Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 29
.e88í nítn, .8s auoAgmiÁw
MÁNUDAGUR 26. JÚNf 1989.
8S
29
Iþróttir
17,5 punda boltalax á land:
Mikið fjör við
Leirvogsá
opnunardaginn
- annar stærsti laxinn sem veiðist í sumar
„Þaö var gaman aö þessu. Ég veiddi
laxinn í Helguhylnum og fiskurinn
tók maðk,“ sagöi Sigurður Þórodds-
son við Leirvogsá í gærdag en þá
hafði Sigurður nokkru áður landað
17,5 punda laxi, þeim fyrsta úr ánni
í sumar og á öðrum stað var 10 punda
laxi landað. „Ég var í tíu mínútur
með laxinn og við sáum annan væn-
an lax í hylnurn," sagði Sigurður.
Sigurður var við veiðar í Fossinum,
rétt fyrir neðan þjóðveg, og veiðifé-
lagi hans, Rögnvaldur Sigurðsson,
renndi.
Á hinni stönginni voru Bjarni Vil-
hjálmsson og Hallgrímur Einarsson.
Þeir fengu þrjá laxa, tvo 9 punda og
einn 10 punda. Þeim til aðstoðar var
Lúðvík Th. Halldórsson sem þekkir
Leirvogsá einkar vel.
Þrátt fyrir að þetta þyki nokkuð
snemmt í Leirvogsá eru laxar komn-
ir í nokkra veiðistaði eins og Birgis-
hyl, Helguhyl, Efri-Skrauta og Ketil-
hyl.
„Þetta er góð byrjun og mjög gott
útht með Leirvogsána í sumar,“
sagði Lúðvík Th. Halldórsson á bökk-
um árinnar í gærdag.
Elliðaárnar
„Á land eru komnir 70 laxar og Jón
Jakobsson veiddi þann stærsta, 14
punda, á maðk í Skáfossum," sagði
Skúli Kristinsson veiðivörður í gær-
dag. „Það er eitthvað af laxi að ganga
í ána,“ sagði Skúli ennfremur.
„Þetta var ótrúlegt og laxinn var í
hópum, torfum á Breiðunni en veiði-
menn fengu lítið,“ sagði veiðiáhuga-
maður við ána á laugardaginn en þá
kom stórganga í hana.
Laxá í Dölum
„Fyrsta hollið veiddi 20 laxa og sá
stærsti var 18 pund. Næsta holl fékk
6 laxa og það eru því komnir 26 lax-
ar,“ sagði Gunnar Bjömsson, kokkur
í veiðihúsinu við Laxá í Dölum, í
gærkvöldi. „Það er rok og kalt eins
og er en fiskurinn er kominn um alla
á. Þetta er þokkalegt miðað við að-
stæður," sagði kokkurinn og hélt
áfram að elda kvöldmatinn.
Norðurá
„Ég vona að þetta sé að koma því
fyrir nokkrum mínútum sáust laxar
stökkva á Munaöarnessvæðinu í
Noröurá og þeir voru nokkir," sagði
Friðrik D. Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
í gærkvöldi. „8 laxar hafa komið á
land á Munaðamesinu síðustu
klukkutíma á svæðinu. Úr Norðurá
eru komnir um 100 laxar og úthtið
er gott,“ sagði Friðrik ennfremur.
Andakílsá og Korpa
í Andakflsá í Borgarfirði eru fyrstu
• Sigurður Þóroddsson með 17,5
punda laxinn nokkrum mfnútum eftir
baráttuna við hann. Er þetta feikna
fallegur lax.
DV-mynd G.Bender
laxamir komnir á land og vom 6 og
4 pund, veiddust þeir fyrsta dag
veiðitímans. í Korpu hafa veiðst 8
laxar og nokkir urriðar. Frekar em
laxamir smáir 4, 5 og 6 pund.
G.Bender
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KIAFPASSTÍG
KMS sjampó
og næríng.
Tímapantanír
i sima
13010
KJARVALSSTAÐIR
SAFNVÖRÐUR
Laus er til umsóknar staða safnvarðar við listasöfn
Reykjavíkurborgar. Upplýsingar veitir forstöðumaður
Listasafna Reykjavíkurborgar í síma 26131. Umsókn,
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf,
sendist Kjarvalsstöðum v/Flókagötu, 105 Reykjavík,
á eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til
5. júlí 1989.
AUGLÝSING UM ÚTBOÐ
Hafnarstjórn Siglufjarðar óskar eftir tilboðum í raf-
lögn og lýsingu á Bæjarbryggjuna, Siglufirði.
Verkið felur í sér:
A. Byggja undirstöður fyrir 2 Ijósamöstur og leggja.
46 m ídráttarrör í skurð.
Magn: steypa 25 m3, járn 865 kg.
B. Smíða töflu, tengja og ganga frá raflögn.
Heimilt er að bjóða í annan hvorn verkhlutann
eða báða.
Verkhluta A skal lokið 19. ágúst en verkhluta B
2. september 1989.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunni Siglu-
firði og hjá Hafnamálastofnun ríkisins, Seljavegi 32,
Reykjavík, frá og með þriðjudegi 27. júní 1989 gegn
3.000,- kr. gjaldi.
Tilboðum skal skila til bæjarskrifstofunnar, Gránu-
götu 24, Siglufirði, fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 5.
júlí 1989.
• Lúðvik Th. Halldórsson glímir vlð 9 punda hrygnu i Leirvogsá í gærdag
og veiðistaðurinn er Efri-Skrauti.
DV-mynd G.Bender
Kópavogsvöllur
2. deild
Breiðablik - Stjarnan
Garðabæ
í kvöld kl.20:00
BYKO
AUK/SlA k10d11-151