Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Síða 12
12
LAUGARD.4GUR 26. OKTÓBER 1991.
Erlendbóksjá
Draumaland milli
himins og helj ar
Ben Okri, handhafi Bookerverðlaunanna 1992, með bók sína The Famished
Road. Símamynd Reuter
Á síðasta ári þótti Bookerinn -
kunnustu bókmenntaverðlaun Breta
- með eindæmum leiðinlegt fyrir-
brigði. Skáldsagnahöfundarnir, sem
kepptu um tuttugu þúsund sterlings-
pund i um tvær milljónir króna),
frægð og nukla og örugga sölu bókar
sigurvegarans, höfðu að margra áliti
sent frá sér lítt spennandi verk. Og
svo ríkti algjör friður um úthlutun-
ina. Mönnum virtist nokk sama.
Nú var annað uppi á teningnum.
Harðar deilur urðu í dómnefndinni
um val á þeim sex skáldsögum sem
komu til álita undir lokin. Svo fór
að einn fimm dómnefndarmanna
sagði af sér 1 fússi. Skáldsögurnar
voru líka áhugaverðari en oft áður.
Bókmenntaritstjóri dagblaðsins
Sunday Express taldi það til marks
um framfarir að nú væri ekki nema
ein bókanna sex „algjörlega ólæsi-
leg“. Venjulega væri ekki hægt að
lesa þrjár-íjórar af úrshtabókunum!
Það kom svo kannski ekki á óvart
að einmitt þessi eina bók, sem rit-
stjórinn taldi ólesandi, hlaut verð-
launin!
Lögðu upp
með 110 sögur
Bookerverðlaunin ná til skáld-
sagna sem samdar eru á ensku af
höfundum frá aðildarlöndum Breska
samveldisins, Suður-Afríku og ír-
landi. Að þessu sinni sendu útgefend-
ur 110 skáldsögur í keppnina.
Fimm manna dómnefnd tók til
starfa snemma árs. Formaður var
Jeremy Treglown, fyrrum ritstjóri
bókmenntablaðsins TLS. Með hon-
um voru í nefndinni rithöfundamir
Penelope Fitzgerald, sem sjálf hefur
fjórum sinnum komið til álita við
úthlutun þessara verðlauna, Jonat-
han Keates, Nicholas Mosley, sem
hefur einu sinni átt sögu í úrslita-
keppninni, og Ann Sclee. Þetta var
því fyrst og síðast dómnefnd rithöf-
unda.
í byijun september hafði dóm-
nefndin lesið sig í gegnum allan
þennan fjölda bóka og valið 28 skáld-
sögur til frekari skoðunar. Þeim var
síðan fækkað niður í 11 og loks 6.
En þá hafði dómnefndin hka klofnað
ilhlega.
Það var Nicholas Mosley, sonur
gamla enska fasistaforingjans Os-
walds Mosley, sem sagði sig úr
nefndinni þegar ljóst var að engin
þeirra skáldsagna, sem hann hafði
barist fyrir allan tímann, komst í
úrsht. Greidd vom atkvæði í dóm-
nefndinni og tillögur hans náðu aldr-
ei fram að ganga. Undir lokin, þegar
slegist var um síðustu söguna sem
komst í sex bóka hópinn, stóð valið
á milli Time’s Arrow eftir Martin
Amis og The Sins of the Father eftir
Allan Massie. Mosley, sem barðist
hart fyrir sögu Massie, varð enn einu
sinni að lúta í lægra haldi, sagði af
sér og sakaöi formanninn og fleiri
nefndarmenn opinberlega um að
beita alræði meirihlutans gegn sér.
Úrslitabækurnar
Sigurvegarinn var valinn úr ijöl-
breyttum hópi sex ólíkra skáldsagna-
höfunda. Sumir eru vel þekktir, aðr-
ir lítt eða ekki.
Kunnastur er án efa Martin Amis
sem var mikið í mun að sigra með
skáldsögunni Time’s Arrow. Amis,
sem er sonur hins kunna rithöfundar
Kingsley Amis, er eftirlæti ráðandi
bókmenntamanna í Bretlandi sem
segja að hann sé einn fárra breskra
rithöfunda sem teknir séu alvarlega
vestanhafs - en af einhveijum ástæð-
um þykir þeim það mikilvægt.
Time’s Arrow hefur hins vegar
reynst afar umdeild skáldsaga. Ekki
vegna frásagnarmátans, sem er
óvenjulegur að því leyti að söguþráð-
urinn gengur afturábak í tíma, held-
ur hins hvernig hann heldur á efn-
inu. Söguhetjan er gamall nasisti,
læknir og stríðsglæpamaður á flótta.
Þykir Amis íjalla um helför gyðinga
í síðari heimsstyrjöldinni af einstök-
um tilfmningakulda.
Tvær írskar skáldsögur komust í
úrslit; Reading Turgenev eftir Will-
iam Trevor, sem er gamall í hett-
unni, og The Van eftir Roddy Doyle,
en hann skrifar bráöfyndnar skáld-
sögur. Fyrsta saga hans, The Com-
mitments, hefur verið kvikmynduð
undir leikstjórn Alans Parker og gert
mikla lukku í Ameríku. Hún hefur
reyndar verið sýnd hér undanfarið á
breskum dögum.
