Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Page 13
IAUQAB3AGUR 26,,QKTÖBISM99>.
13
Að loknu HM í bridge í Japan:
Sagntækni íslendinga
betri en annarra þjóða
Ásgeir Ásbjörnsson, bridgespilari og tölvufræðingur, er höfundur Biðsagna-
kerfisins i bridge sem Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen i islenska
landsliðinu spila. DV-mynd BG
Töluvert var um það rætt eftir sig-
ur íslendinga á heimsmeistaramót-
inu í bridge í Japan hvað Uðið hefði
haft fram yfir keppinauta sína. Áður
hefur verið minnst á það hve íslend-
ingar voru vel líkamlega undirbúnir.
Þeir stunduðu reglulega hlaup,
gengu á fjöll og sóttu tíma hjá íþrótta-
sálfræðingi. Viku fyrir mótið byrj-
uðu þeir að aðlaga svefnvenjur sínar
að japönskum tíma. Þar að auki var
mikil áhersla lögð á samheldni hóps-
ins. Afstaðan á spilastað eða bros-
taktíkin fræga hafði einnig sitt að
segja.
Þessi atriði hafa öll hjálpast að til
að tryggja þennan árangur. Minna
hefur fariö fyrir taktískum atriðum
en þar skal helst telja sagnkerfi ís-
lensku parapna. Töluverð umræða
var um það meðal spilaranna á móts-
stað að íslendingar stæðu öðrum
þjóðum framar í sagntækni.
Það er merkilegt þegar smáþjóð
eins og ísland getur þróað sagntækni
í bridge sem er feti framar en ann-
arra stórþjóða í greininni. í íslenska
landsliðinu voru þrjú pör. Þau spila
öll mismunandi sagnkerfi.
Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn
Arnþórsson spila svokallað Pólar-
lauf sem að nokkru leyti er hannað
af þeim sjálfum. Það er einhvers kon-
ar blanda af þekktum ítölskum kerf-
um, Precision og Bláa laufinu. Guð-
mundur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson spila eðlilegt kerfi (Stand-
ard) sem er vinsælasta kerfiö í heim-
inum. Opnanir þeirra á öðru sagn-
stiginu eru hins vegar margræðar
og til þess ætlaðar að trufla andstöð-
una sem mest.
Jón Baldursson og Aðalsteinn
Jörgensen spila eigið kerfi sem er
mjög flókið. Það er að grunninum til
byggt á kerfi tölvusérfræðingsins og
bridgespilarans Ásgeirs Ásbjörns-
sonar. Annað sagnstigið er svipað og
hjá þeim Guðmundi Páli og Þorláki.
Ásgeir bjó þetta kerfl til fyrir nokkr-
um árum en það er að grunninum
til byggt á biðsögnum (Relay) sem
eru vel þekktar meðal margra er-
lendra keppnisspilara. En að hvaða
leyti er kerfið frábrugðið erlendurri
biðsagnakerfum?
Kerfinu breytt eitthvað
að smekk spilaranna
„Sagnkerfi Jóns Baldurssonar og
Aðalsteins Jörgensen er að grunnin-
um til byggt á kerfi sem ég bjó til.
Þeir hafa þó eitthvað breytt kerfinu
að sínum smekk. Það sagnkerfí, sem
ég hef búið til, er ekki byggt á neinu
öðru kerfi í sjálfu sér en aðferðirnar,
sem notaðar eru í því, eru samt sem
áður þekktar," sagði Ásgeir Ás-
björnsson í samtali við DV.
„Svokölluðum yfirfærslum er til
dæmis beitt í mun ríkara mæli en
almennt tíðkast. Opnanir á öðru
sagnstiginu eru einnig mjög nýstár-
legar og miða að því að gera andstæð-
ingunum mjög erfitt fyrir.
Það eru einhver önnur pör á land-
inu sem nota þetta sagnkerfi fyrir
utan Jón og Aðalstein. Þau pör, sem
ég man eftir, eru Sigurður Vilhjálms-
son-Hrólfur Hjaltason, Matthías
Þorvaldsson-Sverrir Ármannsson,
Guðmundur Sveinsson-Valur Sig-
urðsson og bræðurnir Gísli og Sig-
urður Steingrímssynir. Þeir spila all-
ir kerfi sem byggt er á mínu sagn-
kerfi en er þó ekki nákvæmlega eins.
