Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1991, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1991.
49
Bridge
(
|
1
NEC HM1 Yokohama:
ísland fékk fljúgandi start í
úrslitaleiknum við Pólverja
Bridge
Stefán Guðjohnsen
í lokaða salnum virtust Pólverjarn-
ir með passkerfið vera eitthvað úti á
þekju. Balicki og Zmudznsky sátu
n-s, en Guölaugur og Öm a-v:
Austur Suður Vestur Norður
pass 1 hjarta 1 spaði 2 spaðar(l)
pass 3spaöar(2)pass 4lauf
pass 4tíglar pass 4spaðar
pass 4grönd pass 6hjörtu
pass pass pass
(1) 13 + HP
(2) Annaðhvort 7-11 HP eða geim-
krafa
(3) Stuttur í spaða
(4) Geimkrafa og spurning
(5) 0-5-5-3 Og 13-15 HP
(6) Romanlykilspilablackwood fyrir
tigul
(7) 0-3 lykilspil en neitar tromp-
drottningu
íslenska landsliðið fagnar kærkomnum sigri á HM i Yokohama í Japan. Aðalsteinn Jörgensen, sem er annar frá hægri, var ekki heppinn með leguna
i hjartalitnum i þessu spili í úrslitaleiknum gegn Pólverjum. DV-mynd Isak Sigurðsson
Ég sagði að Pólverjarnir hefðu ver-
ið úti á þekju og það kom einmitt
fram í útskýringum þeirra á sagn-
röðinni. Þrír spaðar voru útskýrðir
sem 1-5-2-5 og 15-17 HP. Fjögur lauf
áttu að vera Romanlykilspila-
blackwood fyrir lauf, en tekið fyrir
tígul.
Ef allir lesendur hafa ekki nú þegar
yfirgefið mig, þá er rétt að benda á,
aö Pólverjarnir komu hér um bil
standandi niður.
Alla vega unnu þeir sögnina eftir
tígulútspil frá Guðlaugi þegar gosinn
átti fyrsta slaginn. Balicki svínaði
laufinu rétt enda var þægilegra að
spila vestur upp á drottninguna. Síð-
an spilaði hann hjarta og svínaði átt-
unni. Þegar hún hélt var spilið unnið
og Pólverjarnir skrifuðu 1370 í sinn
dálk.
í opna salnum sátu Jón og Aðal-
steinn n-s, en a-v Gawrys og Lasocki.
Nú gengu sagnir ofur eðlilega:
Austur Suður Vestur Norður
pass 1 hjarta lspaöi2 spaðar(l)
pass 3spaðar(2)pass 4 lauf
pass 4 tíglar pass 4 spaðar
pass 4 grönd pass 6 hjörtu
pass pass pass
(1) geimkrafa og hjartasamþykkt
(2) Splinter
Vestur spilaði út tígultíu og Aðal-
steinn fékk slaginn á gosann. Það
gæti verið viss hætta við það að spila
tígli á kóng, eða laufi á kóng til þess
að tvísvína trompinu og því lagði
Aöalsteinn niður trompás. Legan í
spilinu var sú eina sem hann tapaði
á og hann var því einn niður. Það
voru 100 til Pólverja í viðbót og 16
impa gróði.
Atburðir lokaða salarins voru hins
vegar kærðir til keppnisstjórnar og
þar var spurningin aöeins hve mikið
ætti að sekta Pólverjana. Þrír impar
var úrskurðurinn, en samt 13 impa
tap fyrir ísland.
Stefán Guðjohnsen
ísland byrjaði vel í úrslitaleiknum
við Pólland og eftir 9 spil var staðan
35-13 fyrir ísland. Þá var komið að
spili 10, sem reyndist vera umdeild-
asta spil lotunnar.
