Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1989, Blaðsíða 29
i'\V , •• -í i
: :
,■ |H
■
«*>» - 1111
®|
~ " ■ ,'s. __ Wm
^ytgrT
'
r ' P
,
i - , - - : : ,
«11111
AW^f:
ÍfllNÍÍÍ:;::
.
iv' '' ’ ' '
Ipplllllll
_
MÁNUUAGUJi 30. OKTÓBER 3989.
Iþróttir
þremur snertingum, síðan tveimur
og loks einni. Númer eitt hjá hon-
um er að halda boltanum sem
lengst. Síðan leikum við á öðrum
helmingi vallarins og farið er í
sömu hlutina. Síðan er endað með
skotæfingum. Hann hamrar síðan
á sömu atriðunum allan tímann.“
Komst aftur inn í
liðið á mettíma
„De Mos tók mig strax fyrir eftir
meiðslin og gerði mér ljóst að hann
vildi að ég kæmi inn í liðið sem
fyrst sem og varð raunin á. Ég var
með sjúkraþjálfara á séræfingum
allan tímann og ég fann að De Mos
stóð 100% með mér. Þetta hjálpaði
mér geysilega mikið. Sjálfur var ég
ekki hrifinn'af því að byija þetta
snemma að æfa og var það nokkuð
sem ég hafði alls ekki búist við að
geta. Læknirinn, sem skar mig upp,
hefur sagt að þetta sé alveg ótrú-
legt. Hann var svolítið hræddur um
að ég byrjaöi of snemma. Svo fram-
arlega sem ég fyndi ekki fyrir
verkjum var ég ákveðinn í að gera
mitt besta. Og aðeins tveimur og
hálfum mánuði eftir uppskurðinn
var ég byrjaður að æfa af fullum
krafti."
Áfram hjá Anderlecht
„Það kemur vel til greina að ég
verði áfram hjá Anderlecht eftir
þetta keppnistímabil," segir Arnór
oghelduráfram: „Samningurminn
við félagið rennur út í vor. Það er
frábært að vinna með De Mos og
það er ekki síst þess vegna sem ég
vil jafnvel vera áfram. En auðvitað
fer þetta eftir ýmsu eins og til dæm-
is því hvað verður í boði að tímabil-
inu loknu. Ef eitthvað verulega
spennandi kemur upp er ég reiðu-
búinn til að skoða það. Ég er búinn
að vera 11 ár í Belgíu. Það er auðvit-
að geysilega gaman að leika með
Anderlecht þegar gengur svona vel
og það er markmið okkar að verða
meistarar í vetur. Síðan kemur
Evrópubikarinn þar á eftir. Við
erum búnir að vinna bikarkeppn-
ina tvö síðustu árin þannig að
minni áhersla verður lögð á þa
keppni."
Álitlegar aukagreiðslur
„Ef okkur tekst að slá Barcelona
út úr Evrópukeppni bikarhafa get
ég ekki séð hvaða lið getur haldið
okkur frá því að komast í úrslita-
leik keppninnar. Það er helst
Sampdoria frá Ítalíu og reikna ég
þá með að við höldum áfram að
leika eins og við höfum gert hingað
til á tímabilinu. Þetta er sterkasta
hð Anderlecht sem ég hef leikið
með. Það er mjög mikilvægt að
Anderlecht gangi vel í Evrópu-
keppninni ef ég á annað borð er að
• Aad de Mos, þjálfari Anderlecht, er hér til hægri. Hann er talinn einn
besti þjálfari i Evrópu í dag. Aad de Mos segir að Arnór sé gífurlega
mikiivægur í liði Anderlecht.
hugsa um að fara frá félaginu þar
sem næsta umferð er ekki fyrr en
í mars og apríl. Einmitt þá byija
Uðin að leita að leikmönnum. Évr-
ópubikarkeppnin er mikils metin á
þeim tíma. Eg segi ekki að ég hugsi
um þetta þegar ég hleyp inn á vöU-
inn því að þá kemst ekkert annað
að hjá mér en sigur. Ég hef aldrei
þolað að tapa. Ég er orðinn vanur
að sigra eftir að hafa verið afian
þennan tíma hjá toppliði eins og
Anderlecht. Ég tel að það verði stór
munur á að leika síðari leikinn
gegn Barcelona en við eigum að
geta haldið forskotinu, að minnsta
kosti eigum við að geta skorað hjá
þeim. Þá verða þeir að skora fjögur
mörk hjá okkur til að slá okkur út.
