Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1989, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989. 21 Vísnaþáttur Skáld á aldahvörfum TheodóraThoroddsen, ekkja Skúla Thoroddsen sýslumanns og þjóð- málaskörungs-, var sjálf engin meðal- manneskja. Skáld var hún og mikil frásagnarkona og kunni að lifa langa ævi án þess að láta sér leiðast. Eina af góðum vinkonum hennar dreymdi hana þegar Theodóra var horfm af þessum heimi. Síðan er þessi draum- vísa: Yfir um álinn bátinn bar, blikaði sól um fold og mar. Ég ýtti um hlein og eygði þar ástina og lífið hvar sem var. Ekkert segi ég frekar um þessa vísu. Ég hef oft áður minnst Theod- óru í pistlum mínum, met hana mik- ils, eina og heyra má. Hafði af henni nokkur persónuleg kynni. Hér kem ég svo með stöku úr ritsafni hennar, læt menn um að dæma, hvort hún yrkir betur eða verr í draumum ann- arra eða eigin vöku: Til Arnar Arnar- sonar: Ekki drakk ég áfengt vín, ekki skein mér sólin, en Stjáni blái barst til mín og bjargaði mér um jóhn. Kvæðiö um Stjána er eftir Öm Amarson og kom fyrst á prent í Eim- reiðinni 1935. Theodóra og Magnús Stefánsson, sem var hið rétta nafn Amar, tilheyrðu sömu kynslóð. Fæð- ingar- og dánarár þeirra vom: Henn- ar 1863-1954, hans 1884-1942. Hennar ævi varð svona miklu lengri og varð hka um margt viðburðaríkari og hans um flest ólík. En margt áttu þau sameiginlegt. Bæði unnu þau skáld- skap og fógmm listum og vom rót- tæk í skoðunum. Þessar þrjár vísur orti hann til Theodóru: Nú er sumar um sæ og lönd, sól er á hverjum ljóra. Rétti ég þér hrjúfa hönd. Heill þér, Theodóra. Þú ert söngvið sumarbarn, sólmánuði borin. Stundum yfir hrím og hjam hafa legið sporin. Sumarrómi sólskinslag söngstu í hríðarbylnum. Fram á lífsins lokadag lumar þú á ylnum. Upphaf Stjána bláa Hann var alinn upp við slark, útlegur, skútuhark. Kjörin settu á manninn mark, meitluðu svip og stældu kjark. Sextíu ára svaðilfor setur mark á brá og vör, ýrir hæmm skegg og skör, skapið herðir, eggjar svör. Þegar vínið vermdi sál, vom ei svörin myrk né hál, ekkert tæpitungumál talað yfir fyhtri skál. Þá var stundum hlegið hátt, hnútum kastað, leikið grátt, hnefar látnir semja sátt, sýnt, hver átti í kögglmn mátt. Kæmi Stjáni í krappan dans, kostir birtust fuhhugans. Betri þóttu handtök hans heldur en nokkúrs annars manns. Norðanfjúkið, frosti remmt, fáum hefur betur skemmt, sýldi hárið, salti stemmt, sævi þvegið, stormi kemmt. Sunnanrok og austanátt eldu við hann silfur grátt. Þá var Stjána dillað dátt, dansaði skeið um hafið blátt. Sló af lagi sérhvem sjó, sat við stýri, kvað og hló, upp í hleypti, undan sló, eftir gaf og strengdi kló. Hann var alinn upp við sjó, ungan dreymdi um skip og sjó, stundaði alla ævi sjó, aldurhniginn fórst í sjó. Kvæðið er í tveimur hlutum og þetta er sá fyrri. Framhaldið er átta sexlínu erindi og lýsir þeim móttök- um sem skáldið telur að Stjáni hafi fengið, er hann lenti báti sínum á himnaströnd. Þar stóð Drottinn sjálf- ur og ávarpaði hann: Stýra kannt þú, sonur kær. Hörð er lundin, hraust er mundin, hjartað gott, sem undir slær. Hér er ekki rúm fyrir mikið úr þeim hluta kvæðisins, en við bætum þó þessu við: Heill til stranda, Stjáni blái, stíg á land og kom tíl mín, hér er nóg að stríða og starfa. Stundaðu sjó og drekktu vín,... Þetta er frjálslyndisleg guðfræði. Um Stjána bláa er þáttur eftir séra Jón Thorarensen í Rauðskinnu, 3. bindi 1971. Stjáni hét fullu nafni Kristján Sveinsson og kynntist séra Jón honum á æskuheimili sínu, Kot- vogi á Suðumesjum. Jón lýsir honrnn sem glettnum, bamgóðum manni, nokkuð vínhneigðum, og þá mun honum hafa verið laus höndin, en frægustum sem afburða sjómanni og stjómanda, þegar hættur bar að höndum. Kynni munu hafa verið milli