Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Side 11
;10pj Áí' H' IPAdSAðlJA j
LAUGARÐAGUR 26. OKTGBER 1991.
11
Roy Dupuis og Marina Orsini i hlutverkum Ovila og Emilie.
Ný þáttaröð á Stöð 2 byggð á metsölubók:
Milljónir
fylgdust
með örlög-
um Emilie
Myndaflokkurinn um Emilie, sem
Stöö 2 hefur hafiö sýningar á, er vin-
sælasta þáttaröö sem sýnd hefur ver-
iö í sjónvarpinu í Quebec í Kanada.
Sýningar á þáttunum hófust í fyrra
og er sagt að um helmingur Quebec-
búa, eöa 3,5 milljónir, hafi sest fyrir
framan sjónvarpiö á fimmtudags-
kvöldum til aö fylgjast meö örlögum
Emilie.
Tuttugu fyrstu þættirnir eru geröir
eftir fyrri hluta metsölubókarinnar
Les Filles de Caleb, eftir Arlette Co-
usture, sem kom út 1985. Söguna
byggði Arlette á sögu ömmu sinnar
og móöur og er sögusviðið í Quebec
um aldamótin síöustu.
Sagan hefst 1892 þegar Emilie er
13 ára og lýkur 1917 þegar Emilie er
39 ára. Emilie var aðeins sautján ára
þegar hún fór aö heiman og gerðist
kennari í litlum þorpsskóla. Hún
veröur hrifin af einum nemenda
sinna, Ovila Pronovost, sem er á
hennar aldri.
Fjallað er um ástríkt hjónaband
þeirra, fæöingu níu barna þeirra og
árekstra sem síðar verða. Emilie er
kona á undan sínum tíma. Djúp ást
hennar á Ovila veldur henni bæði
gleði og sársauka. Þaö er svo Ovila
sem hvetur Emilie til aö takast á við
hiö ögrandi viðfangsefni að komast
af ein þegar ný öld er gengin í garö.
Þetta er saga venjulegs fólks og þaö
er einmitt meðal annars þess vegna
sem Quebec-búar sátu heillaðir fyrir
framan sjónvarpstækin. Saga Emilie
og Ovila líkist lífi foreldra sumra
þeirra, lífi ömmu þeirra og afa og í
sumum tilfellum lífi langömmu og
langafa. Myndatakan hefur þótt mjög
góð sem og leikstjórn og hefur þátta-
rööin fengiö viöurkenningu fyrir
góöa lýsingu á venjum og siöum
þessa tímabils. Þau sem fara með
aðalhlutverkin, Marina Orsini og
Roy Dupuis, hafa veriö verðlaunuð
fyrir góöan leik í myndaflokknum.
Emilie var aöeins sautján ára þegar hún gerðist kennslukona í litlum þorps-
skóla. Hún varð ástfangin af einum nemenda sinna, Ovila, sem síðar varð
eiginmaður hennar.
^RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í ræstingu á skrifstofuhúsnæði Rafmagns-
veitnanna að Laugavegi 118 1 Reykjavík.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins að Laugavegi 118 frá
og með þriðjudeginum 29. október.
Tilboðum skal skila á skrifstofuna fyrir kl. 14.00 5. nóvember nk. Tilboðin séu í lokuöu
umslagi merkt: ,, Rarik-91010 Ræsting“.
STOLAR
Eitt mesta úrval landsins af stökum
stólum - áklæði eftir vali
GÓÐAN ÍSLENSKAN TÓNLISTARDAGINN!!!
I dag er íslenskur tónlistardagur
Á morgun er líka tónlistar-
dagur þvíþá heldur Sin-
fóníuhljómsveit Islands
tónleika til stjrktar bjggingu
tónlistarhúss í Háskólabíói,
sunnudaginn 2j. október kl:
14.30. Stjórnandi verður
Petri Sakari og einleikari
ij ára kínverskurpíanóleik-
ari Connie Shih.
Á efnisskrá eru Slavneskir
dansar nr. 1 ,j og 8 eftir
Dvorák, Píanókonsert í
A-dúr eftir Mo^art og
Rómeó og Júlía svíta eftir
Prokofieff
Miöasala á skrifstofu Sinfóniuhljómsveitar íslands í Háskólabíói laugardag-
inn kl. 13.00—16.00 ogsunnudaginn íHáskólabíóifrá kl. 13.00.
Þeim sem hafa styrkt Samtök um byggingu tónlistarhúss á sl. ári er gef-
inn kostur á að kaupa miða með afslœtti.
Byggjmn tónlistarhús
— tónlistin á það shilið.