Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Side 4
wer SHaöiTio as 3tj;)agjiaöijaj
LAUGARDÁGÚR 26. OKTÓBER 1991.
Fréttir
Fortíðarvandanefnd um Byggingarsjóð verkamanna:
Sjóðurinn stef nir
beint í gjaldþrot
- uppsafnaður vandi er 8,4 milljarðar
Uppsafnaður fortíðavandi Bygg-
ingarsjóðs verkamanna er metinn á
8,4 milljarða króna, aö teknu tilliti
til eiginfjár sjóðsins. Áætlaö eigið fé
sjóðsins um næstu áramót er um 7,4
milljarðar.
Vandinn stafar af þeim vaxtamun
sem er á útlánsvöxtum sjóðsins og
þeim vöxtum sem sjóðurinn þarf að
greiða af teknum lánum. Verði ekk-
ert að gert mun koma til gjaldþrots
sjóðsins. Þetta er niðurstaða fortíðar-
vandanefndar sem ríkisstjómin kom
á fót síðstliðið sumar. Skýrsla nefnd-
arinnar var kynnt á ríkisstjórnar-
fundi í gær.
Til að leysa uppsafnaðan vanda
Byggingarsjóðs verkamanna telur
nefndin tvennt koma til greina. Ann-
ars vegar að hækka útlánsvexti og
hins vegar að auka ríkisframlög til
sjóðsins. Fram kemur í skýrslu
nefndarinnar aö stærsti hluti eigna
sjóðsins er verðtryggö útlán til 43 ára
sem bera 0,5 til 1 prósent vexti. Á
hinn bóginn hefur sjóöurinn að
stærstum hluta verið fjármagnaður
með skuldabréfakaupum lífeyris-
sjóða. Þau lán hafa verið tekin til
skemmri tíma og bera í dag 6,5 til 7
prósent vexti.
í skýrslu nefndarinnar segir að til
að koma í veg fyrir að sambærilegur
vandi myndist á nýjan leik þurfi að
tryggja að árlegt framlag ríkissjóðs
nægi til að standa undir vaxtamunin-
um. Fjárhagslegar afleiðingar þejrra
ákvarðana, sem teknar séu um um-
svif og útlán sjóðsins, verði að liggja
fyrir þegar þær eru teknar. Leggur
nefndin til að löggjöf um sjóðinn
verði endurskoðuð þannig aö ijár-
hagsleg ábyrgð sjóðsins verði með
skýrari hætti í höndum félagsmála-
ráðherra.
Lán eigna- og tekjutengd
Nefndin gerir nokkrar tillögur til
fyrirbyggjandi aðgerða. Lagt er til að
skilyrði fyrir lánveitingum úr sjóðn-
um verði þrengd þannig að tryggt sé
að félagsleg fyrirgreiösla hans bein-
ist til þeirra sem mest þurfa á henni
aö halda. Samkvæmt núgildandi
reglum geta hjón með 140 þúsunda
króna mánaðartekjur og skuldlausa
eign upp á tæplega 1,3 milljónir sótt
um hjá Byggingarsjóði Verkamanna.
Verði lögunum ekki breytt munu
þessi mörk hækka um áramótin og
tryggja enn fleiri aðgang að þessu
félagslega húsnæðiskerfi.
í þessu sambandi bendir nefndin
einnig á að í almenna kaupleigukerf-
inu sé umtalsverðum íjármunum
ráðstafað án tillits til eigna og tekna
umsækjenda. Mat nefndarinnar er
aö þetta sé óeðlilegt. Lagt er tit að
öll lán úr sjóðnum verði í framtíöinni
háð tekju- og eignamörkum.
Auk þessara breytinga leggur
nefndin til að í framtíðinni kanni
Byggingarsjóður verkamanna sjálf-
ur þörfina á félagslegum íbúðum. i
gildandi lögum sé þetta verkefni í
höndum sveitarfélaga og við það
skapist hætta á að þörfin sé ofmetin.
