Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Page 8
.reet b:48öt/io .as- auoAoaAÐ-UAJ
. lx)K.tobe:
'BER-1991.
Höfum verið beðnir að útvega
togara til leigu
með hluta af skipshöfn
Skilgreining:
Lengd: 20-30 m.
Stærð: Allt að 300 brúttólestir.
Frysti- og kæliútbúnaður.
Leigutími: 2 ár.
Forkaupsréttur eftir leigutíma.
Staðsetning: Vestur-Afríka.
Leigutaki - U.K. firma - útvegar banka-
ábyrgð.
Vinsaml. sendið G.A. plan
í fax 90-298-17736.
Upplýsingar veitir
Búi Tyril
í síma 90-298-19254,
INDEX Pf.
Argir
Færeyjum
w
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða tii
sýnis þriðjudaginn 29. október 1991, kl. 13-16, í porti
bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7, Reykjavík,
og víðar
1 stk. Oldsmobile fólksbifreið
1 stk. Volvo 244 Gli fólksbifreið
1 stk. Saab 900i fólksbifreið
1 stk. Toyota LandCruiser stw 4x4
1 stk. Mitsubishi Pajero Turbo 4x4
1 stk. Dodge Ramcharger 4x4
2 stk. Chevrolet pickup m/húsi 4x4
3 stk. Chevrolet Suburban 4x4
1 stk. Ford Econoline E-250 4x4
1 stk. Nissan Patrol m/húsi 4x4
1 stk. Nissan Patrol pickup 4x4
1 stk. Toyota Hi Lux Double cab 4x4
1 stk. Nissan Double cab 4x4
1 stk. Mitsubishi L-300 sendibifreið 4x4
4 stk. Lada Sport 4x4
1 stk. Volvo Lapplander 4x4
2 stk. Toyota Tercel station 4x4
2 stk. Subaru 1800 station 4x4
1 stk. Mitsubishi L-200 pickup 4x4
1 stk. Mitsubishi L-300 sendibifreið
1 stk. Volkswagen Double cab
1 stk. Volkswagen Transporter
1 stk. Ford Transit sendiferðabifreið
1 stk. Ford Econoline E-150 sendib.
1 stk. Lada station 1500
1 stk. Mercedes Benz 0307 fólksflb.
50 farþ.
1 stk. Mercedes Benz 0309 fólksflb.
20 farþ.
1 stk. Mercedes Benz L608 fólks- og
vöruf., 6farþ.
1 stk. MAN 19.321 vörubifr. m/krana 4x4
2 stk. Ski Doo Cheyenne vélsleðar
1 stk. Arctic Cat vélsleði
bensín1987
bensín1988
bensín1987
disií 1985
dísil 1986
bensín1984
dísil 1982-84
bensín 1980-82
bensín1980
dísii 1986
dísil 1985
dísil 1986
dísil 1985
bensín1985
bensín 1988-89
bensín1981
bensín 1986-87
bensín 1983-87
dísil 1985
bensín1988
bensín1984
dísil 1983
bensín1983
bensín1981
bensín1988
dísil 1978
dísil 1987
dísil 1982
dísil 1982
1989
1987
Til sýnis hjá Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti:
1 stk. Scania Vabis L8050 m/palli og sturtu dísil 1972
1 stk. Scania Vabis80superm/palli dísil 1971
og sturtu
1 stk. Volvo N 7 vörubifr. m/palli og sturtu dísil 1976
Til sýnis hjá Rarik, Egilsstöðum:
2 stk. Nissan Patrol 4x4 dísil 1985
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Akureyri:
1 stk. Mitsubishi L-200 pickup
1 stk. Zetor 6945 dráttarvél
bensín1985
dísil 1980
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstödd-
um bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboð-
um sem ekki teljast viðunandi.
