Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1988, Blaðsíða 24
24
LAUGARDAGUR 17. DESEMBER 1988.
Popp____________________________________________________
Plata Bítlavinafélagsins selst best um þessar mundir:
„Arangur þrotlausrar
vinnu síðustu mánaða"
- segir Jón Ólafsson. Nýr bassaleikari er genginn til liös við hljómsveitina
Plöturnar seljast og seljast þessa
dagana enda eru að koma jól. Sumar
fara í stórum upplögum og auka sí-
fellt við sig. Öörum er farið að dapr-
ast flugið. En engin plata virðist ætla
að slá metsöluskífum síðustu jóla
við, Dögun Bubba Morthens og í
fylgd með fullorðnum Bjartmars
Guðlaugssonar.
Miðað við vinsældalista dagblað-
anna virðist Bítlavinafélaginu og 12
íslenskum bítlalögum ætla að vegna
best fvrir jólin ’88. Platan kom út
þann sautjánda síðasta mánaðar og
hefur verið nær óslitið á toppnum
síðan.
„Við vorum komnir í 4.500 eintök
í byrjun vikunnar og miðað við gang
mála ættum við að vera í fimm þús-
undum núna um helgina," segir Jón
Ólafsson Bítlavinur.
Hann og féiagar hans hafa nú tekið
sér hvíld frá spilamennsku. „Við
hefðum þó haldið áfram iangt fram
í desember ef Stefán gitarleikari
hefði ekki þurft að fara til Ameríku."
Böll eftir böll
Jón Ólafsson telur velgengni 12 ís-
lenskra bítlalaga meðal annars vera
því að þakka að hljómsveitin hefur
víða komið fram að undanfornu.
„Við spiluðum um allar helgar frá
23. september til þriðja desember,
samtals 26 sinnum. Og á liðnum
árum höfum við gert mjög víðreist
um landið. Ætli við eigum nokkurn
stað eftir nema Grímsey. Við höfum
meöal annars nokkrum sinnum spil-
að í Hrísey þótt ekki verði maður
ríkur á dansleikjahaldi þar, vinni sér
rétt fyrir gistingu og gallowaysteik.
Auðvitað hlýtur það að hafa áhrif að
hafa verið duglegur að koma nafni
hljómsveitar sinnar á framfæri þótt
stundum hafi ekki verið nema fimm-
tiu til sjötíu manns á böllum hjá okk-
ur."
Jón Ólafsson: Við spiluðum um
hverja helgi í tvo mánuði í haust.
Að sögn Jóns var Bítlavinafélagið
duglegast við spilamennskuna í júlí
í fyrra. í þeim mánuöi kom hljóm-
sveitin samtals 26 sinnum fram. „Þá
vorum við líka búnir að fá okkur
fullsadda.“
Skrifað á plötur
Jón og félagar hans eru aldeilis
ekki aðgerðalausir þessa dagana þótt
ekki standi þeir uppi á hljómsveita-
palli.
„Við þeytumst í öll viðtöl sem okk-
ur er boðið að koma í. Ætli þau séu
ekki orðin um tíu vegna nýju plöt-
unnar - ellefu með þessu! Svo höfum
við verið í myndbandaupptökum og
gerðum nýlega snöggsoðinn sjón-
varpsþátt fyrir ríkissjónvarpið. Ekki
má gleyma því að um hverja helgi
erum við á fullu við að árita plötur.
Skrifum og skrifum í stórmörkuðum
og plötubúðum þar til blóð drýpur
undan nöglunum á okkur. Ætli við
séum ekki búnir að skrifa nöfnin
okkar á einar tvö hundruð plötur það
sem af er og eigum vonandi eftir að
skrifa á nokkrar í viðbót.“
Popp
Ásgeir Tómasson
Viöurkennt af Rafmagnseftírlití ríkisins
1 ÁRS ÁBYRGÐ
Hefur þú verki í baki, hnakka, eða öxlum.
Viðbótarsending á kr. 3.900}” }áður kr. 5«430}“
Hitateppi hcntar öllum, ungum scm öldnum. Pantið strax.
Dregur úr vöðvaspennu með hita. Vinnur séretaklega gegn verkjum í
baki og hnakka og almennri þreytu. Ver úr 100% bómull sem hægt er
að þvo. Tvær hitastillingar. Tengi fyrir 60/30 W. 220 volt.
Stærðca 37x55 cm.
Póstverslunin Príma
Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga
vikunnar kl. 9.00-22.00.
S VISA S EUROCAMJ
Fótóhúsið - Príma
- ljósmynda- og gjafavöruverslun,
Bankastræti, sími 21556.
