Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1991, Qupperneq 6
ÚtLönd
Tlferstíflóði
a Indlandi
Flóð og aurskriður urðu sjötíu
og einum manni aö bana í norð-
urhluta Indlands í gær þegar
miklar rigmngar ollu því að ár
og fljót flæ^du yfir bakka sína.
Á meðal þeirra sem létust voru
tólf hermenn sem drukknuðu
þegar á flæddi yfir bakka sína og
sökkti búðum þeirra.
Lík þeirra fundust í Subansiri-
héraðinu þar sem ílóðbylgja varð
sautján manns að bana í síðustu
viku.
Allar samgöngur í norðurhluta
landsins hafa lagst niöur og er
þvi óttast að fólkiö þaðan nái ekki
að kjósa í kosningunum sem fram
eiga að fara í næstu viku.
Nokkrir stærstu stjórnmála-
flokkanna hafa krafist þess að
kosningunum verði frestað á
þeim stöðum sem hafa orðið hvað
verst úti en 22 af 25 fylkjum Ind-
lands munu taka þátt í kosning-
unum.
Ástralskirkarl-
mennfáalnæmi
ikynlífsferdum
Ástralskir karlmenn, sem fara
í auknum mæli í svokallaðar
kynliísferðir til Suöaustur-Asíu
þar sem þeir borga fyrir blíðu
kvenna, koma þaðan æ oftar með.
alnæmi.
Samkvæmt nýjustu tölum hafa
um 400 gagnkynhneigðir ein-
staklingar smitast af alnæmi í
Ástralíu en sú tala hefur farið ört
hækkandi undanfama 18 mán-
uði.
„Það er er staöreynd að tölu-
verður fjöldi ástralskra kari-
manna fer til Tælands, Filipps-
eyja eða annarra landa i Suðaust-
ur-Asíu eingöngu í þessum til-
gangi og því verða ferðaskrifstof-
urnar aö vara þá viö því sem bíð-
ur þeirra,“ er haft eftir íram-
kvæmdastjóra heilsugæslustöðv-
ar í Sydney.
„Við vitum um sjö tilfeili þar
sem það er alveg öruggt að menn-
irnir hafa smitast á þennan hátt
og í tveimur þeirra höfðu þeir
smitað rekkjufélaga hér í Ástral-
iu,“ sagði framkvæmdastjórinn.
Skóþjófurí
Þýskalandi
Lögreglan í borginni Kassel í
Þýskalandi er nú aö vinna að
mjög svo sérstöku máli sem varö-
ar skóþjóf.
Þjófurinn situr fyrirkonun sem
fara út aö ganga í spariskónum
sxnum, ræöst á þær og rænir af
þeim skónum. Hann hefur þegar
rænt skónum af tólf konum sem
flestar eru á aldrinum tuttugu til
fjörutíu ára.
Sumar þeirra fengu taugaáfall
en flestar voru þó fljótar að jafna
sig. Engin þeirra meiddist og eng-
ir peningar voru teknir.
Aðskilnaður
bætirhjóna-
bandið
Sarakvæmt kínverskum emb-
ættismönnum I Zhuhai eru þau
hjónabönd farsælust þar sem
hjónin búa langt i burtu hvort frá
öðru og hittast sjaldan.
Zhuhai stærir sig af lægstu
skilnaöarprósentunni en einung-
is 1,6% af 4.500 bæjarbúum hafa
fariö fram á skilnað undanfarin
12 ár.
Mikið er um að þeir giftist „út-
lendingum" frá Hong Kong eða
Macu og hitta þvi makann ein-
trngis um helgar.
Reuter
LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991.
Viðræður Kúrda við íraksforseta:
Lausn í sjónmáli
- segir fulltrúi Kúrda í viðræðunum
„Við höfum rutt öllum helstu
•hindrununum úr veginum þótt enn
hafi ekki náðst endanlegt samkomu-
lag,“ sagði Massoud Barzani, fulltrúi
Kúrda, eftir viðræður sínar við Sadd-
am Hussein íraksforseta í gær.