Lagt er til að lánskjör sjóðsins verði
endurkoðuð með tilliti til þeirra
möguleika sem vaxtabótakerflð býð-
ur upp á. Einnig er lagt til að leitað
verði leiða sem lækki kostnaðarverð
á félagslegu húsnæði, til dæmis meö
kaupum á eldri íbúðum. Um síðustu
áramót var meðallán á hverja íbúð
um 6,1 milljón. Þá leggur nefndin til
að dregið verði úr kostnaði viö um-
sýslu félagslega húsnæðiskerfisins
með aukinni hagræðingu. í ár er
áætlað að um 130 milljónir fari í
þessaumsýslu. -kaa
Á meðan Svanfriður var lokuð inni á salerninu tók hún hjartatöflur inn þar
sem hún fékk fljótlega köfnunartilfinningu. DV-mynd Hanna
Hjartasjúklingur læstur inni á salerni:
Eg fékk f Ijótlega
köfnunartilfinningu
- segir Svanfríður Gísladóttir sem slapp eftir 27 mínútur
„Þegar ég tók í hurðarhúninn á
snyrtingunni var allt fast. Ég er
hjartasjúklingur og hef mikla inni-
lokunarkennd og fékk fljótlega köfn-
unartilfinningu. Ég bankaði á dyrnar
en enginn kom. Það vildi svo til að
tvítug dóttir mín fór með mér að
drekka kaffi og hana fór að lengja
eftir mér. Svo heyrði ég: „Mamma,
ert þetta þú?“ Dóttir mín sagði mér
síðan að vera róleg. Hún hughreysti
mig og kallaði á hjálp,“ sagði Svan-
fríður Gísladóttir úr Reykjavík sem
lokaðist inni á snyrtingunni á veit-
ingastaðnum Myllunni í Kringlunni
í tæpa hálfa klukkustund í fyrradag.
„Eg var í mikilli geðshræringu
þarna inni. Dóttir mín spurði hvort
ég væri með hjartatöflurnar mínar.
Ég sagðist vera með þær og tók töflu.
Það er hvorki gluggi þarna né loft-
ræsting og ég fékk fljótlega köfnun-
artilfinningu en svo skrúfaöi ég fyrir
ofninn. Öryggisverðirnir hringdu í
lyklasmið úti í bæ en þar var bara
símsvari. Þeir urðu því sjálfir að
spenna hurðarkarminn upp til að
hleypa mér út. Það liðu 27 mínútur
frá því að ég lokaðist inni þar til ég
náðist út,“ sagði Svanfríður.
Henni var boðið kaffi eftir að hún
kom út en hún kaus að fara strax
út fyrir til að jafna sig. Er hún kom
út sagði hún að áfallið hefði komið
yfir sig en síðan hefði hún jafnað sig.
Þórir Baldursson, annar eigenda
Myllunnar, sagði við DV aö allt hefði
verið gert til að ná konunni út sem
fyrst. Atvik sem þetta hefði ekki
komið fyrir áður og var vinnueftirlit-
ið kallað strax á staðinn og eigendur
ákváðu að loka snyrtingunni þar til
viðgerð hefði farið fram. Þórir sagði
á hinn bóginn að það væri í raun í
verkahring öryggisgæslumanna aö
sjá til þess að öryggi gesta væri borg-
ið í málum sem þessum enda greiddu
fyrirtækin þeim fyrir það. Starfs-
stúlka sagði að 10-15 mínútur hefðu
liðið frá því að uppgötvaðist að Svan-
fríður var lokuð inni þar til opnaö
hefðiveriðfyrirhenni. -ÓTT
Borgum 435 milljónir með ostinum
- ódýrara að borga bændum fyrir að framleiða ekki
„Það er gert ráð fyrir óeðlilega
háum útflutningsbótum á osti á
næsta ári. Ástæðan er sú að í búvöru-
samningi við bændur skuldbatt ríkið
sig til að koma birgðastöðu í mjólk-
inni niður í 16 milljónir Utra eða jafn-
gildi þeirra í vörum fyrir 1. septemb-
er 1992. Á þessu ári munum við hins
vegar leitast við að koma í veg fyrir
framleiðslu á þessari mjólk,“ segir
Sigurgeir Þorgeirsson, aðstoðarmað-
ur landbúnaðarráðherra.
Sigurgeir segir það mun ódýrari
kost fyrir ríkið að borga bændum
fyrir að framleiða ekki mjólk heldur
en að framleiða og selja osta til út-
landa með tilheyrandi útflutnings-
bótum. í fjárlagafrumvarpinu fyrir
1992 er gert ráö fyrir að verja 435
milljónum króna í útflutningsbætur
á ostum. Þessa fjármuni segir Sigur-
geir að landbúnaðarráðuneytinu sé
heimilt að nota til að koma í veg fyr-
ir framleiðslu, enda dragi það úr út-
flutningsþörfmni. *
Að sögn Sigurgeirs mun ráöuneyt-
ið leita eftir samningum við bændur
í vetur um að framleiða ekki mjólk.