ll\ll\IKAUPASTOFI\IUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 1 0S RFYKJAVIK
Matgæðmgur vilainnar
,,Undir regnboganum'
Sjávarréttasinfónía
Sigurður Helgi Guðjónsson
hæstaréttarlögmaður segist hafa
haft unun af allra handa brasi með
mat frá blautu barnsbeini, einkum
stússi við hátíða- og veislurétti,
helst sem allra tímafrekasta og
ílókna. Réttinn, sem hann ætlar að
kynna fyrir lesendum DV, segir
hann hins vegar afar auðveldan og
sé hráefnið gott geti hann ekki
brugðist. „Rétturinn er afbragðs-
góður, fallegur og litríkur, sann-
kölluð sjávarréttasinfónía í öllum
regnbogans litum. Þess vegna kýs
ég að kalla réttinn „Undir regnbog-
anum“, í höfuðið á kyngimögnuðu
lagi eftir áskoranda minn, Magnús
Þór Sigmundsson. Rétturinn getur
bæði verið forréttur og aðalrétt-
ur.“
Sjávarréttasinfónía
Sigurður Helgi Guðjónsson.
dökkt brauð.
Að sögn Sigurðar er þessi réttur
eiginlega hluti af háleynilegri og
vísindalegri megrunaráætlun, þ.e.
hinum árangursríka megrunar-
kúr, Seafood-kúrnum, sem bæði
Ingimar Eydal og Fats Domino hafa
verið á í mörg ár með undraverðum
árangri. Kúrinn í heild er svona:
„If you see food, eat it“!
Ef rétturinn er hafður sem for-
réttur er gott að drekka með hon-
um milliþurrt hvítvín en ef hann
er aöalréttur mælir Sigurður með
þvi að með honum sé drukkinn
bjór ásamt ísköldum „Hvalalosta“
sem er heimalagaður snaps. Hvala-
losta tileinkar Sigurður Magnúsi
Guðmundssyni Grænfriðunga-
skelfi.
Hvalalosti
Efnismagnið er ríílegt fyrir fjóra
til sex.
500-750 g hörpuskelflskur
250-500 g humar (skelflettur)
250 g rækjur (pillaðar)
3 paprikur, sín af hverjum lit
2 meðalstórir laukar
250 g asíur ásamt leginum
100 g svartar ólífur
100 g grænar ólífur
100 g kokkteillaukar
1 msk. Madagaskarpipar (grænn,
heill, niðurlagður)
1 stk. lárviðarlauf
3 dl ólífuolía
/i fl. hvítvín
safi úr 1 sítrónu
salt, nýmulinn hvítur pipar og ann-
að krydd eftir smekk
Fiskurinn er látinn þiðna í ís-
skáp. Ef humarinn er ekki mjög
smár er rétt að hluta hann í 2-3
bita. Fiskinum er blandað saman á
disk, sítrónusafa er dreypt yfir og
hann látinn bíða meðan annað er
gert. Kjarninn er hreinsaður úr
paprikunum og þær sneiddar frek-
ar þunnt og síðar skornar í strimla
(4-5 cm) Laukurinn er skorinn í
fremur þunna hringi. Asíurnar eru
skornar í litla bita. Hvítvíni, ólífu-
olíu, leginum af asíunum og sítr-
ónusafa er blandað saman og
kryddað. Síðan er flskinum, legin-
um og öllu öðru því sem að ofan
er talið blandað saman af nærfærni
og blíðu og herlegheitin sett í stóra
skál eða krukku sem lokað er (lög-
urinn á að fljóta yfir).
Látið skálina eða krukkuna
standa í stofuhita í 8 klst. Svo er
rétturinn kældur niður í ísskáp í
'A-l sólarhring og er eftir það tilbú-
inn til neyslu. Geymist síðan í kæli.
Rétturinn er borinn fram kaldur
og eins og hann kemur fyrir upp
úr skálinni en vökvinn er látinn
renna vel af þegar rétturinn er
færður upp á diska.
Með þessum rétti er gott að hafa
ristað brauð, til dæmis með hvít-
laukssmjöri, eða þá eitthvert gott
1 flaska (75 cl) vodka, safi og börk-
ur af 1 sítrónu, 1/2 dl. sykur, 2 frek-
ar stórar kanilstangir (eða fleiri
smærri), 1 msk. hunang, nokkrir
kandísmolar og dreitill af líkjör,
t.d. appelsínu- eða apríkósu- (má
sleppa).