Kristjáns og skáldsins, sem eflaust hefur farið frjálslega með efni sitt. Mig minnir að ég hafi áður sagt frá æviferli Magnúsar og ætla ekki að endurtaka neitt af því. Hann var síð- ustu ár sín búsettur í Hafnarfriði og var um skeið forstöðumaður bóka- safnsins þar. En sökum heilsubilunar varð hann að láta af störfum. Á stríðs- árunum heimsótti ég Magnús og birti þá viðtal við hann. Hann bjó í litlu þakherbergi einsamall, því hann hafði aldrei verið fjölskyldumaður. Innanstokksmunir vora fáir. Hann var yfirlætislaus maður og hygg ég að þetta hafi verið í fyrsta og síöasta sinn sem viðtal var birt við hann. Hann sagði mér þá nokkuð af högum sínum, einkum frá uppeldisárum sín- um á Langanesströnd, en snemma missti hann foður sinn og móðir hans giftist aftur. Jón úr Vör, Fannborg 7, Kópavogi. Þeir voru vígalegir, síðustu dorgararnir á isnum í Hvammsvík í Kjós fyrir nokkrum dögum, rétt áður en isinn fór að gefa sig. Veiðin hjá þeim varfín. DV-mynd G.Bender Veiðieyrað Betri veiði spáð í Norðurá og Þverá í Borgarfirði Sigurður Már Einarsson, fiski- fræðingur og deildarstjóri Veiði- málastofnunar í Borgamesi, flutti stórfróðlegt erindi hjá Stangaveiðifé- lagi Reykjavíkur um síðustu helgi. Ræddi Sigurður mn áhrif flökku- fisks, netaveiði og veiðihorfur í borgfirskum veiðiám á sumri kom- anda. Kom þar fram að Norðurá og Þverá munu bæta töluverðu af laxi við sig frá fyrra sumri. Þóttu veiði- mönnum það góð tíðindi og þá sérs- taklega hvað varðar Norðurá. Nýtt veiðisvæði hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur Stangaveiðifélag Reykjavíkur læt- ur ekki sitt eftir liggja við að útvega félagsmönnum sínum ný veiðisvæði. Á þessu ári hafa bæst við Laxá í Leir- ársveit, Flekkudalsá og núna það nýjasta, Langá fyrir löndum Litla- fjalls og Grenja. Fróðir menn segja að þetta sé feikna skemmtilegt veiði- svæði og vel þess virði að renna þama. Veiðileyfi kosta líklega frá 3000 kr. til 13.000 kr. Flottfélagsblað Stangaveiðifélag Keflavíkur kallar ekki allt ömmu sína í veiðinni og hefur gert marga laglega hluti. Fyrir nokkra kom út félagsblað og kennir þar ýmissa grasa. A síðasta ári varð félagið 30 ára og blaðið því hið veg- legasta í alla staði. Margar skemmti- legar greinar era í því. Nefna má greinamar Um veiðisvæði félagsins í 30 ár, Mál að vakna eftir Sigurð Pálsson, Ást við fyrstu kynni eftir Óskar Bjarnasson og í blaðinu er nyög góð veiðisaga eftir Sigurð Páls- Það hefur verið heldur kuldalegt i sjóbirtingsveiðinni en veiðimenn láta sig hafa það og á myndinni er Benedikt Ólafsson með einn úr Rangánum fyrir skömmu. DV-mynd Jón Auglýsing frá Orlofssjóði VR ORLOFSHUS VR Dvalarleyfi Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshúsum VR sumarið 1989. Umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum þurfa að berast skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð í síðasta lagi 21. apríl 1989. Orlofshús eru á eftirtöldum stöðum: \ að Ölfusborgum að Húsafelli í Borgarfirði að Svignaskarði í Borgarfirði að lllugastöðum í Fnjóskadal í Vatnsfirði, Barðaströnd að Einarsstöðum, Suður-Múlasýslu íbúðir á Akureyri að Flúðum Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis. Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsum á tíma- bilinu 28. maí til 17. september sitja fyrir dvalarleyfum. Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 19. maí n k. fellur úthlutun úrgildi. Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 6. maí n k. kl. 14 og hafa umsækj- endur rétt til að vera viðstaddir. Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu VR í síðasta lagi föstudaginn 21. apríl nk. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar 8. hæð. Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.