Barzani fór til Bagdad fyrir rúmri
viku til viðræðna við Saddam Huss-
ein í þeirri von aö hægt væri að finna
lausn á deilum Kúrda og íraka svo
hundruð þúsunda flóttamanna, sem
flúið hafa írak, geti snúið heim.
Kröfur Kúrda, sem nú eru um 20%
írösku þjóöarinnar, eru að fá meiri
sjálfstjórn og aö fá yfirráð yfir borg-
inni Kirkuk í norðurhluta landsins.
Einnig vilja þeir að tekið sé tillit til
þeirra í íjárlögum ríkisins í samræmi
við fjölda þeirra.
í staðinn segjast Kúrdar geta sætt
sig við að stjómvöld í írak hafi yfir-
ráð yfir olíunni í landinu og ráðstafi
tekjum af henni að vild.
Barzani sagðist þess fullviss eftir
viöræður sínar við Hussein að hann
muni fallast á einhvers konar örygg-
isgæslu friðarsveita Sameinuöu
þjóðaima, SÞ, á landsvæði Kúrda í
framtíðinni þótt írakar hafi áöur vís-
að slíkum tfllögum á bug.
Ríkisstjórnin í írak hefur ekki svo
mikið sem tjáð sig um viöræðurnar
að öðru leyti en því að hún segist líta
á nærveru friðarsveita SÞ sem ógnun
við sjálfstæöi íraka og íhlutun í inn-
anríkismál landsins.
Talið er að ósigur íraka í stríöinu
og hin misheppnaða tilraun til að
steypa Saddam Hussein af stóli að
stríðinu loknu hafi greitt leiðina fyr-
ir viðræðunum á milli íraka og
Kúrda.
Þegar hinir róttæku uppreisnar-
menn Kúrda fundu inn á að staða
íraksforseta var að veikjast sam-
þykktu þeir aö hefja friðarviðræður
byggðar á sjálfstjórnarsamkomulagi
sem þeir gerðu við íraksforseta árið
1970 og töldu að hefði verið svikið.
Hátt í ein milljón kúrdískra manna,
kvenna og barna flúðu til Tyrklands
og írans eftir hina misheppnuðu til-
raun til stjórnarbyltingar og aðstað-
an til aö taka við slíkum íjölda var
lítil sem engin.
Við landamæri íraks og Tyrklands,
þar sem allt að 190 þúsund flótta-
menn hafa leitað hælis, þjáist fólk
ýmist af næringarskorti, sjúkdómum
eða hvoru tveggja. í kringum 20 börn
hafa látið lífið í nýliðinni viku vegna
næringarskorts sem lamar mót-
stöðuafl þeirra gagnvart hinum
ýmsu sjúkdómum.
Reuter
. ....................
Kúrdisk börn í flóttamannabúðum við landamæri Tyrklands verja sig fyrir regninu með því að draga segldúk yfir
höfuðið.
Simamynd Reuter
Breti sakaður um njósnir og
dæmdur í líf stíðarf angelsi í írak
„Þetta eru hörmuleg tíðindi, við
munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að fá hann lausan,"
sagði Douglas Hogg, utanríkisráö-
herra Bretlands, um þann úrskurð
dómstóla í írak að dæma rétt rúm-
lega fimmtugan breskan verkfræð-
ing í lífstíðarfangelsi.fyrir njósnir.
Breski verkfræöingurinn, Douglas
Brand, var handtekinn í september
síðastliðnum þegar hann reyndi aö
flýja frá írak í stríöinu. Fyrir stríð
haföi hann unnið við að hreinsa
skipaskurði í írak.
„Brand var einn af þeim útlending-
um sem írakar notuðu í mannlega
varnargarða til að verjast árásum
bandamanna í Persaflóastríðinu,"
sagði utanríkisráöherrann og benti á
að þar af leiðandi væri það brot á
ályktunum öryggisráös Sameinuðu
þjóðanna, SÞ, að hafa hann enn í
haldi.
