Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Kröfur þings VMSÍ:
Aukinn
kaupmátt
Ályktun sú um kjaramál sem
samþykkt var á þingi Verka-
mannasambandsins i gær er stutt
en skorinorð.
Þar segir að Verkamannasam-
bandið sé tilbúið til að standa að
nýjum þjóöarsáttarsamningum
ef þeir fela í sér aukinn kaupmátt
launa og sérstakar bætur til
þeirra sem lægst hafa launin.
Verulega hækkun skattleysis-
marka, persónuafsláttur maka
nýtist 100 prósent. Tekin verði
upp fleiri skattþrep, skattlagning
fjármagnstekna og afnám skatta-
ívilnana vegna hlutabréfakaupa.
Tekjutrygging bama- og hús-
næðisbóta og átak verði gert í
byggingu félagslegs húsnæðis.
Einnig segir í ályktuninni að
engin þjóðarsátt verði um að
verkafólk eitt eigi að standa við
samninga, um auknar álögur á
láglaunafólk, um áframhaldandi
hávaxtastefnu, um niðurrif heil-
brigðiskerfisins, um mismunun á
rétti til náms og án öruggrar
kaupmáttartryggjngar. -S.dór
Ríkisútvarpið:
Fulltrúinn
er hættur
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Elfa Björk Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri Ríkisútvarps-
ins, var væntanleg til Akureyrar
í gærkvöldi og ætlar að freista
þess á fundi í dag að setja niður
deildur starfsfólks Útvarpsins á
Akureyri og Bjarna Sigtryggs-
sonar, deildarstjóra Útvarpsins
þar.
Eins og skýrt var frá í DV í gær
hefur Helga Haraldsdóttir, sem
starfaði í innheimtudeild fyrir-
tækisins á Akureyri, hætt störf-
um þar eð færa átti hana í auglýs-
ingadeild. Þá hefur Nína Þórðar-
dóttir, fulltrúi deildarstjórans,
einnig hætt störfum vegna ósam-
komulags við yflrmann sinn.
Takist ekki að setja niður þessar
deilur er talið llklegt að fleiri
starfsmenn hætti störfum hjá
Ríkisútvarpinu á Akureyri áður
en langt um líður.
Ný Þingvalla-
nefnd
Alþingi hefur kjörið eftirtalda i
Þingvallanefnd:
Björn Bjarnason og Jón Sig-
urðsson frá stjórnarliðum og
Steingrím Hermannsson frá
stjórnarandstöðu. -S.dór
Nýkjörinn formaður Verkamannasambands Islands:
Eg kvíði ekki fyrir
neinu nema að fljúga
- sagði Björn Grétar sem ævinlega ekur á milli Hafnar og Reykjavíkur
„Það eru alvarlegir tímar fram-
undan, þar sem kjarasamningar eru,
en ég kvíði engu. Ég kvíði aldrei fyr-
ir neinu nema að fara upp í flugvél
og fljúga milli staða,“ sagði Björn
Grétar Sveinsson frá Höfn í Horna-
firði, nýkjörinn formaður Verka-
mannasambandsins í samtali viö DV
í gær.
Þetta með flugið er orðið frægt því
aö Björn Grétar er í þeim stóra hópi
manna sem er haldinn flughræðslu.
Hann á að vonum oft erindi til
Reykjavíkur og ekur þá ævinlega á
milli og vegalengdin eru tæpir 500
kílómetrar.
„Jú, ég hef flogiö. Mig minnir að
það hafi verið árið 1981 en ég er ekk-
ert að þessu aö óþörfu. Ég hef ekki
oft farið til útlanda en í þau skipti
sem ég hef farið út hef ég að sjálf-
sögðu ferðast með ferjunni Nor-
rænu,“ sagði Björn.
Hann sagði að það væri stundum
erfitt að aka á milli Hafnar í Horna-
firði og Reykjavíkur. Hann sagðist
venjulega vera 5 klukkustundir á
leiöinni en hann hefði líka lent í því
að vera sólarhring á leiöinni.
„Ég hef lent í sandbyl sem hefur
sandblásið bílinn minn. Nú fyrir
skömmu lenti ég í vondu veðri í Ör-
æfunum og fékk þá yfir mig grjót-
hríð sem braut flestar rúðurnar í
bílnum. En maður er orðinn öllu
vanur og kippir sér ekki upp við
þetta."
Aðspurður hvernig þetta nýja starf
legðist í hann sagði Björn aö það
legðist vel í sig.
„Ég geri mér fulla grein fyrir þeirri
ábyrgð sem því fylgir. Ég hef átt
sæti í framkvæmdastjórn sambands-
ins og veit því vel hvað formennska
í því þýðir. Ég geri mér grein fyrir
því að þessu fylgir mikið álag. Ég
hafði lagt það allt vel niður fyrir mér
ásamt fjölskyldu minni. Þetta mun
ekki síst bitna á henni."
- Neyðistu ekki til að flytja til
Reykjavíkur?
„Nei, það held ég ekki. Ég vil alla
vega fyrst sjá hvort þetta er ekki
framkvæmanlegt svona. Starf for-
manns byggist auðvitað á góöri sam-
vinnu við skrifstofu Verkamanna-
sambandsins, nú og svo er til staöar
mikil og góð fjarskiptatækni. En ég
geri mér fulla grein fyrir því að ég
þarf aö dvelja oft og lengi hér syöra.“
Björn sagði aö nú færu sérkjara-
samningar á fulla ferð. Þar á eftir
kæmu samningar um kaup og kjör.