Ef þeir ná að skora fljótlega í leikn-
um verður gífurleg pressa á okkur.
Stjórn Anderlecht ákvað að greiða
leikmönnum aukalega fyrir að
komast áfram í keppninni. Hver
leikmaður fær um 750 þúsund ís-
lenskar krónur ef við komumst
áfram. Það er því líka til mikfis að
vinna peningalega séð.“
Misjafnir leikmenn
I liði Anderlecht
„Ég hef leikið fiórar stöður á velfin-
um það sem af er keppnistímabil-
inu. Verið í stöðu bakvarðar, sókn-
artengiliðs, úti á hægri kantinum
og svo varnartengiUðs, tekiö leik-
menn úr umferð. Að vissu leyti er
þetta erfitt en ég lít á það númer
eitt fyrir mig að leika sem mest og
vera í toppformi allt tímabiUð. Þeir
leikmenn, sem sett hafa mestan
svip á leik Anderlecht undanfarið,
finnast mér vera DeGryse og
Jankovic. Sá fyrrnefndi er geysi-
lega góður, Utifi og snaggaralegur,
og það er mjög gott að leika með
honum. Hann er alltaf á hreyfingu
og tilbúinn að fá boltann. Svo er
andstæðan, Júgóslavinn Jankovic,
eða meistari „slow motion“ eins og
hann er oft nefndur. Hann er geró-
Ukur leikmaður, stór og seinn, en
hreint ótrúlegur leikmaður. Hann
hefur yfir að ráða frábærum send-
ingum og góðu auga fyrir spili.
Svona mætti lengi telja hina mi-
sjöfnu leikmenn sem Íeika með liði
Ándrlecht og mynda þessa sterku
heild sem hefur gert það að verkum
að við föruin ósmeykir í hvaða leik
sem er og við ætlum okkur að slá
Barcelona út úr Evrópukeppn-
inni,“ sagði Arnór Guðjohnsen.
Laus staða
Staða löglærðs fulltrúa við embættið er laus til um-
sóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. nóv. nk.
Frekari upplýsingar veitir undirritaður.
Lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli,
27. október 1989
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 4 - SlMI 25500
Starfsmenn óskast í útideild
Við óskum eftir starfsmönnum í fullt starf og hluta-
starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun/starfs-
reynslu á sviði félags- og uppeldismála.
Útideildin sinnir leitar- og vettvangsstarfi meðal
unglinga í Reykjavík. Markmiðið með starfinu erfyrst
og fremst að hjálpa unglingum til að komast hjá erf-
iðleikum og aðstoða þá ef þeir lenda í þeim.
Nánari upplýsingar um störfin eru veittar í símum
20365 og 621611. Umsóknir sendist starfsmanna-
haldi Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, á eyðu-
blöðum, sem þar fást, fyrir 14. nóvember næstkom-
andi.
35 - 12,5X15
(Marshall)
/7
V/SA
Jeppadekk
Verð aðeins 12.900.
Staðgreitt 11.600.
Einnig allar algengustu stærðir af
fólksbflasnjódekkjum.
Mjög gott verð.
luémmrm m
SKEIFUNNI 5, SÍMAR 68-96-60 OG 68-75-17
ÞAKJÁRN
• Þessi mynd var tekin er Anderlecht mætti Barcelona I fyrri leik liðanna í Evrópukeppni bikarhafa i Belg-
iu. Anderlecht sigraði, 2-0, en síðari leikurinn fer fram á miðvikudaginn.
Þjónustuaðili:
BLIKKSMIÐJAN FUNI sími 91-78733
Stuttur afgreiðslufrestur
Gott verð
Söluaðili:
MÁLMIÐJAN hf.
sími 91-680640