Sítrónan er þvegin vel og skræld
þunnt með kartöfluhníf eða osta-
skera. Safmn er pressaður úr sítr-
ónunni. Sítrónusafa, sykri, kandís,
hunangi og líkjör blandað saman
og hellt saman við vínið. Bætið sítr-
ónuberkinum og kanilstöngunum
út í. Setjið á flösku og lokið með
korktappa. Látið flöskuna standa í
stofuhita í um það bil 1 viku en þá
er vökvinn síaður frá og settur á
flösku.
Snapsinn segir hann bestan
ískaldan með bjór.
Sigurður kveðst þekkja marga
pottasnillinga en skorar á Hilmar
Örn Hilmarsson, galdrameistara
með meiru. Segist hann hafa fyrir
satt að hann sé mikið pottaskáld
ekkisíðurentónskáld. -IBS
Hinhlidin
Hermann uppáhalds-
teiknimyndapersónan
Elísabet Þórisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Menningarmið-
stöðvarinnar Gerðubergs í Breið-
holti í Reykjavík, sýnir á sér hina
hliðina að þessu sinni. Starfsemin
í Menningarmiðstöðinni hefur ver-
ið mjög fjölbreytt og fjölgar þeim
stöðugt sem þangað sækja ýmsa
listviðburði.
Fullt nafn: Elísabet Bjarklind Þór-
isdóttir.
Fæðingardagur og ár: 17. október
1954.
Maki: Sigvaldi Júlíusson.
Börn: Þórir Örn, 7 ára.
Bifreið: Mazda árgerð ’84.
Starf: Framkvæmdastjóri Menn-
ingarmiðstöövarinnar í Gerðu-
bergi.
Laun: Samkvæmt kjarasamningi
opinberra starfsmanna og þar af
leiðandi of lág.
Áhugamál: Vinnan, leiklist, fjöl-
skyldan og flest .það sem göfgar
andann.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þrjár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Það fer eftir því hvar ég er
hverju sinni. Það er yfirleitt gaman
f vinnunni og gaman að koma heim
eftir vel heppnaöan dag.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Það fer eftir því hvemig skapi
ég er í, einna leiðinlegast þykir mér
að finna að við fólk.
Uppáhaldsmatur: Humar.
Uppáhaldsdrykkur: íslenskt blá-
vatn.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
Elisabet Þórisdóttir.
standa fremstur í dag? Kristrún
Daöadóttir, fótboltakona í Breiða-
bliki, af því að hún er frænka mín.
Uppáhaldstímarit: ABC sem ég les
með syni mínum.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð fyrir utan maka? Drengurinn
minn lofar góðu í dag.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Ég er hlynnt henni í sumu og
sumu ekki.
Hvaða persónu langat þig mest að
hitta? Þessa stundina borgarstjór-
ann í Reykjavík.
Uppáhaldsleikari: Sigurður Sigur-
jónsson og aðrir skólafélagar mínir
úr SÁL-inni.
Uppáhaldsleikkona: Það er svo
breytilegt eftir því hvað maöur
horfir á hverju sinni.
Uppáhaldssöngvari: Kristinn Sig-
mundsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ég er
afskaplega ánægð með Markús Örn
Antonsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Hermann.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Það er af-
skaplega misjafnt. Það er fátt leið-
inlegra en að horfa á illa unnið
dagskrárefni.
Ertu hlynnt eða andvig veru varn-
arliðsins hér á landi? Mér sýnist
varnarliðið komið til að vera.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Sigvaldi
Júlíusson.
Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Eg held ég horfi meira
á Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Spaug-
stofumenn.
Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn
sérstakur, ég fer sjaldan á
skemmtistaði.
Uppáhaldsfélag í íþróttum? Þar
sem frænka mín er í Breiðabliki
hlýtur það að vera Breiðablik, ann-
ars hef ég alltaf talið mig Víking.
Stefnir þú að einhverju sérstöku i
framtíðinni? Að reyna að slappa
aðeins betur af en ég geri.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór í skemmtilega menningarferð
til Danmerkur og Þýskalands þar
sem ég sá meðal annars Kristin
Sigmundsson á óperusviði. Auk
þess ferðaðist ég um Austurland
og var það mér ógleymanleg ferð.
-IBS