Markmiðið sé að minnka framleiðsl-
una um allt aö 5 milljónir lítra með
þessum hætti. Fyrir hvem lítra, sem
bændur framleiða ekki, muni þeir fá
greiddar 35 krónur. Þess má geta að
fyrir framleidda mjólk fá þeir 52
krónur á lítrann. Kominn í útfluttan
ost kostar lítrinn hins vegar um 75
krónur.
„Við rennum blint í sjóinn með
þetta en vonumst til að ná settu
markmiði. Útgjöldin á hvern lítra
myndu minnka um helming," segir
Sigurgeir.
-kaa
DV
EES-samningurinn:
Fríhöfnin
óbreytt
„Það breytist ekki neitt með frí-
höfnina í Keflavík með þessum
EES-samningi. Tollfrjáls verslun
og landamæraeftirht verður
áfram til staðar hjá EFTA-rikjun-
um. Ferðamenn munu þvi áfram
geta keypt sér tollfrjálsar vörur á
Islandi, bæði við komu og brott-
för,“ segir GuðrúnÁsta Sigurðar-
dóttir, deildarstjóri i tolladeild
fjármálaráðuneytisins.
Varðandi fríhafnir í Evrópu
segir Guðrún Ásta að eftir 1992
verði litið á ferðir innan EB sem
innanlandsferðir. Ferðir milli
einstakra EFTA-ríkja og EB verði
hins vegar eftir sem áður utan-
landsferðir og gefa rétt til toll-
frjálsrar verslunar í fríhöfnum.
-kaa
Ólafsfjörður:
KEAstærsti
hluthafinn
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
Fiskeldisfyrirtækið Óslax hf. á
Ólafsfirði fór fram á gjaldþrota-
úrskurð í gærmorgun.
Kíartan Þorkelsson, bæjarfóg-
eti á Ólafsfirði, sagði í samtali við
D V í gær að hann heföi tekið sér
frest til að kveða upp úrskurð
sínn um gjaldþrot fyrirtækisins
en úrskurður hans myndi liggja
fyrir strax eftir helgi. Fyrirtækið
Óslax hf. er í eigu fyrirtækja og
einstaklinga og er Kaupfélag Ey-
flrðinga stærsti hluthafinn í fyr-
irtækinu. Fyrirtækið hefur
stundað laxeldi við Ólafsfjarðar-
vatn og einnig hafbeit þaðan.
EES-samningurinn:
Landsbyggðin
færútskýringar
Gylfi Knstjánsson, DV, Akuxeyri:
Utanríkisráðuneytið er nú að
heíja fundaferð um landsbyggð-
ina og er tilgangurinn sá að
kynna nýgerðan EES-samning.
Það er Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra sem fer í
þessar kynningarferðir og verður
fyrsti fundurinn í Alþýðuhúsinu
á Akureyri á morgun kl. 14. Þar
flytur ráðherra ræðu og svarar
fyrirspumum fundarmanna.
Alþingiívikufrí
Alþingismenn fara nú í viku frí
frá önnum á Alþingi. Er þetta
þinghlé til þess gert að þingmenn
geti farið í kjördæmi sín og heils-
að upp á kjósendur. Flestir
stjórnmálaflokkarnir hafa þegar
skipulagt fundaherferðir um
landið.
Alþingi kemur svo aftur saman
4. nóvember. Eftir þaö verða
reglulegir þingfundir þar til þing-
menn fara í jólaleyfi 15. desember
og stendur það leyfi yfir til 21.
janúar. Eftir það er fyrirhugað
aö þinghald standi allt fram til
15. maí. -S.dór
Nýtt Norðuriandaráð
Alþingi hefur kjörið fulltrúa í
Norðurlandaráð. Þeir eru: Geir
H. Haarde, Rannveig Guðmunds-
dóttir, Ámi M. Mathiesen og Sig-
ríður A. Þórðardóttir frá stjórn-
arliðum en HaUdór Ásgrímsson,
Hjörleifur Guttormsson og Krist-
ín Einarsdóttir frá stjórnarand-
stöðu. Varamenn: Sturla Böðv-
arsson, Karl Steinar Guðnason,
Ámi Johnsen og Ingi Björn Al-
bertsson frá stjómarliðum en
Valgerður Sverrisdóttir, Svavar
Gestsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir frá stjórnarandstöð-
unni. -S.dór