Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 27
MÁNUÐAGUR 30. OKTÓB'ER 1989.' íþróttir Rallvertíðlnm lauk um helgina: Stórsigur feðganna - Rúnar vann lokarallið og er yngsti sigurvegarinn frá upphafi • Rallfeðgarnir óku Lyngdalsheiði eins og ballettdansarar og náðu þar forskoti sem nægði þeim til sigurs. Rúnar Jónsson er þar með yngsti handhafi rallgulls i íslandssögunni, tvítugur að aldri. DV-mynd ás Hjóbarðahallarbræður tóku vel á móti stormsveitum sunnlenskra sér- leiða þegar þær náðu endamarki í síðasta ralli ársins, KUMHO-dekkja- ralli sem haldið var á laugardag. Keppnin sú var hreinlega sprengd í tætlur með dúndrandi flugeldasýn- ingu svo að jafnvel kontraskæruliðar hefðu leitað skjóls og Túttukastalinn (Hj ólbarðahölhn) hvarf í reyk og rop- vínslöður að lokinni furðusögustund með keppendum innan um kóresk KUMHO-dekk. Sannarlega glæsileg- ur endir á góðu keppnistímabili rall- ökumanna. Léttur sigur Ánægðastir allra voru auðvitað rall- feðgarnir, Rúnar og Jón, sem geta nú loks fagnað sigri að nýju eftir sætaskiptin fyrir ári og hnökrótt gengi í sumar. Þetta er fyrsti, rall- sigur Rúnars í ökumannssætinu og eftir sjö tilraunir, þar af tvö silfur- sæti, er hann yngstur íslendinga að ná þeim áfanga, tvítugur að aldri. Hann hóf þessa keppni með tilþrifum og reif sig lausan frá keppinautunum með frábærum akstri á fyrstu sérleið sem var um glerhála Lyngdalsheiði. Svefneklar Að frátaldri ofursúkkunni óku helstu keppinautarnir, nýkrýndir ís- landsmeistarar, Ólafur/Halldór á Talbot Lotus annars vegar og Birg- ir/Gestur á Toyota hins vegar, Lyng- dalsheiðina í svefni og vöknuðu upp við vondan draum á Laugarvatni u.þ.b. hálfri annari mínútu á eftir Escort Rúnars og Jóns. Örlaði jafnvel á grun um að Es- cortinn væri búinn aldrifi en það reyndust tálvonir og hið eina til varnar að traðka bensínfjöl harðar. Þeim Talbotbræðrum tókst að hrista af sér slenið um stund og söx- uðu aðeins á forskotið á Hjálparfoss- leið og Stangarleið í Þjórsárdal en á Heklubraut var gamanið á enda, stýrisarmur brotnaði og hafði það í för með sér stjórnarslit framhjól- anna með tilheyrandi hægri og vinstri öfgum. „Flikk Flakk“ Þeir Birgir og Gestur fóru sjaldgæft heljarstökk í endamarki Hjálparfoss- leiðar með aðstoð stökkpalls frá náttúrunnar hendi og ef þeir ná að æfa og fullkomna lendinguna aðeins betur er hklegt að Fimleikasamband íslands fái áhuga á atriðinu sem nýrri keppnisgrein með fijálsri að- ferð. Þeir sluppu líkamlega óskadd- aðir frá þessum ósköpum en eiga mikið verk fyrir höndum í bílskúrn- um. Súkkan söm við sig „Hæ htli“ ofursúkkan var sem ljós í myrkrinu og tillti sér ásamt blómum skrýddri áhöfn í silfursæti sem oftar og þeir Ævar og Ari geta verið ríg: montnir að vertíðarlokum og upp - skáru bikarmeistaratitil Bíigreina- sambandsins í flokki óbreyttra bíla. Þeir hafa lokið öllum sex keppnum ársins, fimm þeirra í verðlaunasæti og hafa náð að narta í hæla hestöflum hlaðinna sérsmíðisgripa. Og nú að leiðarlokum eru þeir í öðru sæti í íslandsmeistarakeppninni. Frábær árangur! Þeir kepptu eins og búðarbíl sæm- ir, án aðstoðarmanna og varahluta- lagers, héldu sig í öðru sætinu á auð- um sjó, náðu ekki að ógna því fyrsta enda töfðust þeir talsvert þegar þeir komu að Halldóri og Ólafi með Tal- botinn fastan á milli barða á Heklu- braut. Hjörleifsnautur Eftir áningu á HvolsveUi voru áður- taldar fjórar leiðir eknar til baka. Þá var botninn dottinn úr baráttunni um fyrsta og annað sætið en slagur- inn um þriðja sætið upphófst. Þórð- ur/Jón á Opel héldu því um tíma en gáfu síðan eftir með lekan vatskassa og svo fór að lokum, eftir akstursslag við Pál/Jóhann á Subaru Turbo, að smíðisgripur hagleiksmannsins Hör- leifs Hilmarssonar af gerðinni Toy- ota, ökumenn Guðmundur/Sigurður hrepptu þriðja sætið. Ákveðinn akst- ur þessarar