Such a Long Journey er eftir Rob-
inton Mistry sem fæddist í Bombay
á Indlandi árið 1952 en hefur búið í
Toronto í Kanada frá árinu 1975. The
Redundancy of Courage er eftir Ti-
mothy Mo sem fæddist í Hong Kong
árið 1950 en fluttist til Englands tíu
ára að aldri. Loks var það svo sér-
stæð skáldsaga nígeríska höfundar-
ins Ben Okri, The Famished Road.
Veðbankar settu trú sína einkum á
Martin Amis en Timothy Mo þótti
einnig vænlegur. í nefndinni sjálfri
mun hins vegar einkum hafa verið
tekist á um bækur þeirra Trevors og
Okri. Og það var Nígeríumaðurinn
sem fór með sigur af hólmi.
í heimi andanna
Ben Okri fæddist í Minna í Nígeríu
árið 1959 og er því 31 árs að aldri.
Hann gekk menntaveginn, fyrst í
heimalandinu og síðar við háskólann
í Essex, en þar lagði hann stund á
samanburðarbókmenntir.
Frá árinu 1978 hefur hann búið í
London og einkum gefið sig að rit-
störfum. Eftir hann liggja þrjár
skáldsögur; Flowers and Shadows
frá árinu 1980, The Landscapes Wit-
hin frá 1982 og svo The Famished
Road. Hann hefur einnig ort ljóð og
samið smásögur. Ný ljóðabók mun
einmitt sjá dagsins ljós síðar á þessu
ári.
The Famished Road er sögð afar
sérstæð skáldsaga sem eigi djúpar
rætur í afrískum veruleika þar sem
andar, draumar og goðsagnir hafa
allt annað og sterkara gildi en í iðn-
ríkjum Vesturlanda. Söguhetjan er
Araro, eins konar andans barn sem
hefur sérstakt töfravald. Hann býr í
fullkomnum draumaheimi, eins-
hvers staðar milli himins og heljar,
en kemur þaðan til jarðarinnar að
kynna sér líf fátækra á tímum borg-
arastyrjaldar í Nígeríu. Dómnefnd-
inni þótt Okri takast meistaralega að
tengja saman í skáldsögunni heim
ímyndunar og veruleika.
Viðbrögð gagnrýnenda skiptust í
tvö horn þegar bókin kom út á Eng-
landi. Annars vegar eru þeir sem
töldu söguna of langa og barnalega
og ekki nægilega flnpússaða og hins
vegar þeir sem sögðust ekki hafa les-
ið frumlegri skáldsögu árum saman.
Sá hrifnasti sagði: „Þegar ég lauk við
bókina og hélt út undir bert loft
fannst mér eins og englar sætu á öll-
um trjám.“
Metsölukiljur
Bretland
Skátdsögur:
1. Catherlne Cookson:
THE GYLLYWORS.
2. Macvc Binchy:
CIRCLE OF FRIENDS.
3. Thomas Harrls:
THE SILENCE OF THE LAMBS.
4. Scott Turow:
THE BURDEN OF PROOF.
5. Terry Pratchett:
WINGS.
6. Suscn Howalch:
SCANDALOUS RISKS.
7. Davtd Eddings;
THE RUBY KNIGHT.
8. Roaomunde Ptlcher:
THE ROSAMUNDE PILCHER
COLLECTION.
9. Jackie Collina:
LADY BOSS.
10. Thomas Harris;
RED DRAGON.
HELL HATH NO FURY.
5. Driving Slandards Agency:
YOUR DRIVING TEST.
6. Rosemary Conley:
COMPLETE HIP & THIGH DIET.
7. Mlchael Palin:
AROUND THE WORLD IN 80
DAYS.
8. Tom Jaine:
THE GOOD FOOD GUIDE 1992.
9. Naomi Woll:
THE ÐEAUTY MYTH.
10. Rosemary Conley:
INCH LOSS PLAN.
(Byggt é The Sundsy Times)
Bandarikin
Skáldsögur;
1. Sidney Sheldon:
MEMORIES OF MIDNIGHT.
2. Stephen Klng:
* FOUR PAST MIDNIGHT.
3. Anne Ríce:
THE MUMMY.
Rit almenns eðlis:
1. Peter Mayle:
A YEAR IN PROVENCE.
2. Anton Moslmann:
ANTON MOSIMANN - NATUR-
ALLY. •'
3. Simon Mayo:
SIMON MAYO'S CONFESSIONS.
4. Wensley Clarkson:
4. Plers Anthony:
QUESTION QUEST.
5. Larry McMurtry:
BUFFALO GIRLS.
6. CatheHne Coulter:
SEASON OF THE SUN.
7. Amanda Quick:
RENDEZVOUS.
8. Peler Davld:
Q-IN-LAW.
9. Janelle Taylor:
FOLLOW THE WIND.
10. Laura Kinsale:
THE SHADOW AND THE STAfl.