„Það er ýmislegt sem við getum
gert,“ bætti Hogg við, „við getum t.d.
hindraö íraka í að leysa út þá fjár-
muni sem þeir eiga í Bretlandi og
stuðlað að því aö efnahagsþvingun-
um SÞ verði ekki aflétt.
Enn sem komið er hafa stjórnvöld
í írak engar upplýsingar gefið um
hvar Brand er niðurkominn eða hver
staða hans er. Talsmaður breska ut-
anríkisráöuneytisins sagðist telja að
í tilfelli Brands þýddi lífstíðarfang-
elsi um það bil 20 ár en njósnarar
hafa líka verið dæmdir til dauða í
írak.
í mars í fyrra var íranskur blaða-
maður, sem vann fyrir breskt blað,
hengdur í írak eftir aö hafa verið
ákærður fyrir njósnir.
Reuter
Eg er forseti Júgóslavíu
- segir Stipe Mesic, fulltrúi Króata 1 forsætisráðinu
Skyndifundur forsætisráðs Júgó-
slavíu, sem efnt var til með það fyrir
augum að velja nýjan forseta, leystist
upp áður en til atkvæðagreiðslu kom
í gær.
Stipe Mesic, fulltrúi Króata, og full-
trúar Slóveníu og Makedóníu gengu
af fundinum í hasti og er landið því
formlega enn án forseta.
„Ég lít á mig sem forseta lands-
ins,“ sagði Mesic eftir fundinn, „ég
var kosinn í mínu lýðveldi og sam-
bandsþingið samþykkti kosning-
una.“
Króatar, ásamt þremur öðrum lýð-
veldum Júgóslavíu, sögðust fyrir
fundinn ætla aö lýsa Króatann Stipe
Mesic forseta landsins, jafnvel þó að
forsætisráðinu takist ekki að komast
að samkomulagi. Þeir hótuðu því
einnig að verði Mesic ekki kosinn
muni þeir hefjast handa við að sunda
sambandslýðveldinu.
Forsetaráðið er skipað átta fulltrú-
um frá hveriu lýðveldi Júgóslavíu
sem skiptast á aö gegna forsetaemb-
ættinu í eitt ár í senn. Mesic átti að
taka sjálíkrafa við embættinu síðast-
liðinn miðvikudag en þá tóku fulltrú-
ar Serbíu, Kosovo og Vojvodinu í
ráöinu sig til og neituðu að sam-
þykkja hann sem næsta forseta.
Serbar segja ástæðuna vera þá að
Mesic muni stuðla að því að Júgó-
slavía leysist upp í sjálfstæð ríki, en
Mesic yröi fyrsti forseti Júgóslavíu
sem ekki er kommúnisti.
Þetta er í annað sinn sem Serbar
efna til deilna um stjórnarfar og
stjórnarskrá landins á þessu ári, og
er því óttast að herinn þurfi að taka
völdin í sínar hendur en slíkt gæti
komið af stað borgarastyrjöld í
landinu.
Reuter
Prestur
sækir um
byssuleyfi
ítalskur prestur, faðir Agostino
Acireaie, hefur sótt um byssu-
leyfi til að verjast glæpamöxmum
eftir að brotist var inn i kirkjuna
hans nokkrum sinnum i röð.
„Bænimar duga ekki til, ég þarf
byssu," sagði presturinn sem
starfar í miðhluta Sikileyjar.
Acireale, sem er 47 ára gamall,
rekur dvalarheimili fyrir aldraöa
í sókninni og fullyrðir að til þess
að veijast þessum óaldalýð þurfi
hann byssu sér til halds og
trausts.
Það eru ekki allir jafnhrifnir af
hugmyndinni. Yflrmaður hans,
biskupinn af Enna, hefúr fengið
fjölmörg nafnlaus kvörtunarbréf
íkjölfarið. Reuter
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLÁN ÓVERÐTR.
