Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 13
.OGfil flSHtí'IVÖyl .Tf, ftUOAfTflAOUAJ
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990.
13
Menning
Iifiðbýr
í listinni
í ljóöum er glímt við kjarna til-
verunnar og hveiju smáatriði gefin
dýpri merking en liggur í augum
uppi á yfirborðinu. í ljóðum gilda
önnur lögmál en í hlutveruleikan-
um. í þeim getur allt gerst með því
einu að segja það. Þar er ekkert
bundið af þeim náttúrulögmálum
sem setja jarðlífinu skorður. í ljóð-
um hafa ljóðin numið völd og ráða
sér sjálf líkt og í nýjustu bók Sig-
uröar Pálssonar, Ljóð námu völd.
Ótakmörkuð völd ljóðsins
Bókin skiptist í fimm hluta og
íjallar um allt milli himins jarðar
og sálu mannsins sem reikar einn
um veg í veröldinni. í upphafi er
unnið með þá möguleika sem felast
í valdi ljóðsins. Þar ráða orðin ein
og með því einu að tala er hægt að
reisa hús án veggja, glugga og dyra.
Inn í þetta opna hús skáldskapar-
ins er lesendum boðið. Þar hafa
einu konungar íslands lifað og
skapað sér völd sem hfa ennþá með
okkur þegar allt annað er horfið:
Horfnir eru bæir og horfnir vind-
barðir vegir Vegur sögu og ljóðs
samt ennþá opinn og frjáls.
Líkt er með skáldunum sem
skapa sér eilíf gildi í verkunum:
Borges „tindrar skært á stjörnu-
himni bókasafnsins" og Dylan
Thomas hefur losað sig úr fáfengi-
leg hins jarðneska (sem birtist í því
White Horse viskíi sem lagði hann
að velli) og býr nú á öðru tilveru-
stigi:
Þar beið hans hvítur hestur úr
ljósi. En völd ljóðsins eru víðtækari
og ná til annarra þátta, jafnvel inn
á svið stjórnmála því að „hjartan-
legur hlátur Havels" braust loks í
gegnum múrinn. Þrátt fyrir allt
reyndist: „Veikasta röddin sterk-
ust“. Víða kemur fram sú hugsun
að þegar upp er staðið séu lítil verð-
mæti oft fólgin í því sem á hug
okkar allan. Þetta er sýnt með því
að láta tímann líða í lííi manns og
lofa minningunum að vinsa úr það
sem upp úr stendur. í ljóðinu
Ávextir jarðarinnar vekur bók
André Gide (merkt Sigurði Páls-
syni Reykjavík Islande) endur-
minningu um vasarári sígauna-
barna á öllu nema þessari einu
bók. Eftir á hefur auður bókarinn-
ar auðgaö eigandann en aurarnir
sem börnin stálu skipta engu máli.
Sams konar útlegging á við Veit-
ingahúsið Van Gaalen. Gömul
minnisbók geymir stutta athuga-
semd: „Van Gaalen. Ath. muna...“
Enginn hirðir lengur um það sem
var svo mikilvægt að muna þegar
þetta var skrifaö en orðin kveikja
minningu um stemningu, fólk og
stað. Og það er minningin sem lifir.
Þessir minningafiársjóðir eru
persónuleg eign skáldsins en í
næsta ljóði er hugsuninni um eilíft
líf minninga sem sameinast í hug-
um manna um allan hinn kristna
heim varpað upp í annað veldi með
því að yrkja um Jólanótt. Sú nótt
er ekkert nema minningar og ritúal
sem snýst um heita nóttina í Betle-
hem, nóttina sem hefur ekkert
breyst síðan um árið: „Þegar við
gengum út lágu úlfaldarnir og jór-
truðu ennþá staðfastlega og voru
nákvæmlega eins á svipinn og áð-
ur. Löngu áður. Tvö þúsund árum
áður.“ Drepandi hversdagsstrit og
opinberun listarinnar.
Athafnir okkar frá degi til dags
verða hálfkjánalegar við hliðina á
víölendu ríki andans. í ljóðinu Full
time job er fólk með allt sitt í plast-
pokum og kallast það á við gamla
spurningu Tómasar um hvað sé í
pokanum. Fólkið er á ferð um
gangstéttirnar og iðjar ekki annað
Sigurður Pálsson.
Bókmenntir
Gísli Sigurösson
í lífinu en að umstafla aleigunni í
snjáðum plastpokum og reyna að
koma á einhvers konar hagræö-
ingu. Við streðum eitthvað mark-
laust, dag eftir dag, þó að það skipt-
i kannski engu máli og sé beinlínis
í andstöðu við alla skynsemi náttú-
runnar. Við gleymum lífmu og er-
um ekkert betri en ekkjan í sam-
nefndu ljóði, sem hengir alltaf ein-
beitt á snúrurnar þó að spáð sé
úrhelli.
Hvert okkar um sig verður að
axla þær byrðar sem tilveran legg-
ur á mannfólkið. Sumum reynist
sá farangur heldur þungur og
þannig fer fyrir manni í ljóðinu
Þungur farangur, sem' reikar um
Þingholtin þangað til hann ákveð-
ur loks að nýta frelsi sitt til að
leggja farangurinn frá sér í hinsta
sinn. Okkur er ekki vísað á annað
hlutskipti én aö halda áfram og
reyna með einhverjum hætti að
spinna Jafnharðan orðvefmn yfir
gildrur og grafir sem leynastj.veg-
inum“ líkt og ljóðmælandinn í
Víravirki. Galdur tilverunnar, list-
arinnar eða drottins getur þó opin,-
berast í listinni eins og hann gerir
stundum á örskammri töfrastund
í morgunsárið, þegar „lýsist hægt
og rólega miðhlutinn á mósaik-
mynd Gerðar Helgadóttur á Toll-
húsinu við Tryggvagötu.“ (úr
Morgunstund) Þannig erum viö
skilin eftir í von um að þrátt fyrir
dapurlegt hlutskipti okkar, þungar
byrðar jarðlífsins og brostnar vonir
sé hægt að komast í nokkurt sam-
band við almættið í gegnum glugga
listarinnar. Og þennan glugga opna
ljóð Sigurðar Pálssonar fyrir les-
endum sínum. Þau opna leið til að
líta upp úr snjáðum plastpokunum
og leita „einhvers skírra, einhvers
blárra;“ finna mátt náttúrunnar og
listarinnar 1 kringum okkur.
Sigurður Pálsson:
Ljóð námu völd
Forlagið 1990
TILKYNNING FRA
OSTA- OG SMJÖRSÖLUNNI sf.
í nýútkomnu jólablaði okkar,
Á JÓLARÓLI nr. 2,
átti sér stað misprentun í tveimur
uppskriftum.
Jólakaka í sérflokki:
Hér skal nota 1/2-1 tsk. af lyftidufti
en ekki 6 tsk.
Myntuábætir:
Hér eiga að vera
2 bollar af súkkulaðikexmylsnu
en ekki súkkulaðimylsnu.
Við biðjumst hér með velvirðingar
á þessum mistökum.
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
UUMFERÐAR
RÁO
Spennandi tískuskór a
ltðyriiðereÖfiir Bestseller
frá Euro skó.
. o 1 o . SÍNAl' 686062
AM WNSSKOUNN
Nemendasýning Nýja Dansskólans
Hótel íslandi sunnudaginn 18. nóv. kl. 20
Húsið opnað kl. 19
Eitt færasta danspar heimsins
SAMMY STOPPFORD
OG
BARBARA McCALL
sýnir suður-ameríska dansa
Þetta er sýning sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara.
W Ýl ÞANZHÓLM