11. Margaret Mitchell:
GONE WITH THE WIND.
12. Barbara Taylor Bradford:
THE WOMEN IN HIS LIFE.
13. Carrie Fisher:
SURRENDER THE PINK.
14. Amy Tan:
THE JOY LUCK CLUB.
15. John Updlke:
RABBIT AT REST.
Rit almenns eðlis:
1. Forrcst Carter:
THE EOUCATtON OF LITTLE
TREE.
2. Oeborah Tannen:
YOU JUSTOON'T UNDERSTAND.
3. Peler Mayte:
A YEAR IN PROVENCE.
04. Barbara Mandrell & G. Vecsey:
GET TO THE HEART.
5. Truddl Chase:
WHEN RABBIT HOWLS.
6. M. Scott Pock:
THE ROAD LESS TRAVELLEO.
7. Don Weber & Charles Boswoth Jr.:
PRECIOUS VICTIMS.
8. Robert Fulghum:
ALL I REALLY NEED TO KNOW I
LEARNED IN KINDERGARTEN.
9. Kenneth C. Davls:
DON'T KNOW MUCH ABOUT
HISTORY.
10. Don Davis:
THE MILWAUKEE MURDERS.
11 Dlane Ackerman:
A NATURAL HISTORY OF THE
SENSES.
12. Robert Fulghum:
rr WAS ON FIRE WHEN I LAY
DOWN ON IT.
(Byggt á New York Times Book Bevíew)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Johannes Mollehave:
HOLGER DANSKES VEJ 60.
2. Betly Mahmoody:
IKKE UDEN MIN DATTER.
3. Ernest Hemingway:
DEN GAMLE MAND OG HAVET.
4. Herbjörg Wassmo:
DINAS BOG.
5. Palle Fischer:
DEN STORE BADEDAG.
6. Stephen King:
BRANDSTIFTER.
7. A. de Saint-Exupery:
DEN LILLE PRINS.
8. Isabel Allende:
EVALUNA.
9. Henry Miller:
ET LIV ER NOK.
10. Stephen Klng:
ONDSKABENS HOTEL.
(Byggt á PollUken Sondag)
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Rómversk
stórskáld
Mörg stórskáld létu aö sér
kveða í Rómaríki á fyrstu og ann-
arri öld eftir upphaf tímatals okk-
ar, þótt rómversku höfuðsnilling-
arnir Virgill og Hóras væru
horfnir til feðra sinna. Enda er
þetta tímabil stundum kallað silf-
uröldin í sögu rómverskra bók-
mennta.
Ritstjórar þessarar bókar hafa
safnað saman enskum þýðingum
á merkum verkum helstu skálda
þessa tímabils, til dæmis kvæð-
um úr útlegðarbálki Ovids, Sorg-
arljóðunum. Köflum úr frægu
verki Seneca um konurnar í
Tróju eftir ósigurinn mikla.
Satírum Persiusar og Junevals
og frásögnum • Lucanusar af
borgarastríðinu. Einnig eru hér
verk eftir Calpurnius Siculus,
Martial, Statius, Valerius Flacc-
us, Silius Italicus og ýmis skáld
sem minna kvað að.
Ritstjórarnir skrifa stutta íýs-
ingu á ferli og verkum hvers
skálds fyrir sig en sjálfar þýðing-
arnar koma úr ýmsum áttum.
ROMAN POETS OF THE EARLY EMP-
IRE.
Ritstjórar: A.J. Boyle & J.P. Sullivan.
Penguin Books, 1991.
Við borð hjá
Wystan Auden
„Ég held að ljóðlist sé í grund-
vallaratriðum hégómi. Ég yrki af
því að mér þykir það gaman. Það
eina sem er alvörumál er að elska
guð og náungann."
Þetta er eitt af því sem haft er
eftir ljóðskáldinu Wystan Auden
í þessari bók sem byggir á sam-
ræöum skáldsins við Alan Ansen
á árunum 1946 til 1948. Auden var
þá við háskólakennslu í Amer-
íku. Eftir fyrirlestra bauð hann
Ansen oft heim til sín, á bar eða
veitingahús og lét þá mörg gull-
komin fjúka undir borðum. Ans-
en hélt þessu öllu til haga þegar
heim var komiö.
Ritstjóri bókarinnar hefur valiö
úr handriti Ansens forvitnilegar
yfirlýsingar skáldsins um flest
milh himins og jarðar; skáldskap
og hstir, aö sjáÚsögöu, en einnig
trúmál, stjórnmál, samskipti
kynjanna og kynlíf. Talið berst
eðlilega oft að verkum Audens,
þeim höfundum sem höfðu áhrif
á hann og umfjöllun gagnrýn-
enda um skáld og skáldskap.
Yfirleitt er um að ræða beina
ræðu því Ansen dregur sig í hlé
í frásögninni og setur lesandann
þannig beint til borðs andspænis
Auden sem lætur gamminn
geysa.
THE TABLE TALK OF W.H.AUDEN.
Höfundur: Alan Ansen.
Faber & Faber, 1991.