Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989.
7
pv_______________________________Fréttir
Húsbréfakerfiö:
VORTILBOÐ ’89
Framsókn mun
standa við
samkomulagið
- segirJón Kristjánsson, þingmaður flokksins
„Framsoknarflokkurinn mun
standa viö þaö samkomulag sem
formenn stjómarflokkanna geröu
um húsbréfafrumvarpið. En það
var ljóst, þegar samkomulagiö var
gert, aö ekki myndu ailir sætta sig
við það og þaö kom strax fram viö
fyrstu umræðu málsins að Alex-
ander Stefánsson er andsnúinn
máiinu. Að öðm leyti stendur þing-
flokkurinn við samkomulagið,"
sagði Jón Kristjánsson, þingmaður
Framsóknarflokksins og fulltrúi
hans í félagsmálanefnd neðri deild-
ar ásamt Alexander.
Eftir opinbera andstöðu ýmissa
framsóknarmanna við húsbréfa-
frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra, meðal annars
fulltrúa flokksins í stjórn Hús-
næðisstofnunar, hefur stuðningur
stjómarílokkanna við frumvarpið
verið dreginn í efa. Miðað við um-
mæli Jóns Kristjánssonar virðist
Alexander Stefánsson hins vegar
vera sá eini í þingflokki Framsókn-
ar sem ekki treystir sér til að greiða
frumvarpinu atkvæði.
Ólafur Ragnar Grímsson íjár-
málaráðherra sagði í samtali við
DV að allir þingmenn Alþýðu-
bandalagsins myndu standa við
samkomulag formannanna. Það
felur í sér að kaup lífeyrissjóðanna
á húsbréfum verði endurskoðuð
eftir sex mánuði og kerfið í heild
eftir tvö ár. Til þess aö tryggja
frumvarpinu meirihluta þarf ríkis-
stjórnin að leita til stjórnarand-
stöðunnar. Þar sem stjómin hefur
ekki meirihluta í neðri deild breyt-
ir afstaða Alexanders þar ekki öðm
en því að stjómin þarf tvo þing-
menn í stað eins.
I samtali við DV sögðu bæði Þór-
hildur Þorleifsdóttir, þingmaður
Kvennalistans, og Geir H. Haarde,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, að
þingmenn þessara flokka væru
flestir fylgjandi frumvarpinu eins
og það var lagt fram. Þá hafa þing-
menn Borgaraflokksins lýst sig
hlynnta þessu máli. Fá mál ríkis-
stjórnarinnar hafa því fengið jafn-
góð viðbrögð stjómarandstöðunn-
ar.
Af samtölmn við þingmenn
sljórnarandstöðunnar er hins veg-
ar ljóst að hún á auðveldara með
að samþykkja frumvarpið eins og
það var áður en til samkomulags
formanna stjómarflokkanna kom.
-gse
CITROÉNA
OPIÐ í DAG
laugardag kl. 1-5
Globuse
Lágmúli 5, Reykjavík
Sími 91-681555
VANTAR ÞIGHURÐIR?
Stálhurðir: þykkt 50 mm.
Einangrun: Polyurethane "Ú gildi 0,32
W/m2, 7 litir.
Með og án mótordrifs.
Sendum menn til uppsetningar um land
allt.
ASTRA
AUSTURSTRÖND 8, SÍMI 612244
AÐEINS í NOKKRADAGA
\ VIÐ RÝMUM TIL OG SELJUM ÚT SÍÐUSTU EINTÖK AF ÝMSUM HÚSGÖGNUM.
EINNIG VERÐA ÝMSAR VÖRUR Á TIÐBOÐSVERÐI.
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SÍMI 36011