Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989. 45 DV Skák um hann er að finna frá skákinni Vaganjan - Mestel, Hastings 1974-75. Mestel svaraði með 8. - f5!? 9. h5 fxe4 sem leiddi til snarpra átaka. Speelman ætlar ekki að láta h-peðið vaða yfir sig mótþróalaust. 8. - h6 9. Be2 f5 Til greina kemur að hróka stutt. Svartur vill gjaman 1 þessu af- brigði svara 10. exf5 með 10. - Bxd4 11. Bxd4 Rxf5 en nú hangir hrókur- inn á h8. 10. exf5 Rxf5 11. Rxf5 Bxf5 12. Dd2 Dd7 13. 0-0!? Varla var þetta Uður í áætluninni er hvítur lék h-peðinu fram. Svart- ur leikur nú best 13. - h5 og hrókar síðan stutt. Leikur Speelmans er dálítið glæfralegur. 13. - 0-0-0 14.1)4! Fljótur að grípa tækifærið og hefja sóknaraðgerðir. 14. - Rxb4?! Speelman slær sjaldan hendinni á móti flækjunum. Honum er ekki að skapi að tefla vömina með 14. - Kb8 15. b5 Re7 en þetta hefði þó verið skárri kostur. 15. Rb5! Rc2? Betri kostur er 15. - Bxal 16. Rxa7+ Kb8 17. Dxb4 Be5 og það er erfitt að finna rakta vinningsleið fyrir hvítan. T.d. 18. Bf3 c5 19. Da3 Dc7 20. Rb5 Db6; eða 18. Rb5 c5 19. Da4 Dc6 og svartur er enn á lífi. * I I i i á Jl A A á É. A A jk, A 4 W I A A 2 2 ABCDEFGH 16. Bf3!! Bráðskemmtilegur leikur, sem Speelman hefur varla tekið með í reikninginn. Eftir 16. - Rxe3 17. Rxa7+ Kb8 18. Rc6+! Kc8 (18. - bxc6 19. Db4+ Kc8 20. Da4 lýkur með máti eða drottningartapi) 19. Da5 hefur hvítur sterka sókn og hlýtur að vinna hð. Betra er 16. - Rxal og taflið er ekki alveg ljóst, þótt hvítu sóknarmennimir séu óárennilegir. 16. - d5(?) 17. Bxd5 Rxal 18. Rxa7+ Kb8 Hugmyndin með peðsfóminni í 16. leik er að svara 19. Rc6+?? með 19. - Dxc6! o.s.frv. en flen-a hangir á spýtunni. 19. Db4! Svartur er nú vamarlaus. Ef 19. - c6, þá 20. Rxc6+ Kc8 21. Ra7+ Kb8 22. Bf4+ Ka8 (22. - Kxa7 23. Da5 mát) 23. Rc8! svo ein vinnings- leið sé rakin. 19. - Dxd5 20. cxd5 Rc2 21. Da5 Rxe3 22. fxe3 Hhe8 23. Rb5 Hxd5 24. Dxc7+ Ka8 25. Da5+ Og Speelman gafst upp. Skoðum að endingu eina sigur- skáka Shorts frá mótinu. Hér legg- ur hann ungverska stórmeistarann RibU eftir fjörlega skák. Hvítt: Nigel Short Svart: Zoltan Ribli Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 RfiB 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. f3 b5 8. g4 h6 9. h4 b4 10. Rce2 e5 11. Rb3 d5 12. Rg3 d4 13. Bf2 Be6 14. Bd3 h5?! Svartm- hefur teflt af krafti en nú leggur hann of mikið á stöðuna. Betra er 14. - Rc6. 15. g5 Rfd7 16. f4! Bg4 17. Be2 exf4 18. Rxh5 Bxe2 19. Dxe2 d3 RibU reynir að hrista upp í stöð- unni, því að annars ætti hann vont tafL 20. cxd3 f3 21. Dxf3 Re5 22. De2 Rxd3+ 23. Kfl Rxf2 24. Kx£2 Rc6 25. Kg2 Hvíti kóngurinn viröist skjólUtiU en svartur fær ekki sótt að honum. í næstu leikjum bætir Short stöðu sína smám saman og herðir tökin. 25. - Db8 26. Haci Re5 27. Rf4 Bd6 28. Rd4 0-0 29. Rd5 He8 30. Rf5 Rg6 31. Hcfl Rf4+ 32. Rxf4 Bxf4 33. Df3 Be5 sX W X 7 A A 6 A 5 Jl 4^ A 4 A A A 3 2 A 1 A A B C D E 2 F G S H 34. Rxg7! Og RibU gafst upp. Eftir 34. - Bxg7 35. Dxf7+ Kh7 36. Dh5+ Kg8 37. g6 blasir mátið við. -JLÁ Bridge mennsku a þessum vetri. Stigahæstu menn em: Óskar Karlsson..............485 Sveinn Sigurgeirsson........477 Lárus Hermannsson...........437 JörundurÞórðarson...........381 Hjálmar S. Pálsson..........359 JónStefánsson...............344 Gestur Jónsson..............303 Friðjón ÞórhaUsson..........291 AntonR. Gunnarsson..........252 Þorfinnur Karlsson..........242 Hannes R. Jónsson...........222 Hrólfur Hjaltason...........212 Jón Þorvarðarson 201 Bridgesamband íslands: