Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 22
22 MÁ^UD^GUR 26. JTJNÍ ,1989. Iþróttir Frétta- stúfar Líneker stóðst prófið Gary Lineker, enski landsliðsmiðhetjinn, stóðst læknisskoðun á föstudaginn og þar með var endanlega frá því gengið að Tottenham Hotspur keypti hann frá Barcelona fýrir eina og hálfa milljón punda. Við það tækifærl lýsti hann því yfír að hann hefði haft sam- band viö Tottenham að fyrra bragöi og fyrst og fremst vegna þess að Terry Venables væri þar við stjómvölinn. Lineker hefur gengið frá íjögurra ára samningi við Lundúnafélagið. Þá hefur Tottenham einnig gengið frá kaupunum á Nayim frá Barcelona en hann var í láni hjá enska félaginu seinni part siðasta keppnistímabils. ítölsk liö sektuð ítölsku UBPA-meist- aramir Napoh hafa verið sektaöir um hálfa hóröu mihjón íslenskra króna vegna óláta á fyrri úrshtaleik UBFA-keppn- innar gegn Stuttgart í vor. Áhorfendur skutu upp öugeld- um og ollu því að leikurinn gat ekki hafist á tilsettum tíma. Sampdoria ffá ítahu var jafn- framt sektað um ríflega eina milljón króna. Stuöningsmenn hðsins héldu flugeldasýningu og köstuðu ýmsu lauslegu inn á völlinn þegar það lék gegn Barcelona í úrshtiun Evrópu- keppni bikarhafa en sá leikur fór fram í Bem, höfuöborg Sviss. Reynt viö heimsmet Kúbanska heimsmet- hafanum í hástökki karla, Javier So- tomayor, mistókst að bæta heimsmet sitt á öfiugu frjálsiþróttamóti í París á föstu- daginn. Hann reyndi þrívegis viö 2,44 metra en felldi í öll skiptin. Sotomayor sigraði eftir sem áöur af öryggjt, stökk 2,38 metra, sem er besti heimsár- angunnn í ár. Carl Lewis og félagar úr ffjálsíþróttasveit Santa Monica í Bandaríkjunum voru nálægt heimsmeti í 4x200 metra boð- hlaupi karla á sama móti. Þeir hlupu vegaiengdina á einni mínútu, 20,33 sekúndum og voru aðeins 7/100 úr sekúndu frá metinu sem landar þeirra eiga og er oröið ehefu ára gam- alt. Johnstone veröur aö fara eftir reglum Mo Johnston, leik- maður með Nantes í Frakklandi, hefur veriö seldur til síns gamla félags, Glasgow Celtic. Johnston vildi aö eigin sögn spila áfram meö Nantes í Frakklandi þar sem hann er í fjárhagskröggum og fær meiri peninga fyrir að spUa í Frakk- landi. Félögin tvö höfðu híns vegar komist aö samkomulagi um framtíð leikmannsins og FIFA, alþjóöa knattspymu- sambandið, hefur endanlega skorið úr um að leikmaðurinn verði að vera kominn tíl Celtic fyrir fyrsta júlí nk. og eftir þann tíma megi hann ekki spila fyrir franska hðiö. Svisslendlngar unnu Brasilíumenn Svisslendingar sigr- uðu Brasihumenn, 1-0, i vináttulands- leik á dögunum. Hinn tyrkneskættaði Kubilay Turkyilmaz skoraði sigurmark Svisslendinga úr vítaspymu í 8Íöari hálfleUí. 25 þúsund áhorfendur sáu leik liðanna í Basel. „Agalega dapurt að fá ekki þrjú stig“ - KA fór illa með færin og gerði jafntefli við Víking, 3-3 • Antony Karl Gregory lék mjög vel með KA gegn Víkingi í gærkvöldi og skoraði tvö mörk með skalla. Kristmn Hreinsson, DV, Akureyrr „Þaö var agalega dapurt að fá ekki þrjú stig. Við vissum hver styrkur þeirra var en náðum samt ekki að stöðva þá. Og það að vera komnir í 3-2 og missa það niður í jafntefh var hræðUega svekkjandi," sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KA-manna, við DV, ansi dapur í bragði eftir að hans menn höfðu gert jafntefli, 3-3, við Víkinga í gærkvöldi. Þetta var fyrsti leikur ársins á aðal- leikvanginum á Akureyri og voru aðstæður ekki upp á það besta, kait og strekkingsvindur. Strax á annarri mínútu dró til tíð- inda. Þá óð Atli Einarsson upp völl- inn og skaut föstu skoti á mark KA. Haukur Bragason varði en hélt ekki boltanum sem barst til Goran Micic sem skoraði auðveldlega af markteig, 0-1. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálf- leik, þrátt fyrir mörg færi, sem flest voru KA-manna, en Valsmennimir fyrrverandi, Antony Karl Gregory og Jón Grétar Jónsson, vom þar í aðalhlutverkum. Þegar tíu mínútur vom Uðnar af síöari hálfleik jöfnuðu KA-menn. Antony Karl skallaði í markið af markteig eftir góða sendingu Orm- arrs Örlygssonar, 1-1. Víkingar kom- ust aftur yfir strax á sömu mínútu, þeir fóru beint í sókn og eftir fyrir- gjöf og þvögu í vítateigrium potaði AtU Einarsson boltanum í markið af stuttu færi, 1-2. KA jafnaði á ný á 75. mínútu. Gauti Laxdal tók hornspymu og Antony Karl stökk manna hæst og skallaði aftur í Víkingsmarkið af markteig, 2-2. Þremur mínútum síðar tók KA