Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.1990, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1990. 41 pv________Heimurinn og ég Akranes Reykjavík ReykjavíkAkranes Akranes Reykjavík Reykjavík fyrr og nú DV-mynd Gunnar V. Andrésson Sjómenn eru svo frjálsir aö þeir eru rétt skör lægra settir en fugl- arnir. Ég man ekki sem stendur hvort ég sá þessa setningu í endurminn- ingabók Akabs skipstjóra eöa heyröi hana í ræöu á sjómannadag- inn. Alltumþað, mér kom hún i hug sem ég sá Akra- borgina sigla inn í Reykjavíkur- höfn og vissi sem var að hún myndi sigla stuttu síðar og koma aftur til baka eftir fáeina tíma og ég fór aö hugsa um þessar áætlunarferðir, milli lands og lands, og hvort skip- stjóranum þætti ekki frelsi sínu takmörk sett með svo reglubundn- um siglingum. „Nei, þaö er mjög gott að vera á Akraborginni maður, mjög gott,“ svarar Þorvaldur Guðmundsson, fimmtíu og eins árs, sjómaður og skipstjóri á Akraborginni, allar götur síðan nítján hundruð sjötíu og fjögur. „Þótthverdagur sé öðrum líkur þá er enginn dag- ur alveg eins og einhver annar,“ segir Þorvaldur. „Veörið sér fyrir því að maður hafi alltaf um nóg að hugsa. Og eftir að hafa verið öll þessi ár á sjónum þá er alveg sama hvar maður siglir." Samt, ersamtekki auðvelt að falla í freistni? hugsa ég og hef í huga strætóbílstjórann sem sagan segir að hafi sveigt af áætlun ellefu og ekið alla leið vest- ur á Ægisíðu af því hann hafði lof- að vinkonu sinni ellefubíói og var að verða of seinn. Svo ég segi; hérna Þorvaldur, langar þig aldrei að sveigja af leið Umsjón: Þorsteinn J. Vilhjálmsson og sigla eins langt og augað eygir, bara af því þér finnst þú eiga erindi eitthvert, segjum til Arizona, í stað þess að sigla alltaf Akranes Reykja- vík, Reykjavík Akranes, Akranes Reykjavík? „Nei, blessaóur vertu" segir hann sem hefur silgt alla leið til Eldlands, á suðurodda Suð- ur-Ameríku og norður undir Sval- baröa og líkar ekki illa að sigla eft- ir áætlun sjóleiðina Akranes Reykjavík og aftur til baka. Sjómenn eru svo frjálsir að þeir eru rétt skör lægra settir en fuglarnir. Svona allt að því. Svona allt að því. Þessar myndir eru teknar í norð- austur rétt fyrir vestan Smiðjustíg, milli Hverfisgötu og Laugavegar. Eldri myndin, sem er tekin á fyrri' helmingi sjöunda áratugarins, er skemmtileg heimild um nokkur timburhús sem þá voru í þann mund að týna tölunni. Húsin voru orðin hrörleg undir það síðasta eins og sjá má á myndinni en þau máttu muna sinn fífil fegri. Ungfrú Sigríður skriftarkennari Húsið lengst til vinstri á gömlu myndinni var Smiöjustígur 7 en það stóð á horninu norðanverðu viö Hverfisgötu og vestanverðu við Smiðjustíg. Á Smiðjustíg 7 bjó í áratugi Sigríð- ur Árnadóttir skriftarkennari. Sig- ríður var dóttir Árna Jónssonar, læknis á Vopnafirði, en hún ólst upp hjá afasystur sinni, Sigríði Jónsdótt- ur, og manni hennar, Jóni Þorkels- syni rektor. Sigríður lærði til kennslu við Stat- ens Lærerhöjskole í Kaupmanna- höfn en kenndi síðan við Verslunar- skólann og viö Kvennaskólann í Reykjavík í rúm fjörutíu ár, auk þess sem hún hafði smábarnakennslu heima hjá sér fram undir 1960. Hún bjó á neðri hæð hússins en leigði út herbergi á efri hæðinni. Sigríður lést á níræðisaldri árið 1965. / Not og ónot af brunahönum Á framhliö Smiðjustígs 7 var lengi einn af brunaboðum bæjarins. Brunaboðarnir voru hið mesta þarfaþing ef eldsvoða bar að hönd- um, einkum þar til símtæki urðu fullkomin almenningseign. Bruna- boðarnir voru rauðmálaðir, spor- öskjulagaðir járnkassar með lítilli glerrúðu og svörtum hnapp þar fyrir innan. Gallinn við brunahanana