Þar verður krafan aukinn kaupmátt-
ur, sá kaupmáttur sem lofað var með
þj óðarsáttarsamningunum.
„Þar getur fleira komið til en bein
kauphækkun. Það er hægt að auka
kaupmáttinn eftir ýmsum leiöum og
það verður gert,“ sagöi Björn Grétar
Sveinsson.
-S.dór
Kapallinn
gekk upp
í gær skýrði DV frá þvi hvernig
framkvæmdastjórn Verkamanna-
sambandsins yrði skipuð. Það gekk
allt eftir eða eins og einn forystu-
manna sambandsins sagði: „Kapall-
inn gekk upp.“
Björn Grétar Sveinsson frá Höfn
var kjörinn formaður, hlaut yfir-
burðakosningu eða 112 atkvæði gegn
26 atkvæðum sem Jón Kjartansson
úr Vestmannaeyjum hlaut. Hann var
einn í framboöi gegn Birni Grétari.
Jón Karlsson frá Sauðárkróki var
kjörinn varaformaður, hlaut 95 at-
kvæði. Hrafnkell A. Jónsson frá
Eskifirði hlaut 43 atkvæði.
Karitas Pálsdóttir frá ísafirði var
sjálfkjörin i ritarastarfið.
Þrír voru í framboði til gjaldkera,
Halldór Björnsson úr Dagsbrún, El-
ínbjörg Magnúsdóttir frá Akranesi
og Sigurður T. Sigurðsson úr Hafnar-
firði. Halldór Björnsson var kjörinn
með 71 atkvæði. Elínbjörg hlaut 56
atkvæði en Sigurður T. 12.
Þegar þinginu lauk kom sambands-
stjórn VMSÍ saman til að kjósa tvo
meðstjórnendur, þá Guðmund J-
Guðmundsson og Hervar Guð-
mundsson.
Sjálfkjörnir í stjórnina eru for-
menn hinna þriggja deilda sam-
bandsins, þeir Sigurður Ingvarsson
frá Eskifirði, Björn Snæbjörnsson frá
Akureyri og Guðmundur Frímanns-
son. -S.dór
Ekki búist viö átökum á landsþingi hestamanna:
Björn Grétar Sveinsson, formaður Verkamannasambandsins, og Jón Karlsson, varaformaður þess, óska hvor
öðrum til hamingju með kjörið á þingi sambandsins í gær. Báðir náðu þeir glæsilegri kosningu. Björn Grétar
hlaut 112 atkvæði af 143 en Jón Karlsson 95. DV-mynd GVA
Lyfjapróf anir á næstu stórmótum?
Gunnar Bjarnason lætur sig ekki vanta á landsþingin frekar en fyrri daginn
og þá var Sigurður Ólafsson mættur. Hann var geröur að heiðursfélaga
L.H. ásamt Grimi Gíslasyni. DV-mynd E.J.
Ekki er búist viö miklum átökum
á 42. landsþingi Landssambands
hestamanna (L.H.), sem hófst í Fé-
lagsheimili Kópavogs í gær og lýkur
í dag. Hrossabúskapur á íslandi er
meginmál þingsins en einnig er fjall-
að um þau mál sem hæst ber í hesta-
mennskunni.
Kári Arnórsson, formaður L.H., og
Gunnar B. Gunnarsson fluttu
skýrslu stjórnar og tillögur um ýms-
ar úrbætur komu fram frá ýmsum
aðilum.
Á landsþingi á Húsavík 1990 var
samþykkt að tillaga um stofnun
fiórðungsráða skyldi send heim til
hestamannafélaganna til umfjöliun-
ar. Stjóm L.H. leggur til nú að ekki
veröi geröar breytingar á skipulagi
L.H og að þessi tiliaga verði felld.
Spjaldadómar á
kynbótasýningum
Fulltrúar hestamannafélagsins
Fáks komu fram með tillögu um að
teknir verði upp spjaldadómar viö
hæfileikasýningar kynbótahrossa.
Að hver dómari vinni sjálfstætt til
að losna við tortryggni um baktjalda-
makk.
Stórmótahaldsóskir misjafnar
Helstu umræðurnar verða senni-
lega um breytingar á stórmótahaldi
því tillögur þar aö lútandi koma frá
þremur aðilum og eru á skjön.
Stjórn L.H. kom fram með tillögu
um að breytingar á stórmótahaldi
verði felldar og að ekki veröi gerðar
breytingar á ytra fyrirkomulagi á
stórmótahaldi að sinni.
Fulltrúar hestamannafélagsins
Hrings komu fram með tillögu um
að stjórn L.H. velji landsmótsstað og
að landsmót verði haldin sem víöast
um landið.
Fulltrúar hestamannafélagsins
Funa komu fram með tillögu um að
landsmót verði tvískipt, annars veg-
ar kynbótahrossasýningar og dómar
og hins vegar gæðingakeppni og
dómar.
Lyfjaprófanir á stórmótum?
Fulltrúar hestamannafélagsins
Léttis fluttu tillögu um að settar
verði reglur um lyfjanotkun á hross-
um í keppni. Þetta próf nái jafnt yfir
gæðinga-, kappreiöa- og kynbóta-
hross og verði unnin eftir tilviljana-
kenndum útdrætti.
í dag verður framhald á nefndar-
störfum, rætt um afgreiðslu á nefnd-
arálitum og kosningar. Að lokum
verður veglegur þingslitafagnaður á
vegum hestamannafélagsins Gusts í
Kópavogi í íþróttahúsinu í Digra-
nesi. -EJ