Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
Myndbönd
ÍHí CÚlM'# ötlííi Hfí
mí') qma mi vm
lííiatfisjíioam
wsm n imm
wvwtímm
I (3) King Ralph
2(2) Awakenings
3(13) Desperate Hours
4 (1) The Bonfire of the Vanities
5 (•) Blue Steei
6 (-)w White Palace
7 (5) Pacific Heights
8 (4) In Bed with Madonna
9 (7) Sibiing Rivalry
10 (6) Look Who’s Talking too
II (10) Rainbow Drive
12 (•) Misery
13 (8) Reposessed
14 (•) Kindergarten Cop
15 (12) Bittu mig, elskaðu mig
Myndbandið um Ralph konung stekkur úr
þessa vikuna og er aðeins búíð að vera tvær vikur á lista. Peter
O’Toole og John Goodman virðast skemmta sér ágætlega i hlutverk-
um stnum. Hástðkkvari vikunnar er samt sem áður myndin Desper-
ate Hours með Anthony Hopkins og Mickey Rourke í aðalhlutverkum.
★★
★★★
Bændur í stríði
BLOOD RED
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Peter Masterson.
Aðalhlutverk: Eric Roberts, Giancarlo
Giannini, Dennis Hopper og Burt Young.
Bandarisk, 1988-sýningartimi 90min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Það er mikill þungi og drama í
söguþræðinum i Blood Red sem
hefur að skipa úrvali af góðum leik-
urum. Sögusviðið er Norður-Kali-
fomía árið 1895. Verið er að leggja
járnbrautarlest um ríkið og eru
nokkrir bændur sem ekki vilja
selja jörð sína flæmdir burt með
vopnavaldi af iðjöfrinum Barrigan
sem Dennis Hopper leikur. Þegar
Sikileyingurinn Sebastian, sem
staðiö hefur í fararbroddi bænda,
er drepinn dregur sonur hans,
Marco, upp herör gegn yfirvaldinu
og úr verður blóðugt stríö.
Blood Red er að mörgu leyti vel
gerö mynd og eiga leikarar ekki
lítinn þátt í gæðum hennar. Gianc-
arlo Giannini, Burt Young og
Dennis Hopper eru allir eftirminni-
legir í aukahlutverkum. Það er
Eric Roberts sem leikur Marco og
það var hann sem kom því til leiðar
að systir hans, sem var að hefa
leikferil sinn, fékk sitt fyrsta hlut-
verk í kvikmynd. Kannski verður
myndin í framtíðinni helst minnst
fyrir þaö að vera fyrsta kvikmynd-
in sem Julia Roberts lék í.
Morð og spilling
RAINBOW DRIVE
Útgefandi: Bíóhöllin.
Leikstjóri: Bobby Roth.
Aóaihlutverk: Peter Weller, Sela Ward
og Bruce Weitz.
Bandarisk, 1990-sýningartimi 100 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Mike Gallagher er lögreglumaður
í morðdeild Los Angelesborgar.
Hann er fráskilinn og á vingott við
ríka konu sem er gift. Einn daginn
þegar þau hittast í hreiðri sínu
veröur Gallagher nánast vitni að
fjöldamoröum í næstu íbúð. Þegar
hann ætlar að fara að tilkynna um
morðin birtist lögreglan í mörgum
bílum og meira aö segja ríkislög-
reglan í þyrlu. Hvernig stendur á
því að lögreglan vissi um morðin
svona snemma og hvers vegna
vantar eitt líkið þegar hann heim-
sækir líkhúsið? Gallagher grunar
réttilega að þarna sé eitthvað meira
á ferðinni en morðin og vill fá að
rannsaka málið en er þá sagt að
ríkislögreglan sjái um þetta mál.
Þetta er byrjunin á Rainbow
Drive sem er hinn þokkalégasti
þriller. Myndin er byggð á mjög
góðri sakamálasögu en eins og oft
vekur þröngt sniðinn handritstext-
inn nokkrar spurningar sem ekki
verður svarað nema að lesa bókina,
til dæmis útskýringar á morði ást-
konu hans. En þegar þessum atrið-
um er sleppt er Rainbow Drive hin
þokkalegasta sakamálamynd.
-HK
Leikstjóri á fílaveiðum
WHITE HUNTER, BLACK HEART
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Clint Eastwood.
Aóalhlutverk: Clint Eastwood, Jetf Fa-
hey, George Dzundza og Marisa Beren-
son.
Bandarisk, 1990-sýningartimi 107 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Rithöfundurinn og handritshöf-
undurinn Peter Viertell skrifaði
skáldsögu sína, White Hunter,
Black Heart, stuttu eftir að hann
vann með hinum þekkta leikstjóra
John Huston við gerð Afríku-
drottningarinnar. Hann var ekkert
að fela það að aðalpersóna bókar-
innar, John Wilson, var byggð á
Huston og íjallar bókin um gerð
kvikmyndar í Afriku og þrá leik-
stjórans til að skjóta fíl.