A/Allir
♦ ÁD5
V G654
♦ K5
+ K1064
♦ K98763
V 2
♦ 1098
+ D98
* G1042
V KD7
♦ D62
+ 732
♦ -
V Á10983
♦ ÁG743
* ÁG5
Norðurlandsmót í tvímenningi
Góð þátttaka var í Norðurlandsmótinu í
tvimenningi sem fram fór á Siglufirði þann
19. október. Alls tóku þátt 34 pör og spilaður
var Mitchell, tvær 26 spila lotur. Norður-
landsmeistarar 1991 urðu Akureyringarnir
Pétur Guðjónsson og Reynir Helgason og
þess ber aö geta að Reynir vann einnig á
mótinu í fyrra. Athygli vakti einnig árangur
bræðranna Birkis og Ingvars Jónssona, 11
og 12 ára, en þeir urðu í 16. sæti. Árangur
efstu para varð annars sem hér segir:
1. Pétur Guðjónsson-Reynir Helgason 800
2. Anton Sigurbjörns.-Bogi Sigurbjöms. 793
3. Sigfús Steingr.-Sigurður Hafliðas. 769
4. Anton Haraldsson-Stefán Ragnarsson 758
5. Kristján Blöndal-Viðar Jónsson 751
6. Bjarni Brynjólfsson-Jón Ö. Berndsen 708
7. Ásgrímur-Jón Sigurbjörnssynir 701
Bridgefélag Siglufjarðar
Vetrarstarf B. Siglufjarðar hófst 30. septemb-
er með aöalfundi. Fram kom að vart hafa
siglfirskir spilarar staðið sig betur í spila-
mennskunni en undanfarið ár. Fjárhagsieg
staða félagsins er rpjög góð en benda má á
að raíkil áhersla er lögð á að spilarar taki
þátt í sem flestum mótum og er það fóst regla
að félagiö borgar öll keppnisgjöld og tekur
þátt í ferðakostnaði. Á fundinum var kjörin
ný stjórn og er formaður hennar Bogi Sigur-
björnsson.
Bikarkeppni Norðurlands
Bikarkeppni sveita á Norðurlandi fer nú að
hefjast og áformaö er að spila eina umferð
fyrir áramót. Skráning sveita fer fram bjá
Jóni Sigurbjörnssyni á Siglufirði í síma
96-71350, Helga Steinssyni Syðri-Bægisá í
síma 95-26826, Óla Kristinssyni á Húsavík í
síma 96-41314 og Frímanni Frimannssyni á
Akureyri í síma 96-24222 á daginn og 96-21830
á kvöldin.
Skráningargjald er óbreytt frá fyrra ári og
verður krónur 4 þúsund á sveit. Það skal
tekið skýrt fram að öllu spilafólki á Norður-
landi eystra og vestra er heimil þátttaka.
Skrá þarf sveitir fyrir 10. nóvember næst-
komandi. Núverandi bikarmeistari Norður-
lands er sveit íslandsbanka á Siglufirði sem
lagði sveit Grettis Frímannssonar í hörku-
úrslitaleik á Sauöárkróki í fyrra. Dregið
verður í tvær fyrstu umferðirnar strax að
lokinni skráningu sveita og skal fyrstu um-
ferð vera lokiö fyrir 1. janúar 1992 og ann-
arri umferð fyrir 19. janúar 1992. Sveitin, sem
fyrr er nefhd þegar sveitir eru dregnar sam-
an, á heimaleik og sér hún um spilastað og
móttökur.
Bridgefélag Sauðárkróks
Síðastliðið mánudagskvöld var spilaður eins
kvölds tvímenningur með forgjöf. Efstu pör
urðu:
1. Lárus Sigurðs.-Sigurður Gunnarsson 260
2. Kristján Blöndal-Ágústa Jónsdóttir 255
3. Skúli Jónsson-Bjarni Brynjólfsson 254
4. Stefán Skarphéðinss-Garðar Guðjóns. 243
Næst tvö mánudagskvöld verður spiluð
hraðsveitakeppni.
íslandsmót kvenna og
yngri spilara í tvímenningi
íslandsmót kvenna og yngri spilara verður
haldið helgina 26.-27. október í Sigtúni 9.
Allir þeir sem fæddir eru 1966 eöa síðar geta
tekið þátt í keppni í yngri flokki. Áhorfendur
í þessa keppni eru boðnir velkomnir ef þeir
vilja fylgjast með þvi besta í kvennabridge
og unglingabridge.
Keppnisstjóranámskeið
Bridgesamband íslands efhir til námskeiðs í
keppnisstjórn og tölvuútreikningi dagana 6.,
7. og 8. desember næstkomandi i tengslum
við útkomu nýrrar þýðingar á bridge-lögun-
um. Námskeiðið verður sett upp á sama hátt
og þau námskeið sem Danska bridgesam-
bandið hefúr gengist fyrir, að viðbættu þjálf-
un í útreikningi á tölvu.
Námskeiöið verður haldið í húsi Bridge-
sambands íslands, Sigtúni 9, og skráning í
námskeiðið er einnig þar. Takmarka þarf
fiölda þátttakenda við 26 og hámark 2 frá
hverju félagi. Félögin þurfa að sækja um
fyrir þátttakendur á sínum vegum og verði
þátttaka mjög mikil er hugsanlegt að halda
sams konar námskeið úti á landi eftir ára-
mótin. Allar nánari upplýsingar verða gefn-
aráskrifstofuBSÍísíma 91-689360. -ÍS