Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1989, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 26. JÚNÍ 1989,
• ■ : ' ■ • , 1 ' 'i l H
| ÖLVUHAR|AKSTDR
BR
)BX,
SIO
ogátta
metra
stangir
á lager.
Háestætt verð.
• Úr „glass fiber".
• 6,7 og 8 metra á lager.
Allar festingar og fylgi-
hlutir innifalið í verðinu.
• Stenst ágang veðurs.
• Fislétt.
• Fellanleg.
• Gyllt plexiglerkúla.
• Snúningsfótur kemur í
veg fyrir að fáninn snúist
upp á stöngina.
• Auðveld í uppsetningu.
• Útvegum aðila til upp-
setningar.
Útlönd_________________________________________________________dv
Samevrópskur banki:
Helsta fyrirstaðan
frá Thatcher
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, við komuna til Madrid
ásamt öðrum fulltrúum Bretlands á EB-fundinum. Simamynd Reuter
Pétur L. Pétuisson, DV, Barcelona;
í dag, mánudag, hefst í Madrid leið-
togafundur ríkja Evrópubandalags-
ins. Markar fundurinn endalok for-
ystu Spánverja í bandalaginu en við
taka Frakkar. í gær komu aiiir leið-
togar ríkjanna til Madrid að Mitter-
rand undanskildum en hann er
væntanlegur í dag.
Búist er við heitum umræðum á
fundinum um stofnun samevrópsks
banka og sameiginlegan gjaldmiðil
Evrópubandalagsins. Helsta fyrir-
staðan kemur frá Margaret Thatc-
her, forsætisráðherra Breta, en róð-
ur hennar verður þó þungur því að
helftin af bresku ríkisstjórninni er
samþykk áætluninni.
Sem fyrr greinir markar fundurinn
endalok forystutíðar Spánveria í
bandalaginu en þeir tóku við stjóm-
artaumunum í byrjun þessa árs. Allt
frá fyrsta degi hefur forseti spænsku
ríkisstjómarinnar, Felipe González,
lagt ofurkapp á að áætluninni um
samevrópskan gjaldmiðil verði
hrundið af stokkunum. Yfir áætlun-
inni hefur hins vegar grúft hættan á
því aö Thatcher beiti neitunarvaldi.
Allt í sölurnar
Spænska stjómin hefur lagt allt í
sölumar til að áætlunin nái fram að
ganga. Henni hefur orðið nokkuð
ágengt því nú hafa leiötogar Þýska-
lands, Frakklands og ítahu lagt áætl-
uninni hð og fari svo að Bretar beiti
neitunarvaldi getur vel verið að
áætluninni verði fram haldið en án
þátttöku Breta.
Áætlunin, sem er byggð á skýrslu
Jacques Delors, hefur það að mark-
miði að sameina efnahagslíf ríkjanna
tólf í eitt og fari sameiningin fram í
þremur stigum. Henni á að vera að
fullu lokið fyrir júlímánuð 1990 en
þá verður aflétt öhum hömlum á
streymi fjármagns milh ríkja Evr-
ópubandalagsins. Samkvæmt
skýrslu Delors er þetta eina leiðin til
að keppa við japanska yenið og
Bandaríkjadollar.
Sem fyrr segir er Thatcher alfarið
á móti sameiningunni þótt hún geti
fallist á hluta hennar. Hún getur fall-
ist á fyrsta hluta áætlunarinnar sem
býður upp á aukna samvinnu á sviði
fjármála. Afgangurinn af áætluninni
mun binda hendur stjórnvalda í við-
komandi ríkjum um of og skerða
efnahagslegt sjálfræði þeirra, að
mati Thatcher. Þetta veldur einnig
því að Grikkir, Portúgahr og Hol-
lendingar hafa verið tvístígandi
gagnvart áætluninni.
Félagsmálapakki
Hvernig sem umræöumar fara um
sameiningu mynta Evrópubanda-
lagsins í eina er þó ljóst að annað
baráttumál spænsku stjómarinnar á
ekki eftir að fara greiðlega í gegn.
Um er að ræöa félagsmálapakka sem
hefur vakið andstöðu úr öllum átt-
um. Þannig hafa samtök iðnrekenda
í bandalaginu lýst pakkanum sem
íhlutunarstefnu meðan að verka-
lýðsfélög hafa lýst honum sem orða-
gjálfri. Talið er næsta fullvíst að
pakkinn eigi eftir að falla um sjálfan
sig því að þegar er ljós andstaða
Frakka, Lúxemborgara, Dana, og
Thatcher er að sjálfsögðu yfirlýstur
andstæðingur pakkans.
Þriðja mál á dagskrá fundarins er
svo sameiginleg yfirlýsing ríkjanna
tólf um málefni Austurlanda nær.
