Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Page 33
LAUGARDAGUR 19, NÓVEMBER 1988,
49
Handknattleikur unglinga
Þröstur Helgason, fyrirliði Víkings í 5. flokki.
Þröstur Helgason:
Égvilenguspá
nm úrslit
- en viö ætlum okkur sigur í leiknum
Er unglingasíðan hafði samband
við Þröst Helgason, fyrirliða Víkings
í 5. flokki, sem mætir KR í úrslitum
í dag, var ekki að finna neinn bilbug
á honum.
„Við erum að leika annað árið í röð
gegn KR í úrslitum Reykjavíkur-
mótsins og í fyrra töpuðum við. Ég
vil engu spá um úrslitin en við ætlum
okkur að hefna fyrir tapið í fyrra.
Við erum búnir að æfa vel undan-
farið og mætum vel undirbúnir til
leiks gegn KR. Okkur er úthlutað
tveimur æfingum í viku en Bjarki
Guðmundsson þjálfari hefur alltaf
getað útvegað okkur aukaæfmgar,
þ.e. við æfum jafnvel fjórum sinnum
í viku.
Erfiðasti leikurinn í riðlakeppn-
inni var gegn Fram í seinni umferð-
inni en hann endaði með jafntefli,
12-12, eftir að Framarar voru komnir
mikið yfir. Sá leikur sýndi okkur
bara að enginn leikur er búinn fyrr
en flautað er til leiksloka," sagði
Þröstur Helgason að lokum.
Óli B. Jónsson, fyrirliði KR í 5. flokki.
„Vona að við
vinnum Ví king''
- sagði fyrirliði KR í 5. flokki karla, ÓIi B. Jónsson
„Vjð sigruðum Víking í úrslitaleik
í fyrra og það ætlum við að gera aft-
ur í dag.
Við erum búnir að æfa vel og spila
einn æfingaleik við FH. Þetta er í
þriðja skiptið sem ég spila til úrslita
á Reykjavíkurmóti en ég man ekki
alveg hvernig þeir leikir fóru.
Ég vona bara að vinnum leikinn
við Víking í dag og endurtökum
þannig leikinn frá því í fyrra en ég
vil engu spá um úrslitin," sagði Óli
B. Jónsson, fyrirliði 5. flokks KR, í
samtali við blaðmann DV.
Hjördís Guðmundsdóttir:
Búið að vera mjög
erfitt undanfariö
„Við erum ákveðnar að hefna ófar-
anna frá í fyrra er við töpuðum eftir
framlengdan leik gegn KR,“ sagði
Hjördís Guðmundsdóttir, hinn hressi
fyrirliði Víkings í 3. flokki, er DV
hafði samband við hana og spurðist
fyrir um hvernig úrslitaleikurinn
gegn KR legðist í hana.
„Það var leiðinlegt að tapa þeim
leik því við skoruðum mark á síðustu
sekúndunum í fyrra og hefði það
getað orðið sigurmarkið en það var
dæmt af þar sem leikmaðurinn hafði
stigið á línu.
Þetta er búið að vera mjög stremb-
ið undanfarið. Við æfum flestar með
2. flokki, auk þess að æfa með 3.
flokki og æfum minnst fjórum sinn-
um í viku. Ég hef einnig æft daglega
undanfarið með unglingalandsliðinu
svo að það geta verið allt að átta til
tíu æfmgar á viku. Það er nokkuð
mikið en maður hefur bara gott af
því að æfa svona mikið.
Ég ætla ekki að spá um úrslit leiks-
ins en við ætlum að vinna, svo mikið
er víst,“ sagði hin upptekna Hjördís
að lokum.
Hjördís Guðmundsdóttir, fyrirliði Víkings í 3. flokki.
„Það mábúastvið hörkuleik"
- sagði Einar Ámason, fyrirliði KR í 4. flokki karla
„Við ætlum að vinna þennan leik,
það er engin spurning. Fyrir tveimur
árum unnum við Framarana og ætl-
um að endurtaka leikinn í ár. Þeir
eru með gott lið og unnu okkur á
íslandsmótinu með einu marki þann-
ig að það má búast við hörkuleik. Það
er mjög erfltt að spá um úrsht í þess-
um leik en þetta verður örugglega
hörkubarátta.
Við erum búnir að æfa ágætlega
en okkur vantar fleiri æfingar. Við
æfðum fjórum sinnum í viku til að
byrja með en undanfarið höfum við
æft tvisvar í viku.“_
Þetta sagði Einar Árnason, fyrirliði
4. flokks karla hjá KR, þegar DV
ræddi við hann um úrshtaleikinn við
Fram sem hefst kl. 15.50 í Laugar-
dalshöllinni í dag.
Einar Árnason, fyrirliði KR í 4. flokki.
„Þeir em engan vegúrn ósigrandi"
- sagði Sigurður Þórsson, fyrirliöi ÍR
Við erum búnir að æfa vel í vetur
og komum vel undirbúnir í þennan
leik. Það er því engin spurning að
við stefnum að sigri á móti Frömur-
um. Þeir eru með sterkt hð en engan
veginn ósigrandi.
Við höfum einu sinni áður leikið
til úrslita á Reykjavíkurmóti en þeim
leik töpuðum við þannig að það er
kominn timi á okkur núna.
Það sem hefur háð ÍR-liöinu einna
mest er að við erum aldrei með sama
þjálfarann tvö ár í röð en það lagast
vonandi í framtíðinni.
Ég þori engu að spá um úrslitin en
við ætlum að vinna leikinn."
Þetta hafði Sigurður Þórsson, fyrir-
liði ÍR í 3. flokki karla, að segja um
leikinn.
*
Sigurður Þórsson, fyrirliði ÍR i 3. flokki.