ÍI
Jón segir þaö mun skemmtilegra
og líflegra aö árita í stórmörkuðum
en plötubúðum.
„Maður þarf helst að vera innan
um kóteletturnar. Þangaö kemur
líka miklu breiðari hópur en í plötu-
búöirnar. Viö áritum plötur fyrir fólk
á öllum aldri - allt frá tíu ára upp í
Haraldur Þorsteinsson hefur nú sagt
skilið við félaga sína i Bítlavinafé-
laginu.
sjötugt. Það gerist oft eitt og annað
skemmtilegt þarna. Um daginn kom
til dæmis einn og bað okkur að árita
plötu með Síðan skein sól! Við skrif-
uöum auðvitað snarlega nöfnin okk-
ar á hana. Ég skrifaði mitt þvert yfir
andlitið á Helga Björns.“
Næsta ár
Jón Ólafsson og Bítlavinirnir halda
áfram að koma plötunni sinni á
framfæri til jóla.
„Auövitað erum við ánægðir með
viðtökurnar. Platan er komin í gull
og stefnir í platínu. Við getum ekki
annað en verið ánægðir með slíkt
núna þegar salan yfir línuna er ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir, að
minnsta kosti ekki ef miðað er viö
árið í fyrra.
Við tókum 12 íslensk bítlalög upp
í vor og ætluöum aö koma henni á
markað snemma sumars og snúa
okkur svo að frumsaminni tónlist.
Útgefandinn, Steinar Berg, ákvaö að
salta plötuna fram á haustiö - sagði
að hún myndi seljast miklu betur þá
en að sumri til. Hann hafði auðvitað
rétt fyrir sér eins og vant er!“
Eyjólfur Kristjánsson og Rafn Jónsson árita plötu í Kaupstað. Þær eru nú
orðnar um tvö hundruð sem þeir hafa skrifað nöfn sín á.
Bítlavinafélagið leikur á Hótel ís-
landi á gamlárskvöld og nýársfagn-
aöinum á nýárskvöld. Hvað tekur
svo við?
okkar eigin stúdíói - eða hljóðveri
eins og það heitir víst á góðri ís-
lensku. Svo spilum við bara og spil-
um sem víðast eins og venjuiega."
Stund milli stríða á Bítlafélagsdansleik. Stefán Hjörleifsson og Eyjólfur
Kristjánsson slaka á. DV-myndir ÁT
Jón Ólafsson segir það hafa sitt að segja fyrir hljómsveitina að hafa kom-
ið sem viðast við á landinu á liðnum árum.
Það er svo undarlegt með unga
menn. Bítlavinafélagiö skrýðist
ávallt glímubúningi undir lok dans-
leikja sinna.
„Þá er það frumsamda tónlistin
okkar sem er búin að bíöa nokkuð
lengi,“ svarar Jón. „Við förum að
vinna að henni á útmánuðum og
byrjum að taka upp í mars eða apríl.
Við eigum orðið nokkuð af frum-
sömdu efni sem við erum eiginlega
famir að bíða eftir aö vinna með í
Nýrbassaleikari
Þegar Bítlavinafélagið kemur sam-
an að nýju eftir jól veröur nýr bassa-
leikari mættur til leiks í stað Haralds
Þorsteinssonar. Hann heitir Björn
Vilhjálmsson og lék meö Rokkabilly-
bandi Reykjavíkur, Lolu, Eglu og
Svefngölsum, svo nokkrar séu nefnd-
ar. Haraldur er genginn til liðs við
Brimkló sem einmitt kemur fram á
nýárskvöld í Broadway eftir langt
hlé.
„Nú, og svo er ég búinn að fá mér
hirðskáld, ekki má gleyma því,“ seg-
ir Jón Ólafsson. „Viö Sigmundur
Ernir Rúnarsson skáld og fréttamað-
ur ákváðum það einhvern tíma að
prófa að semja saman. Ég lögin og
hann textana. Sigmundur var ein-
mitt aö skila þeim fyrstu og mér líst
þrælvel á þá. Þeir eru á talsvert
merkilegra plani en Þrisvar í viku
sem við félagarnir hnoðuðum saman
hér um árið.“
Sem sagt, nóg um aö vera hjá Bítla-
vinafélaginu á næstunni. En hvað
um daginn í dag, laugardag?
„Ja, það er nú það.“ Jón klórar sér
í hrokknum kollinum. „Ætli það
verði ekki fyrst Mikligarður og svo
Hagkaup... ne-ei, það var kannski
öfugt.“ -ÁT-