Spænska stjórnin hefur undirbúið
yfirlýsingu sem lýsir stuðningi við
hina nýju hófsemisstefnu Palestínu-
manna. Shamir, forsætisráðherra
ísraels, er bent á útgönguleið með
einhvers konar kosningafyrirkomu-
lagi á hernumdu svæðunum. Ekki
er tahð ólíklegt að leiðtogarnir hliðri
til í stundaskránni til að gefa ein-
hverja sameiginlega yfirlýsingu
vegna undanfarinna atburða í Kína.
Binda vonir sínar við Sovétríkin
Tyrknésk yfirvöld vonast til að aríu, hafa ýraist flúiö eða veriö inn hafi veriö einkar árangursrík- við Sovétríkin,“ sagði vestrænn
Miklrail Gorbatsjov Sovétforseti fluttir á brott frá landinu síðan í ur en ekki kom fram hvort málefhi sfjómarerindreki í samtah við Re-
rauni beita stjómvöld í Búlgaríu maímánuði. Eru þeir að flýja und- minnihlutahópa Tyrkja í landinu uter.
þrýsöngi til að hefja viðræður um an þrýstingi búlgaskra sfjómvalda hafi borið á góma. Þúsundir Tyrkja efndu til mót-
örlög minnihlutahópa Tyrkja sem umaðþeir samlagisigbúlgörskum „Svo virðist sem sovésk yfirvöld mæla í Istanbúl í gær og hvöttu til
flýja nú frá Búlgaríu til Tyrklands þjóðháttum. hafi hafið nokkurs konar sáttaum- styrjaldar á hendur Búlgörum.
í þúsundatali. Todor Zhivkov, leiðtogi Búlgaríu, leitanir en erfitt er að segja til um Ólíklegt er þó tahð að til átaka
Rúmlega 63 þúsund Tyrkir, flest- ræddi við Gorbatsjov á föstudag. í hversu langt þær munu ganga. komi.
ir múhameðstrúar, búsettir í Búlg- fréttum í Búlgaríu segir að fundur- Tyrkir virðast binda vonir sínar Rcuter
6 metra stöng kr. 22.600,-
7 metra stöng kr. 24.300,-
8 metra stöng kr. 26.400,-
Allir fylgihlutir eru fáan-
legir stakir.
Hin nýja bráðabirgðastjórn í Ungverjalandi. Talið frá vinstri: forsætisráðherrann Nemeth, þá Imre Pozsgay, Rezso Nyers og Karoly Grozs.
Simamynd Reuter
Uppstokkun í Ungverjalandi
ÍSLENSKl FÁNINN
í ÖLLUM STÆRÐUM
ÁLAGER
Grandagarði 2, 101 Rvík.
sími 28855.
Ráðamenn ungverska kommún-
istaflokksins hafa sett á laggirnar
nýja fjögurra manna bráðbirgða-
stjóm undir forsæti Reszo Nyers.
Segja fréttaskýrendur þessa ákvörð-
un bæði sigur fyrir umbótasinna í
Ungverjalandi sem og tilraun til aö
koma í veg fyrir klofning innan
flokksins áður en sérstakt þing kem-
ur saman í október. Þar með hafa
ráðamenn í Ungveijalandi vikið Ka-
roly Grosz, formanni kommúnista-
flokksins, til hhðar. Grosz heldur
enn tith sínum en völdin hafa færst
til innan flokksins.
Auk Nyers eiga Grosz, Imre Pozs-
gay og Miklos Nemeth forsætisráð-
herra sæti í stjóminni. Ákvarðanir
um stjórnina var tekin á tveggja daga
stormasömum fundi miðstjómar
flokksins um helgina. Miðstjómar-
meðlimir útnefndu Imre Pozsgay,
hinn vinsæla, róttæka umbótasinna,
til nýs embættis forseta landsins.
Ekki er ljóst hvert valdsvið hins nýja
forseta verður en líklegt er að það
verði kynnt snemma á næsta ári. Um
mitt næsta ár fara fram fjölflokka-
kosningar í Ungverjalandi, hinar
fyrstu síðan árið 1947.
Nyers mun vera í forsæti fyrir miö-
stjórnarfundum flokksins og nýrri
21 manns stjómarnefnd sem kemur
í stað framkvæmdanefndarinnar. Þá
mun hann verða í forsvari viðræðu-
nefndar stjómvalda sem ræðir við
stjómarandstæðinga áður en kosn-
ingarnar á næsta ári fara fram.
Grosz varð fómarlamb þeirrar
umbótastefnu sem hann setti á lagg-
imar þegar hann tók við af Janos
Kadar fyrir þrettán mánuðum, segja
fréttaskýrendur. Róttækir umbóta-
sinnar hafa gagnrýnt Grosz mjög fyr-
ir stefnu hans í efnahagsmálum.
Þessi gagnrýni hefur orsakað miklar
deilur innan flokksins og óttuðust
margir að hann myndi klofna.
Reuter