Guömundur Páll og Þorlákur, spil-
arar úr HM-landsliðinu, spila ein-
hvern hluta annars sagnstigsins eftir
kerfinu. Þeir nota svokallaða fjöld-
jöfuls opnun á tveimur laufum sem
hefur margræða merkingu. Kerfi
Guðlaugs og Arnar, þriðja parsins í
landsliðinu, er hins vegar ekkert
skylt mínu kerfi. Þeir spila breytt
Blátt laufasagnkerfi sem hefur verið
að færast alltaf meir og meir í eðli-
lega átt (Standard)."
- En stendur til aö gefa kerfið út?
„Ég ætla að taka mér langþráð frí
frá spilamennsku í ár til þess að ein-
beita mér að öörum verkefnum. Eitt
af því sem ég er að hugsa um að gera
er að gefa út sagnkerfi mitt á bók.
Þá var ég fyrst og fremst að hugsa
um íslenskan markað. Ég hef þegar
ákveðið nafn á kerfið, BSK mun það
heita, því það er byggt á biösögnum
(Biðsagnakerfið).
Það hefur alltaf legið í loftinu að
ég myndi leggja út í það verkefni og
sennilega verður af því nú. Þá hef
ég hugsað mér að gefa út bók með
mjög ítarlegri útfærslu á öllum stöð-
um í sagnkerfinu og hef verið að
vinna í því. Atburðir síðustu vikna
gætu orðið til þess að ég flýti því
verkefni.
Það er prinsipp hjá mér að gefa það
út á íslensku en það er síðan hægt
aö þýöa yfir á önnur tungumál. Sagn-
kerfið fékk mikla auglýsingu úti, því
Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörg-
ensen voru oft á sýningartöflu. Kerf-
ið sást því mjög oft í framkvæmd hjá
þeim,“ sagði Ásgeir.
Það er aldrei aö vita nema íslensk
sagnkerfi séu framtíðar útflutnings-
vara fyrir erlendan markað bridge-
spilara. Og víst er að það er stór
markaður því þeir eru margir sem
geta lesið bridgebækur á ensku. Það
geta verið tugir, ef ekki hundruð
þúsunda manna sem hafa áhuga á
að fræðast um hvernig það sagnkerfi
er sem aflar mönnum HM-titla.
-ÍS
4
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
MORGUNVERÐARFUNDUR I
SÚLNASALNUM, HÓTEL SÖGU
ÞRIÐJUDAGINN 29. OKTÓBER 1991
KL. 8.00-9.30
ÍSLENSKT VIÐSKIPTALÍF
í NÝRRI FRAMTÍÐARMYND
Verði samningurinn um evrópskt efnahagssvæði að veru-
leika gjörbreytist framtíðarmynd íslensks viðskiptalífs.
Hún breytist raunar hvort sem er með nýjum viðskiptahátt-
um í heiminum. Um þessi viðhorf verður fjallað á fundinum.
Framsögumenn:
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
„Nýjar aðstæður i íslenskum við-
skiptum"
Björn Friðfinnsson ráöuneytisstjóri
„Viðskiptasamkeppni á nýjum nót-
um“
Ólafur Daviðsson, framkvæmdastjóri
FÍI
„Atvinnufífið mun taka stakkaskipt-
um“
Árni Árnason, framkvæmdastjóri
Árvíkur hf.
„Áhrif á fyrirtæki i viðskiptum?“
Framsöguræður taka 40 mínútur og allt að 30 mínútur
gefast fyrir fyrirspurnir og svör
Fundarstjóri: Sigrún Traustadóttir, fjármálastjóri
Hagvirkis-Kletts hf.
Aðgangur með morgunverði af hlaðborði kr. 1.000.
Fundurinn er opinn, en mikilvægt er að þátt-
tökutilkynningar berist í síma 678910 fyrir
klukkan 16 á mánudag
VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS
NY PLATA
f
Nú er Rúnar Þór kominn meö
nýja plötu yfir hæöina og er
ferskari en nokkru sinni. Hann
hefur fyrir löngu skipaö sér í hóp
fremstu lagahöfunda okkar og meö
þessari plötu bætir hann mörgum
frábærum lögum í safnið. Enn eitt
skrefiö upp á viö hjá Rúnari Þór.
Þessa plötu verður þú aö eignast.