Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Qupperneq 31
iHMtmii
AJ
'91.
#
Allar konur eiga að gera grindarbotnsæfingar:
JVleira sjálfsöryggi
og betra kynlíf
- segir Esther Sigurðardóttir sjúkraþjálfari
Esther Sigurðardóttir sjúkraþjálfari segir að þvagleki hjá konum sé ekkert feimnismál, enda tiltölulega auð-
velt að hjálpa með einföldum æfingum. DV-myndir Hanna
í Mætti eru að fara i gang námskeið fyrir konur með þvaglekavanda-
mál. Gott er að liggja á bakinu, t.d. í rúminu á kvöldin, og gera æfing-
una fyrirhafnarlaust. Jenný Ólafsdóttir kennari sýnir hvernig konan get-
ur slappað af og gert æfinguna.
„Talið er að fimmtíu prósent
allra kvenna eigi við þvagleka-
vandamál að stríða. Aðeins fimm
til tíu prósent þeirra leita til lækna
vegna þess,“ segir Esther Sigurðar-
dóttir, sjúkraþjálfari á kvennadeild
Landspítalans, í samtali við DV.
Esther starfar með konum sem
hafa þurft að gangast undir aðgerð
vegna þvagleka og kennir þeim
grindarbotnsæfingar sem eru öll-
um nauðsynlegar. Esther leggur
áherslu á að það séu ekki einungis
þær konur, sem hafa þurft að gang-
ast undir aðgerð, sem þurfa að gera
æfingar - það þurfa allar konur að
gera. Þvagleki er fyrst og fremst
vandamál kvenna og það eykst eft-
ir barnsburð, við tíðahvörf og með
aldrinum.
„Grindarbotnsvöðvar eru margir
vöðvar sem mynda eins konar gólf
í botni mjaðmagrindarinnar. Hlut-
verk þeirra er að halda uppi og
styðja við líffærin í grindarholinu,
þ.e. endaþarm, þvagblöðru og
legop. Einnig er hlutverk þeirra að
standast aukinn þrýsting sem
myndast þegar við hóstum, hnerr-
um, hoppum, hlæjum eða lyftum
þungum hlutum upp. Vöðvarnir
eru undir venjulegum kringum-
stæðum sterkir og stinnir en geta
orðið mjög slappir og helsta ástæða
þess er meðgangan og fæðingin,"
segir Esther ennfremur.
Ekkert leyndarmál
„Eftir fæðingu eru allar konur
með slappa grindarbotnsvöðva og
þess vegna er mikil áhersla lögð á
aö þjálfa þá meðan konan liggur á
fæðingardeild. Það er hins vegar
ekki nóg því áframhaldandi þjálfun
er nauðsynleg. Fyrstu merki þess
aö konan er ekki með nógu sterka
grindarbotnsvöðva er að hún finn-
ur fyrir áreynsluþvagleka. Vöðv-
arnir síga niður ef þeir eru orðnir
mjög slappir, önnur hffæri fylgja á
eftir og þá fær konan þvagblöðru-
sig, legsig eða endaþarmssig."
Esther segir að þvagleki sé ekkert
nýtt vandamál. Hins vegar sé að
opnast umræða um þetta vandamál
en yngra fólk er miklu upplýstara
um líkama sinn en það eldra. Marg-
ar konur vita ekki einu sinni hvar
grindarbotninn er. Umræða um
aukna hefibrigði og hreysti, ásamt
áhuga fólks á líkamsrækt, hefur
opnað umfiöllun um'vandamál af
þessu tagi sem hingað til hafa verið
helgasta leyndarmál kvenna. „Sem
betur fer því þvagleki er ekkert
leyndarmál. Nauðsynlegt er að kon-
ur fái vitneskju um að í mörgum til-
fellum er hægt að hjálpa þeim með
eintoldum æfingum,“ segir Esther.
Esther starfar á kvennadeildinni
og þangað koma konur sem þurfa
að gangast undir aðgerð. „Þær kon-
ur, sem ég starfa með, eru með leg-
sig, þvagblöðrusig eða endaþarms-
sig og eiga við mikið þvagleka-
vandamál að stríða. Aðgerð er því
nánast óhjákvæmileg. Það er hins
vegar fyrirbyggjandi starfið sem
við viljum leggja áherslu á. Með
því væri hægt að koma í veg fyrir
aðgeröir. Sjúkraþjálfarar vilja að
fullreynt sé með æfingum áður en
til aðgerðar er gripið. Aðgerðin
leysir ekki alltaf vandamál kon-
unnar og hún getur jafnvel mistek-
ist ef konan er ekki nógu dugleg
að æfa sig. Það er því allt unnið
meö æfingunum. Þegar búið er að
hengja upp t.d. þvagblöðru verður
varanleiki aðgeröarinnar betri ef
grindarbotnsvöðvarnir eru styrkt-
ir,“ segir Esther ennfremur.