Bridgesamband íslands hefur ráð- ist í úgáfu sagnkeppna þar sem menn geta spreytt sig á sögnum og fengið uppgefin stig fyrir árangurinn. Sagn- keppni hefur löngum þótt góð af þeim sem reynt hafa til að bæta skilning miUi félaga og bæta sagntækni. Rit þetta er í tveimur handhægum möppum, austur- og vesturhendur, og fylgja úrlausnir annarri möpp- unni. Hendurnar eru alls 480, eða keppa má 48 sinnum, og ætti það aö duga flestum tU margra mánaða, jafnvel ára. Ritið er til sölu hjá Bridgesambandinu á 1.500 kr. Félög- um innan BSÍ er bent á að hafa sam- band við Bridgesambandið ef þau hafa áhuga á að panta eitthvert magn af þessu riti. Bridgefélag Barðstrendinga: Mánudaginn 10. apríl lauk aðaltví- menningi félagsins með barómeter- sniði, en 32 pör tóku þátt í henni. Keppni var hörð lengst af miUi tveggja para um fyrsta sætið en GísU Víglundsson og Þórarinn Árnason tryggðu sér sigurinn með góðum endaspretti. Lokastaða efstu - para varð þannig: 1. GísU Víglundsson- Þórarinn Árnason 336 2. Helgi Einarsson- Gunnlaugur Thorsteinsson 295 3. Leifur Jóhannsson- EUsabet Jónsdóttir 182 4. Friðbjöm Guðmundsson- GísU Sveinsson 181 5. Ragnar Bjömsson- Skarphéðinn Lýðsson 170 6. Vilhelm Lúðvíksson- Kristín Pálsdóttir 133 Bridgefélag Hafnarfjarðar Lokið er 6 umferðum í Butler- tvímenningi félagsins sem verður síðasta keppni vetrarins. Staða efstu para er nú þessi: Jón - Jens 84 Kristófer - Guðbrandur 79 Björn - Ólafur 70 Bragi - Árnína 68 Gylfi - Ari 66 Keppnin heldur áfram næsta mánudagskvöld. íþróttapistill • Erlendir leikmenn settu skemmtilegan svip á körfuknattleikinn þegar þeir léku hér á landi fyrir nokkrum árum. Þessi mynd var tekin er KR varð íslandsmeistari en þá lék John Hudson meö liðinu. Jón Sigurðsson sést hér fagna meö honum. Leika erlendir leikmenn hér á næsta hausti? Þeir sem hafa fylgst með körfu- knattleik hér á landi í nokkum tíma muna þá tíð er körfuknattleik- urinn var leikinn fyrir troðfuUum húsum áhorfenda á síðasta áratug. Þetta vom mikU uppgangsár hjá körfuknattleiknum og vart hægt að bera þau saman við síðustu ár þegar oftast hefur verið leikið fyrir hálftómum áhorfendapöUum, nema e.t.v. á Suðurnesjum. Það sem dró að sér þennan áhorfenda- íjölda á sínum tíma var ekki síst það að erlendir leikmenn léku með Uðunum, oft Utríkir leikmenn sem sópuðu að áhorfendum. Nægir að nefna Jimmy Rogers, Ármanni, Dirk Dunbar, ÍS, John Hudson, KR, Tim Dwyer, Val, og Mark Christen- sen, Þór/ÍR, í því sambandi. Umhugsunarefni má þaö vera í dag þeim mönnum, sem beittu sér á sínum tíma fyrir því að vera þess- ara leikmanna hér var bönnuð, hvaða skaða þeir hafa unnið körfu- knattleiknum. Um leið skyldu menn gera sér grein fyrir því hvað olU því á sínum tíma að þær tiUög- ur náöu fram að ganga að banna þessum mönnum að leika og þjáUa hér á landi. Launin sprengd upp Það er hægt að byija á því að spyija þá menn hvað hafi valdið því að félög þeirra tóku upp á því að sprengja upp þau laun sem þess- um mönnum voru greidd. Þegar erlendir leikmenn komu hingað fyrst var það óskráð regla að greiða þeim 800-1000 doUara á mánuði, auk húsnæðis, og skyldu þeir þjálfa og leika með meistaraflokki og auk þess þjálfa yngri flokka. Menn fóru ýmsar leiðir í vaU á þessum leikmönnum og var m.a. farið til Bandaríkjanna og þessir menn skoðaðir og rætt við þá áður en þeir fengu samning. En þetta var því miður ekki reglan. Til að spara gripu sum félaganna tíl þess að ráða til sín leikmenn eftir öðrum leiðum. Erlendir leikmenn, sem hér voru, voru gjaman beðnir inn að útvega