Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 6
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ1989. Fréttir Sandkom Nánasta um- hverfið mikil< vægast Nafn: Sigríður Anna Þórðardóttir Aldur: 43 ára Staða: Formaður Landssam- bands sjálfstseðiskvcnna „Stjórmnái snerta allar hliðar mannlífsins, ekki bara efnahags- mál. Stjómmálaumræða verður rajög ófijó þegar öll önnur svið vantar í hana, menningu, menötamál og Qölskyldumál, svo dæmi séu tekin," segir Sigríður Anna Þórðardóttir, nýkjörinn formaöur Landssambands sjálf- stæðiskvenna. „Ég vil sjá þetta breytast og hafa áhrif í þá átt, sjá fjölbreytnina og sköpunarkraft- inn meiri“ Sigríöur Anna hóf fyrst bein afskipti af stjómmálum 1978 þeg- ar leitað var til hennar með að taka fyrsta sæti á lista sjálfetæö- ismanna í GrundarfirðL Síðan hefur hún verið virk í sveitar- stjómarmálum og oddviti tvisvar sinnum. Hún var varaformaður Landssambands sjálfstæðis- kvenna og situr í miðsýóm Sjálf- stæöisflokksins. Við síöustu al- þingiskosningar skipaöi hún 4. sæti á lista flokksins í Vestur- landskjördæmi. Hún segir sveit- arstjómarmálin mjög víðfeðraan málaflokk og spennandi. „f sveitarstjómum hefur maður áhrif á sitt nánasta umhverfi og þá málaflokka sem næst manni standa. Grundarfjöröur er ungt sveitarfélag og af nógu að taka við uppbyggingu og þróunar- starf.“ Unglingar skemmtilegir Sigríöur Anna lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1966, tók sér hié frá námi í fknm ár og lauk síðar prófi í íslensku, sagnfræði og fom- grisku frá Háskóla íslands. Siö- ustu árin hefúr hún kennt ungl- ingum í grunnskólanum í Grund- arfirði íslensku. „Ég er mikill íslenskuunnandi og er heppin að geta sameinaö starf mitt og áhugamál. Ég hef alltaf verið mikill lestrarhestur og sakna þess svolitíð að geta ekki sinnt því betur. Starfið er ofl er- fitt og krefjandi en þrátt fyrir allt em unglingar mjög skemmtileg- ir. Það er virkilega gaman að vinna með unglingum og fylgjast meö þeim, hjá þeim er deiglan.“ Fjölskylda og félagsmál Sigríður Anna er gift séra Jóni Þorsteinssyni, sóknarpresti í Grundarfirði, og eiga þau þijár dætur; Jófriði Önnu, 21 árs, Þor- gerði Sólveigu, 1$ ára, og Margr- éti Amheiði, 10 ára Jófriður Anna er nemandi í Háskóla fs- lands en yngri dætumar era í grannskóla á Grundarfirði. „Fjölskyldan sameinast í margs konar útivera hér í nágrenninu. Prestestarfinu fylgir umsjón með eyju hér rétt fyrir utan og við höfttm gaman af bátsferðum þangað. Elnxúg höfum við ferðast töluvert erlendis og bjuggum í eitt ár í Bandaríkjunum. Þegar maður stundar bæðl fulla vinnu og kreflandi félagsstarf notar maður allar fristundir meö flöl- 8kyldunni.“ -JJ Fulltrúar framkvæmdastjórnar alþjóðasamtaka miðjuflokka á blaöamannafundi á Hótel Sögu i gær. David Steel er lengst til vinstri. DV-mynd HV David Steele, formaður öjálslyndra í Bretlandi, um Evrópubandalagið: Sé ekki hag ykkar af aðild að bandalaginu - meðan þið getið spilað án þess „Islendingar era í hópi nokkurra smærri þjóöa sem njóta nú þegar sérstakra ívilnana varöandi sam- skipti við Evrópubandalagið. Ég fæ ekki séð hvaða hagsmuni þið ættuð að hafa af því að ganga í bandalagið. Þið getið notið hins besta úr báðum herbúðum núna, ef svo má að orði komast, það er notið sérstakra við- skiptakjara án þess að þurfa að leggja ykkar af mörkum tíl þróunar banda- lagsins," sagði David Steele, formað- ur frjálslynda flokksins í Bretlandi, í viðtali við DV. Steel var staddur hér á landi til að sækja fund framkvæmdanefndar al- þjóðasamtaka miðjuflokka um helg- ina. „Þetta er hins vegar ekki mál sem ég flalla um,“ sagði Steele ennfrem- tir, „því það eruð þið íslendingar og ykkar stjómmálamenn sem taka þessar ákvarðanir. Ég sé hins vegar ákveöna ókosti fyrir ykkur sem era fólgnir í því hversu langt þið erað frá þeim miðstöðvum þar sem Evrópu- bandaiaginu verður stjómað í fram- tíðinni. Mér þætti það skiljanlegt ef þiö vilduð hafa þetta fría spil eins lengi og ykkur er mögulegt." Hveraig telur Steele að Evrópu- bandalegið muni þróast á komandi árum? „Það er ómögulegt að segja í dag. Þetta gæti orðið eins konar efnahags- málaklúbbur. Um leið gæti það þró- ast upp í Sameinuð ríki Evrópu. Evr- ópubúar eru ekki á eitt sáttir um þessi mál. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum ekki aö setja þróun banda- lagsins neinar hömlur." Hvert veröur hlutverk Breta innan Sameinaðra ríkja Evrópu? „Á hvem veg sem þróun Evrópu- baiidalagsins verður vona ég að Bret- land taki sér í auknum mæM leið- togahlutverk innan þess. Það er kominn tími til þess að við rekum af okkur það orðspor að við séum of fylgispakir viö Bandaríkin og tökum að nýju meira afgerandi þátt í mál- efnum Evrópu. Hvort það verður fer náttúrlega mikið eftir því hver afstaða bresku stjómarinnar er á hverjum tíma. Margareth Thatcher forsætisráð- herra hefur sýnt af sér of mikinn ósveigjanleika í afstöðu til þess að þessi breyting geti átt sér stað. Við sjáum til nú á næstu dögum hvort tapið í kosningunum til Evrópu- þingsins og önnur áfoM hafa mýkt hana eitthvað." Hver telur Steele að staða stjórnar- innar sé í Bretlandi núna? „Þessar kosningar eru auðvitað áfaM fyrir Thatcher og vegna þeirra er hún óvinsæl núna. Hvort það stendur nógu lengi til þess að koma niður á henni í almennum kosning- um í Bretlandi er ómögulegt að segja í dag.“ Hver er staða frjálslynda flokksins nú? „Hún er svipuð og verið hefur. Við misstum mikið yfir til græningja í kosningunum til Evrópuþingsins. Það sem stendur okkur fyrir þrifum í Bretlandi er hins vegar fyrst og fremst kosningalöggjöfin þar. Meöan henni verður ekki breytt sé ég ekki að hlutfölMn breytist verulega." -HV Fálr alþýðubandalagsmenn mætiu í mótmælin: Þeir lofuðu engu - segir Páll Stefánsson herstöðvarandstæðingur „Það er engan veginn hægt að segja að alþýðubandalagsmenn hafi svik- ist eitthvað undan merkjum. Al- þýðubandalagið er stjómmálaflokk- ur og við eigum ekki þá frekar en þeir eiga okkur. Þeir höfðu engu lof- að okkur og þegar þeir aflýsa sumar- ferð sinni hlýtur það að teljast aMar- ið þeirra einkamál,“ sagði PáM Stef- ánsson herstöðvarandstæðingur í viðtah við DV. Margir herstöðvarandstæðingar vora heldur óhressir með félaga sína úr Alþýðubandalaginu um helgina. Alþýðubandalagið aflýsti fyrirhug- aðri sumarferð sinni um helgina og hvatti þá sem ætlað höfðu í ferðina til að ganga í hð með herstöðvarand- stæðingum í aðgerðum þeirra tíl að mótmæla heræfingunum á Suður- nesjum. Mjög fáir alþýðubandalagsmenn mættu hins vegar til leiks gegn her- mönnunum. „Það getur meir en verið að ein- hverjir þeirra hafi verið með okkur þama,“ sagði PáM Stefánsson enn- fremur en þama vom að jafnaði sjö- tíu og fimm manns í aðgerðum. Að auki fórum við um svæöið í smærri hópum kvöld og nætur. Við emm mjög ánægð meö árang- urinn af þessum aðgerðum. Það er augljóst að lögreglan reynir ekki aö framfylgja þessum herlögum frá 1943 sem vamarmáladeild vísaði til í aug- lýsingu sinni.“ Samskipti herstöðvarandstæðinga og lögreglu vom öll á vinsamlegri nótum nú um helgina, meira aö segja svo að þegar ein úr forystusveij mót- mælafólksins varð of sein í grillveisl- una, sem það hélt á staðnum, kom lögreglubíU henni á réttan stað hið snarasta. -HV Fjaðraskúfar og fiskiklær I Þjóðminjasafni íslands stendur nú yfir sýningin Fjaðraskúfar og fiskiklær en í henni er flaliað um sögu og menningu indíána og inúíta. Sýning þessi var sett saman fyrir grænlensku heimastjómina í tilefni af tíu ára heimastjóm Grænlend- inga. Hingað til lands kom hópur indiána og inúíta, sem flestir nefiia í daglegu taM eskimóa, til