Þvaglekinn
stjórnar lífinu
Hún bendir á að þvaglekavanda-
mál hái konunni í öllu hennar
venjulega lífi. „Þvagleki fer í mörg-
um tilfellum að stjórna lífi
kvenna," segir Esther. „Þessar
konur þurfa alltaf að ganga með
bindi. Þær hugsa stöðugt um hvort
þvaglykt sé af þeim. Stór hluti þess-
ara kvenna, sem eiga við vanda-
málið að stríða, stundar enga leik-
fimi vegna áreynslunnar sem
henni fylgir og þá jafnframt þvag-
lekanum. Þær kæra sig ekki um
að vera innan um aðrar konur
undir þeim kringumstæðum.
Þannig fer þvaglekinn að stjórna
því hvað konan gerir og hvað hún
gerir ekki. Konur velta mikið fyrir
sér hvort salerni sé nálægt þar sem
þær eru og margar fara því ekki á
hestbak, skíði, í fiallgöngur eða
útilegur. Sumar dansa ekki og fara
heldur ekki í leikhús."
Áhrif á kynlífió
- Hefurþettaáhrifákynlífþessara
kvenna?
„Já, það gefur auga leið að þetta
skiptir miklu máh í samlífi þar sem
þessir vöðvar eru hluti af kynfær-
um konunnar. Ef grindarbotns-
vöðvarnir eru slappir hafa leggöng-
in tilhneigingu til að styttast og
víkka og styðja þar af leiðandi verr
viö getnaðarhminn."
Esther segir að konur, sem eru
um og yfir sextugt, tali ekki um
kynlif sitt og því sé oft erfitt að
ræða þau mál við þann aldurshóp.
Hins vegar eru yngri konur opnari
og hefur hún gjarnan bent þeim á
að með grindarbotnsæfingum geti
þær stórbætt samlífið. Sterkir
vöðvar koma því jafnt í veg fyrir
þvagleka sem og að bæta kynlífið."
- En hvernig geta konur æft sig og
vitað hvort rétt sé?
„Við leggjum áherslu á að konur
læri að þekkja vöðvana og spenn-
una í þeim. Kona getur sjálf fundið
spennuna í vöðvunum með því að
stöðva þvagbunu við þvaglát. Ekki
er tahð æskilegt að konur æfi sig á
þann hátt, aðeins finni hvernig
vöðvarnir vinna. Einnig getur kon-
an fundið spennuna með því að
stinga fmgrum upp í leggöng og
spenna utan um. I þriðja lagi er að
spenna vöðvana um getnaðarlim-
inn viö samfarir og athuga hvort
hinn aðilinn finnur fyrir spenn-
unni.“
Fyrir stuttu kom hingaö norsk
kona, Kari Bo, en hún er doktor í
grindarbotnsfræðum. Kari hélt
fyrirlestur um þetta vandamál fyr-
ir íþróttakennara og sjúkraþjálfara
hér á landi. Margir íþróttakennar-
ar hafa tekið upp þessar æfmgar í
leikfimiprógrammi sínu og fengið
þakklæti frá konum á öllum aldri.
Hins vegar er stór hópur kvenna,
sem virkilega þurfa á æfmgum að
halda, sem ekki kemur inn í leik-
fimisalina. í líkamsræktarstöðinni
Mætti eru að fara í gang sérstök
námskeið fyrir þær konur. Jenný
Ólafsdóttir og Ásta V. Guðmunds-
dóttir, kennarar í Mætti, ætla að
setja upp námskeið sem eingöngu
verða fyrir konur sem eiga við
þvaglekavandamál að stríða. Að
sögn Ástu renna þær blint í sjóinn
því erfitt sé að gera sér grein fyrir
hvort konurnar koma þó þeim
standi hjálpin til boða. „Við von-
umst sannarlega til að þær komi
og leiti sér hjálpar. Það verða ekki
margar konur í hóp og við munum
fylgja hverri og einni eftir með
þjálfunina," sagði Ásta.
Jenný hefur starfað með öldruö-
um í líkamsrækt á Seltjarnarnesi
og látið þá gera grindarbotnsæfmg-
ar, samhliða öðrum æfingum.
„Gamla fólkið hefur verið mjög
opið gagnvart þessu og margt
þakklátt. Það er helst að karlmenn-
irnir fari hjá sér þegar ég ræöi um
þetta kvennavandamál en oftast
taka þeir þátt í æfingunum með því
að spenna endaþarmsvöðvana sem
er mjög gott fyrir þá,“ segir hún.
Líka fyrir
ungar stúlkur
Esther ítrekar að það séu þó alls
ekki bara eldri konur sem þurfi á
þessum æfingum að halda. Ungar
stúlkur eiga líka að gera æfingarn-
ar. Sterkir grindarbotnsvöðvar
geta síðar hjálpað þeim í meðgöngu
og fæðingu. „Allar konur eiga að
gera grindarbotnsæfingar. Það
þarf enginn aö skammast sín fyrir
þvagleka og enginn má gleyma að
það er hægt að lækna sig sjálfur,"
segir Esther. „Konur hafa allt aö
vinna og þaö er aldrei of seint að
byrja. Um leið og viö höfum náð
valdi á æfmgunum og finnum
hvernig vöðvarnir starfa og styrkj-
ast öðlumst viö meira sjálfsöryggi
og betra kynlíf.“ -ELA
^^PP! IÐ SUNNUDAG 12-17 SKÍFAN - STÓRVERSLUN
S-K-l-F-A-K | Kringlunni - Laugavegi