Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990. - kafli úr nýrri bók, lífssögu Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi Þaö hálfa væri nóg, heitir ný bók sem væntanleg er á markaö innan skamms. Hún segir frá lífssögu Þór- arins Tyríingssonar, yfirlæknis á Vogi. Þaö var Guðrún Guðlaugsdótt- ir blaðamaöur sem skráöi. Þórarinn Tyrfingsson var um ára- bil einn af fremstu handknattleiks- mönnum íslendinga. Hann lék með iandsliöinu á miklum uppgangstím- um í handknattleik. Samfara þessu stundaði Þórarinn nám í læknis- fræöi, var kvæntur og átti börn. Brennivínið nagaði hins vegar þessa tilveru hans smám saman í sundur þar til hún var að mestu í rúst. Sem læknir á Hvammstanga játaði Þórarinn um síðir fyrir sjálf- um sér að hann væri alkóhólisti og ákvaö að fara í meðferð. Það var þá sem hann kynntist starfsemi SÁÁ og hefur verið viðloðandi hana síðan. í bókinni segir Þórarinn frá því hvernig misnotkun áfengis eyðilagði tilveru hans og þeirra sem í kring um hann voru. Hann náði hins vegar að sriúa vörn í sókn og starfar nú sem yfirlæknir á Vogi og er formaöur SÁÁ. Þórarinn lýsir baráttunni við áfengisbölið, vexti SÁÁ og hatrömm- um deilum í kring um starfsemina. Helgarblaðið hefur fengið leyfi til að birta útdrætti úr tveimur köflum bókarinnar. í fyrri kaílanum segir Þórarinn frá sumrinu eftir að hann tók stúdentspróf. Það var unnið og drukkið en Þórarinn segir að líf hans hafi verið einn leikaraskapur í þá daga... Reyndum við kon- urnar á Akureyri „Við strákárnir drukkum allar heigar. og svo fórum viö Jón Steinar (Gunnlaugsson) og Ólafur Tómasson noröur í land í vikuferð um mitt sum- arið, gagngert til þess að drekka. Viö fórum af staö með rútunni á mið- vikudegi og hófum þá skriftir í dag- bók sem til stóð að halda í þessari ferð. Ólafur Tómasson hélt dagbók- ina. Þaö var ekki allt gáfulegt sem í þá bók fór. Við tjölduðum á tjald- stæðinu á Akureyri snemma kvölds og fórum svo að drekka. Við vorum svo í Sjallanum á kvöldin og drukk- um og fífluðumst þess á milli. Undir- tónar sumarsins voru ýmis lög Bítl- anna, helst þó Hey Jude sem sló í gegn þetta sumar. Við þessi lög, sömdum viö klúra texta og reyndum svo við konurnar á Akureyri og varð bara allvel ágengt. Þó var Jón með forkunnarljót gieraugu í John Lenn- ons stíl ailt ferðalagið, nema rétt á meðan hann svaf. Við káluðum tóif séniverflöskum i þessari ferð fyrir utan það sem við drukkum á böllunum. Þegar við komum í bæinn var Jón Steinar bú- inn að fá nóg en ég hélt áfram og fór í Þórsmörk. Þar drakk ég allan tím- ann og svaf lítiö, lagði mig þó um klukkan níu á kvöldin og svaf fram yfir miðnætti, þá hófst drykkjan og skemmtunin á ný. Eftir tæplega hálfsmánaðar útivist fór ég í bæinn og byrjaði aö vinna aftur. Maður var ungur og hraustur og fljótur að jafna sig. Með okkur Jóni hafði unniö i járnavinnunni maður sem Magnús hét Jónsson og hafði verið mjög drykkfelldur. Við vorum alltaf sóttir á morgnana í vinnu. Svo var það morgun nokkurn, fljótlega eftir að við Jón komum úr norðurferðinni, aö Magnús kom kófdrukkinn til dyra þegar veriö var aö sækja hann í vinn- una. Hann var ófær til vinnu þann dag og kom ekki til vinnu meira það sem eftir var sumars, þannig voru hans drykkjusiöir. Við strákarnir söknuöum Magga svolítið, höfðum haft gaman af að spjalla viö hann. Þórarinn Tyrfingsson ásamt Hildi, yngstu dóttur sinni. Ungúr læknir á Hvammstanga. Jón Steinar Gunnlaugsson meö John Lennon gleraugun. Við fengum engar fréttir af Magga fyrr en morgun einn þegar liöin voru nær tvö ár. Þá fór ég síðari hluta þess dags til Jóns áteinars og sagði við hann: „Ég hitti Magga í dag.