loks forystuna. Antony var þá enn á ferö og skaut í stöng, boltinn barst út úr vítateignum og til Gauta Laxdal sem skoraði með viðstööulausu skoti í bláhornið niðri, 3-2. Ekki vom heimamenn lengi í para- dís því að aðeins liðu þijár mínútur í viðbót þar til Víkingar höfðu jafn- að. Boltinn barst til Bjöms Bjartmarz sem var einn á markteig KA og skor- aði auðveldlega, 3-3. Þrátt fyrir þunga sókn KA undir lok leiksins tókst Uðinu ekki að knýja fram sigur og jafntefh var staðreynd. KA-menn teljast hafa verið sterkari aðihnn í leiknum, þeir áttu mun fleiri færi en Víkingar en vom ótrúlega mislagðir fætur uppi við markiö. Sterkustu menn liðsins vom Þor- valdur Örlygsson og Antony Karl, báðir sívinnandi og Antony var sérs- taklega sterkur í skallaboltunum. Hjá Víkingi stóö Guðmundur Hreiðarsson markvörður upp úr og varði oft á tíðum mjög vel. Félagar hans voru annars flestir daprir og hðið var heppið að fara heim með eitt stig. Dómari: Friðgeir Hallgrímsson.'úN’ Maður leiksins: Antony Karl Greg- ory, KA. Arnar fór á kostum í fyrsta leik með ÍA - skoraði og lagði upp tvö mörk þegar Skagamenn unnu 1-3 sigur í Keflavík Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Sextán ára nýliði, Amar Gunn- laugsson, annar tvíburanna efnilegu frá Akranesi, sló eftirminnilega í gegn í sínum fyrsta 1. deildar leik í gærkvöldi. Þegar flautað var tfl leik- hlés í Keflavík hafði hann skorað eitt mark og átt drjúgan þátt í tveim- ur öðrum og með því lagt gmnninn að ömggum sigri Skagamanna. Lokatölur urðu 1-3 eftir að heima- mönnum haföi tekist að komast á blað í síðari hálfleiknum. Strax á 18. mínútu lét Amar aö sér kveða þegar hann átti gott skot í stöng Keflavíkurmarksins. Átta mín- útum síðar var hann aftur á ferðinni og var þá felldur í vítateig ÍBK. Dæmd var vítaspyma og úr henni skoraöi Guðbjöm Tryggvason ör- ugglega, 0-1. A 36. mínútu skoraði Amar síðan sjálfur eftir að Aðalsteinn Víglunds- son haföi stungið vamarmenn ÍBK af og sent fyrir markiö, 0-2. Þremur mínútum fyrir leikhlé lék Amar stórt hlutverk í skemmtilegri sókn Skagamanna sem lauk með því að Aöalsteinn skoraði af stuttu færi, 0-3. Strax á fyrstu mínútu síðari hálf- leiks átti Óh Þór Magnússon gott skot á mark Skagamanna sem Ólafur Gottskálksson varði mjög vel í hom. Aöalsteinn var nálægt því að skora fjórða mark ÍA þegar hann átti skot • Arnar Gunnlaugsson. í stöng, boltinn hrökk þá út til Am- ars en vamarmenn ÍBK björguðu frá honum á marklínu. Þegar fimmtán mínútur vom tii leiksloka náðu heimamenn loks að skora. Garðar Jónasson stakk sér inn fyrir vöm ÍA og gaf góða sendingu fyrir markið og Kjartan Einarsson skoraði með skoti úr vítateignum, 1-3. Undir lokin vom Skagamenn ná- lægt því aö auka forskot sitt en þá átti Haraldur Ingólfsson hörkuskot rétt fram hjá marki Keflvíkinga eftir góða sókn. Keflvíkingar em í miklum vand- ræðum með sóknarleik sinn. Höfuð- verkur þeirra er sá að þá skortir sóknarmenn til að taka af skarið upp við mark mótheijanna. Ingvar Guð- mundsson lék vel í vörninni til að byija með en þurfti síðan að fara af velh vegna meiðsla og eftir það var enginn sem gat haldið í við hina fljótu sóknarmenn ÍA. Skárstir í hð- inu voru annars nýliðinn Garðar Jónasson, sem var duglegur og fljót- ur, og Jóhann Magnússon. Skagamenn em með mjög skemmtilegt hð sem án efa getur náö langt í toppbaráttunni. Þeir spiluðu reglulega vel og sköpuðu sér mörg færi með hraða sóknarmannanna. Bestir þeirra vom Amar, Guðbjörn í vöminni og Sigursteinn Gíslason á miðjunni. Karl Þórðarson sýndi gamla takta á hægri á vængnum og í heild léku allir vel. Hinn tvíburinn, Bjarki Gunnlaugsson, kom inn á um miðjan seinni hálfleik og stóð sig með prýöi. Hann og Amar em enn í 3. flokki og eiga greinilega framtíðina fyrir sér. Dómari: Ólafur Lárusson...&& Maður leiksins: Arnar Gunnlaugs- son, ÍA. Norska knattspyman: Markalaust hjá bræðrunum Brann, hð bræöranna Teits og Lillestrom er á toppnum eftir Ólafs Þórðarsona, gerði raarka- 0-1 sigur á útivelh gegn Víkingi laust jafntefli við Rosenborg I frá Stavanger. LiUestram er með norsku l. deildinni í gær. Brann 20 stig og næstu hð, Tromsö og hefurgengiðvelísíöustuleikjum Rosenborg, hafa síðan 17 stig. ogjaöiteiliðígærvoruviöunandi Brann er með 13 stig og ekki í úrslit fyrir Brann því Rosenborg tallhættu sem stendur. eríþriðjaefstasætinuil.delld. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.