Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1988, Qupperneq 5
FIMMTUPAGUR 15. DEREMBER 1988-
Fréttir
Eignarskattur:
10 þús. króna
hækkun á
meðaleign
Samkvæmt tekju- og eignarskatts-
frumvarpi Ólafs Ragnars Grímsson-
ar fjármálaráðherra munu hjón sem
eiga 20 milljón króna skuldlausa eign
greiða um 309 þúsund krónur í eign-
arskatt á næsta ári. Það er um 137
þúsund króna hækkun eða um 44
prósent.
Þessi hjón mynu lenda ásamt um
tvö þúsund öðrum í sérstöku eignar-
skattsþrepi sem miðast við 6 milljóna
eign hjá einstakhng eða 12 milljóna
eign hjá hjónum. Alls munu um 5 til
6 þúsund einstaklingar lenda í þessu
skattþrepi.
Meðaltalseign þeirra hjóna sem
greiða eignarskatt er samkvæmt
upplýsingum fjármálaráðuneytisins
um 9,1 milljón. Þessi hjón munu á
næsta ári greiða um 50.700 krónur í
eignarskatt. Það er um -10.260 króna
skattahækkun eða um 20,2 prósent.
Eignarskatturinn reiknast þannig
að skuldlaus eign upp að 2,5 milljón-
um króna er skattlaus. Af næstu 3,5
milljónum greiðist 1,2 prósent skatt-
ur. Af eign sem er umfram þetta
greiðist 1,5 álag eða 2,7 prósent eign-
arskattur. -gse
Hörkusölur
Eyjafjarðar-
togara
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvik;
Dalvíkurtogararnir Björgvin og
Björgúlfur og einnig Ólafsíjarðartog-
ararnir Sólberg og Ólafur bekkur
hafa selt mjög vel erlendis síðustu
daga og vikur. Björgvin seldi um 177
tonn fyrir tæpar 16 millj. króna.
Meðalverð 90,28 kr. Uppistaða aflans
var þorskur eða 130 tonn. Á heimleið
aflaði skipið 15 tonn af karfa sem fór
í vinnslu hér á Dalvík.
Björgúlfur seldi rúmlega 154 tonn
fyrir 14 millj. og 166 þús. kr. Meðal-
verð 91,82 kr. 120 tonn voru þorskur
en áður en haldið var utan var 11
tonnum landað í gám á ísafirði. Sól-
berg fékk kr. 81 í meðalverö og Ólaf-
ur bekkur 99 krónur og má segja að
þetta hafi verið góð vika fyrir Eyja-
fjarðartogara á sölumörkuðum er-
lendis.
Togararnir eru nú óðum að hætta
veiðum fyrir hátíðar og fara ekki út
fyrr en á nýju ári. Aðeins tveir Dal-
víkurtogarar eru enn að veiðum,
Dalborg, sem landar þorski um 20.
desember, og frystiskipið Bliki, sem
landar líklega 21. desember, bæði
fullunninni rækju sem fer á Japans-
markað og svokallaðri pokarækju til
vinnslu hjá Söltunarfélagi Dalvíkur.
6 UNIDEN GERVI-
2 T0Y0TA LANDCRUISER
TURB0 DIESEL
ICELANDAIR
7 NORDMENDE PRESTIGE
29" SJÓNVÖRP
4 G0LDSTAR GCD-60
HLJÓMTÆKJASTÆÐUR
7 G0LDSTAR ER-654 D
ÖRBYLGJUOFNAR
7 NORDMENDE CV 2201
KVIKMYNDATÖKUVÉLAR
I MITSUBISHI
FARSlMAR
4 G0LDSTAR CBT-4521
14" SJÓNVÖRP
4 G0LDSTAR CBT-4521 -
20" SJÓNVÖRP
4 G0LDSTAR GHV-1245
7 BEOSYSTEM 5000 HLJÓMTÆKI
ÁSAMT PENTA HÁTÖLURUM GEISLASPILARAR
4 CITIZEN 7 NORDMENDE V-1405
SJÓNVÖRP MYNDBANDSTÆKI
4 BANG & 0LUFSEN
20" SJÓNVÖRP 0G
VHS-82.2
MYNDBANDSTÆKI
Peningaspil:
Athugið ! Allt skattfrjálsir vinningar
vinningar í
lottói og
getraunum
Sérfræðingar segja að potturinn í
knattspyrnugetraunum verði um 7
milljónir króna næstu helgi. Þrjá
laugardaga í röð hefur fyrsti vinning-
ur ekki gengið út því enginn var með
12 rétta.
í lottóinu verður spilað um tvöfald-
an vinning á laugardaginn og í gær
var potturinn kominn í 2,5 milljónir
króna. Aðeins hafa bæst í pottinn um
200.000 krónur en búist er við að
hann hækki meira þegar nær dregur
helgi. —pv
Dregið 24. desember 1988
Ef þér óskið að
greiða miðann
með greiðslukorti,
þá hringið
vinsamlegast í síma:
91-12388
FLUGBJORGUNARSVEITIRNAR