í frábærri kvikmyndagerð Clint
Eastwoods af White Hunter, Black
Heart er Viertell, eða Verill eins og
hann nefnist í bókinni, sögumaður
og í gegnum hann fylgjumst við
með þráhyggju Wilsons. Kvik-
myndagerðin skiptir hann minna
máli heldur en fíiaveiðarnar. Þegar
aðrir leikstjórar hefðu rifið í hár
sitt þegar rigning stóðvar byrjun á
upptökum á kvikmyndinni í
nokkra daga fagnar hann rigning-
unni og heldur á veiðar án þess aö
hafa áhyggjur af leikurum og öðr-
um sem verða að bíöa þar til hon-
um þóknast að koma aftur.
Clint Eastwoopd leikstýrir og
leikur John Wilson og er hann
Clint Eastwood leikur leikstjóra sem hugsar meira um filaveiðar en
kvikmyndina sem hann er að byrja á.
ágætur í hlutverkinu en hefur ver-
ið betri og það er leikstjórinn sem
hefur betur. Með White Hunter,
Black Heart, hefur Eastwood gert
sérlega eftirtektarverða og áhrifa-
mikla kvikmynd sem maöur
gleymir ekki í bráð.
Aðalhlutverkin í hinni frægu
kvikmynd, Afríkudrottningunni,
sem hlaut á sínum tíma nokkur
óskarsverðlaun, léku Humphrey
Bogart og Katherine Hepburn og
hafði ég búist við að þau kæmu
meira viö sögu hér en raunin er.
Ástæðan er einfaldlega sú að
myndin endar um leiö og kvi-
kyndatakan hefst.
Hvort sem maður sættir sig við
þá persónulýsingu af John Huston
sem fram kemur í myndinni eða
ekki þá verður því ekki neitað að
White Hunter, Black Heart er hríf-
andi kvikmynd.
-HK
D V-myndbandalistmrL
★★
Dýrkeypt framhjáhald
SIBLING RIVALRY
Leikstjóri: Carl Reiner.
Aðalhlutverk: Kirstie Alley, Bill Pullman,
Carrie Fisher og Sam Elliott.
Bandarisk, 1990-sýningartími 88 mín.
Leyfó öllum aldurshópum.
í Sibling Rivalry leikur Kirstie
Alley húsmóðurina Marjorie Turn-
er sem er gift inn í yfirgangsmikla
læknafjölskyldu. Hún býr viö kúg-
un í hjónabandinu og er litið niður
á hana af öðrum fjölskyldumeðlim-
um. Það er fyrir áeggjan systur
sinnar aö hún heldur framhjá með
myndarlegum manni sem hún hitt-
ir í kjörbúö. Framhjáhaldiö tekst
samt ekki betur en svo aö sjarmör-
inn gefur upp öndina uppi í rúmi
hjá henni þegar hæst lætur og flýr
þá Turner af vettvangi og heldur
að þar með sé málinu lokið en svo
er nú ekki. Misheppnaður sölu-
maður flækist inn í málið þegar
SIBLiNG
RIVALRÝ
hann ætlar að setja upp gardínur í
hótelherberginu þar sem ástarleik-
urinn fór fram en missir gardín-
urnar óvart ofan á líkið og heldur
um leið að hann eigi sökina á dauöa
mannsins. Þetta er aðeins byrjunin
á mikilli og farsakenndri flækju
sem leysist að sjálfsögðu ekki fyrr
en í lokin.
Sibling Rivalry er létt og
skemmtileg gamanmynd sem hald-
ið er uppi af góðum leikarahópi
sem er svo stjórnað af hinum
kunna gamanmyndaleikstjóra Carl
Reiner. Kirstie Alley í hlutverki
Marjorie Turner er í fararbroddi
og fær hér betra tækifæri til að
sýna hversu góð gamanleikkona
hún er heldur en í hinum vinsælu
Pottormamyndum (Look Who’s
Talking...) og fer á kostum. Eins
er vert aö minnast á góðan leik hjá
Bill Pullman í hlutverki sölu-
mannsins misheppnaða.
-HK
Dauðasyndir
DEADLY DESIRE
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Charles Correll.
Aðalhlutverk: Jack Scalia, Kathryn Har-
rold og Will Patton.
Bandarísk, 1990-sýningartimi 100 mín.
Bönnuó börnum 12 ára.
Þeir sem séð hafa hina mögnuðu
sakamálamynd Body Heat ættu
fljótlega að kannast við þemað í
Deadly Desire. Falleg og rík kona
sem býr í óhamingjusömu hjóna-
bandi sækir fast í ástarsamband
við öryggisþjónustumann sem er
að setja upp varnarkerfi í villunni
hennar. Hann verður henni auð-
veld bráð en þegar hlutverki hans
er lokið án þess þó að hann geri sér
grein fyrir því er hann skilinn eftir
á köldum klaka og gerir sér grein
fyrir því um síðir að hann hefur
verið veiddur í hættulega gildru.
Kathryn Harrold er svo sannar-
lega mikið augnayndi en samleikur
hennar og Jack Scalia er ekki nógu
„heitur" til að ástríður þeirra verði
sannfærandi og svo má eiginlega
segja um myndina í heild að fátt
er spennandi undir fáguðu yfir-
borðinu en plottið er aftur á móti
gott og gerir að verkum að það er
vel þess virði að horfa á myndina.