þess að fylgja sýning- imni úr hiaði og kynna menningu sína. Indíánar og inúítar hafa átt við það sameiginlega vandamál að stríða að umhverfi þeirra hefúr ekki gert sér flósa auölegð og flölbreytileika menningar þeirra. Eitt af markmiö- um sýningarinnar er aö vinna gegn þeirri fáfrasði. -HV Frá sýnlngu hópslns sem fylgdl sýn- ingunni úr hlaðl hér ó landi. DV-mynd GVA Blönduós: 30 teknir fyrir hraðakstur Lögreglan á Blönduósi stóð í ströngu á fóstudag þegar aUs 30 ökumenn vom teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi hennar. AUa jafna em milU 50 og 60 tekn- ir um hveija helgi. Sá ökuþór, sem hraðast fór, mældist á 134 km hraða en algengasti hraðinn var um 120 km. Helstu skýringar ökumanna á hraðanum em þær að bæði vegir og bílar séu góðir. Flestir þeir sem teknir era fyrir hraðakstur em ferðamenn og að sögn lögreglunnar skila sektar- greiðslumar sér nokkuð . vel. Margir vilja gera upp á staðnum en ekki er enn komin aðstaða til þess. Lögreglan á Blönduósi er með tvo radara við mæUngar. -gb mótmæli Skcmmtiicg- astafréttaíö- ustuvikuvar aðtnargramati vaipsinsaf mótmælum „heimavarnar- iiðsins“á Keflavtkurflug- rcynðu að troða Birnu Þórðardóttur inn í varðskúr. Bima hljóöaði hástöf- um að hún færi ekki inn í þennan hennar sungu á meðan: „GoHome". Frekar voru þetta máttlaus tilþrif heimavamarliðsins ennægðu samt sem áður til að koma óttaglampa í aup lögreglumanna og lögreglu- sfjórans á Keflavíkurflugveili sem vafðist tunga um tönn þegar hann var spurður að því hvers vegna Bima ein væri handtekin en ekki félagar hennar. „Þaö er ekki hægt að taka alla í einu,“ stundi liann þó upp en það hrökk upp úr einum ónefndum sjónvarpshorfanda að sennilega væri hefðilangaötilað „takaá“ þessari landsþekktu mótmælakonu. Enginn fékk hins vegar spark i pungínn eins oghémaumárið. Dýrir laxar Þeiraemhafe eMáaöstunda laxveiðarhérá landihafayflr- leitt rkki kortiið hlaöniraflaúi’ veiðiferiium sínutnaðimd- anfómu. Ár _________________ hafaveriö geysilega vatnsmiklar um alit land og erfltt að flnna laxhm og fá hann til að taka. í sumum ánum kom ekki kvikmdi á land marga fyrstu dagana þótt menn, sem greitt höfðu tugi þús- unda fyrir veiðileyfi hvem dag, gcngju hart fram. í einni Borgarfjarö- aránni fékkst loks lax eftír nokkurra daga barnihg og þegarreiknings- fróðir raenn höföu sest niður og reiknaö fengu þeir þá útkomu aö þessi lax heföi kostað miUjónir króna. Þaövarsú upphæð sem veiðimenn við viökomandi á höfðu greitt í veiði- leytl þar til þessi fyrsti fiskur úr ánni komáland. Knncinu sinniei’hafin undirskril'ta- sófnunáHiM víktilþessað knýjaáum opnunáfengis- útsöluíbæn- um. Efsuund- __________________irskriftasöfnun ber tilaítlaðan árangur mun veröa kosið um það í bænum á næsta ári hvort Húsvíkingargeti keypt sitt brennivín og sinn bjór heima eða veröi að sækja þennan vaming til Akureyrar áfram. Síðastþegar Hús- víkingar greiddu um þetta atkvæði munaði ekki neraa nokkrum atkvæð- um „neimönnum" í vii og verður spennandi að sjá hvað gerist næst. Það er s vo ekki að efa að eins og venjulega eiga Húsvíkingar eftir að deila hart um þetta mál næstu miss- eri. Þaðerutil margar skemmtilegar sögurumþamt landsfræga ökumann,Ólaf Ketilsson. Þessi erekkinýaf nálinnien samtsemáöur. Ólafur var að aka frá LaugarvaM til Reykjavikur og voru farþegar hans aöeins tveir, ungur maður og kona sem fóru að láta vel hvort að öðra í aftasta sæti rútunnar þegar Möa fór á ferðina. Ólafur mun hafa fylgst með í speglinum en gerði engar athuga- semdir við það sem fram fór í aftur- 8ætinu. Þegar svo til borgarinnar afi fargjaldið fyrir þau tvö. „Þtð borg- ið ekki neítt fyrir þessa ferö, þið kom- uö ríðandi í bæinn,‘ ‘ svaraöi aá gamii þáalvarlegurásvip. Umsjón GyHi KrisUnsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.