da5?!
Þessi og næsti leikur svarts
benda til þess að hann vanmeti
ungan og óreyndan mótherja sinn.
Traustara var strax 17. - Rxd4 og
svartur ætti að halda jafnvæginu.
18. Rf5 Rc5
Peðið var óhollt átu vegna 18. -
Dxa2? 19. Dc3 Da6 20. Rf4! með
sterkri sókn.
19. Red4 Kh7 20. g4!?
Treystir riddarann í sessi á f5 og
undirbýr hugsanlegan peðastorm á
kóngsvæng. Svarta staðan er hins
vegar traust eins og oft vill verða
í þessu afbrigði, og hægara sagt en
gert að bijótast í gegn.
20. - Hbe8 21. f3 Re6!
Svartur skynjar loks hættuna og
snýr riddaranum til baka í vörn-
ina. Nái hann að skipta upp á d4
léttir hann talsvert á stöðu sinni.
Capablanca tekur því djarfa
ákvörðun, sem eflaust hefur verið
byggð á eðlishvötinni einni saman,
fremur en nákvæmum útreikning-
um.
22. Re2!? Dxa2 23. Rg3 Dxc2 24. Hcl
Db2 25. Rh5
Á kostnað tveggja peða hefur
Capablanca komið riddara sínum í
námunda við svarta kónginn og nú
vofa ýmsar hótanir yfir. Fómin
hefði þó aðeins átt að nægja til jafn-
teflis. Capablanca hefur sjálfur
bent á varnarmöguleikann 25. - g5!
og ef 26. e5? þá 26. - Rf4! og flækj-
urnar eru svörtum í hag. í þessu
tilviki yrði hvítur að tefla til jafnte-
flis með 26. Hc3 Rf4 27. Rxf4 gxf4
28. Dxf4 Dxc3 29. Dxh6+ Kg8 30.
Dg5+ ogþráskák.
Leikur svarts í skákinni strandar
á einfaldri fléttu.
25. - Hh8? 26. He2 De5 27. f4 Db5
28. Rfxg7! Rc5
Eftir 28. - Rxg7 29. Rf6+ Kg6 30.
Rxd7 f6 31. e5! á hvítur vinnings-
stöðu. Staða svarts er töpuð.
29. Rxe8 Bxe8 30. Dc3 f6 31. Rxf6+
Kg6 32. Rh5 Hg8 33. f5+ Kg5 34.
De3 + Kh4 35. Ðg3 + Kg5 36. h4 mát.
Bridgefélag Haínarfjarðar
Segja ma að aðaltvímenningskeppni
félagsins hafi að þessu sinni snúist
upp í einvígi miili Kristjáns Hauks-
sonar - Ingvars Ingvarssonar og
Áma Þorvaldssonar - Sævars Magn-
ússonar. Eftir fyrsta kvöldið höfðu
Kristján og Ingvar gott forskot, 147
stig gegn 128 hjá Árna og Sævari, en
strax í næstu umferð var það að engu
orðið þegar Árni og Sævar unnu sinn
riðil með 124 stigum meðan Kristján
og Ingvar fengu aðeins miðlung, 108.
Aðeins þriggja stiga munur eftir
tvær umferðir. í þriðju umferð höfn-
uðu Kristján og Ingvar í þriðja sæti
með 119 stig en Árni og Sævar fengu
112. Spennan var því mikil í síðustu
umferðinni og ljóst að htið mátti út
af bregða því næstu menn voru
skammt undan, aðeins 6 stig skildu
2. og 4. sætið, enda tvístigu menn
meðan útreikningar fóm fram í lok-
in.