áhafnar gleður augað, árangur þeirra er eftirtektarverður og von er á meiru. Grínið Spámenn hafa svo mælt að einungis tvær leikaðferðir séu nothæfar til rall-keppnisþátttöku, annars vegar fyrsta sætið í fúlustu alvöru eða á hinn bóginn skælbrosandi leikara- skapur. Þeir félagar Úlfar/Guðmund- ur, komnir á afaaldurinn, eru verð- ugir fulltrúar þess síðartalda. Sér- búnaður dollaragrínsins, að undan- skildum öryggisbúnaði, er gervigras á þakinu hvar þrjár golfkúlur kúrðu ahan laugardaginn sem tákn fyrir jafnmargar þátttökutilraunir. Þeir notuðu gaddakeðjur sem vopn á snjófölið, allt þar til þær átu upp hjólskálarnar og gusta tók um áhöfn- ina. Þrátt fyrir síðasta sætið í keppn- inni var ánægjan mikil með þann áfangasigur að ljúka keppni og ham- ingjan fullkomnuð þegar aðstoðar- ökumaðurinn kleif toppinn í enda- marki með golfkylfu í hrömmunum og sló með glæsilegum sveiflum kúl- umar þrjár af „gríninu" yfir höfuð áhorfenda út í myrkrið. Úrslit 1. Rúnar/Jón, Escort........1.22:08 2. Ævar/Ari, Suzuki.........1.25:53 3. Guðm./Sigurður, Toyota....l.28:17 4. Páh/Jóhann, Subaru....1.29:22 5. Þórður/Jón, Opel.........1.30:36 6. Kristján/Bjöm, Datsun.1.33:59 7. Ágúst/Siguijón.Toyota.1.33:59 8. Ómar/Hörður, Nissan...1.37:18 9. Helgi/Haraldur,Subaru.... 1.45:52 10. Úlfar/Guðmundur, Nova... 1.50:11 Það vom 22 áhafnir skráðar til keppninnar og aðeins 10 tókst að komast í endamark, sumum tókst jafnvel ekki að komast af stað því að keppnin hófst snemma um morgun og einhverjir sváfu yfir sig. „Gengur bara betur næst“. -ás/bg Reykjavík: Opið hús að byrja „Við eigum von á að veiðimenn fjölmenni á opiö hús hjá okkur í vetur og það fyrsta verður föstu- daginn 10. nóvember, helgina eftir aðalfundi Landssambands stanga- veiðifélaga í Munaðarnesi,“ sagði Stefán A. Magnússon, formaður skemmtinefndar Stangaveiöifélags Reykjavíkur, í gærdag. En vetrar- starf stangaveiðifélaganna er víða að komast i fullan gang og hafa hafa Ármenn og Stangaveiöifélag Hafnarijarðar þegar haldið opið hús núna. „Það verður boðið upp á ýmislegt þetta fyrsta kvöld. Árni Isaksson veiðimálastjóri mun ræða sumarið sem var að liða í veiðinni og koma meö einhverjar fræðilegar skýring- ar. Þorsteinn E. Jónsson mun ræða um Grænlandsferð sem hann og fleiri fóru í. Síðan munu veröa af- hent Footloose-verðlaunin fyrir 1988 og mun Jón Stefánsson hljóta þau,“ sagði Stefán formaður enn- fremur. -G.Bender w rv" ,,M'” iwiHHiwwi aw.^Hrviu..v.uy«, vy Böðvar Slgvaldason, lormaður Landssambands velðllélaga, munu mlk- ið koma við sögu á aðallundinum í Borgarfiröi nœstu helgi. Rafn mun hætta sem lormaður og Böðvar mun ræöa úthafsveiðamar. DV-mynd G.Bender Landssamband stangaveiðifélaga: Grettir kjör- inn næsti formaður? - aðalfundurinn um næstu helgi Stangaveiðimenn víða af landinu þessum fundi og þaö er formanns- munu fjölmenna upp í Borgarfjörð kjöriö. Rafn Hafnfjörö, sem setið um næstu helgi og halda aðalfund hefur sem formaður í fjögur ár, sinn. gefur ekki kost á sér. „Það hefur Ótrúleg spenna hggur í loftinu verið leitað logandi ljósi aö nýjum fy rir þennan fund, bæði í sambandi formanni og Grettir Gunnlaugsson, við það sem ræða á, úthafsveiöar félagi í Stangaveiðifélagi Reykja- og virðisaukaskattinn á veiðileyfi, víkur og formaður ámefndar ogkosninguformanns. Verðaþessi Svartár í Húnavatnssýslu, er lík- mál rædd og reynt að fá einhvem legur til verða næsti formaður LS, botn í þau. Finnst mörgum veiði- hundrað prósent öruggt,“ sagði manninum sem endanlega eigi aö heimildamiaður Ókkar í gær. ganga af stangaveiðimönnum Við sjáum hvað setur og hvað dauöum með því að setja þennan fundurinn kýs, þettaverður spenn- skatt á veiðileyfl sem ekki hafa andi fundur. þótt með því ódýrara í seinni tíð. -G.Bender En það verður fleira spennandi á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.