“ Jóni fannst þetta merkilegar fréttir og spurði hvað Maggi heföi sagt. „Ekki neitt,“ svaraði ég. „Hann var keyrður á vagni inn í krufningarsal þar sem ég var í rnorgun." Jón setti hljóðan. Seinna hefur hann stundum sagt að það, hvernig ég sagði honum fréttirnar frá afdrifum Magga, lýsi vel ákveðinni hlið á mér. Borguðum bílinn með jólaköku Allt mitt líf á þessum tíma var einn leikaraskapur og drykkja. Við félag- arnir tókum upp á alls konar hlutum í hita leiksins. Reyndum meira að segja að borga leigubíi með jólaköku hvað þá annað. Við áttum ekki fyrir leigubíl svo viö tókum jólaköku heima hjá einum okkar og reyndum að semja viö bílstjórann. Þeir samn- ingar gengu illa. Viö hlógum mikið að þessu. Allt mótaðist og blandaðist því sem maður lærði í handbolta- heiminum. Þar þótti mikið sport að skrökva að mönnum ef þaö var gert - á réttan hátt. Það þótti t.d. sniðugt að segja einum félaga sinna, sem var grannur og vel vaxinn maður, að hann væri að fitna alltof mikið. Við lögðumst margir á eitt með að telja honum trú um þetta og hættum ekki fyrr en hann var orðinn mjög ugg- andi um vaxtarlag sitt. Einu sinni sagði Villi vinur minn Sigurgeirs viö einn vinnufélaga sinn: „Þá verð ég alveg ær ef páskarnir lenda enn einu sinni á sunnudegi. Þetta er búið að vera svona undanfarin ár og þetta er alveg ómögulegt, maður fær ekk- ert frí út á páskana." Vinnufélaginn þaut í almanakið og fann út að pásk- ana bar upp á sunnudag. Kom svo aftur og sagði: „Aha, páskarnir lenda aftur á sunnudegi.“ Við hlógum mik- ið að þessu, þetta þótti gott grín. Líf- ið gekk út á slíkt grín. Einu sinni sögðum við einum félaganum í hand- boltanum að hann heíði ekki nógu fallega fætur. Við klifuðum á þessu hvenær sem tækifæri gafst. Við sögð- um honum að hann þyrfti endiiega að fara að spila í síðum. Það endaði með því að félaginn kom til min, áhyggjufullur, og spurði mig einslega hvort mér fyndist hann virkilega hafa svona ljóta fætur. Lífið endalaust grín Það þótti líka sniðugt að hnupla úr búðum. Villi Sigurgeirs var snill- ingur í því. Einu sinni voru þeir í Hólsbúð, hann og Geiri. Þeir stálu gosflöskum og hlupu burtu. Svo þeg- ar þeir fóru að taka upp ílöskurnar var Geiri með tóma flösku. Þetta var vinsæl saga hjá Villa. Formaður ÍR var þá Hákon Bjarna- son loftskeytamaður. Hann var alltaf að segja okkur brandara sem voru ekki allir skemmtilegir. Þá fórum viö að tala um Konnabrandara. Það voru brandarar sem ekki var hægt að hlægja að. Þá snerist leikur okkar í að búa til Konnabrandara. Svo hlóg- um við að því hvað þetta voru asna- legir brandarar. Lífið gekk út á enda- laust grín en maður hugsaði ekki neitt. Mér virðist' núna þegar ég lít til baka að ég hafi hreinlega ekki hugsað neitt sem veigur var í árum saman. Hvorki um það sem ég var að gera í náminu né heldur að ég væri giftur maður og orðinn faðir, eftir að það kom til. Sumarið 1967 var upphaf þessa gegndariausa skemmt- anatíma. En eftir því sem frá leið var erfiðara að ná upp stemmningu þess sumars og menn fóru að sýna ýmis einkenni um að þeir væru talsvert háðir áfengi." Læknir á Hvammstanga - í þessum kafla lýsir Þórarinn líf- inu á Hvammsíanga. Hann gerðist læknir þar árið 1976 og hætti í hand- boltanum. Þórarinn sagði þó ekki skilið við Bakkus strax. „Á Hvammstanga sá ég stundum fólk sem var mun drukknara en ég varö venjulega sjálfur. Stundum kom fyrir að ég var kallaður í hús til þess aö sprauta niður menn sem voru orðnir ærir af drykkju. Framan af sótti ég skemmtanir þarna og það voru oft skrautlegar samkomur. Ég kynntist mörgu ágætu fólki þarna fyrir norðan en smám saman fannst mér ég einangrast. Eftir því sem óregla mín varö meiri því meira reis veröld mín upp á rönd. Mér fannst ég vera samtíða vondu fólki sem væri að tala illa um mig. Auðvitað var talað um mig á bak. Þegar ég kom út á land átti ég mun erfiðara með að útvega mér áfengi. í bænum gat maður farið á barina og í ríkið en á Hvammstanga var ekkert ríki og erf- itt að ná í brennivín. Maður pantaöi á pósthúsinu en það mátti ekki ganga of langt. Það var slæmt afspurnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.