Sigurvegarar kvöldsins urðu Árni
og Sævar með 127 stig en Kristján
og Ingvar höfnuðu í 2. sæti með 120
stig, og þeir teljast tvímennings-
meistarar B.H. að þessu sinni, því
lokaniðurstaöan varð þessi:
A-riðill
1. Kristján Hauksson -
Ingvar Ingvarsson 2. Árni Þorvaldsson - 494
Sævar Magnússon 3. Bjarnar Ingimarsson - 491
Þröstur Sveinsson 466
4. Ari Konráðsson -
Kjartan Ingvarsson B-riðill 1. Guðni Þorsteinsson - 456
Halldór Einarsson 2. Jóngeir Hlinason - 453
Gunnar Birgisson 3. Sigurður Lárusson - 441
Sævaldur Jónsson 4. Ólafur Torfason - 440
Björn Svavarsson 434
Bridgefélag Reykjavíkur
Jörundur Þórðarson 54
6. Haukur Ingason-
Hörður Arnþórsson 53
Nú er lokið 14 umferðum í Butler-
tvímenningskeppni félagsins og hafa
bræðurnir Ólafur og Hermann Lár-
ussynir náð umtalsverðri forystu, en
þeir skoruðu mjög vel síðasta mið-
vikudag. Hæsta skor síðasta spila-
kvölds hlutu:
st'g
1. Olafur Lárusson-
Hermann Lárusson 112
2. Gylfi Gíslason-Ari Konráðsson 66
3-1. Ásgeir Ásbjörnsson-
Hrólfur Hjaltason 62
3-4. Guðlaugur R. Jóhannsson-
örn Arnþórsson 62
5. Hjálmar Pálsson-
Eftir 14 umferðir eru þessi pör efst:
1. Ólafur Lárusson-
Hermann Lárusson 188
2. Ásgeir Ásbjörnsson-
Hrólfur Hjaltason 106
3. Jón Baldursson-
Ragnar Magnússon 101
4. Guðlaugur R. Jóhannsson-
Örn Arnþórss. 87
5. Sævin Bjarnason-
Ragnar Björnsson 82
6. Jón Þorvarðarson-
Guðni Sigurbjarnason 77
IþróttapistiU
Hversu sterkir
eru Yalsmenn?
Það sem mesta athygli hefur vak-
ið í fyrstu umferðum 1. deildar
keppninnar í handknattleik er
hinn gífurlegi styrkleiki Valsliðs-
ins fram yfir þá mótherja sem það
hefur hingað til leikið gegn. Fimmt-
án marka sigur gegn Fram, sextán
marka sigur gegn KA, yfirburðir
gegn Stjömunni og framan af leik
gegn Breiðabliki - og þessi úrslit
sýna ekki allt. Valsmenn hafa
nefnilega ekki leikið heilan leik á
fullum krafti ennþá, ekki spilað út
öllum sínum trompum, enda hafa
þeir ekki enn þurft á því að halda.
Þeir slökuðu verulega á í leikjum
sínum við Fram og KA og höföu í
hendi sér að vinna enn stærri sigra
og gegn Stjörnunni og Breiðabliki
var svipað uppi á teningnum.
Kemur í ljós
gegn KR og FH
Hinn raunverulegi styrkleiki
þeirra kemur væntanlega fyrst í
ljós þegar þeir mæta KR og FH,
einu liðunum sem í dag virðast eiga
nokkra möguleika á að standa í
þeim. íslandsmótsins vegna er von-
andi að þeim fatist eitthvað flugið
þegar þeir mæta þessum tveimur
hðum, annars verður öll spenná í
1. deildinni úti strax fyrir jól!
Þessir yfirburðir Valsmanna
ættu ekki að koma svo mjög á óvart
því að þeir eru langbest mannaðir
af öllum liðum deildarinnar.
Landshðsmaður í hverri stöðu að
Jóni Kristjánssyni undanskildum
og leiki hann áfram eins og til þessa
ætti hann að koma sterklega til
greina þegar íslenska landsliðið
verður valið fyrir b-keppnina í fe-
brúar. Þegar hægt er að samhæfa
tvo þrautreynda leikmenn, Sigurð
Sveinsson í sókn og Þorbjörn Jens-
son í vörn, eins og Stanislav
Modrovski þjálfari gerir með inná-
skiptingum, eiga andstæðingarnir
ekki von á góðu.