var hins vegar sá að glerrúðan og svarti takk- inn voru oft óyfirstíganleg freisting fyrir forhertustu hrekkjalóma bæj- arins sem þá sendu slökkviliðið í erindisleysur, út og suður. Stóra timburhúsið, vinstra megin við miðja myndina, var Smiðjustígur 5B, reist um síðustu aldamót af Pétri Péturssyni, lögreglumanni og bæjar- gjaldkera. Pétur bjó í húsinu til dauðadags árið 1909 en hafði hins vegar skrifstofu bæjarsjóðsins í litla gamla húsinu þar fyrir ofan. Það hús, Smiðjustigur 5, var því nokkurs konar vísir að ráðhúsi síns tíma. Hætt er við að Davíð borgarstjóra hefði ekki þótt þar hátt til lofts né vítt til veggja. Dr. Helgi Pjeturss Sonur Péturs og sá er síðan réði húsum að Smiðjustíg 5B til dauða- dags var dr. Helgi Pjeturss jarð- fræðingur en hann var um margt einn merkasti maöur sinnar tíðar. Dr. Helgi var afburða vísindamað- ur á sínu sviði en hann lagði, öörum - fremur, grunninn að hútíma skiln- ingi manna á jarðsogu íslands. Þá setti hann fram á sínum seinni árum vægast sagt frumlegar kenn- ingar um eðli drauma og framhalds- líf á öðrum hnöttum. Þessar kenn- ingar sínar kynnti dr. Helgi í Nýals- ritum sínum en hópur áhugamanna um kenningarnar stofnuðu síðan Samtök nýalssinna sem starfað hafa um árabil. Síðast en ekki síst var dr. Helgi mikill áhugamaður um íslenska tungu og einhver ritfærasti maður á móðurmálið. Smiðjustígur 6 Dr. Helgi þótti í ýmsu æði sérkenni- legur. Þegar Guðmunda Elíasdóttir söngkona flutti til Reykjavíkur árið 1932 bjó hún hjá móður sinni og syst- ur á Smiðjustíg 6, timburhúsinu sem er lengst til hægri á gömlu mynd- inni. Guðmunda getur þess í ævisögu sinni, Lífsjátningu, að dr. Helgi hafi haft þann sið að hlaupa við fót á hverjum morgni frá Smiöjustígnum og inn í sundlaugar og síðan aftur til baka að sundinu loknu. Slíkt háttar- lag hefur ekki þótt hæfa virtum vís- indamanni árið 1932 en nú þykir trimm af þessum toga meira en sjálf- sagður hlutur. Albert og Hjalti Geir Á Smiðjustíg 6 bjó m.a. Ingibjörg Guðmundsdóttir, ættuð af Álftanesi, en hjá henni ólst upp að nokkru leyti dóttursonur hennar, Albert Guð- mundsson, sendiherra og fyrrv. knattspyrnustórstirni, stórkaup- maður, borgarfulltrúi, alþingismað- ur og ráðherra svo eitthvað sé nú nefnt af því sem gefur vísbendingar um viðburðaríkan æviferil þessa vinsæla stjórnmálamanns. Aldavinur Alberts bjó hins vegar í næsta húsi þar fyrir neðan, stein- húsinu á horninu, sem er númer 26 Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson við Hverfisgötu. Sá er Hjalti Geir Kristjánsson, forstjóri og fyrrv. for- maður Verslunaráðs íslands. í upphafi var KRON með vefnaðar- vöruverslun í kjallara og á jarðhæð- steinhússins en síðan var SPRON þar í fjölda ára, auk þess sem Axel Cort- es, faðir Garðars Cortes óperusöngv- ara var þar með málverkainnrömm- un. Loks hefur Vinnufatabúðin verið til húsa á Hverfisgötu 26 frá því á seinni hluta sjöunda áratugarins. Faðir Hjalta Geirs, Kristján Sig- geirsson kaupmaður, lét byggja steinhúsiö árið 1939 og þar bjó hann síðan. Það er í frásögur færandi aö fyrstu teikningum af Hverfisgötu 26 var á sínum tíma hafnað af borgar- yfirvöldum á þeirri forsendu aö hús- ið þyrfti að bera nokkurt svipmót af Þjóðleikhúsinu enda kæmi það til með að standa við fyrirhugað torg Þjóðleikhússins fyrir sunnan Hverf- isgötu, Indriðatorg. Nú minnist hins vegar enginn lengur á Indriðatorg enda gert ráð fyrir íjögurra hæða bílageymsluhúsi á þessum slóðum. Þorvaldur Guðmundsson skipstjóri: „Það er sama hvar maður siglir." Takmörk sett með svo reglubundnum siglingum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.