leikmenn frá heimalandi sínu, sem þeir gerðu, og var oftar en ekki um að ræða kunningja sem þeir sögðu vera frábæra leikmenn og þjálfara. Það reyndist oftar en ekki rangt. Hitt var hins vegar öUu verra að þegar þessir kunningjar og vinir fóru að ná hér fótfestu fóru þeir að mynda þrýstihóp sem krafðist hærri launa og sum félaganna létu undan. Voru dæmi þess að einstaka leikmanni væru greiddir um eða yfir 1500 doUarar á mánuði þegar hægt hefði verið að komast af með að greiða 800-1000 doUara. Svo komu forráðamenn þessara félaga grátandi á ársþing og kröfðust þess aö bann yrði sett á útlendingana vegna þess að kostnaður vegna þeirra væri aUt of mikiU. Hafa menn lært? Á ársþingi Körfuknattleikssam- bandsins, sem fram fer um helgina, ber stjóm sambandsins fram þá tU- lögu að erlendum leikmönnum verði heimUt að leika hér að nýju og er reiknað með aö sú tUlaga nái fram að ganga. Spumingin er því sú hvort menn hafi lært það mikið af fyrri mistökum að nú gangi dæmið upp og tíl starfa fáist fram- úrskarandi leikmenn sem hafi jafn- framt góð tök á þjálfun. Ekki síður má spyija hvort menn hafi nú þroska tíl þess að veita þessum mönnum meira aðhald en áður var á öUum sviðum. Takist það munu félögin spara mikla peninga. Það er staðreynd að þessir menn sópa að áhorfend- um sem þýðir peninga í kassann og sé launum þeirra haldið innan skynsamlegra marka sparast stórfé í þjálfun. Staðreyndin er nefrúlega sú að innlend þjálfun hefur ekki verið ókeypis, langt frá því. Þetta vita þeir sem tU þekkja og því snýst málið einfaldlega um það að vand- að verði tU valsins á erlendum leik- mönnum nú með því að senda menn utan til að sjá þá leika og kynnast viðhorfum þeirra, semja við þá um sanngjöm laun og sjá tíl þess að þeir hafi aðhald þegar þeir koma tU starfa. Saga Class-ruglið Eitt það furðulegasta sem blaða- mönnum hefur verið boðið upp á í vetur er að eiga að skrifa um Ámer- íkuriðU, EvrópuriðU og Saga Class-keppni þegar þeir hafa fjaUað um íslandsmótið í körfuknattleik. Það að jafngreindum mönnum og setið hafa í fomstusveit körfu- knattleiksins skuh hafa dottið þessi vitleysa í hug er furðulegt, enda hefur þetta orðiö aðhlátursefni. Erfiðan flárhag Körfuknattleiks- sambandsins verður að leysa með öðrum hætti en ganga til samninga við fyrirtæki um fjárstuðning með slíkum skrípaleik. Aðstöðumunurinn Það styttist óðum í vertíð knatt- spymumanna hér á landi og reynd- ar er hún hafin í Reykjavík þar sem höfuðborgarliðin leika Reykjavík- urmót á gervigrasveUi sínum í Laugardal. Annars staöar er ástandið erfiðara. Sem dæmi má taka Akureyri sem á tvö liö í 1. deUd. Þar æfa leikmenn enn innan- húss aUt nema langhlaup, enda enginn vöUur til sem hægt er að æfa á á vorin. Fyrirbæri, sem nefn- ist Sana-vöUur og Akureyringar kaUa gjaman Wembley sín á miUi, er að vísu tU staðar en hann er venjulega eitt druUusvað fram undir sumar og svo er einnig nú. TU að fá einhveija leiki verða noröanUðin að halda suður á ReykjavíkursvEeðið tU æfingaleikja með öUum þeim kostnaði sem þvi fylgir. Er þó ferðakostnaður, þegar komið er fram í íslandsmót, orðinn nógu mikiU. En hvað er til ráða? Aðstaða er ekki fyrir hendi heima og engin breyting fyrirsjáanleg nema byggður verði gervigrasvöU- ur. Það er hins vegar svo fjárfrekt fyrirtæki í ekki stærra bæjarfélagi að menn sjá ekki aö af því veröi á næstu árum. Á meðan eykst getu- munurinn á milh þessara Uða og hinna sem búa við þá aðstöðu að geta leikið knattspymu utanhúss aUt árið. Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.