Sparisjóðsbækurób. 4,5-5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp
6 mán. uppsögn 5,5-8 Sp
Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp
Sértékkareikningar 4,5-5 Lb
VlSITOLUB. REIKN.
6mán.uppsögn 2,5-3,0 Nema Ib
15-24 mán. 6-6,5 Ib.Sp
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisb. reikningar i SDR6.8-8 Lb
Gengisb. reikningar í ECU 8,1 -9 Lb
ÓBUNDNIR SÉRKJARAR.
Visitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir
óverðtr. kjör, hreyfðir 10,25-10,5 Nema Ib
BUNDNIR SKIPTIKJARAR.
Vísitölubundin kjor 5,25-5,75 Bb
Óverðtr. kjör 12,25-13 Bb
INNL. GJALDEYRISR.
Bandaríkjadalir 5-5,-25 Bb
Sterlingspund 11-11,1 SP
Vestur-þýsk mörk 7,75-7,8 Sp
Danskarkrónur 8-8,6 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN ÖVERÐTR.
Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLAN VERÐTR. 18,75-19 Bb
Skuldabréf 7.75-8.25 Lb
AFURÐALAN
Isl. krónur 14,75-15,5 Lb
SDR 9,75-9,9 Nema Sp
Bandarikjadalir 8-8,5 Lb
Sterlingspund 14-14,25 Lb
Vestur-þýsk mörk 10,75-10,8 Lb.lb.Bb
Húsnæðislán 4,5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. apríl 91 / 15,5
Verðtr. apríl 91 7.9
VISITÖLUR
Lánskjaravisitala mai 3070 stig
Lánskjaravisitalaapril 3035 stig
Byggingavisitala maí 581.1 stig
Byggingavisitala maí 181,6 stig
Framfærsluvísitala mai 152,8 stig
Húsaleiguvísitala 3% hækkun 1
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5.587
Einingabréf 2 3,011
Einingabréf 3 3,665
Skammtimabréf 1,868
Kjarabréf 5,488
Markbréf 2.932
Tekjubréf 2,104
Skyndibréf 1,627
Fjölþjóðabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2,676
Sjóðsbréf 2 1.873
Sjóðsbréf 3 1,856
Sjóðsbréf 4 1,612
Sjóðsbréf 5 1,119
Vaxtarbréf 1,8906
Valbréf 1,7663
Islandsbréf 1,162
Fjórðungsbréf 1,091
Þingbréf 1,160
öndvegisbréf 1,148
Sýslubréf 1.173
Reiöubréf 1,135
Heimsbréf 1,067
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
6,10 6,40
5,45 5,67
2,30 2,39
1,75 1,85
1,58 1,66
2,32 2,40
1,62 1,70
4,00 4,20
1.55 1,60
1,73 1,80
5,45 5,70
2.55 2,65
1,00 1,05
5,77 6,00
2,38 2,50
1,35 1,42
4,00 4,20
2,15 2,25
1,00 1,05
1,05 1,09
0,995 1.047
1,06 1,11
2,52 2.65
Sjóvá-Almennar hf.
Eimskip
Flugleiðir
Hampiöjan
Hlutabréfasjóðurinn
Eignfél. lönaöarb.
Eignfél. Alþýðub.
Skagstrendingur hf.
Islandsbanki hf.
Eignfél. Verslb.
Oliufélagið hf.
Grandi hf.
Tollvörugeymslan hf.
Skeljungur hf.
Armannsfell hf.
Fjárfestingarfélagið
Útgerðarfélag Ak.
Olis
Hlutabréfasjóður VlB
Almenni hlutabréfasj.
Auðlindarbréf
Islenski hlutabréfasj.
Síldarvinnslan, Neskaup.
(1) Við kaup á viöskiptavíxlum og viö-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðjs
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi/
kge.