Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Side 20
20
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
Kvikmyndir
„Tortímandinn" - atriðin sem vantar:
Ekki er allt sem sést
Nú er mikiö í tísku í kvikmynda-
heiminum aö endurbæta frægar
kvikmyndir til endursýningar í bíó,
sýningar í sjónvarpi eða útgáfu á
myndbandi og leysidiski.
Þetta er nú engin ný bóla, D.W.
GrifTith var aö dútla í Birth of a
Nation í ein tuttugu ár meðan hún
var í sýningu frá 1915 og þótti sjálf-
sagt. Stundum eru breytingar á
myndunum léttvægar en stundum
miklar og vel auglýstar. Arabíu-
Lawrence og Spartacus voru end-
ursýndar nýlega í bíó með pompi
og pragt og nýjum atriðum. Legal
Eagles var sýnd í sjónvarpi með
öðrum endi og Japanir sáu Glen
Close fremja sjálfsmorð í Fatal
Attraction. Out of Africa, Heaven's
Gate, Sea of Love og Dune voru
allar lengdar um og yfir um 20
mínútur. Frakkar fengu 45 dásam-
legar mínútur í viðbót af The Big
Blue og Costner er að spá í að lengja
Dansinn um þriðjung.
En til þess að geta bætt myndina
einhverntímann seinna þarf eitt-
hvaö aö hafa veriö 'tekiö sem ekki
var notað. Það er gert í nánast
hverri einustu mynd. Ef um stór-
myndir er að ræða þá kvíast oft út
hvað varð eftir. Hver kannast ekki
við að hafa séö atriði úr komandi
mynd, sem síöan sást ekki í mynd-
inni?
Leikstjórinn James Cameron er
frægur fyrir að skrifa og taka mik-
ið meira efni en hann notar á end-
anum í kvikmyndum sínum. Þegar
Aliens var sýnd í sjónvarpi í
Bandaríkjunum voru um 20 mínút-
ur af áður óséðu efni. Allir sem sáu
The Abyss muna hve endirinn var
ómögulegur. Ekki nema von því
það vantaði yfirvofandi heimsend-
ir sem var aðdragandinn að hon-
um.
Tortímandinn 2: Dómsdagur er
engin undantekning, en í þetta
skipti var gerð myndarinnar hrað-
að svo mikiö að búiö var að dreifa
ljósmyndum úr atriðunum, sem
var síðan sleppt, út um öll blöð auk
þess að um innihald atriðanna
mátti lesa í hinum ýmsu greinum
fagtímarita, aðdáendum bæði til
mikillar gleði og gremju.
Sum horfin atriði eru bara
aukadót sem auðveldlega má fórna
fyrir tíma en önnur nema á burt
mikilvægar upplýsingar um hegö-
un persónanna og rýra það sem
kemur á eftir og átti að vera í fram-
haldi.
Hér á eftir fer samantekt af
nokkrum atriðum sem upphaflega
áttu að vera í Tortímandanum 2:
Dómsdagur. Þau er nær öll að finna
í bók samnefndri Randall Frakes,
sem skrifuö er eftir frumdrætti
handrits Cameron og William Wis-
her.
Athugið að lestur þess sem fylgir
mun eyðileggja myndina fyrir þeim
sem ekki hafa séð hana auk þess
sem erfitt er að átta sig á samheng-
inu.
ítarlegri
framtíóarsýn
Hernaðarátökin milli fjölþjóða-
hersins og Skynet í byrjun mynd-
arinnar áttu að vera mun umsvifa-
meiri. Ný vopn koma til sögunnar:
„Arrachnid Centurion" sem labbar
um á tveim löppum og „Silver-
fish“, flöt sprengja sem skýst eftir
jörðinni og springur undir fómar-
lambinu. I miðjum bardaga stoppa
allir tortímendumir og HK-vélarn-
ar hrapa af himnum ofan. Stríðið
er búið, Skynet- móðurtölvunni
hefur verið tortímt.
Sarah famkvæmir heilaskurð á tortímandanum með skrúfjárni. Þetta atriði kostaði ekki undir 500 þús. $ en
var sleppt.
Hermaðurinn úr Tortímandanum, Kyle Reese, heimsækir Söru í draumi
meðan hún er á hælinu.
