Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1988, Page 39
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 1988.
55
LífsstQl
Með annan fótinn í Þýskalandi, hinn í Belgíu og allt annað í Hollandi: Þriggja landa bletturinn við Maastricht.
Maastricht:
Spássérað um Svalir Evrópu
- í elstu borg Hollands þar sem bruggað er fágætasta vín Evrópu
Skammt frá Maastricht, elstu borg
Hollands, hlykkjast sveitavegurinn
á milli birkitrjánna, furunnar og
beykisins upp á hæsta tind Niður-
landa, aðeins um 300 metra fyrir
ofan sjávarmál. Uppi á tindi þess-
um er steinsúla nokkur þar sem
heimamenn kalla Þriggja landa
blettinn. Ferðamaðurinn á þessum
stað finnur til undarlegrar og
ómótstæðilegrar hvatar til að apa
eftir börnunum á staðnum: að vera
með vinstri fótinn í Þýskalandi,
þann hægri í Belgíu á meðan aðrir
líkamshlutar eru í Hollandi.
Maastricht þarf þó ekki á neinum
slíkum tilfæringum að halda til að
sýna hversu alþjóðleg hún er. Bæði
borgin og héraöið umhverfis, Lim-
burg, standa fyllilega undir nafn-
inu sem Hollendingar hafa gefið
þeim: Svalir Evrópu. Við fyrstu sýn
er ekkert eins fjarri hefðbundnum
hugmyndum manna um Holland
og Limburg. Þar eru engin síki,
engin vindmylla, heldur aflíðandi
hæðir og hólar eins og í enskri
sveit, kastalar í frönskum og þýsk-
um stíl, sterkbyggðir bóndabæir
með bindingsverki eins og í Elsass
og Lorraine. Þama er meira að
segja stólalyfta. Og til að fullkomna
blekkinguna eru vínekrur á sólrík-
ustu hæðunum.
Hér dó D'Artagnan
Maas-áin rennur í gegnum hjarta
Maastricht og yfir hana er brú sem
hefur staðið síðan á 12. öld. Áin
hefur oft litast blóði um aldirnar.
Tuttugu og einu sinni hafa her-
sveitir setið um borgina, þegar
Rómverjar, Frankar, Spánverjar,
Frakkar, Englendingar, Þjóðverjar
og Hollendingar hafa barist um
yfirráðin.
Maastricht hefur þekkt Karla-
magnús, hinn grimmdarlega
spænska hertoga af Parma, Loðvík
sólkonung Frakka. Ekki má
gleyma D’Artagnan, einum af
skyttunum þremur, sem lét líf sitt
við varnir borgarinnar 1673, og
Napoleon keisara sem lét hætta
framleiðslu á vínekrunum, þeim
einu á Niðurlöndum.
D’Artagnans er í dag minnst með
látlausri styttu á virkisveggnum
þar sem hann féll. Það sem minnir
á Napoleon, síðasta franska drottn-
arann yfir þessu svæði áður en
Hollendingar náðu því aftur á sitt
vald eftir fall hans, eru þijár vín-
ekrur og einn „víngarður” sem enn
eru í rækt. Áður fyrr skiptu vínekr-
umar mörgum tugum.
Af fágætu víni
Fágætasta vín Evrópu er fram-
leitt í Limburg, risesling, auxerrois
og moller thurgau í aðeins 25 þús-
und flöskum, og 100 flöskur eða svo
af rauðvíni sem áhugamaður
bruggar í litla víngarðinum í hjarta
borgarinnar. En það eru meiri lík-
ur á því að ferðalanginum verði
boðið upp á Limburg vin á einka-
heimili eða hóteli í Amsterdam en
í sjálfri Maastricht.
Tvær ástæður eru einkum nefnd-
ar fyrir því hvers vegna Napoleon
eyðilagði hina blómlega vínfram-
leiðslu sem var í sveitinni og mönn-
um er í sjálfsvald sett hvora þeir
telja líklegri. Samkvæmt þeirri
fyrri vildi Napoleon ekki að hol-
lenska vínið keppti við það franska
vegna þess að það var of gott. Hin
síðari er á þá leið að honum hafi
fundist hollenska vínið svo hræði-
lega vont að hann lét eyðileggja
vínekrurnar. Hver svo sem sann-
leikurinn er í máh þessu, þá er það
óumdeilanlegt að vínbændur á
svæðinu voru orðnir svo leiðir á
allri eyðileggingunni á landinu og
uppskerunni í hverri styrjöldinni á
fætur annarri að þeir nenntu ekki
að hefja ræktunina aftur.
Prúttað
á þremur málum
Sigursælir hershöfðingjar af
ýmsu sauðahúsi og einfóld landa-
fræði hafa sett mark sitt á Ma-
astricht. Bæjarbúar tala einstaka
mállýsku sem er blanda úr þýsku,
frönsku, hollensku og flæmsku.
Prútt á mörkuðunum fer fram á
þremur tungumálum og greitt er
fyrir vöruna með þremur gjald-
miðlum.
Elstu byggingarnar í Maastricht
eru kirkjurnar Onze Lieve Vrouwe
og St Servaas sem að allra áliti eru
einhver fahegustu dæmi um róm-
anskan byggingarstíl á Niðurlönd-
um öllum. Þegar spænsku hús-
bændurnir höfðu veriö reknir í
burtu var farið að byggja í dæmi-
gerðum hollenskum kalvínistastíl.
Ráðhúsið er dæmigert fyrir klass-
ískan hollenskan stíl. Á 18. öldinni
hafði franskt barokk og rókókó náð
yfirhöndinni.
Lostætu kirsuberin
í hjarta borgarinnar er stórt og
mikið torg sem heitir Vrijthof. Þar
gnæfa yfir turnar St Seervaskirkj-
unnar sem nefnd er eftir dáðasta
biskupi borgarinnar. Sá dó árið
384. En það er langt því frá að ein-
hver helgiblær hvíli yfír torginu.
Vinsælustu gangstéttarveitinga-
hús borgarinnar eru þar og torgið
er upplýst langt fram á nótt.
Við Vrijthof er thvalið aö slaka á
yfir kaffiboha og einni sneið af
frægustu ávaxtaböku héraösins,
vlaii, sem þeir Hollendingar bera
fram „flæ“. Þeir sem gjörst þekkja
segja að besta fyllingin í vlaii sé
gerð úr ekta Limburg kirsuberjum.
Og kirsuberin í Limburg, svo og
spergilhnn, eru þau bestu sem til
eru. En vlaii er borin fram með
mörgum mismunandi fyllingum.
Það er bara skehn sem verður að
vera hin sama alls staðar.
Þegar kvölda tekur eru franskir
veitingastaðir allsráðandi. Franska
leiðsöguritið frá Michelin gefur
þeim góða einkunn en þeir eru jafn-
framt dýrastir ahra veitingastaða.
En ef menn vilja heldur snæða
franskan mat í Frakklandi og hol-
lenskan í Hollandi þá er vel við
hæfi að gæða sér á indónesíska
matnum rijsttafel.
Maastricht er öðruvísi Holland
og besta aðferðin til að njóta borg-
arinnar er að drekka í sig einstaka
blönduna af menningu, matargerð-
arlist og stemmningu sem ríkir á
Svölum Evrópu.
Áin Maas liðast í gegnum Maastricht og kemur í stað síkjanna sem
einkenna aðrar borgir hollenskar.
Mlnnum
hvert annað á -
Spennum beltin!
yUMFERÐAR
RAÐ
1. VINNINCUR
í kvöld
handa þér, ef þú hittír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki »
vanta í þetta sinn! }
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111