Svisslendingar
þyngsta prófið
Þyngsta próflð sem bíður Vals-
manna er slagurinn við svissnesku
meistarana Amicitia frá Zurich en
félögin leika báða leiki sína í Evr-
ópukeppni meistaraliða í desem-
ber. Þá kemur styrkleiki þeirra á-
alþjóðlegum mælikvarða fyrst í ljós
en á Hlíðarenda dreymir menn nú
um frægð og frama á þeim vett-
vangi. Eftir þá yfirburði sem Vals-
menn hafa sýnt hér heima hvílir á
þeim sú kvöð að þeir leggi Sviss-
lendingana að velli og það af ör-
yggi. Vissulega er sett á þá pressa
með þessum kröfum en ef þeir ætla
sér einhvern hlut verða þeir að
sætta sig við þá pressu og standast
hana. Valur er fyrsta íslenska
handknattleiksliðið í mörg ár sem
hægt er að binda raunhæfar vonir
við í Evrópukeppni.
Misjafnt gengi
landsliðsmanna
Það hefur einnig verið athygli-
svert að fylgjast með gengi lands-
liðsmannanna í íslandsmótinu.
Segja má að Valsmennirnir séu
þeir einu þeirra sem hafa leikiö af
fullum krafti, flestir aðrir hafa ver-
ið í hálfgerðri afslöppun og ekki
sýnt sínar bestu hhöar enda ekki
furða eftir álagið sem hefur verið
á þeim allt þetta ár. Ákveðið
spennufall hefur orðið hjá mörgum
þeirra og það var viöbúiö. Alfreð
Gíslason og Páll Ólafsson eiga eftir
að sýna meira með KR en þeir hafa
gert til þessa, Þorgils Óttar Mathi-
esen hefur ekki náð sér á strik,
Víkingarnir Guðmundur, Bjarki og
Karl hafa átt erfitt uppdráttar í
vængbrotnu liði, Sigurður Gunn-
arsson er í erfiðu hlutverki sem
spilandi þjálfari í Eyjum og er að
reyna að vera fyrst þjálfari og síðan
leikmaður og jafnvel Sigurður
Sveinsson hefur verið á hálfum
hraða á löngum köflum með Val.
Þetta er á margan hátt eðlilegt og
reikna má með að þessir leikmenn
sýni réttan stíganda eftir því sem
líður á mótið.
Þeir Alfreð, Páll og Sigurður
Sveins eru allir að leika hér heima
á ný eftir nokkurt hlé og allir eru
að einbeita sér að því að leika fyrir
lið sín en reyna minna sjálfir. Þetta
er góðra gjalda vert og kemur hðs-
heildinni oft vel en getur líka verið
tvíeggjað. Hætta er á að mesti
broddurinn fari úr leik þeirra
sjálfra, þeir detti niður í meðal-
mennsku sem erfitt gæti reynst að
vinna sig út úr og þeir mega ekki
gleyma því að fólk kemur á leikina
og vill sjá þá spila eins og það veit
að þeir geta best. Það er ómögulegt
að standa alltaf undir slíku - en
svona eru kröfurnar.
Línur að skýrast
Hvað framhaldið í 1. deildinni
varðar þá eru línurnar þegar farn-
ar að skýrast. Valur, KR og FH
stefna í þrjú efstu sætin, KA, Vík-
ingur, Stjarnan og jafnvel Grótta
ættu að sigla um miðja deild en
ÍBV, Breiðablik og Fram eiga erfitt
uppdráttar og stefna í fallbaráttu.
Þó gétur hvert hinna fjögurra lið-
anna sem er dregist inn í þann slag
þegar lengra líður á mótið.
Frammistaða Gróttunnar hefur
komið mér einna mest á óvart það
sem af er og ef þeir Seltirningar
leika áfram eins og gegn Breiða-
bliki, og sérstaklega gegn Víkingi
eiga þeir ekki að þurfa að óttast
mjög um sína framtíð í deildinni.
Víðir Sigurðsson
.
' - '
Það er engin furða áð Jakob Jónsson KA-maður hætti við og snúi sér frá vörninni - frekar en að lenda í klónum
á Þorbirni Jenssyni og Geir Sveinssyni! Valsvörnin er þvílíkur klettur að margir mótherjar fara að dæmi
Jakobs og veigra sér við því að reyna að komast i gegnum hana. DV-mynd EJ