Árið 2029 er Sarah gömul en al-
sæl. Förðunin er verk Stan Winst-
on Studios en kom vist ekki nógu
vel út.
Hundruð
af tortímendum
John Connor fer með sveit
manna inn í gríöarstórt vélvirki
þar sem hann finnur gríðarstóra
tímavél. Tæknimenn hans starta
henni og Kyle Reese, sem var búinn
bjóða sig fram í förina stígur inn í
hana og er bókstaflega skotið aftur
í tímann. Undirforingi Connor spyr
hvaö verði um Reese. Connor svar-
ar að hann klári verkið og deyi.
Einnig að hann sé faðir sinn.
Tæknimennirnir staðfesta vissu
John fyrir því aö tveir tortímendur
hafi verið sendir aftur í tímann af
Skynet. Connor finnur vélina sem
hýsti frumgeröina T-1000 og
geymslustað T-800 tortimendanna.
Hundruð af þeim bíða í röðum í
kæli, tíu stykki af hverri líkams-
gerð (útskýrir af hverju tortímend-
urnir eru eins í útliti). Connor finn-
ur röðina þar sem Schwarzeneg-
ger-gerðin er. Þar er eitt stæði tómt.
Rosaleg byrjun en hefði kostað
fúlgur sem ekki voru til. Vélarnar
voru teiknaöar en Cameron hætti
við allt atriðið því honum fannst
ekki þörf á því að sýna tímavélina,
áhorfendur væru með á nótunum.
Verst að þarna detta út nauðsyn-
legar skýringar líka.
Kyle Reese snýr aftur
Söru dreymir í klefanum sínum
að Kyle Reese, hermaðurinn sem
lét líf sitt fyrir hana forðum, sé
kominn aftur. Hann segir henni að
hún verði að vera sterk, sonur
þeirra sé í hættu og heimurinn
hafi ekki mikinn tíma eftir (það eru
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
aðeins tvö ár í dómsdaginn 1997).
Atriðið er góð vísun í samband
þeirra í fyrstu myndinni, sem
margir aðdáendur telja eitt það
rómantiskasta sem sést hefur. Það
heföi líka sýnt mýkri hlið á Söru
Connor sem er sjálf orðin eins og
tortímandi. Draumurinn átti að
enda á tortímendahausnum sem
sést í byrjun myndarinnar. Þetta
atriði var tekið og bar tökurnar upp
á sama dag og fjölþjóðaherinn byrj-
aði að sprengja Bagdad.
Eftir að hafa drepið fósturfor-
eldra Johns, drepur T-1000 hund-
inn, Max, og sér á hálsbandi hans
að hann heitir ekki Wolfie. T-100 fer
og rannsakar herbergi Johns og
finnur leynistað þar sem hann
geymir kassetturnar sem mamma
hans talaði inn á og myndir af
mæðginunum með hinum ýmsum
skæru- og málaliðum í Mið- og Suð-
ur-Ameríku. Finnur einnig bunka
af bréfum frá Söru á hælinu og
Salceda-fjölskyldunni í eyðimörk-
inni. Fær þannig heimilisföngin.
Atriðin voru ekki tekin.
Þegar þau eru nýkomin á bíla-
verkstæðið segir Sara við tor-
tímandann að hann líti vægast sagt
illa út. Hann skoðar möguleg svör
og svarar í sömu mynt. Ekki tekið
Tortímandinn
skorinn upp
Þegar John spyr tortímandann
hvort hann geti lært hluti svo hann
sé ekki alltaf svona mikill klunni
þá svarar hann að að hann gæti
það en heilakubburinn sinn sé
stilltur þannig að hann geri það
ekki. Sarah og John skera þá upp
tortímandann og taka úr honum
kubbinn (sami kubbur og sá brotni
í rannsóknarstofu Cyberdyne).
Atriöiö var snilldarlega útfært á
þann hátt aö um leið og Sara er að
opna hausinn á tortímandanum,
séð aftan frá, sést hausinn á
Schwarzenegger í speglinum fyrir
framan. Hausinn séð aftan frá er
brúða, en spegillinn er í raun gat á
veggnum sem opnast yfir í sviðs-
mynd sem hefur verið smíðuð á
þann hátt að hún sé alveg eins og
spegilmynd. Þar eru Schwarzeneg-
ger og tvíburasystir Lindu Hamil-
ton að leika spegilmyndina. Camer-
on hreyfir siðan myndavélina
þannig að þær sjást báðar og úti-
lokar að spegilmyndinni sé bætt
inn eftir á.
Eftir að hafa tekið kubbinn úr
honum þá vill Sara eyðileggja hann
en John stoppar hana og segir við
hana ef að hún vilji aldrei hlusta á
hann hvernig eigi þá aðrir að geta
það í framtíöinni. Hún hættir viö
og setur kubbinn aftur í eftir að
hafa breytt stillingunni. Þegar tor-
timandinn „vaknar" aftur spyr
hann þau hvers vegna þetta hafi
tekið svona langan tíma. Atriðinu
var sleppt og setning „dubbuð" í
staðin þar sem tortímandinn segir
að hann læri því meira sem hann
umgengst mannfólkið meira.
Tortímandinn
lærir að brosa
Þegar þau stoppa hjá bensínstöö-
inni og skyndibitastaðnum á leið í
eyðimörkina þá reynir John að
kenna tortímandanum að brosa.
Hann gerir nokkarar tilraunir en
tekst ekki alveg. Þetta skýrir hvers
vegna tortímandinn sést geifla sig
nokkrum sinnum eftir það. Af sam-
henginu að dæma í nærliggjandi
skotum þá var þetta atriði mjög lík-
lega tekið.
Samtal milli vísindamannsins
MOes Dyson og konu hans leiöir í
ljós hve djúpt hann er sokkinn í
rannsóknir sínar og hefur íjarlægst
fjölskyldu sína. Atriðið var tekið.
Dyson sér fyrir sér dómsdaginn
um leið og hann deyr á rannsókn-
arstofunni. Skotin sem voru tekin
voru aö hluta til notuð undir titlun-
um í upphafi myndarinnar.
Eftir að vera skotið í þúsund bita
er T-1000 aö byrja að klikka. Það
grípur utan um handriö en hendin
festist og byrjar að taka á sig lit
handriðsins. T-1000 losar hendina
og lagfærir gafiann.
Fætur T-1000 festast við gólfiö í
stálbræðslunni og taka á sig lögun
þess. Gerist aftur þegar T-1000 hef-
ur breytt sér í Söru Connor og John
Connor sér það. All tekið, en Cam-
eron fanst það hægja á eltinga-
leiknum. Þetta voru líka einu
tölvubrelluatriðin sem var sleppt.
Annar endir
Lokaatriði myndarinnar átti að
gerast árið 2029, í skrúðgarði í
Washington. Það er augljóst að
stríðinu var afstýrt. Sarah Connor
er orðin gömul (sjá mynd) og John
er að leika sér með tveim börnum
sínum. Sarah segir að John berjist
núna fyrir friði á öðrum vígveOi,
þinginu.
SennOega hætt við atriðið af því
að Cameron hafi verið óánægður
með öldrunarförðunina á Lindu
Hamilton. Skot af John hefði verið
fínt mótvægi við skot af honum í
upphafi. Núna hefur hann ekkert
ör.
í staðinn endaði myndin á skoti
af götu tekið úr bíl á ferð, sama
skot og í upphafi áhlaupsins á
rannsóknarstofuna. Mjög óviðeig-
andi þar sem skotið táknaði í upp-
hafi að Sarah sæi ekki lengur skýrt
fyrir sér framtíðina, hún væri
...orðin eins og svartur þjóðveg-
ur að nóttu t0“. En eitthvað varð
að gera. Sumum finnst að myndin
heföi átt að enda um leið og slokk-
aði á tortimandanum.
Þar sem mikið af stórum atriöum
ættu aö vera til þá er aldrei aö vita
nema þau verði notuð seinna.
Aðdáendur Cameron bíða með
óþreyju eftir mögulegri útgáfu af
The Abyss á leysidisk með nýjum
endi.
Kannski verður Tortímandinn 2:
dómsdagur með meiru sýnd ein-
hvers staðar, einhverntímann.